Fréttablaðið - 18.03.2004, Blaðsíða 40
18. mars 2004 FIMMTUDAGUR
!
"
#
#
$
%
"
&
#
$
$ $
$
$
'
$(
& &
&
)'
$
*
+
*
$
'
$
' $"
,
$ $
#
"
#
""*
'
"
'$
%$
./&
&
#
& 1
.
&
'
&
!
"
!
# $
%
&' (
) ! !
!
# !
$
*
!
%#
)'
! +
! %
,
%# ! -
Tiger Woods getur orð-ið fyrsti kylfingurinn
í sögu PGA-mótaraðar-
innar til að vinna sama mótið
fimm ár í röð þegar hann keppir
á Bay Hill-mótinu sem hefst á
Flórída í dag.
Woods, sem er efstur á heims-
listanum, vann mótið með ellefu
högga mun í fyrra þrátt fyrir að
þjást af magakveisu. Er það
stærsti sigurinn í sögu mótsins.
Frá því sigurganga Woods hófst
á Bay Hill er hann samanlagt á
65 höggum undir pari og hefur
unnið mótið með samanlagt 20
högga mun. Aðeins fjórum kylf-
ingum fyrir utan Tiger hefur
tekist að vinna sama PGA-mót
fjögur ár í röð. Þeir eru: Walter
Hagen, Gene Sarazen, Young
Tom Morris og Laura Davies. ■
■ Tala dagsins
5
Michael Owen tjáir sig um slaka frammistöðu sína:
Óskaði þess að
leiktíðin væri búin
FÓTBOLTI Michael Owen, framherji
Liverpool, segir að frammistaða
hans að undanförnu sé ein sú
lélegasta á ferlinum. Owen hefur
misnotað tvær mikilvægar víta-
spyrnur í undanförnum leikjum,
annars vegar í tapleik í bikarnum
gegn Portsmouth og hins vegar
þegar lið tapaði gegn Sout-
hampton í úrvalsdeildinni.
„Ég var í mikilli lægð gegn
Portsmouth. Knattspyrnustjórinn
var undir miklum þrýstingi og ég
klúðraði vítaspyrnunni þegar við
töpuðum leiknum,“ sagði Owen.
„Mér hefur sjaldan liðið jafn illa
og þennan dag. Ég óskaði þess
bara að leiktíðin væri búin. Ég
man að ég hugsaði: „Ég vildi óska
að við gætum fengið fjórða sætið
í hendurnar og hætt núna“.
Owen segist hafa æft víta-
spyrnur alla vikuna ásamt félög-
um sínum í Liverpool fyrir leik-
inn, enda um bikarleik að ræða
sem hefði getað endað með víta-
spyrnukeppni. „Við skulum segja
að ég hafi verið of hátt uppi. Alla
vikuna hélt ég að ég gæti ekki
klúðrað vítaspyrnu. Síðan þegar
leikurinn byrjaði klúðraði ég
þeirri fyrstu af síðustu hundrað.
Maður hugsar „hvernig gat þetta
gerst?“
Owen segist stefna á góðan ár-
angur í Evrópukeppni félagsliða
og sæti í Meistaradeild Evrópu
með Liverpool. Enn sé því að ein-
hverju að keppa öfugt við mörg
önnur lið. Hann segist vera hel-
tekinn af því að spila með Liver-
pool og skora mörk. „Ég elska að
gera það sem ég geri. Að skora
mörk er yndislegasta tilfinning í
heimi. Ég spila ekki fótbolta af
því að ég verði að skora mörk. Ég
spila vegna þess að ég elska
það.“ ■
ÍSHOKKÍ Ísland leikur sinn annan
leik á heimsmeistaramóti 3. deild-
ar í íshokkí í kvöld þegar liðið
mætir Armeníu. Ísland vann
Tyrkland 7-5 í fyrsta leik sínum á
mótinu í fyrrakvöld.
Íslendingar höfðu yfirhöndina
framan af og komust í 5-2. Tyrkir
náðu að minnka muninn undir lok-
inn en íslenska liðið var sterkara á
endasprettinum og tryggði sér
mikilvægan sigur. Jónas Breki
Magnússon var markahæstur Ís-
lands með þrjú mörk og þeir Ingv-
ar Jónsson, Sigurður Sigurðsson,
Jón Gíslason og Arnþór Bjarna-
son skoruðu eitt mark hver. ■
MICHAEL OWEN
Í baráttu við Jason Dodd í leik Liverpool og Southampton um síðustu helgi.
Southampton vann leikinn 2-0.
AP
-M
YN
D
MARKI FAGNAÐ
Íslenska landsliðið fagnar einu af sjö
mörkum sínum gegn Tyrkjum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Heimsmeistaramótið í íshokkí:
Mætum Armenum