Fréttablaðið - 18.03.2004, Síða 18
FÉLAGSMÁL Samtals 53 geðfatlaðir
einstaklingar sem nú dvelja á
geðsviði Landspítala - háskóla-
sjúkrahúss þurfa búsetuúrræði
utan stofnunarinnar. Þeir hafa
lokið sinni meðferð þar og eru til-
búnir til að flytja í sambýli eða á
áfangaheimili. Þetta kemur fram í
nýrri skýrslu sem
Svæðisskrifstofa
um málefni fatl-
aðra í Reykjavík
hefur látið vinna.
U m r æ d d a
skýrslu unnu tveir
hjúkrunarfræð-
ingar, sem eru
jafnframt for-
stöðumenn á sam-
býlum fyrir geð-
fatlað fólk, svo og fulltrúi frá
svæðisskrifstofunni.
Þessi hópur sem um ræðir
er geðfatlaður, eins og áður
sagði, og á þess vegna rétt á
þjónustu samkvæmt lögum um
málefni fatlaðra. Hluti hans er
vistaður í Arnarholti, annar á
Kleppi og þriðji hlutinn á geð-
deildinni við Hringbraut. Sum-
ir þessara einstaklinga hafa
sótt formlega um búsetuúr-
ræði hjá svæðisskrifstofunni.
Samkvæmt skýrslunni eru all-
ir þessir einstaklingar taldir
geta nýtt sér félagslega bú-
setuþjónustu og eiga rétt á að
sækja um hana samkvæmt lög-
um um málefni fatlaðra. Vist-
un þeirra á geðsviði er eitt af
þeim dæmum sem nefnd hafa
verið um að heilbrigðiskerfið
sé að sinna ákveðinni félags-
legri þjónustu.
Í þeirri miklu umræðu sem nú
á sér stað um málefni geðfatlaðra,
ekki síst vegna sparnaðaraðgerða
Landspítala - háskólasjúkrahúss,
eru þau sjónarmið æ sterkari að
fólk sem er fært um að búa í fé-
lagslegri búsetuþjónustu með
þeim stuðningi sem þarf, lifi mun
tilgangsríkara lífi og við mun
æskilegri aðstæður heldur en sé
það vistað á stofnunum. Er mikið
horft til sambýlisins á Sléttuvegi,
sem þykir hafa gefið mjög góða
raun.
Í skýrslu svæðisskrifstofunn-
ar eru, auk þess að meta fyrir-
liggjandi þörf, gerðar tillögur um
búsetuúrræði sem æskilegt væri
að byggja upp fyrir fólkið. Tillög-
urnar henta persónulegum þörf-
um hvers einstaklings fyrir sig.
Þær hafa verið sendar félags-
málaráðuneytinu, en endanlegar
útbætur eru í höndum fjárveit-
ingavaldsins.
jss@frettabladid.is
18 18. mars 2004 FIMMTUDAGUR
SKEMMDIRNAR SKOÐAÐAR
Bagdad-búar kanna skemmdir á heimili
sínu eftir sprengingar á þriðjudag. Einn
maður lét lífið og margir særðust í því
sem bandarísk hernaðaryfirvöld sögðu
vera flugskeytaárás íraskra skæruliða.
HEILBRIGÐISMÁL Ný rannsókn bend-
ir til þess að halda þurfi kólesteról-
magni enn lægra en talið hefur
verið til þess að draga úr líkum á
hjartasjúkdómum. Gestur Þor-
geirsson hjartalæknir segir að
þeir sjúklingar sem voru með
verulega lágt kólesteról hafi verið
í mun minni hættu á æðakölkun.
Rannsóknin var samanburðar-
rannsókn á tveimur lyfjum og var
kynnt fyrir skemmstu.
Aðspurður um hvað sé eðlilegt
viðmið hvað varðar kólesteról í
blóði segir Gestur að það sé erfitt
að segja til um og viðmið séu mis-
jöfn eftir rannsóknum og löndum.
„Það sem skiptir mestu máli er að
þeim mun hærra sem það er því
meiri er hætta á æðakölkun. Við
viljum halda því lágu en það er
misjafnt hvað lagt er til sem við-
mið,“ segir Gestur.
Gestur segir að gjarnan sé talað
um „gott“ og „slæmt kólesteról“.
„Í þessari rannsókn var verið að
bera saman tvö lyf, annars vegar
hefðbundna meðferð sem gerir ráð
fyrir að ástand kólesterólsins sé í
lagi ef gildi slæma kólesterólsins
er 3 en niðurstaða rannsóknarinn-
ar bendir til þess að kröftugri
lækkun þess, þannig að það verði
allt að helmingi lægra, bæti horfur
sjúklinga verulega,“ segir Gestur.
Hann segir reykingar og neyslu
matar með harðri fitu beri að forð-
ast til að halda kólesterólmagninu
lágu. ■
Tugir geðfatlaðra
bíða búsetuúrræða
Rúmlega 50 geðfatlaðir einstaklingar sem dvelja nú á stofnunum geð-
sviðs á Landspítala eru færir um að flytja í félagslegt húsnæði. Þeir hafa
lokið meðferð og lifðu betra lífi ef búsetuúrræði væru fyrir hendi.
Tony Blair:
Skýtur á Zapatero
LONDON, AP „Það væri ótrúlegur
barnaskapur að halda að uppgjöf í
Írak myndi draga úr hættu á
hryðjuverkum,“ sagði Tony Blair,
forsætisráðherra Bretlands, í
breska þinginu í gær.
Orð Blair eru talin lítt dulbúin
gagnrýni á Jose Luis Rodriguez
Zapatero, leiðtoga Sósíalista og
verðandi forsætisráðherra Spán-
ar, sem hefur lýst því yfir að
spænskir hermenn verði kallaðir
heim taki Sameinuðu þjóðirnar
ekki við yfirstjórn friðargæslu í
Írak. Blair þakkaði Leszek Miller,
forsætisráðherra Póllands, fyrir
staðfestu í baráttunni gegn
hryðjuverkum.
Zapatero hefur sagt að innrás-
in í Írak hafi verið byggð á lygum;
ummæli sem fóru að sögn mjög
fyrir brjóstið á Blair og nánum
samstarfsmönnum hans. ■
Dæmdur úr framboði:
Framboðið
bara til ama
MANILA, AP Lítt þekktur fram-
bjóðandi sem lofaði að gera
hvern einasta Filippseying að
milljónamæringi hefur verið
útilokaður frá þátttöku í for-
setakosningunum sem fara fram
í maí. Yfirkjörstjórn segir að
Eddie Gil hafi hvorki þá fjár-
muni né skipulögðu kosninga-
baráttu sem þarf til að sækjast
eftir kosningu. Framboð hans sé
til þess eins fallið að vera til
ama þar sem það geri grín að
kosningunni.
Gil segir eigur sínar nema
um 1.400 milljörðum króna en
var nýlega ákærður fyrir að
gefa út innistæðulausar ávísan-
ir. Í þingkosningum 2001 fékk
hann fæst atkvæði allra fram-
bjóðenda. ■
GEÐDEILD LSH
Samtals 53 einstaklingar á geðsviði Landspítala - háskólasjúkrahúss ættu að búa í félags-
legri búsetu samkvæmt nýrri skýrslu Svæðisskrifstofu um málefni fatlaðra í Reykjavík.
■
Í skýrslu svæð-
isskrifstofunnar
eru, auk þess
að meta fyrir-
liggjandi þörf,
gerðar tillögur
um búsetuúr-
ræði sem æski-
legt væri að
byggja upp fyrir
fólkið.
SPÁNVERJAR Í ÍRAK
Blair kann Zapatero litlar þakkir fyrir að
kalla spænska hermenn heim frá Írak.
GESTUR ÞORGEIRSSON
Segir reykingar og neyslu harðrar fitu
mestu áhættuþætti um hækkun
kólesteróls.
Nýjar rannsóknir á kólesteróli:
Kólesteról þarf að vera
enn lægra en talið var
Skýrslubeiðnir á Alþingi:
Tíu skýrslur
á áratug
ALÞINGI Þingmenn hafa tíu sinn-
um beðið forsætisráðherra um
skýrslur frá Alþingi frá árinu
1995. Þetta kemur fram í svari
forsætisráðherra við fyrirspurn
Sigurðar Kára Kristjánssonar,
Sjálfstæðisflokki.
Skýrslurnar hafa lotið að
einkavæðingu, aðbúnaði og
kjörum öryrkja og eldri borg-
ara, aðstöðumun kynslóða, þró-
un launa og lífskjara, fátækt og
fíkniefnum.
Forsætisráðherra segir í
svari sínu, ekki unnt að svara til
um kostnað vegna skýrslu-
beiðna. Ekki liggi fyrir hversu
mörg ársverk eða mannmánuðir
hafa farið í skýrslugerð. Þá hafi
kostnaði við prentun þessara
skýrslna ekki verið haldið sér-
staklega til haga í bókhaldi. ■
FJÓRIR SKOTNIR TIL BANA Fjórir
létu lífið, tveir Írakar og tveir
Þjóðverjar, í skotárás suður af
Bagdad. Tveir íraskir lögreglu-
menn til viðbótar særðust í
skotárásinni. Þjóðverjarnir unnu
við þróunarstörf í Írak en heima-
mennirnir voru lögreglumaður og
bílstjóri.
ILLA UNDIRBÚNIR Breskir her-
menn voru ekki nægilega vel
undirbúnir fyrir veru sína í Írak
eftir stríð og það kostaði þá vel-
vilja meðal íraskra borgara segir
í skýrslu breskrar þingnefndar.
Þar segir að herförin hafi að
mestu gengið mjög vel en slæm
skipulagning og tækjaskortur
hafi haft neikvæð áhrif.
■ Írak
Fáskrúðsfjörður:
Vill samein-
ast Fjarða-
byggð
SVEITARFÉLÖG Hreppsnefnd Fá-
skrúðsfjarðarhrepps hefur óskað
eftir viðræðum við bæjarstjórn
Fjarðabyggðar um mögulega sam-
einingu við Fjarðabyggð. Bæjarráð
Fjarðabyggðar hefur samþykkt að
fulltrúar sveitarfélagsins í sam-
starfsnefnd Austurbyggðar og
Fjarðabyggðar ræði við hrepps-
nefnd Fáskrúðsfjarðarhrepps.
Mörk sveitarfélaganna liggja sam-
an um fjallgarðinn sem liggur milli
Fáskrúðsfjarðar og Reyðarfjarðar.
Íbúar Fáskrúðsfjarðarhrepps voru
1. desember 2003, 55 en íbúar
Fjarðabyggðar 3.110. ■