Fréttablaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 18

Fréttablaðið - 06.04.2004, Blaðsíða 18
Plástur í stað sprautu Hingað til hefur tíðkast að gefa fólki verkjastillandi morfínlyf í æð eftir skurð- aðgerðir. Í nýjasta hefti vísindatímaritsins JAMA er birt grein þar sem sýnt er fram á að sami árangur fæst með verkjastillandi plástri sem inniheldur morfín-skylda efnið fentanýl. Þessi leið er betri en dæling í æð að því leyti að sjúklingurinn er ekki bund- inn við slöngu og dælu, sem hindra hreyfanleika hans. A Q U I S Handklæði * Létt * Fyrirferðalítil * Þurrka vel * Þorna fljótt * Endast vel Útsölustaðir: Sport- og útivistaverslanir um land allt Frábær fermingargjöf - Frábær í ferðalagið Dreifing: Daggir s: 462-6640 Þar sem þú getur treyst á gæðin YGGDRASILL, KÁRASTÍG 1, 101 RVK., S: 5624082 Lífrænt ræktaðar vörur Góð heilsa, andleg sem líkamleg, verður seint metin til fullnustu. Það finnum við best þegar eitt- hvað hrjáir okkur. Svæðameð- höndlun er áhrifaríkt meðferðar- form sem virkjar lækningamátt líkamans og stuðlar að alhliða jafnvægi og vellíðan. „Taugaend- ar sem orkurásir liggja frá öllum líffærum og líkamshlutum og niður til handa og fóta. Iljum og lófum má þannig líkja við landa- kort líkamans, en svæðameðferð byggir á þrýstimeðhöndlun svæða sem tengjast líffærum og líkamshlutum,“ segir Þórgunna Þórarinsdóttir, svæðameðhöndl- unarkennari. „Þjálfaður svæða- meðferðaraðili finnur spennu, þykkildi eða eins og litlar agnir, þegar þrýstimeðferð er beitt á svæði. Ávinningurinn er afar góð slökun og eflir lækningarmátt líkamans, sem vinnur best í friði og ró.“ Fagmaður greinir oft kvilla með því að þreifa iljar, án þess þó að mega sjúkdóms- greina. Slíkt segir Þórgunna ein- ungis í höndum lækna. „Mildar læknisaðferðir má oft reyna, áður en fólk leitar lækninga á sterkum lyfjakúrum. Fyrir kem- ur þó að við greinum líkamlegt ójafnvægi og við bendum fólki þá hiklaust á að leita læknis.“ Hefur Þórgunna sjálf greint sjúkdóma, sem engin vitneskja var um fyrir meðferð? „Já, til mín kom kona fyrir nokkrum árum sem kenndi sér meins, þeg- ar ég snerti á svæði skeifugarn- ar. Hún fann svo til, að hún baðst undan frekari snertingu. Ég benti henni á að leita sér læknis strax, sem fann ekkert að kon- unni. Hún kom aftur til mín og hvatti ég hana til að leita álits annars læknis. Áður en til þess kom sprakk skeifugörnin og varð að sækja hana með sjúkrabif- reið. Þarna hefði viðbragðsflýtir fagmanns breytt öllu.“ Þórgunna segir svæðameðferð vera fyrir- byggjandi og svo eitt besta lækn- inganudd sem völ er á. „Eftir nokkur meðhöndlunarskipti er viðnám orðið minna. Fólk fer þá að finna fyrir úthreinsunarein- kennum, bættri líðan og fer að sofa betur.“ „Ég er kennari að mennt og kenni reyndar leiklist í kennslu við Kennarahá- skóla Íslands. Ég hef alltaf verið meðvituð um beitingu líkam- ans en í dag fer mikinn hluti vinnu minnar fram við tölvuna og þannig hefur mér tekist að við- halda vöðvabólgu í herðum og hálsi.“ segir Anna Jeppesen, en hún hefur um árabil sótt tíma í svæða- meðferð, eða allt frá því Þórgunna Þórar- insdóttir, svæða- meðferðaraðili sneri aftur úr námi frá Danmörku, fyrir rúmum áratug. Með- ferðin gagnað- ist Önnu það vel, að hún hefur hitt Þór- gunnu reglulega frá þeirra fyrs- ta fundi. En hversu oft þykir Önnu hæfilegt í dag? „Ég hitti Þór- gunnu á hálfsmán- aðarfresti. Ég er ekki pestargjörn að eðlisfari, en Þórgunna tekur ávallt á þeim hluta iljanna sem tengjast ónæmiskerfinu. Og ég hef oft hugsað um þetta gegnum árin, hvort svæðanudd hennar hafi, þegar upp er staðið, við- haldið minni góðu heilsu og varið mig gegn umgangskveisum. Í mínum huga stendur Þórgunna og hennar svæðameðferð fyrir líkamlegu viðhaldi mínu og hjálpar mér afdráttarlaust í dag- legu lífi. Svæðameðferð hennar og sú meðhöndlun sem ég hef fengið hjá Þórgunnu styður við bakið á mér, í víðtækum skiln- ingi þeirra orða. Ég verð að við- urkenna að náist ekki samkomu- lag um tíma, vegna anna okkar beggja, finnst mér sem einhvern mikilvægan þátt vanti í daglegt líf mitt.“ Ónæmiskerfið tekið í einum rykk: Engar flensur, takk. Anna Jeppesen „Viðheld minni góðu heilsu með svæðameðferð.“ Svæðameðhöndlun virkjar lækningamátt líkamans: Landakort líkamans í góðum höndum Þórgunna Þórarinsdóttir Líkami manneskjunnar er sannkallað undraverk.

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.