Fréttablaðið - 26.05.2004, Side 40
■ ■ TÓNLEIKAR
21.00 Hljómsveitin Tube spilar í
Stúdentakjallaranum. Ókeypis aðgangur.
22.00 Jón Sigurður og Espacio
með tónleika á Næsta bar.
■ ■ FYRIRLESTRAR
12.15 Peter Møllgaard, prófessor
við Viðskiptaháskólann í Kaupmanna-
höfn, flytur málstofuerindi um sam-
keppni á raforkumörkuðum í Odda,
stofu 201.
32 26. maí 2004 MIÐVIKUDAGUR
LISTAHÁTÍÐ „Það lá svona í loftinu að
hafa söngvara með mér,“ segir
píanóleikarinn vinsæli Jónas Ingi-
mundarson, sem fékk frjálsar
hendur til að velja með sér lista-
fólk fyrir tónleika á Listahátíð,
sem haldnir verða í Þjóðleikhús-
inu í kvöld.
Jónas segir að fáir íslenskir
söngvarar hafi „sloppið við“ að
syngja með sér í gegnum tíðina,
en að þessu sinni hefur hann feng-
ið til liðs við sig þau Eteri
Gvazava sópran og Bjarna Thor
Kristinsson bassa.
„Þetta er glæsilegt söngpar.
Þau eru hjón, hafa aðsetur í
Berlín en syngja bæði víða um
heim. Eteri syngur reyndar mest
á Ítalíu núna, en Bjarni hefur ver-
ið að syngja í Bandaríkjunum,
Frakklandi, Þýskalandi og víðar.“
Karlakórinn Fóstbræður verð-
ur enn fremur í stóru hlutverki
eftir hlé ásamt stjórnanda sínum,
Árna Harðarsyni. Jónas hefur
verið tengdur þeim kór nánum
böndum allt frá því hann gerðist
söngstjóri hans fyrir um þrjátíu
árum.
„Ég var söngstjóri Fóstbræðra
í fimm ár og síðan hef ég oftar en
ekki spilað með þeim þegar þeir
eru á ferðinni. Eldri félagar í
kórnum hittast líka einu sinni í
mánuði til að syngja saman, og ég
er þar munstraður söngstjóri enn-
þá.“
Tónleikarnir byrja á því að
Bjarni syngur þrjú lög eftir
Schubert. Síðan syngja þau hjónin
saman nokkur þýsk þjóðlög í út-
setningu Brahms, sem gefur þeim
tækifæri til að syngjast á. Að því
búnu syngur Eteri þrjú lög eftir
landa sinn Tsaíkovskí og loks
enda þau á tveimur glaðlegum
dúettum eftir Saint-Saëns.
„Eftir hlé kemur svo kórinn
inn og Bjarni syngur með honum
mjög flott stykki eftir Nordahl
Grieg sem heitir Landkenning.
Það fjallar um Ólaf Tryggvason
og þarna nýtur kórinn sín til fulls.
Síðan syngur Eteri aríu úr óper-
unni Rúsölku eftir Dvorak. Þetta
er afskaplega tékkneskt og fallegt
atriði sem heitir Söngurinn til
mánans.“
Að lokum flytja þau fimm al-
kunn sönglög eftir Emil Thorodd-
sen sem Jón Þórarinsson tónskáld
hefur útsett af þessu tilefni fyrir
þau Jónas, Eteri, Bjarna og karla-
kórinn.■
■ TÓNLIST
Sungið að hætti Jónasar
HVAÐ? HVENÆR? HVAR?
23 24 25 26 27 28 29
Miðvikudagur
MAÍ
,,Við ætlum fjórar vinkonur
saman aftur og aftur!
Diskarnir eru æðislegir hjá okkur!“
Sumarnámskeið fyrir skapandi börn,
eldri og yngri, keramik, teikning,
málun - allt innifalið - litlir hópar.
Aðeins 8500 kr. vikan!
Skráning í Keramik fyrir alla,
sími 552 2882, Laugavegi 48b.
Sjá lýsingu: www.keramik.is
Hvað segja börnin
um námskeið í
Keramik fyrir alla?
Eldri borgarar
Hin sívinsæla 8 daga hringferð um
Norðausturland 21.-28. júní nk.
Reykjavík - Hornafjörður -
Breiðdalsvík - Egilsstaðir - Mjóifjörður
- Kárahnjúkar - Norðfjörður -
Raufarhöfn - Hljóðaklettar -
Dettifoss - Akureyri - Kjölur - Reykjavík
VERÐ AÐEINS KR. 71.000
Innifalið í verði: Gisting, kvöldverður,
morgunverður og nesti.
Skráningar þurfa að berast
fyrir 29. maí í síma 892 3011
FERÐAKLÚBBUR ELDRI BORGARA
HANNES HÁKONARSON.
ALLIR ELDRI BORGARAR VELKOMNIR.
■ ■ FUNDIR
13.30 Þekkingarsetur á lands-
byggðinni verður viðfangsefni á árs-
fundi Stofnunar fræðasetra Háskóla Ís-
lands, sem haldinn verður í Hátíðarsal
Háskóla Íslands.
Upplýsingar um viðburði og sýningar
sendist á hvar@frettabladid.is ekki síð-
ar en sólarhring fyrir birtingu.
Gaman að takast á við þessi ljóð
TÓNLEIKAR „Það hafa mörg lög verið
gerð við ljóð hefðbundnu skáld-
anna, en hins vegar er minna til af
lögum við ljóð eftir þessi óhefð-
bundnu skáld, þessi svokölluðu
atómskáld,“ segir tónlistarmaður-
inn Jón Sigurður, sem er byrjaður
að bæta úr þessu með því að
semja lög við ljóð íslenskra skál-
da frá seinni áratugum.
„Það er mjög skemmtilegt að
takast á við þessi ljóð og lögin
verða náttúrlega svolítið öðruvísi
fyrir vikið.“
Hann verður með tónleika á
Næsta bar í kvöld ásamt sex
manna hljómsveit sinni, sem heit-
ir Espacio.
„Við ætlum að halda tónleika
víða í sumar og stefnum á að taka
það upp. Hugmyndin er sú að gefa
út tónleikaplötu hið fyrsta með
þessum lögum.“
Flest lögin segir Jón vera gerð
við ljóð nafna síns, Jóns úr Vör,
sem hefur náð að heilla tónlistar-
manninn með ljóðtöfrum sínum.
Meðlimir hljómsveitarinnar
eru allir hámenntaðir og reyndir á
sínu sviði.
Sjálfur syngur Jón og leikur á
bæði gítar og slagverk. Einnig
leikur á gítar Pétur Valgarð Pét-
ursson, sem er með einleikara-
próf á gítar en er jafn vígur á
djass, popp og fönk. Aðalheiður
Þorsteinsdóttir leikur á píanó og
raddar, en hún er bæði hámennt-
aður píanóleikari og er fastur
meðlimur í Schola Cantorum.
Einnig eru í hljómsveitinni
slagverksleikarinn Cheick Ban-
goura, sem er frá Gíneu, og svo
Birgir Thoraensen kontrabassa-
leikari.
Aðalsöngvari hljómsveitarinn-
ar er síðan Gísli Magnason, en
hann verður reyndar ekki með á
tónleikunum í kvöld.
Á tónleikunum í kvöld verða
einnig flutt lög Jóns við ljóð
spænskra ljóðskálda. Jón Sigurð-
ur er Vestfirðingur í húð og hár,
en hefur lengi búið á Grikklandi
og Spáni og sú dvöl hefur greini-
lega sett mark sitt á tónsmíðar
hans og tónlistarflutning. ■
JÓNAS ÁSAMT ETERI OG BJARNA THOR
Þau koma fram á tónleikum í Þjóðleikhúsinu í kvöld ásamt Karlakórnum Fóstbræðrum.
■ LISTAHÁTÍÐ Í DAG
17.00 Tónlistartorg í Kringlunni, Ís-
lenska dagurlagið með Agli Ólafssyni
og Tatu Kantomaa.
20.00 Kvöldstund með Jónasi Ingi-
mundarsyni, Bjarna Thor Kristinsson, Et-
eri Gvazava og Fóstbræðrum í Þjóðleik-
húsinu.
JÓN SIGURÐUR MEÐ GÍTARINN
Hann kemur fram á Næsta bar í kvöld ásamt hljómsveit sinni Espacio, sem skipuð er há-
menntuðum hljóðfæraleikurum.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA