Fréttablaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 16
10. júní 2004 FIMMTUDAGUR
Hjúskaparstaða Bretaprins:
Flestum er
alveg sama
BRETLAND, AP 32 prósent Breta eru
hlynnt því að Karl Bretaprins
kvænist ástkonu sinni Camillu
Parker Bowles samkvæmt nýrri
skoðanakönnun en 29 prósent
eru andvíg því. Flestum, eða 38
prósentum, er þó alveg sama, en
tvö prósent hafa enga skoðun á
því hvort prinsinn eigi að
kvænast eða ekki.
Konur eru almennt andvígari
því en karlar að prinsinn og
Camilla kvænist. 37 prósent
kvenna eru andvíg því en 21
prósent karla. Yngra fólk er svo
hlynntara hjónabandi en eldra
fólk, 42 prósent átján til 24 ára
voru hlynnt því en 41 prósent
fólks á aldrinum 55–64 ára. ■
FRAMHALDSSKÓLINN
Á LAUGUM
-fyrir norðan-
Innritun í Framhaldsskólann á Laugum
lýkur hinn 11. júní
Innritað er á:
félagsfræðibraut
náttúrufræðibraut
íþróttabraut
almenna námsbraut
Umsóknir um skólavist og heimavist
skulu sendar til Framhaldsskólans á Laugum
650 Laugar.
Allar nánari upplýsingar veittar
í símum 4646304, 4646306 og 464311
Herprestur:
Stal leifum dýrlinga
KOSOVO, AP Serbneska rétt-
trúnaðarkirkjan í Kosovo hefur
sakað franskan herprest um að
stela líkamsleifum tveggja
serbneskra dýrlinga.
Klerkarnir segja að herprest-
urinn hafi fjarlægt leifarnar úr
líkkistum sem voru geymdar í
tveimur kirkjum sem höfðu eyði-
lagst í árásum Kosovo-Albana. Að
þeirra sögn sagðist herpresturinn
ætla að verja líkamsleifarnar
fyrir árásum múslima og afhenda
þær serbneskum klerkum í
Kosovo. Það gerði hann hins
vegar ekki.
Alþjóðlega friðargæsluliðið
vísaði þessu á bug. ■
ÚTFÖR SERBNESKS PILTS
Unglingspiltur lést í árás Kosovo-Albana á dögunum. Ofbeldisverk eru tíð í Kosovo.
KARL BRETAPRINS
Álíka margir eru hlynntir því og
andvígir að hann kvænist aftur.
JAPAN, AP Vonir um að Japanir
séu að rífa sig upp úr meira en
áratugslöngum doða efnahags-
lífsins hafa heldur aukist eftir
að endanlegar tölur um lands-
framleiðslu Japans voru aðeins
hærri en búist hafði verið við.
Landsframleiðslan var einu og
hálfu prósenti meiri fyrstu þrjá
mánuði ársins en á sama tíma í
fyrra. Bráðabirgðatölur höfðu
sýnt aukningu upp á 1,4 prósent,
sem samsvarar 5,6 prósenta vexti
á ársgrundvelli, en nýju tölurnar
samsvara rúmlega sex prósenta
vexti á eins árs tímabili.
Tölurnar virðast staðfesta
skoðun þeirra sérfræðinga
sem segja að Japan virðist
vera að rífa sig upp úr efna-
hagslægðinni sem hefur hrjáð
landið frá því á síðasta áratugi.
Landsframleiðslan hefur auk-
ist átta ársfjórðunga í röð, það
er besti árangur í þessum efn-
um frá því hún jókst níu árs-
fjórðunga í röð frá 1995 fram á
fyrsta ársfjórðung 1997.
Aukningin fyrstu þrjá
mánuði þessa árs er þó aðeins
minni en á síðasta ársfjórðungi
í fyrra. ■
AUKIN EINKANEYSLA
Eitt af því sem eykur mönnum bjartsýni er að Japanar eyða sjálfir meira fé en áður.
Vöxtur efnahagslífsins meiri en talið var:
Aukin bjartsýni í Japan