Fréttablaðið - 14.04.2004, Blaðsíða 26
18 14. apríl 2004 MIÐVIKUDAGUR
■ Konan mín
Laust fyrir miðnætti þann 13.apríl 1912 sigldi farþegaskipið
Titanic á ísjaka með þeim afleið-
ingum að skrokkurinn rifnaði og
skipið byrjaði að sökkva í Norður
Atlantshafið. Skipið, sem var eitt
það stærsta og glæsilegasta sem
sögur fóru af, hafði lagt upp í jóm-
frúarferð sína frá Southampton á
Englandi fjórum dögum áður en
ferðinni var heitið yfir Atlants-
hafið til Bandaríkjanna.
Titanic var hannað af írska
skipasmiðnum William Pirrie og
var talið hraðskreiðasta skip í
heimi og þá trúðu menn því einnig
eins og nýju neti að skipið gæti
ekki sokkið.
Skipsskrokknum var skipt í 16
hólf sem áttu að vera með öllu
vatnsheld og því máttu fjögur
hólfanna fyllast af sjó án þess að
hættulegur halli kæmi á skipið.
Þetta dugði þó ekki til þegar skip-
ið klessti á ísjaka og það flæddi
inn í fimm hólf og klukkan 20 mín-
útur yfir tvö hvarf ferlíkið ofan í
djúpið um það bil þremur klukku-
stundum eftir áreksturinn við
jakann.
Ofurtrúin á skipið varð til þess
að öryggisráðstafanir voru í lág-
marki og vegna skorts á björgun-
arbátum og skipulagsleysis fórust
1.500 manns með skipinu en þeir
sem hurfu ekki með því ofan í
djúpið frusu í hel í sjónum. Af
þeim um það bil 700 sem komust
lífs af úr sjávarháskanum voru
konur og börn í meirihluta. ■
REYNIR KRISTJÁNSSON
Reynir
Kristjánsson
Ég og konan mín höfum veriðsaman lengi og hún er hlý, góð
og traust manneskja með stórt
hjarta; frábær móðir og mikill
vinur.“
Reynir Kristjánsson, þjálfari
körfuknattleiksliðs Hauka. ■
Hátíðarsýning á Sirkús verðuropinbera hliðin á afmælis-
fagnaðinum, síðan ætlum við að
halda okkur sjálfum hóf og opna
vef félagsins sem verður okkar
miðstöð á netinu þegar fram líða
stundir,“ segir Þorgeir Tryggva-
son, formaður leikfélagsins Hug-
leiks sem er 20 ára í dag.
„Þetta er stórt félag, með um
hundrað manns á félagaskrá og
hjá okkur eru ennþá starfandi
stofnfélagar leikfélagsins. Það
hefur verið mikil samfelld gróska
í félaginu frá stofnun og alltaf
komið leikrit á hverju ári. Það
bætist líka alltaf við kraftmikið
og skemmtilegt fólk sem gef-
ur skemmtilegan stíganda í
starfsemina.“
Leikfélagið leggur mikla
áherslu á frumsamin leikrit
og auk búningahöfunda,
leikara og annarra þeirra
sem nauðsynlegir eru til
að koma upp leikriti
eru ótal leik-
ritahöfundar.
„Fyrsta árið
var sett á svið
elsta leikritið
sem fannst á
Borgarbóka-
safninu en árið
eftir var Skugga-
Björg sett upp,
þar sem kynjunum
hafði verið snúið
við og svo mörgu
var breytt að þetta
er talið fyrsta
frumsamda verk
leikfélagsins. Öll
verk síðan hafa
verið frumsamin af
félögum hópsins.“
Leikritið Sirkús,
sem er svarthvítt
gamanleikrit um Kalda stríðið og
landvarnir er frumsamið af Þor-
geiri, formanni félagsins, Ár-
manni Guðmundssyni, Hjördísi
Hjartardóttur og Sævari Sigur-
geirssyni. Þorgeir segir þetta
vera síðasta hluta þríleiks og vís-
ar þar til tveggja leikrita sem þau
hafa áður skrifað fyrir Hugleik,
Stútungasögu
og Fáfnis-
menn. „Þau
fjalla öll þrjú
um sjálfstæði
Í s l a n d s .
Stútungasaga endar á að Gamli
sáttmáli er gerður, Fáfnismenn
fjallar um sjálfstæðisbaráttuna
og Sirkús fjallar um varnarsamn-
inginn.“
Þessi næstsíðasta sýning leik-
hópsins á Sirkús verður í Tjarnar-
bíói í Reykjavík, en sú síðasta
verður á laugardaginn 17. apríl.
Báðar sýningar hefjast klukkan
20.
„Við erum svo með fimm ein-
þáttunga í æfingu, sem fjalla allir
um kleinur, eftir Þórunni Guð-
mundsdóttur. Við verðum líklega
með meira en það í vor, þannig að
það er enginn tími til að staldra
við og halda hátíð. Það er svo mik-
il gróska og mikið að gera.“ ■
SARAH MICHELLE GELLAR
Leikkonan sem hefur gert garðinn einna
frægastan í hlutverki blóðsugubanans
Buffy er 27 ára í dag.
14. apríl
■ Afmæli
Ólöf Pálsdóttir myndhöggvari er 84
ára.
Haraldur Bessason, fyrrum rektor, er
73 ára.
TITANIC
Þekktir einstaklingar fórust með glæsifleyinu, þeirra á meðal voru breski blaðamaðurinn
William Thomas Stead og erfingjar Sraus-, Astor- og Guggenheim-auðævanna.
TITANIC
■ Farþegaskipið ósökkvandi rakst á
ísjaka á þessum degi og hvarf
skömmu síðar ofan í Atlantshafið.
14. apríl
1912
Samfelld gróska í félaginu
Titanic rekst á ísjaka
Hannes Hlífar Stefánsson varðá dögunum Íslandsmeistari í
skák í sjötta sinn á aðeins sjö
árum. Hannes lagði Helga Áss
Grétarsson að velli með 2,5 vinn-
inga gegn 1,5. Aðeins þeir Eggert
Gilfer og Baldur Möller hafa orð-
ið oftar meistarar en þeir hömp-
uðu titlinum sjö sinnum og því
verður að teljast nokkuð líklegt að
Hannes komi til með að gera enn
betur í framtíðinni enda maðurinn
ungur að árum.
„Það er góður möguleiki á því
að slá met þeirra félaga og ég
stefni að sjálfsögðu að því,“ segir
Hannes, og bætir við: „Útslátta-
keppnin er talsvert erfiðari en
venjubundin keppni og reynir
miklu meira á taugarnar enda má
ekki mikið bregða út af – þá er
maður bara dottinn út. Á hinn bóg-
inn er alltaf mikill léttir að vinna
fyrstu skákina og ná yfirhöndinni
í einvíginu en reyndar var svo
önnur skákin mjög erfið“.
En hvernig lýst Hannesi á
ástandið í skákheiminum, bæði
hér heima og erlendis? „Ástandið
er ekki nógu gott í hinum alþjóð-
lega skákheimi og mjög slæmt að
ekki skuli vera meiri samstaða
ríkjandi og það gengur auðvitað
ekki að hafa fleiri en einn heims-
meistara. Það er alltaf slæmt þeg-
ar pólitísk afskipti og deilur eru
ráðandi og kominn tími á að leysa
málin í eitt skipti fyrir öll. Hvað
ástandið hér heima varðar þá er
það mjög gott og þessi uppsveifla
í kringum Hrókinn er mjög já-
kvæð og hefur orðið til þess að
draga íslenskt skáklíf upp úr
ákveðnum doða sem verið hefur
undanfarin ár en auðvitað má
segja að sú deyfð haldist í hendur
við deilurnar í alþjóðlega skák-
heiminum enda erfitt að vinna að
framdrætti skákarinnar þegar
allt er í komið í bál og brand úti.
Þetta mun skila sér þegar til
lengri tíma er litið í fleiri góðum
skákmönnum. Það er orðið nokk-
uð langt síðan við eignuðumst
stórmeistara og alveg tími kom-
inn á það.“ ■
HANNES HLÍFAR STEFÁNSSON
Landaði sjötta Íslandsmeistaratitlinum um
helgina og hyggur á frekari landvinninga.
„Evrópumeistaramót einstaklinga fer fram í
Tyrklandi í maí. Það er sterkt mót og ef
Ísland sendir menn þá fer ég.“
Skák
HANNES HLÍFAR STEFÁNSSON
■ Enn og aftur Íslandsmeistari í skák.
Hann hefur hampað titlinum sex sinnum
á síðustu sjö árum.
Sex titlar á sjö árum
Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma, langamma og langalangamma
ANNA S. GUÐMUNDSDÓTTIR
Seyðisfirði
lést á Sjúkrahúsi Seyðisfjarðar þriðjudaginn 13. apríl 2004.
Jarðarförin auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Mikael Jónsson Lilja G. Ólafsdóttir
Lovísa Jónsdóttir Hafsteinn Steindórsson
■ Andlát
Anton Einarsson, Hraunbæ 85, Reykja-
vík, lést laugardaginn 10. apríl.
Ásbjörn Pálsson húsasmíðameistari,
áður til heimilis að Kambsvegi 24, lést
sunnudaginn 11. apríl.
Bjarni Ásgeirsson, Skálaheiði 9, Kópa-
vogi, lést fimmtudaginn 8. apríl.
Geir Gissurarson frá Byggðarhorni,
Grænumörk 5, Selfossi, lést sunnudag-
inn 11. apríl.
Gróa Axelsdóttir, Hlévangi, Keflavík, lést
föstudaginn 9. apríl.
Hrefna Gunnarsdóttir, Eskihlíð 18a,
Reykjavík, lést fimmtudaginn 8. apríl.
Ingólfur Guðmundsson flugvélastjóri,
Mánatúni 4, Reykjavík, lést laugardaginn
10. apríl.
Kristín Erlendsdóttir frá Eystri-Hellnum,
Gaulverjabæjarhreppi, Egilsbraut 9, Þor-
lákshöfn, lést sunnudaginn 11. apríl.
Ólafur Jón Þórðarson, Lerkigrund 6,
Akranesi, lést fimmtudaginn 8. apríl.
■ Jarðarfarir
13.30 Margrét Guðmundsdóttir Hjalte-
sted verður jarðsungin frá Foss-
vogskirkju.
13.30 Vöggur Jónasson, Sunnuhlíð 21c,
Akureyri, verður jarðsunginn frá
Akureyrarkirkju.
14.00 Margrét A. Kristófersdóttir frá
Kúludalsá, Höfðagrund 8, Akra-
nesi, verður jarðsungin frá Akra-
neskirkju.
15.00 Skarphéðinn Össurarson,
Kleppsvegi 2, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Dómkirkjunni í
Reykjavík.
Afmæli
LEIKFÉLAGIÐ HUGLEIKUR
■ Elsta sjálfstæða áhugaleikfélag höfuð-
borgarinnar er 20 ára.
ÚR LEIKRITINU SIRKÚS
Hátíðarsýning á leikritinu verður í Tjarn-
arbíói klukkan 20 í kvöld. Það er margt
á döfinni framundan hjá leikfélaginu.
Meðal annars verður farið með leikritið
Undir Hamrinum á leiklistarhátíð í
Eistlandi í sumar.