Fréttablaðið - 06.04.2004, Page 39
ÞRIÐJUDAGUR 6. apríl 2004
Það verða eflaust einhverjir semhöfðu ætlað sér að berja Lee
Hall augum á hátíðarsýningu á leik-
riti hans Eldað með Elvis í Sam-
komuhúsinu á Akureyri á miðviku-
daginn fyrir vonbrigðum en höf-
undur verksins hefur afboðað komu
sína á sýninguna. Margir voru bún-
ir að lýsa því hvernig eftirvænting-
in ætlaði þá alveg að æra í biðinni
að hitta stórskáldið og voru nokkrir
leikarar verksins þar á meðal. Nú
hefur komið í ljós að Hall mætir
ekki og segja aðstandendur hátíðar-
sýningarinnar að því miður hafi ná-
inn ættingi Halls verið lagður inn á
spítala vegna alvarlegra veikinda
og því verður hann að fresta komu
sinni hingað til lands í bili.
„Honum þykir þetta mjög miður
og vill endilega reyna að komast
seinna enda hafi hann eytt einu
sumri á Mývatni þegar hann var
krakki,“ segir Hallur Helgason hjá
Loftkastalanum.
Eldað með Elvis hefur verið sýnt
fyrir fullu húsi í Loftkastalanum frá
áramótum og standa nú sýningar
yfir á verkinu í Samkomuhúsinu á
Akureyri. Þegar er uppselt á allar
fyrirhugaðar sýningar á Eldað með
Elvis fyrir norðan og því hefur
aukasýningum verið bætt við. Ættu
því allir Norðlendingar að geta not-
ið verksins þótt höfundurinn eigi
ekki heimangengt. ■
STEINN ÁRMANN MAGNÚSSON
Í hlutverki eftirhermu rokkkóngsins El-
vis Presley í leikritinu Eldað með Elvis
Lee Hall kemur síðar Leiklist LEE HALL
■ Kemst ekki á hátíðarsýningu
honum til heiðurs á Akureyri.
Nemendur Verzlunarskóla Ís-lands svífa enn um ganga
skólans í sigurvímu eftir að lið
Verslinga sigraði bæði Gettu
betur keppnina gegn Borgar-
holtsskóla og Morfís, ræðu-
keppni framhaldsskóla, gegn
MH. Í bæði skiptin var sigurinn
naumur, spurningakeppnina
sigruðu þeir í bráðabana með
tveimur stigum og í ræðu-
keppninni náðu Verslingar að
vera einu stigi yfir. Í Morfís-
keppninni náðu þeir einnig titl-
inum Ræðumaður kvöldsins og
varð sá hinn sami því Ræðu-
maður Íslands. Heyrst hefur að
hann hafi einungis getað notið
þess titils til skamms tíma sem
nemandi skólans, því nú hafi
honum verið vísað úr skóla sök-
um lélegrar mætingar. Gæti
verið að hann hafi þurft að æfa
sig svo mikið að hann hafi ekki
haft tíma fyrir námið en einnig
hafa menn undrast að hann
skuli ekki hafa notað mælsku
sína til að bjarga sér fyrir horn
í þessu máli.
Fréttiraf fólki
■ Veistu svarið?
Svör við spurningum á bls. 6
1.
2.
3.
Að áfengiskaupaaldur lækki úr
20 árum í 18 um næstu ára-
mót.
Gianni Porta.
Haukar.