Fréttablaðið - 18.04.2004, Blaðsíða 39
31SUNNUDAGUR 18. apríl 2004
Komið við hjá Evró í Skeifunni og kynnið ykkur allt það nýjasta fyrir
sumarið á okkar árlegu sumar stórsýningu. Í fyrsta sinn býður Evró
upp á húsbíla og hjólhýsi af öllum gerðum og stærðum frá þekktum
framleiðendum í Evrópu, draumur ferðamannsinns.
STÓRSÝNING
UM HELGINA
Þýska knattspyrnan:
Brotlending
Bæjara
FÓTBOLTI Vonir Bayern München um
þýska meistaratitilinn eru nánast
brostnar eftir að liðið beið lægri
hlut fyrir Borussia Dortmund, 2–0,
á útivelli í þýsku 1. deildinni í knatt-
spyrnu í gær. Leikmenn Bæjara
náðu sér aldrei á strik og til að bæta
gráu ofan á svart var Michael Ball-
ack rekinn af velli undir lok leiks-
ins. Þetta þýðir að Werder Bremen
getur náð tíu stiga forystu á toppi
deildarinnar ef liðið vinnur
Hannover á heimavelli í dag. Það
eru aðeins fimm umferðir eftir af
þýsku deildinni og því er ekki hægt
að segja annað en að staða Werder
Bremen sé mjög góð. ■
Deildarbikar karla:
Stórsigur
Keflavíkur
FÓTBOLTI Tveir leikir fóru fram í
deildarbikar karla í knattspyrnu í
gær. Keflvíkingar unnu stórsigur
á FH, 4–1, í Fífunni. Atli Viðar
Björnsson skoraði mark FH en
þeir Zoran Ljubicic, Ingvi Guð-
mundsson, Hörður Sveinsson og
Ólafur Ívar Jónsson skoruðu
mörk Keflavíkur.
Víkingar lögðu Þórsara, 1–0, í
Boganum á Akureyri. Varnar-
maðurinn Sölvi Geir Ottesen
tryggði þeim sigurinn í leiknum
með skalla en Þórsarar brenndu
af vítaspyrnu undir lokin sem
hefði getað tryggt þeim jafn-
tefli. ■
Úrslitakeppnin í NBA-deildinni hófst í gær:
Öruggt hjá Indiana
gegn Boston Celtics
KÖRFUBOLTI Indiana Pacers vann
öruggan sigur á Boston Celtics,
104–88, í fyrsta leik liðanna í úr-
slitakeppni NBA-deildarinnar í
körfuknattleik í Conseco Field-
house-höllinni í Indianapolis í
gær.
Indiana gerði út um leikinn
með frábærum öðrum leikhluta
sem liðið vann með 21 stigi, 35–14.
Boston náði að minnka muninn í
fjórða leikhluta en átti þó aldrei
möguleika gegn sterku liði Indi-
ana.
Jermaine O’Neal og Ron Artest
voru stigahæstir hjá Indiana með
24 stig hvor og O’Neal tók jafn-
framt 11 fráköst. Al Harrington
skoraði 14 stig og tók 10 fráköst
og Reggie Miller skoraði 11 stig.
Paul Pierce var atkvæðamest-
ur hjá Boston Celtics með 20 stig
og 10 fráköst og Ricky Davis og
Chucky Atkins skoruðu 19 stig
hvor.
Þrír aðrir leikir fóru fram í
gær en þeim var ekki lokið þegar
Fréttablaðið fór í prentun. ■
Sex marka sigur
gegn Fram
KA-menn tryggðu sér sæti í undanúrslitum í gær
HANDBOLTI KA-menn tryggðu sér
sæti í undanúrslitum úrslitakeppni
RE/MAX-deildar karla í handknatt-
leik í gær þegar þeir lögðu Framara,
34–30, á Akureyri í þriðja leik lið-
anna í átta liða úrslitum. KA-menn
byrjuðu leikinn af krafti og höfðu
yfirhöndina allan fyrri hálfleikinn.
Þeir leiddu með sjö mörkum, 18–11,
þegar flautað var til hálfleiks og var
við ramman reip að draga hjá Fröm-
urum eftir að þeir misstu Hjálmar
Vilhjálmsson með rautt spjald af
velli eftir tólf mínútna leik. Fyrri
hálfleikur var mjög skemmtilegur á
að horfa en sá síðari var ekki af
sama gæðaflokki enda leikurinn
nánast búinn í hálfleik. Framarar
komust aldrei nær KA-mönnum en
þau fjögur mörk sem skildu liðin að
í leikslok og eru því komnir í sumar-
frí. KA-menn mæta hins vegar sig-
urvegurunum í viðureign Hauka og
ÍBV í undanúrslitum en þessi lið eig-
ast við í öðrum leik liðanna í Vest-
mannaeyjum í kvöld.
Arnór Atlason náði að rífa sig
upp eftir tvo slaka leiki og var
markahæstur með ellefu mörk hjá
KA. Jónatan Magnússon skoraði sjö
mörk, Einar Logi Friðjónsson skor-
aði fimm mörk, Andrius Stelmokas
skoraði fjögur, Sævar Árnason skor-
aði þrjú, Ingólfur Axelsson tvö og
þeir Bjartur Máni Sigurðsson og
Magnús Stefánsson eitt mark hvor.
Stefán Guðnason stóð vaktina í
marki KA í fyrri hálfleik og varði
ellefu skot en Hafþór Einarsson,
sem hefur verið meiddur að undan-
förnu, kom inn í þeim síðari og varði
níu skot.
Valdimar Þórsson var marka-
hæstur hjá Fram með níu mörk,
Þorri Björn Gunnarsson skoraði
fimm, Hafsteinn Ingason skoraði
fjögur mörk, Arnar Þór Sæþórsson,
Jón Þór Þorvarðarson, Jón Björgvin
Pétursson og Héðinn Gilsson skor-
uðu tvö mörk hver og þeir Guðjón
Drengsson, Stefán Baldvin Stefáns-
son, Martin Larsen og Hjálmar Vil-
hjálmsson skoruðu eitt mark hver.
Egedijus Petkevicius varði tíu skot í
marki Fram og Sölvi Thorarensen
varði sjö. ■
ARNÓR ATLASON LOKS Á FLUG
Skoraði ellefu mörk gegn Fram í gær eftir að hafa verið haldið niðri í fyrstu tveimur
leikjunum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T
RON ARTEST
Skoraði 24 stig fyrir Indiana Pacers gegn
Boston Celtics.