Fréttablaðið - 18.03.2004, Page 46

Fréttablaðið - 18.03.2004, Page 46
Hrósið 46 18. mars 2004 FIMMTUDAGUR ... fær Þorsteinn Már Baldvinsson fyrir seiglu sína og ákveðni við að losa Baldvin Þorsteinsson EA úr söndum Skarðsfjöru. Fréttiraf fólki ■ Veistu svarið? Svör við spurningum á bls. 6 1. 2. 3. Ísólfur Gylfi Pálmason. Kristján Vilhelmsson. Guðný Gerður Gunnarsdóttir. Lárétt: 1 ræð við, 5 gufu, 6 spurn, 7 félag, 8 ambátt, 9 festa, 10 líta, 12 belta, 13 hestur, 15 hljóm, 16 þvaður, 18 samsuða. Lóðrétt: 1 samgöngubætur, 2 málm, 3 í röð, 4 erfiðleikar, 6 sagt í síma, 8 leiðtogi sem var, 11 stúlkunafn, 14 nokkur, 17 átt. Lausn: Lárétt:1veld,5eim,6ha,7gr, 8man,9 hald,10gá,12óla,13ess,15óm,16 raus,18mall. Lóðrétt: 1vegagerð,2eir, 3lm,4vanda- mál,6halló,8maó,11ása,14sum,17 sa. Því fylgir ábyrgð að tjá sig nafnlaust Guðmundur Jón Sigurðsson hef-ur kært spjallvefinn malefn- in.com til Persónuverndar fyrir að birta um hann persónuupplýsingar; nafn, heimilisfang og kennitölu. „Það birtist lesendabréf í DV þar sem fjallað var um nafnleysingja á spjallvefnum. Einhver sem kallar sig Guðmund góða setur svo inn á vefinn nöfn og persónuupplýsingar okkar þriggja sem heita sama nafni og bréfahöfundur og sagðist hafa hringt í þá alla. Það hefur enginn hringt í mig vegna þessa bréfs og því mótmælti ég. Þess vegna kæri ég mig ekki um að það sé verið að flagga mínu nafni, kennitölu og öllu saman. Ég bað Guðmund og vef- stjórann um að biðjast afsökunar á þessu en vefstjórinn sagði bara „hvað með það“. Ég leitaði því til Persónuverndar og eftir því sem ég best veit ætla þeir að ganga í það mál. Það gilda reglur um notkun á þessum upplýsingum. Á vef Hagstofunnar er tekið fram að upp- lýsingar séu eign Hagstofunnar og það er einnig fjallað um þetta á vef per- sónuverndar.“ Guðmundur segist geta fallist á að til séu spjallvefir þar sem menn spjalla undir dul- nefni. „En þá þurfa menn að vera málefnalegir. Því fylgir ábyrgð að tjá sig nafnlaust og hýenur geta ekki tjáð sig út í eitt.“ Stefán Helgi Kristinsson, vef- stjóri spjallvefsins, efast um að þetta verði prófmál hjá Persónu- vernd þar sem ummælin séu ekki ærumeiðandi. „Nafn hans var kom- ið fram í DV og hver sem er gat far- ið í þjóðskrá og flett honum upp.“ Annars vill Stefán ekki gera mik- ið úr þessu máli og segir það al- gjört smámál. Hins vegar segir hann ærumeiðandi talsmáta ekki liðinn á spjallsvæðinu. ■ Pondus Fáðu þér síðustu kökusneiðina, Selma mín! Æ, ég veit það ekki! Ég hef nú ekki gott af því! Það er engin lygi! Svona mik- ið havarí út af einni köku! Ekki bara köku... kremköku! Netið MALEFNIN.COM ■ spjallsvæðið hefur verið kært til Persónuverndar vegna birtingar á persónuupplýsingum. GUÐMUNDUR JÓN SIGURÐSSON Hefur kært spjallvefinn malefn- in.com til Persónuverndar eftir að nafn hans, kennitala og heimilisfang voru birt á vefn- um. Vefstjórinn segir þetta smámál. HÁÞRÝSTI ÞVOTTATÆKI Verð frá kr. 8.900,- barnið Magnus Carlsen, sem er að- eins 13 ára, mættir til leiks. Skák- áhugamenn hafa hnotið um þá und- arlegu staðreynd að hin- um öfluga Íslandsvini Ivan Sokolov var ekki boðið að taka þátt í mótinu en hann er sá erlendur stórmeistari sem sýnt hefur Íslandi hvað mestan áhuga og hefur kom- ið hingað til að tefla oft- ar en marg- ir hafa tölu á. Þá hefur Sokolov tek- ið virkan þátt í barnastarfi Hróks- ins og hefur heimsótt fjölda grunn- skóla til þess að boða fagnaðar- erindi skákarinnar. Engum skák- áhugamanni dylst að Sokolov á fullt erindi á mótið auk þess sem Stefán Baldursson, forseti Skák- sambands Íslands, mun hafa tjáð Sokolov það í hófi sem haldið var til heiðurs Friðriki Ólafssyni og Bent Larsen á Bessastöðum í fyrra að honum yrði boðið að vera með. Þess má einnig geta að Kasparovog Sokolov þekkjast ágætlega og þannig varð hann í fjórða sæti í Wijk aan Zee, árið 1999, á eftir þrí- stirninu Kasparov, Anand og Kramnik, og var þá eini keppand- inn sem lagði Kasparov. Þá urðu þeir Sokolov og Kasparov Evrópu- meistarar saman þegar þeir tefldu fyrir skákklúbbinn Bosna Sarajevo árið 1994. Eina skýringin sem skák- spekingum dettur í hug á fjarveru Sokolov nú sé að helstu driffjöður Reykjavik Rapid Helga Ólafssyni, stórmeistara, sé í nöp við Ívan grimma. Annar liðtækur Hróks- maður, unglingastjarnan Luke McShane er einnig fjarri góðu gamni en hann býr á Bretlandi og hefði verið skotaskuld að skreppa til Reykjavíkur enda tíður gestur hér og tefldi meðal annars fyrir Hrókinn á nýafstöðnu Íslands- meistaramóti skákfélaga. Reykjavík Rapid 2004 hraðskák-mótið hófst með pompi og prakt í gær. Mótið hefur ekki síst vakið athygli fyrir þær sakir að þar takast meðal annarra á skák- stjörnurnar Anatolí Karpov, Gary Kasparov og Nigel Short. Alls láta 16 stórmeistarar til sín taka á mót- inu en auk þekktustu skákmanna Íslands eru Emil Stutovsky, Peter Heine Nielsen og norska undra- Árið 1996 gaf ég út bókinaSautján salernissögur þar sem ég safnaði saman stuttum sögum og ljóðum sem hentuðu vel til lesturs á salerninu,“ segir Ingimar Oddsson, tónlistarmaður með meiru, sem brá illilega þegar hann sá þessa gömlu hugmynd sína skjóta upp kollinum í frétt af fyrirhugaðri útgáfu Vöku- Helgafells á Náðhúsinu. Bók sem inniheldur gagnslausan fróðleik sem hentar vel til hugvekju á kló- settinu. „Það sem mér sárnar við þetta er að ég er búinn að ganga frá Salern- issögum II, fyrir lengra komna. Ég fór með handritið til Eddu útgáfu til þess að reyna að fá þá til að gefa hana út en áhuginn var enginn. Svo sé ég það núna að Náðhúsið er að koma út hjá fyrirtækinu.“ Ingimar segir að hugmyndin með framhaldinu fyrir lengra komna sé sú að eftir því sem aldur- inn færist yfir geti salernisferðirn- ar dregist á langinn. „Það á auðvitað enginn einkarétt á því að gefa út salernissögur og innihald bókanna er ekki það sama en það er grunn- hugmyndin sem selur og þarna finnst mér risinn vera að taka frá litla manninum,“ segir Ingimar og óttast það mest að Náðhúsið verði selt með hanka. „Ég hafði gat á Sal- ernissögum og spotta í gegn svo hægt væri að hengja hana hjá kló- settrúllunni. Ef Náhúsið verður gef- ið út með slíkum útbúnaði er búið að taka alla hugmyndina.“ Ingimar hafði samband við Eddu útgáfu og fékk þau svör að Náðhús- ið byggði á danskri fyrirmynd og forlagið hefði öll leyfi í lagi. „Mér finnst formáli gömlu bókarinnar minnar ansi keimlíkur því sem ég hef séð birt úr Náðhúsinu og gremst að þessi góða hugmynd skuli hafa verið tekinn án nokkurs samráðs við mig.“ Sigurður Svavarsson, útgáfu- stjóri Eddu, segist aldrei hafa séð hvorki Salernissögur né handritið að Salernissögum II. Hann staðfest- ir hins vegar að Náðhúsið sé gerð eftir danskri fyrirmynd og fullyrðir að ekki standi til að gefa Náðhúsið út með klósettrúlluhanka. Ingimar ætlar að halda ótrauður áfram og stefnir að því að gefa Salernissögur II út um fyrir jólin. Sú bók verður áreiðanlega með upp- hengibúnaði og öllu lengri sögum en fyrri bókin. ■ Bækur INGIMAR ODDSSON ■ er höfundur bókarinnar Sautján salernissögur. Hann gerir sér grein fyrir því að það hefur enginn einkarétt á því að gefa út klósettsögur en gremst þó að sjá markaðshugmynd sína verða að veruleika í bókinni Náðhúsið. 1 5 6 7 8 13 14 16 17 15 18 2 3 11 9 1210 4 INGIMAR ODDSSON Gaf bókina Sautján salernissögur út árið 1996 og fór með framhaldið Salernis- sögur II til Eddu útgáfu og óttast að þar á bæ hafi menn stolið markaðs- hugmynd sinni með bókinni Náðhúsið. Svekktur höfundur salernissagna

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.