Fréttablaðið - 14.04.2004, Qupperneq 12
12 14. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ Evrópa
BRUNNIN BÍLFLÖK
Hátt í fjörutíu bílar brunnu til kaldra kola
þegar olíuflutningabíll lenti í árekstri og
sprakk í loft upp í Estella á Spáni.
Tveir slösuðust í árekstrinum.
KANADA, AP Mestu selveiðar sög-
unnar hófust á eyjum við austur-
strönd Kanada í gær þrátt fyrir
hávær mótmæli umhverfis- og
dýraverndunarsinna.
Um tólf þúsund selveiðimenn
héldu út í eyjarnar í gær en
kanadísk stjórnvöld hafa veitt
þeim heimild til að veiða ríflega
300 þúsund seli. Stjórnvöld telja
að veiðarnar muni ekki hafa áhrif
á selstofninn. Stofninn í Norður
Atlantshafi telur um 5,2 milljónir
sela og telja stjórnvöld að veið-
arnar muni hafa góð áhrif á vist-
kerfið á svæðinu þar sem selurinn
sé að ganga frá ýmsum fiskistofn-
um dauðum.
Talið er að veiðarnar muni
skila um 20 milljónum dollara í
tekjur en verð á skinninu er mjög
hátt um þessar mundir. ■
Forseti Ísraels í opinberri heimsókn í Ísrael:
Komið í veg fyrir
morðtilræði
UNGVERJALAND, AP Komið var í veg
fyrir morðtilræði gegn Moshe
Katsav, forseta Ísraels, í Ung-
verjalandi að sögn ungversku lög-
reglunnar.
Katsav, sem er í Likudflokki
Areils Sharon forstætisráðherra,
kom í gær í þriggja daga opinbera
heimsókn til Ungverjalands þar
sem hann mun meðal annars opna
safn til minningar um helförina
gegn gyðingum. Lögreglan segist
hafa fengið upplýsingar um að til
stæði að fremja hryðjuverk á
meðan á heimsókn forsetans
stæði. Í framhaldinu hafi rann-
sókn farið í gang og þrír menn af
arabískum uppruna verið hand-
teknir. ■
ÞÚSUNDIR HEIMILA UMFLOTIN
VATNI Flóð hafa lamað athafnalíf
og samgöngur í norðvesturhluta
Bosníu. Í fyrradag voru þúsundir
heimila umflotin vatni og lýst var
yfir neyðarástandi á stóru svæði
við árnar Vrbas og Lavsa. Sjálf-
boðaliðar hafa flutt fjölda manna á
brott frá heimilum sínum og herinn
hefur verið settur í viðbragðsstöðu.
KAUPSÝSLUMAÐUR MYRTUR Að
minnsta kosti fjórir létu lífið og
tveir særðust þegar brynvarin bif-
reið rússnesks kaupsýslumanns
var sprengd í loft upp í Moskvu.
Maður á vélhjóli ók upp að bílnum
á gatnamótum og lagði sprengjuna
á þakið. Sprengjan sprakk sam-
stundis. Maðurinn sem kom
sprengjunni fyrir var á meðal
þeirra sem létust.
NOREGUR Ránsfengurinn í
bankaráninu hjá Norsk Kont-
antservice í Stafangri er talinn
vera á bilinu sex hundruð til millj-
arður íslenskra króna. Heimildir
norska blaðsins Verdens Gang
herma að ránsfengurinn hafi ver-
ið um 60 milljónir norskra króna.
Samkvæmt eftirlitsmyndavélum í
bankanum fóru ræningjarnir með
minnst sex stóra peningasekki út
úr bankanum. Talið er að hver
sekkur rúmi hundrað milljónir ís-
lenskra króna. Hugsanlegt er talið,
samkvæmt heimildurm norrænna
fjölmiðla, að ránsfengurinn hafi
verið meiri, eða allt að milljarður
íslenskra króna.
Þetta er langstærsti ránsfengur
í norskri glæpasögu að lágmarki
helmingi meiri en í stærsta ráni í
Noregi hingað til. Sé hærri talan
raunin er ránið í Stafangri það
stærsta á Norðurlöndum. Ræn-
ingjarnir skutu lögreglumann til
bana við ránið. Samkvæmt heim-
ildum Verdens Gang er talið að
óvenju miklir fjármunir hafi verið
hjá Norsk Kontantservice þegar
ránið var framið. Meðal annars
helgarinnkoma margra stórversl-
ana og verslunarkjarna. ■
GÆÐAVARA –
BETRA VERÐ!
G. FORCE profiler eru ný og glæsileg
High-Performance-dekk frá BFGoodrich. Þú
færð þessi dekk á ótrúlegu verði hjá okkur.
JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK • FÓLKSBÍLADEKK • JEPPADEKK
LEIÐANDI Í LÆGRA DEKKJAVERÐI
Kosningar í Suður-Afríku:
Mbeki
sigurviss
SUÐUR-AFRÍKA, AP Flest bendir til þess
að Afríska þjóðarráðið, undir forystu
Thabos Mbekis forseta, vinni yfir-
burðasigur í þingkosningunum sem
fram fara í Suður-Afríku í dag.
Afríska þjóðarráðið hefur farið með
völdin í Suður-Afríku síðan fyrstu
lýðræðislegu kosningarnar voru
haldnar fyrir tíu árum.
Í viðtali við BBC viðurkennir
Mbeki að lífskjör almennings í Suður-
Afríku hafi lítið batnað á síðustu
árum en ítrekar þó að breytingar séu
í vændum. Stjórnarandstæðingar
saka Afríska þjóðarráðið um hafa
ekki gripið til aðgerða til að minnka
bilið milli ríkra og fátækra og hefta
útbreiðslu alnæmis. Áætlað er að um
fimm milljónir manna séu smitaðar
af HIV-veirunni í Suður-Afríku og
telja hjálparsamtök að um 800.000
alnæmissjúklingar séu of veikburða
til að mæta á kjörstað. ■
Ríflega 300 þúsund
selir drepnir:
Mestu
selveiðar
sögunnar
SELUR
Talið er að veiðarnar muni skila um 20 milljónum dollara í tekjur.
FORSETAR
Moshe Katsav, forseti Ísraels og Ferenc
Madl, forseti Ungverjalands, hlýða á
þjóðsöngva landanna fyrir fund þeirra í
forsetahöllinni í Búdapest.
STÆRSTU RÁN SÍÐUSTU ÁRA Á
NORÐURLÖNDUM
Nóvember 1990: Gotabanken í Stokk-
hólmi rændur; ráns-
fengur 900 milljónir
íslenskra króna.
Júlí 1995: Fjárgeymsla í Täby
rænd, ránsfengur tæp-
ar 300 milljónir
íslenskra króna.
Nóvember 2000: Bílstjóri peningaflutn-
ingafyrirtækis hverfur
eftir mánuð í starfi,
ránsfengur 400 millj-
ónir íslenskra króna.
Október 2002: Rán á Arlandaflugvell-
inum, ránsfengur 400
milljónir íslenskra
króna.
Mars 2003: Starfsmenn Securitas
rændir í Linköping,
ránsfengur 250 millj-
ónir íslenskra króna.
TÓK TÓLF MÍNÚTUR
Ránið í Stafangri var þrautskipulagt og tólf mínútum eftir að það hófst voru ræningjarnir á
bak á burt með jafnvirði minnst sex hundruð milljóna íslenskra króna.
VIÐ STAFANGUR
Sérsveitarmenn lögreglunnar komu fljótlega á vettvang og leituðu ræningjanna.
Ránsfengurinn í Stafangri:
Tóku yfir
hálfan milljarð