Fréttablaðið - 06.04.2004, Page 4

Fréttablaðið - 06.04.2004, Page 4
4 6. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR Ferðu í fermingarveislu þetta árið? Spurning dagsins í dag: Eru reglur um reynslulausn refsifanga fullnægjandi? Niðurstöður gærdagsins á www.frett.is 12%Nei Já Kjörkassinn Farðu inn á frett.is og segðu þína skoðun frétt.is ■ Lögreglufréttir Lauslegur samanburður á íslensku og bresku samkeppnisstofnuninni: Eðlilegt að flókin mál taki nokkur ár SAMKEPPNISMÁL Rúmlega tvö þús- und mál komu til kasta bresku samkeppnisstofnunarinnar frá janúar 2002 til mars 2003. Af þeim fjölda hóf stofnunin sjálf rannsókn á yfir 50 stórfyrirtækjum vegna gruns um stórfelld brot á sam- keppnislögum. Sú íslenska hefur hvorki nógan mannskap né fé til að láta til sín taka að eigin frumkvæði þrátt fyrir að starfsmenn hennar sjái mörg tækifæri til. Árið 2002 tók samkeppnisráð ákvarðanir í alls 42 málum og gaf álit sitt á fjórum málum til viðbót- ar. Langflest málin komu að beiðni eða eftir formleg erindi fyrirtækja. Að því leyti er breska samkeppnisstofnunin ólík þeirri íslensku að mál er varða einstak- linga eru einnig tekin fyrir og sinnir hún því að mörgu leyti sama hlutverki og Neytendasam- tökin gera hér á landi. Bresku samtökin hafa líka meira vald en systurstofnun þeirra hér á landi þegar kemur að rannsóknum á hugsanlegum hringamyndunum. Hins vegar er ekki óalgengt að einstök mál geti tekið marga mán- uði og jafnvel nokkur ár eins og raunin hefur orðið í stórum málum hér á landi. „Það er alls ómögulegt að gefa meðaltal varðandi mál sem koma inn á okkar borð,“ segir Rachel Clark, einn talsmanna stofnunarinnar. Málefni er varða einstaklinga taka venjulega ekki langan tíma en þegar flóknari að- gerðir er að ræða getur teygst á rannsóknum.“ ■ Íslömsk öfgasamtök hóta frekari árásum: Spánn verður helvíti á jörð MADRÍD, AP Íslömsk öfgasamtök, sem hafa lýst ábyrgð á hendur sér vegna sprengjuárásanna í Madríd 11. mars, hafa hótað því að gera Spán að „helvíti á jörð“ ef ekki verði gengið að kröfum þeirra. Talið er að kjarni árásarhópsins hafi annaðhvort verið handtekinn eða farist í sjálfsmorðs- sprengingu í íbúð í borginni Lega- nes á laugardagskvöldið. Spænska dagblaðið ABC segist hafa fengið símbréf frá íslömsk- um samtökum þar sem þau hóti að gera Spán að helvíti á jörð ef stjórnvöld hætti ekki stuðningi sínum við Bandaríkin og kalli burt hermenn frá Írak og Afganistan. „Ef ekki verður gengið að þessum kröfum þá lýsum við stríði á hend- ur ykkur, breytum landinu í hel- víti og látum blóð ykkar renna eins og fljót,“ segir í bréfinu. Angel Acebes, innanríkisráð- herra Spánar, hefur staðfest að að minnsta kosti þrír meintir hryðju- verkamenn hafi fallið í sprenging- unni í Leganes, þar á meðal Tún- isinn Sarhane Ben Abdelmajid Fakhet, sem talinn er hafa verið leiðtogi þeirra sem skipulögðu árás- irnar 11. mars. Fimmtán manns, þar af ellefu Marokkóar, eru í haldi lög- reglu grunaðir um að hafa tekið þátt í árásunum. Sex hafa verið ákærðir fyrir fjöldamorð og níu fyrir aðild að eða samstarf við hryðjuverka- samtök. ■ Þaulskipulagt banka- rán í Stavanger Norskur lögreglumaður var skotinn til bana í þaulskipulögðu bankaráni í Stavanger í Noregi í gær. Allt tiltækt lögreglulið á svæðinu tekur þátt í leit að ræningjunum sem allir komust undan. NOREGUR Lögreglumaður á sex- tugsaldri var skotinn til bana þeg- ar hópur vopnaðra manna rændi peningageymslur í miðborg Stavanger í Noregi snemma í gær- morgun. Skotbar- dagi braust út þeg- ar ræningjarnir flúðu undan lög- reglunni og er talið að einn ræningj- anna hafi særst. Umfangsmikil leit stendur yfir í Stavanger og ná- grenni og hefur verið lýst eftir fjór- um mönnum sem allir eiga saka- feril að baki. Ræningjarnir, sem taldir eru hafa verið um átta talsins, voru í skotheldum vestum, með hjálma og gasgrímur og vopnaðir vélbyss- um og sjálfvirkum rifflum. Þeir brutust inn í peningageymslur Norsk Kontantservice í byggingu Norges Bank við Dómkirkjutorgið og komust á brott með ótilgreinda upphæð í reiðufé. Að sögn lögreglu bendir allt til þess að ránið hafi verið þaulskipu- lagt. Ræningjarnir kveiktu í sendi- ferðabíl fyrir utan lögreglustöðina í miðborg Stavanger fyrir ránið og dreifðu táragasi um svæðið að því er virðist til að hindra för lögreglu. Að sögn sjónarvotta skutu ræn- ingjarnir út um bílgluggana þegar þeir óku á ofsahraða af vettvangi og urðu vegfarendur að kasta sér á jörðina til að forða sér undan skot- unum. Lögreglumaðurinn sem lést var að stíga út úr lögreglubíl þegar hann varð fyrir skoti. Ræningjarnir flúðu á þremur bílum sem síðan fundust brunnir til kaldra kola í úthverfi Stavanger. Bílarnir voru allir með stolnar númeraplötur en þó hefur verið lýst eftir tveimur einstaklingum sem tengjast þessum ökutækjum. Lögreglan setti upp vegatálma við alla vegi út úr borginni og not- aði þyrlu til að leita úr lofti. Eftir- litsmenn á landamærum Svíþjóðar og Finnlands voru beðnir að hafa gætur á þar sem óttast var að ræn- ingjarnir myndu reyna að komast úr landi. Lögreglan hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem allir sem urðu vitni að ráninu eru beðnir að gefa sig fram. Einnig hefur fólk verið beðið að vera á varðbergi þar sem ræningjarnir eru þungvopnaðir og taldir stórhættulegir. ■ Mynd um fóstureyðingu: Sýnd í BBC BRETLAND Myndir af fóstureyð- ingu verða sýndar í bresku sjón- varpi í fyrsta sinn í lok þessa mánaðar. Myndin verður vænt- anlega með þeim umdeildustu sem sýndar hafa verið í sjón- varpi þar í landi. Breska blaðið The Observer skýrði frá þessu í gær. „Fóstrið mitt“ nefnist mynd- in. Þar verða sýndar myndir af eyðingu á fjögurra vikna fóstri. Að sögn blaðsins verður ekkert dregið undan. Að auki sést í myndinnni eyð- ing á 10 vikna og 21 viku fóstri. Í þeim tilvikum sjást útlimir fóstursins og andlit mjög greinilega. ■ JEAN-PIERRE RAFFARIN Ávarpaði franska þingið. Forsætisráðherra Frakklands: Viðurkenndi mistök FRAKKLAND, AP Mikil spenna hefur verið í frönskum stjórnmálum eftir að stjórnarflokkarnir biðu afhroð í héraðskosningunum ný- lega. Jacques Chirac stokkaði upp í ríkisstjórn sinni eftir það og hafa margir gagnrýnt ákvörðun hans um endurskipun Jean-Pierre Raf- farin í embætti forsætisráðherra. Raffarin lofaði iðrun og yfir- bótum þegar hann ávarpaði franska þingið í fyrsta sinn eftir uppstokkunina. Hann viður- kenndi að ríkisstjórn hans hefði gert mistök en lofaði að þau yrði leiðrétt. ■ Vestmannaeyjar: Kveikti í lög- reglustöðinni LÖGREGLAN Bensíni var skvett á gafl lögreglustöðvarinnar í Vest- mannaeyjum og kveikt í aðfara- nótt sunnudags. Veggurinn er úr steini og slokknaði eldurinn af sjálfu sér og engum varð meint af. Málið er í rannsókn og hefur einn maður viðurkennt aðild að mál- inu. Þá voru tveir teknir fyrir ölv- unarakstur. ■ Ökutækjaskrá: Uppfærslu vantaði GJALDHEIMTA „Þessi einstaklingur lenti mjög óheppilega á milli kerfa og er algjört einsdæmi,“ segir Kristján V. Rúriksson, verk- efnastjóri hugbúnaðarþróunar hjá Umferðarstofu. Á föstudaginn klippti lögregla númer af bifreið einstaklings vegna þess að sam- kvæmt ökutækjaskrá var bifreið hans ótryggð. Þegar haft var sam- band við tryggingafélag manns- ins, Sjóva-Almennar, kom hins vegar í ljós að allar tryggingar voru í lagi. Reyndist trygginga- félagið hafa dregið að láta öku- tækjaskrá vita og valdið viðkom- andi talsverðum erfiðleikum vegna þessa. ■ HARÐUR ÁREKSTUR tveggja bíla varð á Múlavegi við Brekkukot í gær. Að sögn lögreglunnar á Ólafsfirði var fljúgandi hálka á veginum þegar áreksturinn varð. Engin slys urðu á fólki en báðir bílarnir skemmdust mikið. HRAÐAKSTUR Lögreglan á Vopna- firði tók níu fyrir hraðakstur þegar hún sinnti háfjallaeftirliti um helgina. Einn ökumaður var tekinn á 138 kílómetra hraða. – hefur þú séð DV í dag? Sveinbjörn féhirðir fluttur til Skotlands Kom heim til að ferma barnið sitt og fékk á sig ákæru HERT EFTIRLIT Öryggisgæsla hefur verið efld til muna við lestar- og strætisvagnastöðvar í Madríd í kjölfar árásanna 11. mars. HÚSRANNSÓKN VEGNA HUGSAN- LEGS SAMRÁÐS OLÍUFÉLAGANNA Vonast er til að niðurstaða fáist í það mál innan tíðar en rannsóknin hófst 2001 ■ „skutu ræningj- arnir út um bíl- gluggana þegar þeir óku á ofsa- hraða af vett- vangi og urðu vegfarendur að kasta sér á jörðina til að forða sér und- an skotunum. LÖGREGLUMAÐUR MYRTUR Ræningjarnir skutu til bana reyndan lögreglumann þegar hann var að stíga út úr þessum bíl. 88%

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.