Fréttablaðið - 14.03.2004, Síða 6
6 14. mars 2004 SUNNUDAGUR
■ Lögreglufréttir
Veistusvarið?
1Hvað heitir íslenski tannlæknirinn íNoregi sem beitir gasmeðferð gegn
tannskemmdum?
2Hvað heitir nýr umsjónarmaður Ís-lands í bítið á Stöð2?
3Hver er varaformaður Vinstri hreyf-ingarinnar græns framboðs?
Svörin eru á bls. 46
Settur landlæknir skilar lokaálitsgerð um barnslát:
Verulegt magn af deyfilyfi í barninu
LÖGREGLUMÁL „Það er ályktað í
álitsgerðinni, að barnið hafi dáið
af afleiðingum súrefnisskorts í
fæðingu, en súrefnisskorturinn
verið afleiðing af toxískum áhrif-
um marcains. Því tel ég líklegt að
verulegt magn af lyfinu hafi
borist yfir í barnið og þá væntan-
lega um blóðrás til legs, um fylgju
í barnið.“
Svo segir settur landlæknir,
Jón Hilmar Alfreðsson, í viðauka
við fyrri álitsgerð sína í máli sem
risið er vegna andláts barns eftir
að það var tekið með bráða-
keisaraskurði. Barnið fæddist á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja í
lok september 2003. Móðirin var í
fæðingunni sprautuð með deyfi-
efninu marcain í legháls. Hjart-
sláttur barnsins datt niður, það
var flutt á vökudeild Landspítala
- háskólasjúkrahúss, þar sem það
andaðist skömmu síðar.
Lögmaður aðstandenda kallaði
eftir frekari útskýringum land-
læknis á álitsgerð sem hann hafði
áður skilað í málinu. Auk þess
sem að framan greinir, kemur
fram í álitsgerðinni að ekki sjáist
merki þess að inndæling deyfi-
lyfsins hafi átt sér stað í höfuð
barnsins. Stunguför á höfði þess
svari til sprautunála sem barna-
læknar á vökudeild noti.
Loks segir að aðfinnslur í álits-
gerð landlæknis varði tvöfalt
magn marcains sem notað hafi
verið miðað við verklagsreglu,
alls ófullnægjandi lýsing á aðferð
við deyfinguna í sjúkraskýrslu og
loks töf á framkvæmd keisara-
skurðar. Landlæknir taki ákvörð-
un um frekari aðgerðir í fram-
haldi af þessum aðfinnslum.
Þá rannsakar lögreglan í Kefla-
vík málið. ■
Þörf á auknu eftirliti við
launasamninga lækna
Laun lækna á landsbyggðinni hafa hækkað óeðlilega mikið að því er fram kemur í skýrslu ríkis-
endurskoðunar. Vaktaálag er talið skýra þetta að hluta en auk þess er talið að auka beri aðhald
við gerð launasamninga.
HEILBRIGÐISMÁL Þörf er á auknu
eftirliti og íhlutun fjármálaráðu-
neytisins og heilbrigðisráðuneyt-
isins vegna samninga við lækna á
landsbyggðinni svo stemma megi
stigu við síhækkandi launakostn-
að. Þetta kom fram á umræðum á
Alþingi í gær vegna skýrslu heil-
brigðisráðuneytisins um launa-
þróun heilbrigðisstofnana.
Að sögn Jóns Kristjánssonar
heilbrigðisráðherra leiðir
skýrslan í ljós að erfitt hafi
reynst að halda launaþróun
lækna á landsbyggðinni innan
eðlilegra marka.
„Laun lækna á landsbyggð-
inni verða að skoðast í ljósi þess
að til eru staðir þar sem læknar
eru á bakvakt allan sólarhring-
inn og miðast vaktaálag við
það,“ segir Jón.
„Æskilegt væri að menn þyrftu
ekki að vinna sem einyrkjar enda
höfum við verið að vinna að því að
sameina heilbrigðisstofnanir með
það fyrir augum,“ segir hann.
Margrét Frímannsdóttir,
þingmaður Samfylkingarinnar,
bendir á í umræðunum um
skýrsluna á Alþingi að ef vinnu-
álag vegna langra vakta sé jafn
mikið og laun bendi til verði að
velta því fyrir sér hvort öryggis-
mörkum innan heilbrigðisþjón-
ustunnar sé ógnað. Fram kom að
laun lækna á landsbyggðinni ná
allt að 20 milljónum króna á ári.
Að sögn heilbrigðisráðherra
fylgist landlæknisembættið
grannt með öryggismálum heil-
brigðisþjónustunnar og hefur
ekki þótt ástæða til þess að ætla
að vaktaálag sumra landsbyggð-
arlækna ógni öryggi sjúklinga.
„Hins vegar hefur það vissu-
lega verið nokkrum erfiðleikum
bundið að manna sumar stöður
en við bindum vonir við að það
muni leysast því meiri eftirsókn
er í námsstöður í heilsugæslu en
nokkurn tímann áður,“ segir Jón.
Hann fellst þó á það að auka
verði íhlutun fjármálaráðuneyt-
isins og heilbrigðisráðuneytisins
með launasamningum á lands-
byggðinni líkt og Ríkisendur-
skoðun bendir á í skýrslunni.
„Nauðsynlegt er að efla
launaskrifstofu okkar hvað þetta
varðar og veita meiri ráðgjöf og
aðhald til þeirra sem um samn-
ingagerðina sjá á vegum stofn-
ananna,“ segir hann. ■
Allir félagsmenn í FBM fá afslátt af námskeiðum í prenti og margmiðlun.
IÐNSKÓLINN Í REYKJAVÍK
Skólavörðuholti • 101 Reykjavík
Sími 522 6500 • www.ir.is • ir@ir.is
F R A M U N D A N
Þátttakendur læra helstu grunnþætti
forritsins, áhöld, tæki, valmyndir
og sniðglugga.
N Á M S K E I Ð
Tölvuteikning
í Freehand
Þátttakendur kynnast möguleikum
lifandi vefsíðna með hreyfimyndum.
FLASH
– framhald
Kanntu að smíða vef? Viltu læra meira?
Hér er farið ítarlega í notkun stílsniða
(CSS), ramma og innsláttarforma o.fl.
Vefsmíði
– framhald
Nánari upplýsingar á vefnum:
http://namskeid.ir.is
og í síma 522 6500
Fullt af
skemmtilegum
námskeiðum
GÚSTA
Vandi kjósenda:
Víst er ég
enn á lífi
ST. PÉTURSBORG, AP Rússar sem eru
orðnir þreyttir á því að embættis-
menn leysi ekki úr vanda þeirra
eru farnir að streyma á kosninga-
skrifstofur Vladimírs Pútín og
fara fram á aðstoð forsetans við
margvíslegustu vandamálum.
Meðan einn vill að yfirvöld að-
stoði hann við að gera við þakið
heima hjá sér vill annar að þau
staðfesti að hann sé á lífi. Sá varð
fyrir því að fyrrum eiginkona
hans falsaði gögn þess efnis að
hann væri látinn til að eignast
heimili þeirra ein. Sjálfur frétti
hann ekki af andlátinu fyrr en
honum var neitað um vegabréf
þar sem hann væri látinn. „Ég er
ekki látinn og vil gögn til að sanna
það,“ sagði Vadim Ivanov. ■
LANDLÆKNIR
Settur landlæknir Jón Hilmar Alfreðsson
tekur ákvörðun um frekari aðgerðir í máli
sem uppi er vegna andláts barns eftir að
það var tekið með bráðakeisaraskurði á
Heilbrigðisstofnun Suðurlands.
FÍKNIEFNAEFTIRLIT Á KÁRAHJÚK-
UM Lögreglan á Egilsstöðum fór
í leiðangur upp á Kárahnjúka á
föstudag í leit að hugsanlegum
fíkniefnum. Í förinni voru lög-
reglumenn ásamt fíkniefnahundi.
Hald var lagt á lítilræði af hassi
hjá einum Íslendingi á virkjunar-
svæðinu.
VAKNAÐI VIÐ INNBROT Kona í
Keflavík stökkti innbrotsþjófi á
flótta snemma í gærmorgun, en
hún vaknaði við að maður eða
menn komu inn í íbúðina. Lög-
reglan fór á staðinn en ekki er
vitað hver eða hverjir voru að
verki.
NEFBROTINN Í EYJUM Einn maður
gisti fangageymslur lögreglunnar
í Vestmannaeyjum aðfaranótt
laugardags, eftir að hafa ráðist að
öðrum manni. Sá sem varð fyrir
árásinni er trúlega nefbrotinn.
Á 200 KM HRAÐA Lögreglan á Sel-
fossi tók ökumann á yfir 200 km
hraða í Ölfusi í gærmorgun. Hann
var kærður fyrir hraðakstur og
sviptur ökuleyfi á staðnum.
FRÁ SLYSADEILD
Laun lækna á landsbyggðinni hafa hækkað meira en önnur laun og ná nú allt að 20 milljónum króna á ári. Vaktaálag er talið skýra þetta
að hluta en einnig er talin þörf á aðhaldi við samningagerð.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
MARGRÉT FRÍ-
MANNSDÓTTIR
JÓN
KRISTJÁNSSON