Fréttablaðið - 18.03.2004, Page 29

Fréttablaðið - 18.03.2004, Page 29
FIMMTUDAGUR 18. mars 2004 Támjóir, kvenlegir skór erukomnir til að vera. Skór með rúnaðri tá eru þó að ryðja sér til rúms, en mjó tá heldur velli og virðist orðin sígild í skótísku kven- na. Skókaupmenn hér heima kepp- ast nú við að kaupa inn haust- og vetrartískuna 2004–2005 eftir fyrirmælum tískuhönnuða og skóspámanna ytra, og hafa lín- urnar verið lagðar í þeim efnum: támjóir skór eru enn ráð- andi í kven- tísku, jafnt sem skór með rúnaðri tá. Þess má svo geta að allir litir verða áfram hæstmóðins; bæði í fata- og skóvali, þótt pastellitir séu áberandi á sumri komanda. ■ Það er ekkert vafamál að uppá-halds flíkin er gallajakkinn minn. Þar sem hefur vorað allsvakalega undanfarið tók ég til bragðs að taka fram gallajakkann sem ég legg annars til hliðar yfir köldustu mánuðina,“ segir Unnur Ösp Stefánsdóttir leikkona, sem nú leikur lausláta alnöfnu sína í hinu ögrandi leikverki „Fimm stelp- ur.com“ sem sýnt er í Austurbæ við glimrandi undirtektir. „Það er alltaf gaman í gallajakkanum því hann boðar skemmtilega hluti. Í raun er hann táknmynd grill- veislna, hvítvínsdrykkju og sumar- langra daga,“ segir Unnur Ösp sem álítur gallajakkann hina fullkomnu klassík. „Ég keypti hann fyrir tveimur árum á götumarkaði í Flórens eftir áralanga leit að rétta jakkanum. Hann er hversdagsleg- ur en töff, aðsniðinn og þröngur, ljós og skemmtilega sjúskaður en heillegur samt. Þetta er svona „second hand“ fílingur og ég verð að viðurkenna að gallajakkinn er mér afar hjartfólginn.“ Unnur Ösp segist áður hafa átt gallajakka sem seinna meir týnd- ist. „Þann gallajakka keypti ég á sínum tíma í Spútnik. Þetta var á unglingsárunum og í þá daga gengu svo flottar flíkur á milli okk- ar vinkvennanna sem skörtuðu þeim við hin ýmsu tilefni. Því mið- ur glataðist hann á endanum og því má segja að ég hafi síðan leitað að sama jakkanum.“ thordis@frettabladid.is Siirí Grampner hefur undanfar-ið fengist við að búa til hár- bönd úr fiskroði í öllum regnbog- ans litum. „Þetta er hlýtt og þægi- legt í íslenska rokinu,“ segir Siirí, sem er þýskur hönn- uður og klæðskeri s e m hefur búið hér á landi í nokkur ár. „Mér finnst mjög skemmtilegt að vinna úr íslensku hráefni, hef meðal annars gert hringi úr þæfðri ull,“ segir Siirí sem selt hefur þá með- al annars í þjónustu- miðstöðinni við Geysi. Hárböndin fást enn sem komið er bara heima hjá Siirí, sem hægt er að ná sambandi við í síma 868 3854, og vonandi víðar innan tíðar. ■ Fó ta að ger ða- nud d- og snyrtistofa F örðunar- og naglag all e r i V O R T I L B O Ð SU-DO BRÚNKUMEÐFERÐ Fallegur brúnn húðlitur næst á 4-5 klst. Hættulaust fyrir húðina KYNNINGARTILBOÐ TIL 15 APRIL. Abaco Akureyri, sími 462 3200 Heilsudrekinn Ármúla, sími 553 8282 Lancome snyrtimiðstöð, Kringlan 7 sími 588 1990 Laugar Spa, sími 553 0000 Lipurtá Hafnarfirði, sími 565-3331 Snyrtihofið Vestmannaeyjum, sími 695 3242 Snyrtistofan Brá Egilsstöðum, sími 471 2012 Snyrtistofan Cara, sími 554 7887 Snyrtistofan Greifynjan, Árbæ sími 587 9310 SMÁRALIND Sími 517 7007 KAUPHLAUP 25% afsláttur www.changeofscandinavia.com BRJÓSTAHALDARI áður kr. 2.790 - nú kr. 2.092 G-STRENGUR áður kr. 1.490 - nú kr. 1.117 BRJÓSTAHALDARI áður kr. 3.990 - nú kr. 2.992 NÆRBUXUR áður kr. 2.190 - nú kr. 1.642 NÁTTFÖT áður kr. 5.990 - nú kr. 4.492 NÁTTKJÓLL áður kr. 3.990 - nú kr. 2.992 KOMDU OG UPPLIFÐU! Full búð af nýjum vörum FreeWalker Sport Herra 21104 Twist Eucalyptus Dömu 93427 KAUPHLAUP Það ætti að vera auðvelt að gera góð kaup í Smáralind um helgina. Þá er svo- kallað kauphlaup, sem reyndar hefst í dag. Það þýðir að nýjar vörur eru á tilboðum og svo er hægt að gera góð kaup á Áhlaupi þar sem valdar vörur eru seldar með 50% afslætti í 15 mínútur þann daginn. ■ Í búðum TÁMJÓIR SKÓR ERU SÍGILDIR Kvenlegir, með mjórri tá frá GS Skóm. Sígilt skóval heimsdama um allan heim. Támjóir skór: Komnir til að vera UNNUR ÖSP STEFÁNS- DÓTTIR LEIKKONA „Gallajakkinn er táknmynd grillveislna, hvítvínsdrykkju og sumarlangra daga.“ Uppáhaldsflík Unnar Aspar Stefánsdóttur, leikkonu: „Alltaf gaman þegar ég fer í gallajakkann“ leikkonu: SÍÍRÍ GRAMPNER Elskar íslenskt hráefni. Hárbönd úr fiskiroði: Í öllum litum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.