Fréttablaðið - 07.06.2004, Síða 22
22 7. júní 2004 MÁNUDAGUR
Hildur Einarsdóttir, hetja kvennaliðs Breiðabliks:
Hefðum átt að skora fleiri
FÓTBOLTI Það var ekki mikil
spenna á ferðinni þegar Breiða-
blik mætti FH á Kaplakrikavelli í
Landsbankadeild kvenna í knatt-
spyrnu í gærdag. Gestirnir skor-
uðu tvö mörk en heimastelpur
ekkert í leik sem var frekar
bragðdaufur.
Gestirnir voru með undirtökin
frá fyrstu mínútu til þeirrar síð-
ustu og fengu talsvert mikið af
færum og þá sérstaklega í síðari
hálfleik og hefðu þá átt að skora
talsvert fleiri mörk. Liðið gerði þó
nægjanlega mikið til að klára
dæmið og virðist vera svona hægt
og bítandi að jafna sig eftir hrika-
legt átta marka tap gegn ÍBV í
fyrsta leik mótsins.
Hildur Einarsdóttir var heldur
betur að minna á sig í framlínunni
en hún gerði bæði mörk Blikanna.
Hildur spilaði með Breiðabliki
fyrir tveimur árum en þá var hún
á fyrsta ári í öðrum flokki. Nú er
hún gengin upp og virkar mjög
frísk þarna frammi. Hún var
ánægð með sigurinn og mörkin
tvö: „Við erum á uppleið eftir tap-
ið gegn ÍBV og stemningin í hópn-
um er alltaf að verða betri og
betri. Það er alltaf gaman að skora
en við hefðum átt að skora fleiri í
seinni hálfleik. Við héldum þó
hreinu og gerðum það sem skipti
mestu máli – að landa sigri,“ sagði
Hildur sem hefur skorað 3 mörk í
síðustu 2 leikjum. ■
Glæsilegur sigur Gaudios
Argentínumaðurinn vann óvænt á opna franska í dramatískum leik.
TENNIS Gaston Gaudio mætti landa
sínum Guillermo Coria í úrslitum
opna franska meistaramótsins en
þetta var í fyrsta skipti sem tveir
Argentínumenn leika til úrslita á
mótinu. Það er skemmst frá því að
segja að kapparnir ollu engum
vonbrigðum í úrslitaleiknum.
Coria byrjaði leikinn með mikl-
um látum, vann fyrstu tvö settin
og virtist hafa allt í höndum sér.
Þá vaknaði Gaudio og jafnaði leik-
inn með því að vinna næstu tvö
sett.
Spennan í lokasettinu var yfir-
þyrmandi en Coria varð að taka
hvíld vegna krampa í fótum og
lengi vel leit út fyrir að hann gæti
ekki klárað leikinn. Hann harkaði
af sér og kom sér í þá stöðu að
gefa tvisvar upp fyrir sigri. Það
gekk ekki eftir hjá honum -
Gaudio varðist af stakri snilld og
tók leikinn svo í sínar hendur og
kláraði hann.
„Þetta hefur verið draumur allt
mitt líf og ég trúi því varla að
hann hafi ræst. Þetta er allt of
mikið fyrir mig og ég veit hrein-
lega ekki hvað ég á að segja,“
sagði sigurvegarinn kátur en
hann þakkaði síðan sínum fyrsta
þjálfara en bæði hann og Coria
byrjuðu að æfa hjá sama þjálfar-
anum.
Coria var beygður eftir leikinn
en ekki af baki dottinn. „Gaudio á
þetta skilið. Hann er búinn að
spila mjög vel. Ég kem aftur á
næsta ári og tek dolluna þá.“ ■
Vináttulandsleikur:
Baulað á
Hollendinga
FÓTBOLTI Stuðningsmenn hollenska
landsliðsins bauluðu á sína menn í
Amsterdam um helgina eftir að
þeir höfðu tapað gegn Írum, 0-1.
Hollenska liðið þótti leika ákaf-
lega illa í leiknum og fer vart
langt á EM með álíka spila-
mennsku.
„Þetta var ekki góður leikur og
ekki það sem við vildum gera fyr-
ir EM,“ sagði Arjen Robben, sem
gengur í raðir Chelsea í sumar.
„En ég held að þessi leikur muni
ekki hafa áhrif á okkur. Við erum
allir farnir að hugsa um leikinn
gegn Þjóðverjum. Annars verða
allir leikirnir á EM mjög jafnir og
við megum ekki láta ein slæm úr-
slit koma okkur úr jafnvægi.“
Hollendingar eiga Þjóðverja í
fyrsta leik á EM en í þeirra riðli
eru einnig Tékkar og Lettar. ■
FALLEGIR FIMLEIKAR
Almudena Cid frá Spáni sést hér leika listir
sínar á Evrópumeistaramótinu í nútíma-
fimleikum sem fram fór í Kænugarði.
FIMLEIKAR
!
"!# $%%
&
' (
!#) $%%***+ FH–BREIÐABLIK 0–2
0–1 Hildur Einarsdóttir 1.
0–2 Hildur Einarsdóttir 51.
BEST Á VELLINUM
Laufey Ólafsdóttir Val
TÖLFRÆÐIN
Skot (á mark) 6–30 (2–14)
Horn 1–12
Aukaspyrnur fengnar 11–10
Rangstöður 5–1
Spjöld (rauð) 0–0 (0–0)
GÓÐAR
Auður Skúladóttir Stjörnunni
Allison Jarrow Stjörnunni
Harpa Þorsteinsdóttir Stjörnunni
Lára Björg Einarsdóttir Stjörnunni
Laufey Ólafsdóttir Val
Rakel Logadóttir Val
Kristín Ýr Bjarnadóttir Val
Ásta Árnadóttir Val
Pála Marie Einarsdóttir Val
Dóra María Lárusdóttir Val
■ Það sem skipti máli
TVÖ MÖRK FRÁ HILDI
Hildur Einarsdóttir skoraði tvö mörk fyrir
Breiðabliksliðið í gær.
SIGURREIFUR
Gaston Gaudio leiddist ekki lífið þegar
hann lyfti bikarnum í París í gær.
LANDSBANKADEILD KVENNA
ÍBV 2 2 0 0 16–1 6
Valur 2 2 0 0 6–1 6
Breiðablik 3 2 0 1 6–10 6
Þór/KA/KS 3 1 1 1 4–4 4
KR 2 1 0 1 3–4 3
Stjarnan 3 0 2 1 3–5 2
Fjölnir 3 0 1 1 2–5 1
FH 2 0 0 2 0–10 0
MARKAHÆSTAR
Margrét Lára Viðarsdóttir, ÍBV 7
Hildur Einarsdóttir, Breiðabliki 3
Olga Færseth, ÍBV 3
Nína Ósk Kristinsdóttir, Val 2
Guðrún Halla Finnsdóttir, Stjörnunni 2
Inga Birna Friðjónsdóttir, Þór /KA/KS 2
Erna Björk Sigurðardóttir, Breiðabliki 2
Karen Burke, ÍBV 2
NÆSTU LEIKIR
KR–ÍBV á morgun 20.00
FH–Valur Mið. 9. júní 20.00
Valur–Þór/KA/KS Sun. 13. júní 14.00
ÍBV–Stjarnan Mán. 14. júní 20.00
Breiðablik–Fjölnir Þri. 15. júní 20.00
FH–KR Fim. 17. júní 11.00
Þór/KA/KS–ÍBV Sun. 20. júní 16.00
Stjarnan–FH Þri. 22. júní 20.00
Fjölnir–Valur Þri. 22. júní 20.00
KR–Breiðablik Þri. 22. júní 20.00
■ Staðan í deildinni