Fréttablaðið - 06.04.2004, Page 32
Það verður að teljast heldurseint í rassinn gripið en bæjar-
yfirvöld í Haslach í Austurríki
ákváðu á dögunum að afturkalla
heiðursborgararéttindi Adolfs
Hitler. Einræðisherrann var
prýddur þessum heiðri fyrir 66
árum síðan, eða í mars árið 1938.
Það var svo einhljóða ákvörðun
bæjaryfirvalda í vikunni að strípa
Hitler heiðrinum.
Bæjarstjórinn Norbert Leitner
kallaði aðgerðina „lýðræðislega
hreinsun“ sem hefði löngu verið
tímabær. Forverar hans í starfi
töldu að heiðursborgaratitillinn
rynni af mönnum um leið og þeir
væru úrskurðaðir látnir. Svo
reyndist ekki vera þegar Leitner
rannsakaði málið.
Bærinn Bitterfeld í Þýskalandi
er einnig með Adolf Hitler á lista
yfir heiðursborgara. Aðrir hafa
tekið fyrrum einræðisherra
Þýskalands af skrá. Borgarstjóri
Bitterfeld segist ekki ætla að
breyta skráningunni þar sem hún
sé „sögulega rétt“. ■
24 6. apríl 2004 ÞRIÐJUDAGUR
LANCÔME KYNNING Í DAG OG Á MORGUN MIÐVIKUDAG
Glæsilegir seiðandi litir við öll tækifæri.
Vantar þig ráðleggingar varðandi umhirðu húðarinnar?
Viltu breyta förðuninni? Notaðu tækifærið og láttu
snyrti- og förðunarfræðing frá LANCÔME aðstoða þig.
Allir sem koma á kynninguna fá glaðning frá LANCÔME
Glæsilegir kaupaukar.
Vor- og
sumarlitirnir 2004
Fred Farrugia
Heimsæktu www.lancome.com
GLERÁRTORG,
AKUREYRI,
sími: 461 5800
Mjódd - Sími 557 5900
FRÁBÆRT ÚRVAL
AF ALLSKONAR KVENFATNAÐI,
SJÓN ER SÖGU RÍKARI.
VERIÐ VELKOMNAR
Dramatíkin í lífi Whitney Hou-ston og Bobby Brown er orð-
in það mikil að þau hafa ákveðið
að breyta lífi sínu í sjónvarps-
þáttaseríu. Hjónin bætast því í
hóp þeirra stjarna sem sam-
þykkja að hleypa sjónvarpstöku-
fólki inn í líf sitt fyrir peninga.
Hjónin byrjuðu að skrásetja líf
sitt á þennan hátt þegar vandræði
þeirra urðu sem mest í von um að
geta selt myndefnið fyrir háar fjár-
hæðir.
Bobby var nýlega sleppt úr fang-
elsi eftir að hafa verið dæmdur fyr-
ir að greiða ekki fyrstu barnsmóður
sinni meðlag í mörg ár. Söngvarinn
lét taka upp öll réttarhöldin og þeg-
ar hann var sendur í steininn.
Talsmenn Whitney segja hug-
myndina hafa alfarið verið hans
en að hún styðji eiginmann sinn í
einu og öllu og taki þess vegna
viljug þátt í verkefninu.
Síðustu vikuna hefur tökulið
fylgt fjölskyldunni eftir hvert fót-
mál, bæði á veitingahúsin og í
einkasamkvæmi. Whitney skráði
sig nýverið á meðferðarstofnun
en stoppaði stutt. Að þessu sinni
barðist hún við fíkn á verkjalyfj-
um en áður hefur hún leitað sér
hjálpar í baráttu sinni við kókaín,
maríjúana og áfengi. ■
WHITNEY HOUSTON
Hefur ekki átt sjö dagana sæla.
Breyta lífi sínu í sjónvarpsþátt
BOBBY BROWN
Tukthúslimurinn Bobby Brown hefur ákveðið að græða á allri dramatíkinni í kringum sig.
PIXIES
He took his sister from his head
And then painted her on the sheets
And then rolled her up in grass and trees
And they kissed ‘till they were dead
This ain’t no holiday
But it always turns out this way
Here I am, with my hand
Black Francis, söngvari Pixies, var ekki feiminn við að
syngja um sjálfsfróun í laginu The Holiday Song af fyrstu
plötu Pixies, Come on Pilgrim, frá árinu 1987.
Popptextinn
ADOLF HITLER
„Nein, Schweinhund!“. Hitler virðist ekkert allt of sáttur við það að hafa verið strípaður
heiðursborgaratitlinum.
Fréttiraf fólki
Hitler missir
heiðursborgaratitil
■ Bærinn Haslach í Austurríki tekur
Hitler af lista yfir heiðursborgara.