Fréttablaðið - 05.03.2004, Side 40
■ ■ KVIKMYNDIR
18.00 Hinsegin bíódagar í Regn-
boganum. Bróðir og utangarðsmaður.
20.00 Hinsegin bíódagar í Regn-
boganum. Piltar með piltum: stutt-
myndir.
22.00 Hinsegin bíódagar í Regn-
boganum. Þúsund friðarský á himni.
■ ■ TÓNLEIKAR
19.30 Söngvararnir Kristinn Sig-
mundsson, Elín Ósk Óskarsdóttir,
Eivör Pálsdóttir, Ólafur Kjartan Sigurð-
arson og Snorri Wiium koma fram
ásamt upprennandi söngvurum við óp-
erudeild Söngskólans í Reykjavík á tón-
leikum með Sinfóníuhljómsveit Ís-
lands í Háskólabíói. Einnig kemur fram
kór núverandi nemenda Söngskólans og
Óperukórinn í Reykjavík. Tónleikarnir
eru haldnir í tilefni af 30 ára afmæli
Söngskólans í Reykjavík.
■ ■ LEIKLIST
14.00 Snúður og Snælda sýna
gamanleikinn Rapp og rennilásar eftir
Gunnhildi Hrólfsdóttur í Ásgarði í Glæsi-
bæ.
20.00 Meistarinn og Margaríta í
leikgerð Hilmars Jónssonar í Hafnar-
fjarðarleikhúsinu.
20.00 Chicago eftir Kander, Ebb og
Fosse á stóra sviði Borgarleikhússins.
20.00 Þetta er allt að koma eftir
Hallgrím Helgason í leikgerð Baltasars
Kormáks á stóra sviði Þjóðleikhússins.
20.00 100% „hitt“ með Helgu
Brögu í tónlistarhúsinu Ými, Skógarhlíð
20.
20.00 Leikhúskórinn á Akureyri
frumsýnir Kátu ekkjuna eftir Franz
Lehár með Öldu Ingibergsdóttur,
Steinþóri Þráinssyni, Aðalsteini Berg-
dal, Ara Jóhanni Sigurðssyni og
Bjarkeyju Sigurðardóttur í aðalhlut-
verkum.
20.00 Aukasýning á Erling eftir
Hellstenius og Ambjörnssen í Borgar-
leikhúsinu.
21.00 5stelpur.com í Austurbæ.
■ ■ LISTOPNANIR
17.00 Sýning Erlings Klingbergs
verður opnuð í Listasafni Reykjavíkur - Ás-
mundarsafni. Sýningin er annar hluti af
þremur í sýningaröðinni Píramídarnir.
■ ■ SKEMMTANIR
20.30 Cabrí Tríó leikur fyrir dansi á
dansleik Félags eldri borgara í Hafnar-
firði í Hraunseli, Flatahrauni 3.
21.00 Aaron Carl, Maggi Jóns aka
Blake, Margeir og Tommi White halda
uppi stuði á Kapital.
22.00 Amon Amarth frá Svíþjóð,
Brain Police, Changer og Múspell spila
á Grand Rokk.
23.00 Hljómsveitin Westmenn frá
Færeyjum leikur fyrir dansi á færeyskum
dögum á Fjörukránni.
Hljómsveitin Hunang og Sixties spil-
ar í Klúbbnum við Gullinbrú.
Sú Ellen, Dúkkulísur, Búálfar og
fleiri mætir Austfirðingar á Austfirðinga-
balli í Players Kópavogi.
Hússnúðarnir DJ Áki Pain á efri
hæðinni og DJ’s Bling & Ghetto á neðri
hæðinni á Pravda
Hljómsveitin Spútnik leikur á Kaffi
Akureyri.
DJ Kári spilar á Vegamótum.
Gullfoss & Geysir verða með nám-
skeið í samskiptum kynjanna í Leikhús-
kjallaranum.
Soulsveitin Straumar og Stefán
skemmtir á NASA við Austurvöll.
Plast spilar á Café Amsterdam
Tryggvagötu
Dúettinn Dralon skemmtir í Ara í
Ögra.
Plötusnúðar rokkblaðiðsins Kerrang
rokkar á Gauknum með Mínus og
Jarcrew.
■ ■ FYRIRLESTRAR
15.30 Guðmundur Jónsson arki-
tekt fjallar um menningartengda ferða-
þjónustu á Menningartorgi Háskólans
á Akureyri í Þingvallastræti 23, stofu 14
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki
síðar en sólarhring fyrir birtingu.
40 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
hvað?hvar?hvenær?
2 3 4 5 6 7 8
MARS
Föstudagur
Guðmundur Jónsson arkitekthefur sérhæft sig í hönnun
bygginga og sýninga fyrir menn-
ingartengda ferðaþjónustu. Í dag
ætlar hann að flytja fyrirlestur í
Háskólanum á Akureyri um ýms-
ar sýningar og byggingar sem
hann hefur hannað, bæði í Nor-
egi og víðar. Þar á meðal má
nefna þjóðgarðsmiðstöðina á
Harðangursheiði í Noregi,
Norsku fjarðarmiðstöðina í
Geirangursfirði og Systurskipið
í Rørvik.
„Þetta eru ýmist byggingar
eða sýningar sem við höfum ver-
ið að hanna og þær eru ýmis
konar eðlis,“ segir Guðmundur.
„Þær geta snúist um menningu
ákveðinna staða eða ríkis í breið-
um skilningi. Einnig getur
ákveðinn söguatburður eða sögu-
frægar persónur verið viðfangs-
efni þeirra. Þetta getur líka snú-
ist um staðhætti eða sérstöðu
náttúrufars.“
Guðmundur, sem rekur litla
arkitektastofu í Noregi, segist
gjarnan hafa einhver áberandi
tákn til grundvallar að útliti
bygginganna.
„Oft er þar um að ræða ákveð-
inn symbólisma sem hægt er að
sækja í ákveðna sögu eða ákveð-
in nöfn. Til dæmis í Geirangurs-
firði notuðum við orðið „geir“ og
bjuggum til atgeir eða spjót sem
maður kastaði niður í fjörðinn.
Þannig stendur byggingin eins
og spjótsoddur og vísar fram í
fjörðinn. Þetta gerir bygginguna
bæði sérstaka og athyglisverða.“
Í Borgarnesi hefur Guðmund-
ur komið með hugmyndir að
menningarmiðstöðinni Hjálma-
kletti, sem þó er ekki risin enn.
„Þá settist maður niður og las
Egils sögu. Síðan tók ég exi og
hjó í fjallið þannig að byggingin
stendur út úr því eins og
fimmtán metra langt axarblað og
skagar út yfir sjóinn.“
Fyrsta byggingin sem rís eftir
Guðmund hér á landi er viðbygg-
ing við Amtsbókasafnið á Akur-
eyri, sem vígð verður á morgun.
„Mér finnst svolítið skondið
að fyrsta byggingin rísi á Akur-
eyri sem er fæðingarbær minn.“
Árið 1986 bar Guðmundur sig-
ur úr býtum í Norrænni sam-
keppni um tónlistarhús í Reykja-
vík. Hann hefur síðan hlotið yfir
40 verðlaun og viðurkenningar í
samkeppni um byggingarlist.
Hann hannaði einnig Víkinga-
skálann, sem til stendur að reisa
í tengslum við víkingaskipið Ís-
lending í Reykjanesbæ. ■
Ræðst á fjöll og firði
GUÐMUNDUR JÓNSSON
ARKITEKT
Guðmundur flytur í dag fyr-
irlestur á Akureyri um helstu
verk sín sem falla undir
menningartengda ferða-
þjónustu.
■ MENNINGARTENGD FERÐAÞJÓNUSTA
Miðasalan er opin kl. 14-18 alla daga nema sunnudaga og fram
að sýningu sýningardaga. Símasala kl. 10-18 virka daga.
Sími miðasölu: 511 4200
www.opera.is
midasala@opera.is
eftir Mozart
3. sýning lau. 6. mars kl. 19 - ÖRFÁ SÆTI LAUS
4. sýning sun. 14. mars kl. 19 - NOKKUR SÆTI LAUS
5. sýning fös. 19. mars kl. 20 - NOKKUR SÆTI LAUS
6. sýning sun. 21. mars kl. 19 - NOKKUR SÆTI LAUS
Brúðkaup Fígarós
Draumalandið
e. Ingibjörgu Hjartardóttur
Leikstjóri: Þorsteinn Bachmann
FRUMSÝNING
lau. 6. mars kl 20 -uppselt
2. sýn fös. 12. mars kl. 20. -laus sæti
3. sýn lau. 13. mars kl. 20. -laus sæti
Miðasala í í síma 562 9700
www.idno.is
Lau. 13. mars kl. 20:00 örfá sæti
Sun. 21. mars kl. 20:00 laus sæti
Sun. 28. mars kl. 20:00 laus sæti
Fáar sýningar eftir.
Fim. 11/3 uppselt
Fim. 18/3 næstsíðasta sýning
Fös. 26/3 síðasta sýning
Ekki missa af
Sellófon!
Miðasala í Iðnó
sími: 562 9700
Síðustu sýningar.
e. Birgi J. Sigurðsson.
Leikfélag Mosfellssveitar
sími: 566-7788
miðaverð 1.500 kr
Næstu sýningar:
Frumsýning fös. 5. mars
Lau. 6. mars
Fös. 12.mars
Lau.13.mars
Sýnt kl. 20.30
Matur & miði kr. 3.200 f. hópa =10 eða fleiri.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA