Fréttablaðið - 06.04.2004, Page 17
Hvernig heldurðu þér í formi?
Kasóléttur en á leið í boxið aftur
Smáauglýsingar
byrja í dag á bls. 6
Flokkar & fjöldi
Bílar & farartæki 75 stk.
Keypt & selt 27 stk.
Þjónusta 48 stk.
Heilsa 7 stk.
Skólar & námskeið 3 stk.
Heimilið 11 stk.
Tómstundir & ferðir 13 stk.
Húsnæði 26 stk.
Atvinna 17 stk.
Tilkynningar 2 stk.
SMS sem minnir á pilluna
BLS. 3
Góðan dag!
Í dag er þriðjudagur 6. apríl,
97. dagur ársins 2004.
Reykjavík 6.27 13.30 20.35
Akureyri 6.07 13.15 20.21
Heimild: Almanak Háskólans
Sólarupprás hádegi sólarlag
Þú færð líka
allt sem þig vantar á
matur@frettabladid.is
Morgungrautur Gabríels
Hollur og góður morgunverður er
ómetanleg undirstaða þess sem
koma skal á viðburðaríkum degi.
Mörgum hættir þó til að festast í
einhæfum morgunverði. Hér er upp-
skrift að graut sem áreiðanlega er
ekki á hvers manns borðum á
morgnana en er meinhollur. Ekki
spillir fyrir að bankabyggið fæst líf-
rænt ræktað frá Móður Jörð í Valla-
nesi.
3 dl bankabygg
9 dl vatn
2 epli skorin í litla teninga
1–2 dl rúsínur
1 msk. kanill
2 tsk. salt
1–2 dl fræ eftir smekk, til
dæmis sólblómafræ og/eða
graskersfræ
Hráefnið er allt sett í pott til dæmis
að kvöldi og suðan látin koma upp.
Síðan er slökkt undir, lokið sett á
pottinn og farið að sofa. Að morgni
þarf bara að hita grautinn upp. Gott
er að hafa mjólk út á heitan graut-
inn en hann má
líka borða með
mjólk, en það
má líka borða
hann kaldan eða
nota sem músli
á súrmjólkina.
Grauturinn þolir
vel geymslu í
kæli svo tilvalið
er að sjóða hann
til nokkurra daga
í einu.
Ekki gleyma kryddinu
• Gerið innkaupalista þar sem þið
skráið vandlega niður hvað kaupa
þarf fyrir hverja máltíð. Ekki gley-
ma morgunmat.
• Kaupið líka inn nesti til að borða
á leiðinni, til dæmis djús, súkku-
laði, kex, samlokur og fleira. Þetta
er sérlega sniðugt ef keyra á langt
með krakka. Svöng börn eru pir-
ruð börn.
• Setjið poka af ísmolum í kæli-
boxið og látið standa í klukku-
stund áður en þið pakkið niður í
það.
• Pakkið sam-
lokunum fyrst
í pappír og
setjið svo ál-
pappír utan
um. Þannig
haldast þær
kaldar lengur.
Hluti sem ekki
mega kremjast
ætti að setja í
plastbox.
• Farið í gegnum
skápana rétt áður
en lagt er af stað og stingið niður
kryddi, salti, sykri, matarolíu og
þvílíku.
• Borðið fyrst matinn sem geymist
styst. Kjöt í vakúmpakkningu
mætti til dæmis geyma til síðasta
kvöldsins.
Matur í ferðalagið
Þeir eru eflaust margir sem ætla að
nýta páskana til ferðalaga af ein-
hverju tagi og má ætla að hjá mörg-
um verði þetta fyrsta sumar-
bústaðahelgin í sumar. Flestir
kannast við það hversu tíma-
frekt getur verið að kaupa inn
og pakka niður fyrir slíkar
ferðir. Oft endar maður með
alltof mikið af nammi og
stórsteikum. Litlu nauðsyn-
legu hlutirnir vilja hins vegar
stundum gleymast, til dæmis
hamborgarakryddið, tómat-
sósan og smjörið. Hér á eftir
fara nokkur ráð áður en haldið er af
stað í leit að ævintýrum.
Hálfdán Steinþórsson Segist taka þátt í óléttu konu
sinnar og borða allt nema plastpoka. Ætlar að hella sér aftur í
boxið af krafti eftir að erfinginn hefur litið dagsins ljós.
Smáauglýsingar
á 750 kr.
visir.is
SMÁAUGLÝSINGASÍMINN ER 550 5000
Liggur í loftinu
FYRIR MATINN
„Ég var voða duglegur í líkamsræktinni en núna er konan
mín komin á steypirinn og ég er bara búinn að tapa mér í
smurbrauði á kvöldin, búðingaáti og einhverju brjálæði,“
segir Hálfdán Steinþórsson, þáttastjórnandi Landsins
snjallasta. Hann er greinilega einn af þeim mönnum sem
upplifa meðgönguna mjög sterkt og fylgja konunni eftir í
þeim breytingum sem hún upplifir. „Já, ég hef gert það
frá fyrsta degi. Mér var óglatt fyrsta mánuðinn. Svo hætti
ég að drekka og nú er ég alveg búinn að tapa mér í nart-
inu á kvöldin. Sem er
reyndar alveg dásamlegt.
En það kemur niður á mitt-
ismálinu.“
Hálfdán segir að vissu-
lega sé konan ánægð með
það hversu náið hann upp-
lifir meðgönguna með
henni. „Hún er hins vegar ekkert sátt við að ég sé að bæta
svona á mig,“ segir hann mæðulega. Hann er því staðráð-
inn að fara af fullum krafti í heilsubótina þegar konan
kemst með honum. „Nú eru ekki nema um tvær vikur í að
barnið fæðist þannig að þetta kemur allt saman.“
Hálfdán hefur annars verið að æfa box með Hnefa-
leikafélaginu og segist hafa verið nokkuð duglegur síðasta
hálfa árið, þar til hann gleymdi sér aðeins. „Þetta er
nokkurs konar fitnessbox með Magna, sem er alveg
magnaður. Þetta er mjög skemmtilegt og ýtir svolítið und-
ir karlmennskuna, sem er aðeins farin að dala. Þarna ríkir
líka heragi, það er öskrað á mann svo maður þorir ekki
annað en að dingla til á sér bumbunni af krafti. Ég er hrif-
inn af því, enda verð ég að viðurkenna að ég þarf á svona
aðhaldi að halda, ef ég á ekki alveg að detta í nartið,“
segir Hálfdán að lokum.
audur@frettabladid.is
Auglýsingin
„Ætli það sé ekki best að leysa frá
skjóðunni og ljóstra upp um það hér
og nú að eftir að ég hafði farið úr
bolnum í ljósmyndatökunni var
brugðist við og fenginn staðgengill
fyrir neðan háls,“ segir Hálfdán.
Fjölskylduhestur til sölu. Til sölu þæg-
ur töltgengur hestur. Hentar fyrir alla
í fjölskyldunni. Uppl. í s. 847 9770 og
netfang eggerthorse@hotmail.com
FASTEIGNIR HEIMILI HEILSA NÁM FERÐIR MATUR VIÐBURÐIR BÍLAR ATVINNA FJÁRMÁL TÍSKA O.FL.
Samkvæmt nýrri skoðanakönnun
hefur aðeins 21 prósent lands-
manna trú á skoðanakönnunum, sem
þýðir að 79 prósent þjóðarinnar
hafa ekki trú á að aðeins 21 pró-
sent hafi trú á þessari könnun!
Og þá er
komið að
íþróttum!