Fréttablaðið - 07.06.2004, Síða 16
Á þessum degi fyrir 111 árumvarð Gandhi fyrst uppvís að
borgaralegri óhlýðni er hann sett-
ist, andstætt reglum um réttindi
Indverja, í fyrsta flokks farrými í
lest á ferð sinni í Suður-Afríku.
Gandhi vann á þeim tíma sem lög-
fræðingur í landinu og sagði að
þetta atvik, er honum var kastað út
úr lestinni, hafi valdið því að hann
horfðist í augu við sannleikann. Á
þessari stundu ákvað hann að berj-
ast gegn órétti og standa vörð um
réttindi sín sem Indverji og mann-
eskja.
Gandhi, sem var fæddur á Ind-
landi en menntaður á Englandi,
flutti snemma árið 1893 til Suður-
Afríku til að starfa sem lögfræð-
ingur í eitt ár. Hann settist að í
Natal og sérhæfði sig í kynþátta-
fordómum og suður-afrískum lög-
um sem takmörkuðu réttindi ind-
verskra verkamanna.
Þegar árs samningur sem hann
var á í Suður-Afríku rann út ákvað
hann samt sem áður að halda kyrru
fyrir í landinu og fara af stað með
baráttu gegn lagasetningu sem
myndi útiloka að Indverjar hefðu
kosningarétt. Hann stofnaði ind-
verskt þing í Natal og fékk í kjöl-
farið alþjóðlega athygli sem beind-
ist að aðstæðum Indverja í Suður-
Afríku. Árið 1906 reyndu stjórn-
völd Transvaal að takmarka enn
frekar réttindi Indverja og Gandhi
skipulagði fyrstu baráttuna þar
sem hann hvatti til borgaralegrar
óhlýðni. Eftir sjö ár af mótmælum
sættist hann á málamiðlum við
stjórnvöld í Suður-Afríku.
Gandhi varð, eftir að hann sneri
aftur til Indlands, leiðtogi lýðveld-
issinna. Hann beitti aldrei ofbeldi í
baráttu sinni og boðaði kristin og
múslimsk viðhorf í bland við
hindúisma. Bretar vörpuðu honum
nokkrum sinnum í fangelsi en fylgi
við hann var svo gríðarlegt að hann
var ávallt látinn laus. ■
Þrjár systur semja dansleikhúsverk
GANDHI
Var varpað út úr lest þar sem hann settist í
fyrstaflokks farrými er hann ferðaðist í lest
í Suður-Afríku. Atvikið varð kveikja að
langri baráttu hans fyrir auknum réttindum
Indverja í landinu.
Barátta Gandhis hefst
Áaðalfundi Skáksambands Ís-lands nú um helgina var kona í
fyrsta sinn í nær 80 ára sögu sam-
bandsins kjörin forseti þess. Það
var Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
margfaldur Íslandsmeistari kven-
na í skák og alþjóðlegur skák-
meistari kvenna, sem var einróma
kjörin í embættið. Ásamt Guðfríði
sitja nú í stjórn þau Helgi Ólafs-
son, Hrafn Jökulsson, Harpa Ing-
ólfsdóttir, Gunnar Björnsson,
Ólafur Kjartansson og Haraldur
Baldursson.
Í ávarpi sínu sagði Guðfríður
Lilja að það þyrfti að efla til muna
fjárhag og fjáröflun sambandsins
svo það gæti sinnt þeim fjölmörgu
verkefnum sem þyrfti að sinna til
að efla skáklist landsmanna.
Hún sagði það eitt af forgangs-
verkefnum nýrrar stjórnar að
taka til skoðunar hvernig þjálfun
íslenskra skákmanna væri háttað,
bæði barna og unglinga sem og
bestu skákmanna landsins, og þar
þyrfti að huga jafnt að báðum
kynjum og fólki á öllum aldri.
Grundvöllur svo háleitra hugsjóna
væri þó sá að vörn væri snúið í
sókn í fjárhagsstöðu sambandsins;
ef ekki fengist meira fjármagn
væri ljóst að draga yrði úr verk-
efnum til muna. Guðfríður Lilja
benti einnig á að það væri eitt af
meginmarkmiðum skáksambands-
ins að efla og treysta samskipti
sambandsfélaganna innbyrðis.
Hún sagðist mundu beita sér fyrir
því að skákfélög landsins efldust,
bæði í samstarfi innbyrðis sem og
í samstarfi við skáksambandið, og
sameiginlega gæti skákhreyfingin
öll þannig unnið að því að byggja
upp skákmenningu Íslendinga. ■
16 7. júní 2004 MÁNUDAGUR
ANNA KOURNIKOVA
Tennisstjarnan, sem talin er vera gift popp-
stjörnunni Enrique Iglesias og jafnvel eiga
von á barni með honum, er 23 ára í dag.
7. JÚNÍ
Við erum ein myndlistarkona,ein söngkona og ein leikkona
en höfum allar fengist við þess-
ar greinar í bland í gegnum tíð-
ina,“ segir leikkonan Arnbjörg
Hlíf Valsdóttir en hún og systur
hennar, þær Ólöf Sigríður Vals-
dóttir sópransöngkona og Arna
Guðný Valsdóttir myndlistar-
kona, ætla að leiða saman hesta
sína í Borgarleikhúsinu þann 10.
júní þegar árleg dansleik-
húskeppni Leikfélags Reykja-
víkur og Íslenska dansflokksins
verður haldin.
Systurnar hafa í sameiningu
búið til dansleikhúsverk. „Verk-
ið okkar heitir Sjá augu mín eins
og þín, systir og í því erum við
meðal annars að vinna með
augun og augnsambandið. Við
höfum allar verið þekktar fyrir
að hafa stór augu sem standa oft
á stilkum,“ segir Arnbjörg og
hlær, „og verkið fjallar svolítið
um hvernig þessar þrjár systur
sjá, líta á hvor aðra og heiminn.“
Systurnar verða allar á svið-
inu í einu en leikstjóri verksins
er Steinunn Knútsdóttir. „Við
höfum allar unnið með Stein-
unni áður í öðrum verkefnum en
aldrei allar saman. Hún þekkir
okkur því allar og því er gaman
að fá hana til að leiða saman
okkar ólíku og líku hliðar. Það er
allt leyfilegt í dansleikhúsi og
við erum heilmikið að prófa
okkur áfram. Verkið er enn í
mótun og við hlökkum mest til
þess sjálfar að sjá hvað kemur
út úr þessu.“
Níu verk eftir fjórtán spenn-
andi höfunda úr stétt leikara og
dansara keppa á sviði Borgar-
leikhússins þann 10. júní. Hægt
er að vinna sér inn miða á
keppnina og spá fyrir um úr-
slitin með því að fara inn á
spron.is. ■
DANSLEIKHÚS
ARNBJÖRG HLÍF VALSDÓTTIR
■ „Við höfum allar verið þekktar fyrir
að hafa stór augu sem standa á
stilkum og verkið fjallar svolítið um
hvernig þessar þrjár systur sjá, líta á
hvor aðra og heiminn.“
TÍMAMÓT
GUÐFRÍÐUR LILJA
GRÉTARSDÓTTIR
■ Fyrsta konan sem er forseti
Skáksambands Íslands.
7. JÚNÍ 1893
ÞESSI DAGUR MARKAÐI
TÍMAMÓT Í LÍFI GANDHIS
■ Honum var hent út úr lest í
Suður-Afríku.
Útför föður okkar
JÓNS E. GUÐMUNDSSONAR
myndmenntakennara og brúðuleikhúsmanns
fer fram frá Fossvogskirkju í dag kl. 13:30.
Fyrir hönd aðstandenda
Eyjólfur G. Jónsson
Sigurlaug Jónsdóttir
Marta Jónsdóttir
Efla skákfélög landsins
■ AFMÆLI
Jón Laxdal leikari er 71 árs.
Gestur Steinþórsson
skattstjóri er 63 ára.
Njáll Eiðsson, fyrrum
knattspyrnumaður, er 46 ára.
Páll Stefánsson, ljósmyndari og ritstjóri
Iceland Review, er 46 ára.
■ ANDLÁT
Haraldur Jónsson, Keilusíðu 12f, Akur-
eyri, lést fimmtudaginn 27. maí. Útför
hefur farið fram í kyrrþey.
Sigurþór Árnason frá Hrólfsstaðahelli,
Freyvangi 9, Hellu, lést fimmtudaginn
9. júní.
■ JARÐARFARIR
13.30 Héðinn Jónsson, Þórðarsveig 1,
Reykjavík, verður jarðsunginn frá
Grafarvogskirkju.
14.00 Kristjón Ómar Pálsson, áður til
heimilis að Geldingaá, í Leirá og
Melasveit, verður jarðsunginn frá
Hallgrímskirkju í Saurbæ á Hval-
fjarðarströnd.
■ ÞETTA GERÐIST
632 Múhameð deyr vegna hjartaáfalls.
1099 Fyrstu krossfararnir ná veggjum
Jerúsalem.
1775 Lúðvík XIV er krýndur konungur
Frakklands.
1840 Friðrik Vilhjálmur III, konungur
Prússlands, deyr.
1903 Prófessor Pierre Curie tilkynnir að
hann hafi uppgötvað polonium.
1914 Fyrsta skipið fer í gegnum skipa-
lyftuna í Panamaskurði.
1932 Um 7.000 fyrrum hermenn úr
fyrri heimsstyrjöldinni fara í mót-
mælagöngu í Washington, DC, til
að heimta bónusgreiðslur fyrir
störf sín.
1948 Kommúnistar taka við völdum í
Tékkóslóvakíu.
1981 Eini kjarnaofn Íraks er eyðilagður
af ísraelskum F-16 orrustuþotum.
2000 Héraðsdómur skipar Microsoft
að skipta upp rekstri sínum, þar
sem það hefur einokunarstöðu
á markaði. Microsoft áfrýjaði
dómnum.
GUÐFRÍÐUR LILJA GRÉTARSDÓTTIR
Ásamt Hrafni Jökulssyni, sem er
með henni í stjórn, og Friðriki
Ólafssyni skákmeistara.
ÞRJÁR SYSTUR
Þær Arnbjörg Hlíf, Ólöf Sigríður og Arna Guðný Valsdóttir taka
þátt í dansleikhúskeppni Borgarleikhússins þann 10. júní.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N