Fréttablaðið - 05.03.2004, Blaðsíða 50
5. mars 2004 FÖSTUDAGUR50
MYNDASÖGUR Gömlu Tarzan-blöðin,
sem Siglufjarðarprentsmiðja gaf
út í kringum 1980, verða seint talin
til stórverka í heimi teiknibók-
menntanna. Myndirnar eru ekkert
sérstakar og sögurnar einfaldar,
klisjukenndar og þar fyrir utan
allar keimlíkar. Það hvílir þó ein-
hver einkennilegur sjarmi yfir
þessum blöðum, sem nálgast má
einu sinni á ári á Bókamarkaðnum í
Perlunni.
Tarzan er alltaf brattur, nánast
ofurmannlegur í líkamsstyrknum
sem hann öðlaðist við það að alast
upp hjá öpum. Hann talar við dýrin,
sveiflar sér í trjánum og berst
hvarvetna fyrir réttlæti.
Þrátt fyrir villimennskuna er
hann býsna vestrænn í hegðun og
háttum og kemur jafnan einhverj-
um hvítum héraðsstjóranum til
hjálpar þegar misindismenn skjóta
upp kollinum í frumskóginum. Tarz-
an er því í raun útsendari nýlendu-
kúgaranna sem þurfa stöðugt að
hafa vit fyrir innfæddum, sem eru
ýmist hreinræktaðir villimenn eða
varnarlaus og grunnhyggin grey.
Tarzan-blöðin eru því úr takt við
tímann í ýmsum skilningi en sögu-
legt mikilvægi þeirra fyrir ís-
lenska myndasögumenningu er
ótvírætt og þeir eru margir
Nexusmyndasögunördarnir sem
komust á bragðið í gegnum útgáfu
Siglufjarðarprentsmiðju sem
einnig gaf út blöð um Batman,
Spider-Man og síðast en ekki síst
Hulk. Í þeim blöðum var, af mikilli
smekkvísi, saga Franks Miller um
Daredevil látin fylgja með sem
aukasaga og þar með voru örlög
undirritaðs ráðin.
Þórarinn Þórarinsson
Umfjöllunmyndasögur
TARZAN
Tarzan
Bundolo!
SÝND kl. 5.45, 8 og 10.30
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10 B.i. 14
SÝND kl. 4, 6, 8 og 10
SÝND kl. 4 og 8 LÚXUSSAL 5 og 9
SÝND KL. 4 og 6 M. ÍSL. TEXTA
kl. 4 M. ÍSL. TALIFINDING NEMO
kl. 4 og 6 M. ÍSL. TALIBJÖRN BRÓÐIR
kl. 8.15 og 10.30LOVE ACTUALLY
SÝND kl. 5.30, 8 og 10.30 B.i. 16
SÝND kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
SÝND kl. 6.50 og 8.05
SÝND kl. 8 og 10.10SÝND kl. 9.20
SÝND kl. 6 og 9 B.i. 16
kl. 6 KALDALJÓS
kl. 6HEIMUR FARFUGLANNA
kl. 10.30LAST SAMURAI
kl. 8 B.i. 16 áraMYSTIC RIVER
Sýnd kl. 5.45HESTASAGA
FILM-UNDUR KYNNIR
HHH Kvikmyndir.com
HHH H.J Mbl.
B.Ö.S Fínasta skemmtun Fréttablaðið
HHHH Roger Ebert
HHHH „Bráðfindin“ H.J Mbl.
HHHH Skonrokk
„Ótrúlega áhrifarík. Frumleg,
fyndin og elskuleg“ BÖS, Fréttablaðið
HHHH „Hundrað sinnum fyndnari en
Ben Stiller á besta degi“ VG, DV
SÝND kl. 4 og 8 B.i. 16
SÝND Í LÚXUSSAL VIP kl. 6 og 9 B.i. 16
Frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna
SÝND kl. 8 og 10.10 B.i. 16
SKEMMTILEGASTA
FJÖLSKYLDUMYND ÁRSINS
Frábær gamanmynd frá höfundi
„Meet The Parents“
Mögnuð
spennumynd
með Denzel
Washington Stórbrotin og margverðlaunuð
stórmynd með óskarsverðlauna-
hafanum Nicole Kidman, Golden
Globe og BAFTA verðlaunahafanum
Renée Zwllweger og Jude Law
Stórbrotin og margverðlaunuð
stórmynd með óskarsverðlauna-
hafanum Nicole Kidman, Golden
Globe og BAFTA verðlaunahafanum
Renée Zwllweger og Jude Law
Frá framleiðendum
Fast and the Furious
og XXX
KVIKMYNDIR Walt Disney fyrirtækið
hefur tryggt sér kvikmyndaréttinn
á Narníubókaflokknum fræga eftir
C.S Lewis. Fyrsta bókin í seríunni,
Ljónið, Nornin og skápurinn, verður
kvikmynduð á árinu og er væntan-
leg í bíó fyrir jólin 2005.
Myndinni verður leikstýrt af
Andrew Adamson sem gerði teikni-
myndirnar Shrek og Shrek 2. Þetta
verður því ágætis hvíld frá teikni-
myndagerð fyrir Adamson.
Disney hyggst gera myndaflokk,
á borð við hinar geysivinsælu
myndir um Harry Potter, og þegar
er byrjað að tala um kvikmynda-
seríu.
Fyrsta bókin fjallar um stríð á
milli góðs og ills, um ljónið Aslan
sem þarf að berjast við myrkravöld-
in í töfraheiminum Narníu. Illa
nornin lagði álög á heiminn sem hef-
ur þurft að þola vetur í 100 ár. Spá-
dómar hafa verið á kreiki að fjórar
manneskjur séu þær einu sem geti
létt álögunum og bjargað Narníu.
Aðalsöguhetjurnar eru krakk-
arnir Lucy, Peter, Susan og Ed-
mund sem finna hlið að heiminum í
gegnum fataskápinn heima hjá sér.
Nú er verið að ráða í öll helstu hlut-
verk. ■
Janet Jackson sagði í blaða-viðtali við tímaritið Ebony að
hún væri öskuill út í sjónvarps-
framleiðendur fyrir að klippa til
afsökunarbeiðni sína til
bandarísku þjóðarinnar.
Hún segir að ræða sín
hafi verið klippt þannig
til að bandarískur
almenningur haldi nú að
hún hafi með yfirlögðu
ráði ákveðið að flassa
brjósti sínu á úrslita-
leik bandaríska ruðn-
ingsboltans. Hún full-
yrðir að um slys hafi
verið að ræða og sér
núna eftir því að hafa
ekki beðist afsökunar í
beinni útsendingu.
Heimur Narníu
kvikmyndaður
LJÓNIÐ,
NORNIN
OG SKÁP-
URINN
Áður hefur
verið gerð
sjónvarps-
mynd eftir
ævintýri
C.S. Lewis.
Nú á að
gera metn-
aðarfulla
kvikmynd.
Fréttiraf fólki