Fréttablaðið - 05.03.2004, Síða 41
FÖSTUDAGUR 5. mars 2004 41
Í kvöld verður opnuð í Ásmund-arsafni við Sigtún önnur sýning-
in af þremur í sýningaröðinni
Píramídar.
Erling Klingenberg sýnir þar
myndband og skúlptúra inni í safn-
inu. Fyrir utan safnið stendur svo
sendibíll, sem segja má að sé hluti
af sýningunni.
„Myndbandið fer fram í þessum
sendibíl. Þar sést ég, það er lista-
maðurinn, vera að kastast til og
brölta eitthvað aftan í bílnum á
fleygiferð.“
Hann er líka með eins konar
gosbrunn á vegg, sem notaður
verður á opnun sýningarinnar í
kvöld til þess að veita víni í opnun-
argesti.
„Þetta er gríma sem er afsteypa
af mér. Opnunarvínið kemur út úr
þessari grímu þannig að fólk er í
rauninni að drekka út úr mér í boði
Listasafns Reykjavíkur.“
Erling hefur allt frá námsárum
sínum unnið á húmorískan og
gagnrýnin hátt með ímynd lista-
mannsins.
„Ég er hreint ekki á neinu
egótrippi heldur nota ég sjálfan
mig í eins konar sjálfsskoðun í þágu
heildarinnar. Ég er þá að skoða um-
hverfi listamannsins og hvaða
væntingar eru gerðar til hans.“
Sýning Erlings er sem fyrr
segir önnur í röðinni af þremur,
sem sett er upp í Píramídunum
svonefndu í fremsta hluta safns-
ins, þar sem Ásmundur Sveinsson
hafði vinnustofu sína. Fyrst í röð-
inni var sýning Ásdísar Sifjar
Gunnarsdóttur, en að sýningu
Erlings lokinni tekur Guðný Guð-
mundsdóttir við.
„Þetta er yngri kynslóð en var í
fyrra að sýna í Kúlunni,“ segir
Hekla Dögg Jónsdóttir, sem er
sýningarstjóri píramídasýning-
anna þriggja.
„Ég valdi fólk sem hefur unnið
mjög vel og þétt að sinni myndlist,
en er samt hálfgert huldufólk. Ég
er ekki viss um að fólk viti mikið
um þau.“
Hekla Dögg segist jafnframt
hafa valið myndlistarfólk sem hef-
ur verið erlendis í námi á ólíkum
stöðum og kemur því með ýmsa
strauma með sér.
Sýning Erlings stendur til 28.
mars og er opin alla daga kl. 13–16.
■
Skoðar bröltið í sjálfum sér
■ MYNDLIST
Fermingardagurinn
minn
Gestabók, myndaalbúm
og fyrir skeyti
FÆST Í ÖLLUM HELSTU BÓKAVERSLUNUM LANDSINS
FRAMLEITT AF MÚLALUNDI
- VINNUSTOFU SÍBS
SOULSVEITIN STRAUMAR OG STEFÁN
Tónlistarmennirnir Jón Ólafsson og Stefán Hilmarsson verða gjörsamlega á útopnu með
átta manna soulsveit sinni á Nasa í kvöld.
ERLING OG HEKLA
Erling sýnir innsetningu í Ásmundarsafni við Sigtún í kvöld.
Þeir spila víkingametal eins ogþeir kalla það,“ segir Þor-
steinn Kolbeinsson um sænsku
þungarokksveitina Amon Amarth,
sem spilar á Grand Rokk í kvöld
og úti á Granda annað kvöld. Og
hvað skyldi svo víkingametal
vera?
„Þetta vísar aðallega í yrkis-
efnið, innihaldið í textagerðinni.
Þeir syngja mikið um norræna
goðafræði. Nafnið á hljómsveit-
inni er til dæmis annað heiti á
fjallinu ógurlega í Hringadróttins
sögu.“
Svíarnir hafa meðal annars
gert lag um kvikmynd Hrafns
Gunnlaugssonar Hrafnin flýgur,
sem þeir nefna „As long as the
raven flies“ og endar á stefinu úr
myndinni, Á Sprengisandi.
„Þeir hafa verið starfandi síð-
an 1992,“ segir Þorsteinn, sem
flytur hljómsveitina inn. „Ég
heyrði í þeim fyrir tveimur eða
þremur árum. Þeir eru að koma
hingað með halarófu af blaða-
mönnum á eftir sér frá sex bestu
þungarokkstímaritunum í
Evrópu.“
Tónleikarnir á Grand Rokk
hefjast 22 í kvöld og aldurs-
takmarkið þar er 20 ár. Brain
Police, Changer og Múspell sjá
um upphitun. Annað kvöld er hins
vegar ekkert aldurstakmark á
tónleikum í Tónlistarþóunarmið-
stöðinni úti á Granda, sem hefjast
klukkan 19. Þar hita Andlát, Dark
Harvest og Sólstafir upp. ■
Rokka þungt í kvöld
AMON AMARTH
Sænska þungarokksveitin Amon
Amarth spilar á Grand Rokk í kvöld
ásamt Brain Police, Changer og
Múspell.
FRÉTTAB
LAÐ
IÐ
/RÓ
B
ERT
■ TÓNLIST
L E I K F É L A G A K U R E Y R A R S Ý N I R
Draumalandið
e. Ingibjörgu Hjartardóttur
í leikstjórn Þorsteins Bachmann
FRUMSÝNING 6. MARS
Miðasala 462 1400.
Glæpasaga úr
samtímanum
sem þú mátt
ekki missa af!
Leikarar:
Hildigunnur Þráinsdóttir,
Saga Jónsdóttir, Skúli
Gautason og Þráinn
Karlsson