Fréttablaðið - 01.06.2004, Blaðsíða 6
6 1. júní 2004 ÞRIÐJUDAGURVEISTU SVARIÐ?
1Alþingi fékk á föstudag langþráð sum-arleyfi. Prentuð þingskjöl hafa aldrei
verið fleiri. Hve mörg voru þau?
2Kirkja fylgdi fyrir mistök með í kaup-unum þegar ríkið seldi jörð eina fyrir
austan fjall. Hvað heitir þessi jörð?
3Ríkisfyrirtæki sem einkavætt var fyrirfáum árum komst í vikunni aftur í
ríkiseigu. Hvaða fyrirtæki er það?
Svörin eru á bls. 22
HEILBRIGÐISMÁL Samningar um
einkarekna heilbrigðisþjónustu
kosta ríkið ríflega 3,6 milljarða
króna á ári hverju. Á samningstím-
anum kosta þeir samtals 28,3 millj-
arða, að því er fram kom í svari
Jóns Kristjánssonar heilbrigðis-
ráðherra við fyrirspurn Dagnýjar
Jónsdóttur alþingismanns um
kostnað við slíka samninga.
Nú eru í gildi 18 samningar
milli heilbrigðisráðuneytisins og
ýmissa fyrirtækja og félaga um
heilbrigðisþjónustu. Gildistími
þeirra er mjög misjafn, allt upp í
27 ár. Sá samningur er gerður við
Öldung hf. vegna hjúkrunar aldr-
aðra í Sóltúni og gildir til 26. apríl
2027. Samningurinn kostar ríkið
tæplega átján milljarða króna á
samningstímanum og er dýrastur
saminga sem í gildi eru. Næst-
lengstur gildistími er á samningi
heilbrigðisyfirvalda vegna rekst-
urs heilsugæslu að Salavegi í
Kópavogi. Hann gildir til áramóta
2011–2012 og kostar ríkið rúmr
sex hundruð milljónir. Loks má
nefna samning við Reykjalund
vegna endurhæfingarþjónustu
sem rennur út í lok þessa árs.
Samnigurinn kostar ríkið tæpa
þrjá komma fjóra milljarða.
Samningur við Félag íslenskra
hjúkrunarfræðinga vegna aðstoð-
ar við fæðingar í heimahúsum er
útrunninn. Alls renna sjö samn-
ingar af þessum 18 út um næstu
áramót. ■
Tjónið á Hernesi gífurlegt
Ljóst er að fjárhagslegur skaði vegna óhapps Herness hleypur á annað
hundrað milljónum. Vikurfarminum var dælt á land. Ekki hefur verið
ákveðið hvort það borgi sig að gera við skipið.
STRAND „Það er ljóst að skemmdirn-
ar einar kosta okkur hundrað millj-
ónir. Þá á eftir að reikna kostnað-
inn við að draga skipið af strand-
stað og til Hafnarfjarðar, legu í
höfninni þar og kostnað við að af-
ferma, skemmdir á farmi og tekju-
missir af skipinu í sex til átta vikur.
Það hleypur áreiðanlega á tugum
milljóna,“ segir Guðmundur
Ásgeirsson, stjórnarformaður Nes-
skipa sem gerir út Hernes.
Að kröfu flokkunarfélags Nes-
skipa, Germanischer Lloyd, var
tæpum sjö þúsund tonnum af vikri
losað úr skipinu við höfnina í Hafn-
arfirði svo hægt væri að komast að
skemmdunum og gera við þær til
bráðabirgða. Guðmundur segir að
minnsta kosti 1.500 tonn hafi blotn-
að og væru ónýt fyrir vikið, en lík-
legt væri að meira skemmdist.
Skipið sjálft er metið á rúmlega
hundrað milljónir króna.
Ekki liggur enn fyrir hvað
kostnaður fyrir þjónustu Landhelg-
isgæslunnar verður mikill, en Guð-
mundur segir að forstjóri Land-
helgisgæslunnar hafi staðfest sím-
leiðis við sig að gæslan yrði „sann-
gjörn í verðlagningu sinni“.
Ekki hefur verið ákveðið hvort
gert verður við Hernes hér á landi
eða erlendis. „Það er bara hægt að
draga skipið á þurrt á Akureyri
hérlendis, en það yrði dýrt að láta
draga það til útlanda. Það yrði þá
að öllum líkindum farið með það til
Póllands. Svo er líka spurning
hvort það borgi sig yfirleitt að gera
við skipið. Við sjáum til.“
bergsteinn@frettabladid.is
RÚSSAR AUKA OLÍUFRAMLEIÐSLU
Rússar hafa ákveðið að auka olíu-
framleiðslu. „Ef olíuverð er hátt
aukum við framleiðslu til að
njóta góðs af því, ef verðið lækk-
ar reynum við ekki að hamla
vexti í efnahagslífi heimsins,“
sagði Alexei Kudrin fjármála-
ráðherra.
KÓNGSSONUR Í STJÓRNMÁLIN
Leka Zog, sonur Ahmets sem var
konungur Albaníu þar til Ítalir
hernámu landið árið 1939, hefur
stofnað stjórnmálahreyfingu og
hyggst komast til valda og
áhrifa. Meðal þess sem hann vill
ná fram er sameining Albaníu og
Kosovo.
SÓSÍALISTAR VINNA Á Spænskir
sósíalistar njóta 43% fylgis fyrir
Evrópukosningarnar í næstu
viku, sex prósentustigum meira
en Lýðflokkurinn sem hann velti
af stalli í óvæntum kosningasigri
í mars. Þrír af hverjum fjórum
Spánverjum segjast stefna að því
að greiða atkvæði í kosningun-
um.
www.plusferdir.is
Benidorm
29.955 kr.
N E T
M.v. 2 fullorðna og 2 börn 2ja-11 ára í íbúð með 1 svefnherbergi
í 7 nætur á Halley 16. júní.
Innifalið er flug, gisting, ferðir til og frá flugvelli erlendis,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Verð miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman 39.990 kr.
NETplús er einungis bókanlegur á www.plusferdir.is
16. júní
Verð frá
SAMNINGAR
SAMNINGSAÐILI ÁRLEGA SAMTALS
Öldungur hf./Sóltún 706,5 17896,7
Reykjalundur/endurhæfing 926,8 3394,2
SÁÁ/meðferðarþjónusta 453,5 1730,5
NLFÍ/endurhæfing 372,7 1048,0
Sjómannadagsráð/hjúkrun 244,0 1078,3
Aðrir samningar 967,2 3155,1
Samtals 3,670,7 28,302,8
Kosningar á Filippseyjum:
Tveir lýsa
yfir sigri
MANILA, AP Filippseyingar hófu í
gær talningu atkvæða úr forseta-
kosningunum þann 10. maí. Stuðn-
ingsmenn tveggja frambjóðenda,
núverandi forseta eyjanna, Gloriu
Macapacal Arroyo og kvikmynda-
stjörnunnar Fernando Poe Jr.,
hafa þegar lýst yfir sigri og haft í
hótunum um afleiðingar þess að
sigurinn sé hafður af frambjóð-
anda þeirra með svindli.
Lögreglan stóð vörð um þingið
og allar öryggisráðstafanir eru
hertar meðan talningin fer fram
en talið er að hún geti staðið yfir
vikum saman. Nýr forseti mun
taka við embættinu þann 30. júní
næstkomandi. ■
ATKVÆÐI TALIN
Filippseyingar hófu í gær talningu atkvæða
eftir forsetakosningar þann 10. maí. Deilur
hafa staðið um framkvæmd talningarinnar
og því ekki verið hægt að telja atkvæðin fyrr.
FARMURINN KOMINN Á LAND
Að minnsta kosti 1.500 tonn af vikri er ónýtur en búast má við að meira hafi skemmst.
Samningar um einkarekna heilbrigðisþjónustu:
Kosta ríkið 3,6
milljarða á ári
Farinn í útlegð:
Aristide til
Suður-Afríku
SUÐUR-AFRÍKA, AP Jean-Bertrand
Aristide, fyrrum forseta Haítí, var
vel tekið þegar hann kom til Suð-
ur-Afríku, þar sem hann kemur til
með að dvelja í útlegð frá heima-
landi sínu. Sjálfur segir Aristide
reyndar að aðeins sé um tíma-
bundið hæli að ræða enda sé hann
enn löglega kjörinn forseti Haítí
og ætli sér að snúa aftur heim.
Thabo Mbeki, forseti Suður-
Afríku, tók á móti Aristide á flug-
vellinum í Jóhannesarborg og
veitti honum sömu viðtökur og
þjóðhöfðingja í opinberri heim-
sókn. ■
ARISTIDE BOÐINN VELKOMINN
Forseti Suður-Afríku tók á móti fyrrum for-
seta Haítí.
■ EVRÓPA
Söfnun SÞ fyrir Palestínu:
Vantar 16
milljón dali
JERÚSALEM, AP Ein umboðsstofnana
Sameinuðu þjóðanna hefur óskað
eftir milljónum dollara til kaupa á
mat og skýlum fyrir palestínskar
fjölskyldur sem misst hafa heim-
ili sín í hernaðaraðgerðum Ísra-
elshers á Gaza-svæðinu.
Stofnunin segist þurfa sextán
milljónir dollara, rúmlega millj-
arð íslenskra króna, til þess að
veita hundruðum fjölskyldna í
Rafah-f lót tamannabúðunum
neyðaraðstoð.
Tugir húsa voru eyðilagðir
meðan á vikulöngum hernaðarað-
gerðum Ísraelshers á Gaza-svæð-
inu stóð. ■