Fréttablaðið - 05.03.2004, Qupperneq 54
Hrósið 54 5. mars 2004 FÖSTUDAGUR
Warner Brothers,framleiðandi fimm-
tu Batman myndarinnar,
sendi frá sér frétta-
tilkynningu í fyrradag
þar sem fram kemur að
tökur séu hafnar á
myndinni á Íslandi.
Þetta er í fyrsta sinn
sem fyrirtækið gengst
við því að fólk á vegum
þess sé statt á Íslandi við
tökur en eins og fram
hefur komið í fjölmiðl-
um hvílir mikil leynd
yfir tökunum við rætur
Vatnajökuls.
Tilkynningin var þó fyrst og
fremst send út vegna þess að geng-
ið hefur verið frá ráðningu leikar-
ans Gary Oldman í hlut-
verk Gordons lögreglu-
stjóra sem stendur með
Leðurblökumanninum hvað
sem á dynur. Oldman mun
þó vart koma Batman til
hjálpar á Íslandi þar sem
tökur eru vel á veg komnar
og ætla má að leikstjórinn
Christopher Nolan og
stjörnurnar Christian Bale
og Liam Neeson pakki sam-
an og fari af landi brott um
helgina. Tökum verður síð-
an haldið áfram í London og
Chicago.
Aðdáendur Batmans fylgjast
náið með framvindu mála á Inter-
netinu þar sem sögusagnir og
fréttir ganga fjöllum hærra þó lít-
ið hafi frést af Íslandsheimsókn-
inni enda hvílir þung þagnarskylda
á öllum sem koma að verkefninu
hérna. Sagan segir að handrit
myndarinnar sé firnasterkt en það
svarar mörgum spurningum um
Batman en myndin greinir frá
sköpunarsögu fyrirbærisins. Þá
hefur því heyrst fleygt að Íslands-
atriðið verði ákaflega íburðarmik-
ið og flott. Einhverjir halda því
einnig fram að þessi mynd, Bat-
man Begins, verði sú allra besta en
leikaraliðið er í það minnsta
afskaplega tilkomumikið. ■
Kvikmyndir
BATMAN
■ Íslandstökum fyrir fimmtu myndina
um Batman lýkur væntanlega á næstu
dögum en þá tekur kappinn stefnuna á
London og Chicago.
... fær Hrafnhildur Gunnarsdóttir
fyrir skipulagningu Hinsegin bíó-
daga.
Fréttiraf fólki
Batman fær liðsauka
í dag
„Ég ber
ábyrgð á
dauða
barnsins“
Enginn vill
Bíldudals-
hjúkkuna
Hulduher
leitar að
frambjóðanda
gegn Ólafi og
Dorrit
Síðari hluti Íslandsmóts skák-félaga hefst í Menntaskólanum
í Hamrahlíð í kvöld og Hrókurinn
mætir til leiks með tveggja vinn-
inga forskot á Helli eftir að dóm-
ararnir Steingrímur Gautur
Kristjánsson, hæstaréttarlögmað-
ur og fyrrverandi héraðsdómari,
og Sigurður Georgsson hæstarétt-
arlögmaður felldu úr gildi úr-
skurð mótstjórnar Íslandsmóts
skákfélaga frá 30. desember en þá
voru unnar skákir Faruks Tairi
dæmdar af Hróknum þar sem
mótstjórn leit svo á að of margir
erlendir ríkisborgarar væru í liði
Hróksins.
Staðan er því þannig að Hrók-
urinn er með 26,5 vinninga en
Hellir með 24,5 vinninga þegar
þrjár umferðir eru eftir en félög-
in mætast í kvöld klukkan 20.
„Það er nú lítið um þetta að
segja,“ segir Jóhann Hjartarson,
lögfræðingur og einn liðsmanna
Hróksins. „Rökstuðningurinn hefur
ekki verið birtur en ég þykist vita
að dómurinn hafi komist að þeirri
niðurstöðu að lög Skáksambandsins
um erlenda borgara nái ekki til ES-
borgara þó þau gildi um aðra.“
Jóhann er stigahæsti skákmað-
ur Norðurlanda og teflir fyrir
Hrókinn. Hann segir þennan úr-
skurð ekki hafa nein áhrif á sig
persónulega. „Ég tek þessu ósköp
rólega. Maður teflir bara eins og
maður á að sér, stundum vel og
stundum illa.“
„Það er mjög ánægjulegt að
niðurstaða sé fengin í þetta mál
þannig að nú getum við einbeitt
okkur að því sem er skemmtileg-
ast af þessu öllu og það er að tefla
skák,“ segir Hrafn Jökulsson, for-
seti Hróksins.
„Það er að sjálfsögðu ákaflega
gott að fá staðfestingu frá svo
virtum lögmönnum á því að það
var fyllsta ástæða til að fara
áfram með þetta mál. Ég held að
það deili enginn við slíka dómara.
En þetta mál tilheyrir nú fortíð-
inni og nú tökum við stefnuna á
Íslandsmótið þar sem verður líf
og fjör enda teflir Hrókurinn
fram sjö sveitum.“
Hrókurinn var Íslandsmeistari
skákfélaga vorið 2002, í fyrstu til-
raun, og sigraði mótið aftur 2003
og stefnir óhikað að því að
tryggja titilinn þriðja árið í röð. ■
LAGT Á RÁÐIN
Stórskotalið Hróksins var saman komið í aðalstöðvum félagsins í gærkvöld en þá stóð til
að velja mannskap í byrjunarliðið og taka meðal annars afstöðu til þess hvort Faruk Tairi
yrði í hópnum en hann er ósigraður á Íslandsmeistaramótinu eftir að Hróknum voru
dæmdar sigurskákir hans.
Skák
ÍSLANDSMÓT SKÁKFÉLAGA
■ Deilum um úrslit fyrri hluta mótsins er
lokið með úrskurði þess efnis að Faruk
Tairi hafi verið löglegur með A-liði Hróks-
ins. Félagið mætir því til leiks með
tveggja vinninga forskot á Helli.
Hrókurinn
hefur forskot á Helli
Það hefur vakið athygli að ýmsarkanónur í íslenskum bókmennt-
um gengisféllu allnokkuð við út-
hlutun starfs-
styrkja úr Launa-
sjóði rithöfunda
fyrr í vikunni. Þeir
Hallgrímur Helga-
son, Einar Kárason
og Guðjón Frið-
riksson eru allir
stór nöfn en voru
engu að síður hýrudregnir. Allir
gefa þeir út verk sín hjá Eddu-út-
gáfu. Arnaldur Indriðason er einn
helsti söluhöfundur Eddu en hann
sá ekki ástæðu til að sækja um
starfslaun að þessu sinni, hvort
sem það má skýra með velgengni
hans erlendis eður ei.
BATMAN
Það hefur farið hljótt
um hetjuna á Íslandi
en hans bíður nú að
hrista af sér frétta-
menn og forvitinn
almenning í London
og Chicago. GARY OLDMAN
Gary Oldman er síðasti þungaviktarmað-
urinn sem bættist í hópinn, sem þegar var
skipaður Nolan, Neeson, Michael Caine,
Katie Holmes, Morgan Freeman og hinum
ábúðarmikla Ken Watanabe, úr The Last
Samurai, sem leikur skúrkinn Ra’s Al Guhl.