Fréttablaðið - 07.06.2004, Blaðsíða 26
7. júní 2004 MÁNUDAGUR26
SÝND kl. 6, 8 og 10 B.i. 14
SÝND Í LÚXUS VIP. kl. 5 og 8
ELLA Í ÁLÖGUM kl. 4 og 6 TAXI 3 kl. 8 og 10
VAN HELSING kl. 6 og 9 TOUCHING THE VOID kl. 6 og 8
SÝND kl. 6, 9 og 10 B.i. 14
Brad Pitt, Orlando Bloom
og Eric Bana i magnaðri
stórmynd undir leikstjórn
Wolfgang Petersen.
STÓRVIÐBURÐUR
ársins er kominn!
DREKAFJÖLL kl. 3.45 M/ÍSL. TALI
CONFESSION OF A DRAMA QUEEN kl. 4VAN HELSING kl. 5.30, 8 og 10.30
SCOOBY DOO 2 kl. 4 M/ÍSL. TALI
STÓRVIÐBURÐUR
ársins er kominn!
HHH
Mbl.
HHH1/2
kvikmyndir.is
SÝND kl. 6, 7, 9 og 10
SÝND Í STÓRA SALNUM kl. 6 og 9
HHH
Mbl.
HHH1/2
kvikmyndir.is
SÝND kl. 4, 5, 6, 8 og 10 M/ENSKU TALI
HHH
Rás 2
HHH
Rás 2
SÝND kl. 4, 5.20, 6.40, 8, 9.20 og 10.40
SÝND Í LÚXUS kl. 5.50, 8.30 og 11.10 SÝND kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
S.V. Mbl.
■ FRÉTTIR AF FÓLKI
Mikið var um fögnuð á MTV-kvikmyndahátíðinni nú um
helgina. Það var Hringadróttins-
saga: Hilmir snýr heim sem hlaut
verðlaun sem kvikmynd ársins,
líkt og á Óskarnum. En þar er lík-
indum við Óskarsverðlaunahátíð-
ina einnig lokið.
Uma Thurman fékk verðlaun íflokki bestu leikkvenna í aðal-
hlutverki fyrir leik sinn í Kill
Bill: Vol.1, þar sem hún leikur
blóðþyrsta bardagakonu í hefnd-
arhug. Þakkaði hún Quentin Tar-
antino fyrir að hafa tekið mörg
ár í að skrifa handritið að tví-
leiknum fyrir hana og sagði að
hann vildi láta heiðra sig það
kvöldið líkt og hann væri fallinn
frá. Fyrir það hefðu þau ekki
tíma og því sagði hún einfaldlega
„Takk, Quentin“.
Uma var ekki súeina sem var
verðlaunuð fyrir
leik sinn í Kill Bill:
Vol.1, því Lucy Liu
fékk einnig verð-
laun sem besta ill-
mennið á árinu.
Drew Barrymore og AdamSandler voru hlutskörpust
sem besta parið á hvíta tjaldinu
fyrir leik
sinn í róm-
antísku
gaman-
myndinni
50 fyrstu
stefnumót-
in. Drew
vildi þakka Hawaii-ríki, þar sem
myndin var tekin. En Adam vildi
einungis þakka því fólki sem sá
honum fyrir grasi.
Johnny Depp varvalinn besti
leikarinn í aðal-
hlutverki fyrir
leik sinn í Sjó-
ræningjar Karí-
bahafsins: Bölv-
un svörtu
perlunnar og
hlaut þar með
viðurkenning-
una sem hann hefur beðið svo
lengi. Jack Black var valinn besti
grínleikarinn fyrir frammistöðu
sína í Rokkskólanum.
Króatískum munkum hefur ver-ið skipað að selja glæsibifreið-
ar sínar af tegundunum BMW og
Mercedes-Benz og keyra um á ein-
hverju ódýrara til að sýna sam-
stöðu við sóknarbörn sín. Þessi
nýja fyrirskipun Fransiskusar-
munkanna í Krótatíu tók gildi nú
um helgina. Samkvæmt henni verð-
ur munkunum ekki leyft að eiga
bíla eins og Audi, BMW eða Benz,
heldur ódýrari bíla til að skapa ekki
gjá á milli þeirra og sóknarbarn-
anna. Samkvæmt króatíska dag-
blaðinu Jutarnji List hefur þessari
tilskipun verið tekið með miklum
fögnuði á meðal almennings og
munkarnir eru þegar farnir að
selja glæsirennireiðarnar.
Marinko Vukman, munkur sem
starfar við að leiðbeina króatískum
innflytjendum í Sindelfingen í
Þýskalandi, er einn þeirra sem nota
BMW-inn sinn mikið við vinnuna.
Hann segir að hann verði nú líkt og
aðrir í reglunni að selja bílinn sinn.
Zeljko Tolic, annar munkur regl-
unnar, segist sáttur við skipunina.
„Auðvitað geta allir látið freistast
til að kaupa dýrari bíla, en ég er
sammála um að það væri betra fyr-
ir alla í kirkjunni að keyra mið-
stéttarbíla til að sýna samstöðu
með sóknarbörnunum.“
Greinilegt er að þessi hópur
Fransiskusarmunka er langt kom-
inn frá uppruna sínum, en heilagur
Frans frá Assisí, upphafsmaður
hennar, kenndi að meðlimir regl-
unnar ættu að lifa hreinlífi miklu,
þeim væri bannað að taka við pen-
ingum, þeir ættu að lifa á ölmusu
og starfa meðal fátækra. Þá ættu
þeir einnig að lifa meinlætalífi. ■
Slær MKLVFKWR í gegn?
Ég sýni myndir af landslagi, enþær eru kannski svolítið stíl-
færðar. Ég fer út fyrir þennan
venjulega ramma í mörgum mynd-
unum,“ segir Erla Magna Alexand-
ersdóttir, sem hefur opnað sýningu á
verkum sínum í Eden í Hveragerði.
Erla er miðill að aðalstarfi, en
málar eitthvað á hverjum einasta
degi og hefur stundað myndlistar-
nám í Myndlistarskóla Reykjavík-
ur um árabil.
„Við höfum haldið hópinn nokk-
ur saman í mörg ár og fengið
marga bestu listamenn þjóðarinnar
til þess að kenna okkur. Arngunnur
Ýr kenndi okkur til dæmis að mála
í mörgum lögum eins og gömlu
meistararnir gerðu, og mála hverja
mynd oft. Þannig fæst miklu meiri
dýpt í litina.“
Í fyrra brá Erla sér til Flórens á
Ítalíu þar sem hún fékk einka-
kennslu hjá listamanninum Ro-
berto Ciabani, sem hefur ekki tekið
stúdenta í tíu ár.
„Við mættum þarna fimm, en
hann lét þá alla fara nema mig og
bað mig síðan að koma aftur ef ég
vildi. Hann er að gera portrett-
myndir af öllum helstu óperu-
söngvurum Ítala núna, og var líka
fenginn til að gera líkneski í New
York út af tvíburaturnunum.“ ■
SKRÝTNA FRÉTTIN
■ Króatískum munkum skipað að selja
glæsibifreiðar sínar.
Á RÚNTINUM
Ekki er vitað hvort króatísku munkarnir hafi keyrt um á svo nýlegum Benz sem þessum.
En frá og með nýliðinni helgi er þeim bannað með öllu að eiga bíla í dýrari kantinum.
Munkum bannað að sýna ríkidæmi sitt
■ TÓNLIST
Tónlistarmaðurinn, græn-metisætan og dýraverndunar-
sinninn Moby er að fara að gefa út
nýtt lag með röppurunum í Public
Enemy. Lagið sem ber nafnið
MKLVFKWR, var samið sérstak-
lega fyrir Unity, opinbert lagasafn
Ólympíuleikanna í Aþenu 2004. Það
var Moby sem samdi lagið við
MKLVFKWR, en Chuck D og Flav-
or Flav í Public Enemy eiga heiður-
inn af textanum, sem þeir segja
saminn sem viðbrögð gegn stríðinu
í Írak. Chuck D. bætti við að lagið
sé ósk um að það að vera borgari
heimsins ætti að koma í stað þjóð-
ernis í nafni friðar. Þegar tilkynnt
var um útkomu þessa lags sagði
Moby: „Við eigum að vera búsett í
lýðræðisríkjum. Því er það mín von
að einhvern tímann muni koma til
þess að fólk standi upp og mótmæli
og láti núverandi stjórnarherra
vita að við höfum fengið nóg.“ ■
MOBY
Gefur út nýtt lag með
Public Enemy. Það mun
bera nafnið MKLVFKWR,
einkar þjált í munni.
ERLA MAGNA
Málar landslag, en
svolítið stílfært.
■ SÝNING
Miðill í paradís