Fréttablaðið - 18.03.2004, Side 28

Fréttablaðið - 18.03.2004, Side 28
tíska o.fl. Vikulegur blaðauki Fréttablaðsins um al l t sem viðkemur t ísku Ritstjórn: sími 515 7500 – netfang: tíska@frettabladid.is. Auglýsingar: sími 515 7500 – netfang: auglysingar@frettabladid.is. Plast er frábært efni og er aðkoma sterkt inn,“ segir Lena Viderö, sem hannar óvenjulega skartgripi úr akrýlplasti. „Fólk er farið að átta sig á því hversu margt er hægt að gera við það.“ Lena er á listnámsbraut í Iðn- skólanum í Hafnarfirði og ber skólanum vel söguna. „Bestu stundirnar eru einmitt þegar maður er í skól- anum, með alla í kringum sig. Ég fór í plastáfanga og varð mjög hrifin af akrýlplastinu enda e r þ a ð spennandi efni. Ég hef mikinn áhuga á litlum hlutum, fylgihlutum eins og skartgripum eða skóm. Ég er í raun að hugsa um að fara í skó- hönnun en það er svolítið mikið meira mál að búa til skó en plasthálsmen. Hugmyndina að hesta- hálsmenunum fékk ég þegar mamma byrjaði í hestamennsku. Ég kaupi plastið í Akron og saga það með tifsög. Mest vinn ég með skærbleikt og skærgrænt plast. Plastið leiðir ljós svo vel í gegnum sig og kantarnir koma flott út þeg- ar á þá skín ljós.“ Lena er með fleira í bígerð. „Til dæmis spennur og öðruvísi eyrnalokka, sem ég hef bara ekki komist í að gera. Því þetta er mik- ið moj og tekur langan tíma. Mest- ur tíminn fer í að pússa kantana og í raun er erfiðara að vinna með minnstu hlutina. Þannig að ég saga gripina út í skólanum og svo sit ég bara fyrir framan sjónvarp- ið á kvöldin og pússa.“ Skartgripir Lenu eru seldir í Búðinni á Laugavegi. audur@frettabladid.is Mörkinni 6. Sími 588 5518 OPIÐ Virka daga frá kl. 10-18 Laugardaga frá kl. 10-16 Ný sending af rúskinnsjökkum Stakir brjóstahaldarar kr. 1.990 - 2.490 Buxur/G-strengur kr. 790 Frábært úrval af undirfatnaði, náttfatnaði og náttsloppum á góðu verði. Ný sending af sundbolum frá Spáni. Glæsibæ, s. 588 5575 Sjáumst FERMINGAR UNDIRFÖT Mjódd - Sími 557 5900 FLAUELIS JAKKAR Í SEX LITUM: Turkish - bleikir - rauðir - svartir - grænir og sand. VERÐ AÐEINS KR. 5.990 Ný hör lína frá Soya í þremur litum á frábæru verði. Vorið er komið og það þýðir að sumariðer rétt á næsta leiti. CK one ilmlínunni hefur bæst liðsauki í sumar, CK one sum- mer. Sá sumarilmur verður fáanlegur frá byrjun apríl í verslunum sem selja Calvin Klein, þó einungis í takmarkaðan tíma. CK one summer er frískleg útgáfa af CK one, með hressandi sítrustónum og að sjálf- sögðu fyrir bæði kynin. ■ AUSTURLENSK TÍSKA Svona er sumartískan í Miðaustur- löndum, nánar tiltekið í Líbanon - Kuwaiti Adiba Mahboub. Tískuvöruverslunin ER opnaði áSkólavörðustíg 3A í febrúar. Verslunin býður upp á klassískan kvenfatnað frá Ítalíu og Þýska- landi. Eigandi verslunarinnar er Áslaug Harðardóttir. Áslaug, sem alltaf hefur haft áhuga á tísku og hönnun, opnaði verslunina meðal annars af því hún átti sjálf erfitt með að finna á sig fatnað sem henni líkaði. „Ég kynnt- ist þessari fatalínu á Spáni fyrir fimm árum, og féll alveg fyrir henni. Vörumerkin eru aðallega tvö, Nuu og Luana. Þetta er klass- ískur kvenfatnaður og tímalaus og hér geta konur á öllum aldri fundið eitthvað við sitt hæfi.“ ■ ÁSLAUG HARÐARDÓTTIR Opnaði nýlega tískuvöruverslunina ER á Skólavörðustíg 3A þar sem hún býður upp á sígildan kvenfatnað frá Ítalíu og Þýskalandi. Ný tískuverslun á Skólavörðustíg: Sígilt og tímalaust PLASTIÐ LÍKA NOTAÐ Í EYRNALOKKA Og Lena er með ýmislegt fleira í bígerð. LENA VIDERÖ Hannar hálsmen og eyrnalokka úr akrýlplasti. Skartgripahönnun: Plastið alveg frábært efni SKARTGRIPIR ÚR PLASTI Hestar, sæhestar, stjörnur og mánar. FRÉTTAB LAÐ IÐ /STEFÁN Nýtt: Sumarlína frá Calvin Klein

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.