Fréttablaðið - 10.06.2004, Blaðsíða 19
19FIMMTUDAGUR 10. júní 2004
ostagolfmótið
í Vestmannaeyjum
Golfklúbbur Vestmannaeyja – 54 holur
Önnur keppnin í Toyota-mótaröðinni í golfi fer fram á golfvelli
Golfklúbbs Vestmannaeyja á laugardag og sunnudag. Keppnin
hefst klukkan 8 báða dagana.
Fylgstu með frá byrjun!
12.–13. júní
Hola í hverju höggi!
Komið og sjáið bestu
kylfinga landsins keppa.
Við hvetjum alla til að fylgjast með strax frá
byrjun á laugardag en draga fer til tíðinda
á milli efstu manna á mótinu eftir hádegi á
sunnudag.
Sjáumst í góðum golfgír!
H
V
ÍT
A
H
Ú
SI
Ð
/
S
ÍA
Í tilefni af Ostagolfmótinu býður Golfverslun
Nevada Bob upp á mælingar og prufukeyrslu á
nýjustu kylfunum á markaðnum frá Adams, Callaway,
Hogan, King Cobra, Nike, Ping, Srixon og Titleist.
Atvinnukylfingarnir Birgir Leifur Hafþórsson, Björgvin
Sigurbergsson, Ragnhildur Sigurðardóttir og Ingi
Rúnar Gíslason verða með sýningu og veita ráðgjöf
varðandi kylfuvalið ásamt starfsmönnum Nevada Bob.
Sýning, kynning, prufukeyrsla og mælingar
Föstudaginn 11. júní kl. 17–20 á golfvellinum
í Vestmannaeyjum.
OSTAGOLFMÓTIÐ TOYOTA MÓTARÖ‹IN OSTAGOLFMÓTIÐ TOYOTA MÓTARÖ‹IN OSTAGOLFMÓTIÐ
OSTAGOLFMÓTIÐ TOYOTA MÓTARÖ‹IN OSTAGOLFMÓTIÐ TOYOTA MÓTARÖ‹IN OSTAGOLFMÓTIÐ
Forseti Afganistans:
Sakaður um sam-
ráð við stríðsherra
KABÚL, AP Vangaveltur um hvort
Hamid Karzai, forseti Afganist-
ans, vinni að kosningasamkomu-
lagi við öflugustu stríðsherra
landsins hafa ágerst eftir að hann
hitti höfuðpaura Norðurbanda-
lagsins að máli. Karzai neitar öll-
um sögusögnum um að samkomu-
lag hafi verið gert.
Kosningar fara fram í landinu í
september og hefur Karzai yfir-
burðastöðu miðað við mótfram-
bjóðendur sína. Gagnrýnisraddir
segja forsetann að svíkja almenn-
ing í þessu stríðshrjáða landi með
því að semja við þá sem standa á
bak við meira en tuttugu ára
skærur í landinu.
Stríðsherrarnir, sem eru hlið-
hollir ríkisstjórninni að nafninu
til, eru grunaðir um að standa á
bak við stríð um landsvæði og eit-
urlyf sem orðið hafa óbreyttum
borgurum að bana. Nokkrir leið-
toganna sitja í ríkisstjórn Karzai,
sem leggur áherslu á að þeir séu
hluti af „raunverulegu lífi í land-
inu.“
Hamid Karzai hóf í fyrradag
heimsókn sína til Bandaríkjanna og
mun hann meðal annars hitta Bush
Bandaríkjaforseta að máli. ■
Sjúkrahús Akraness:
88% sögðu já
KJARAMÁL Starfsmenn Sjúkrahúss
og heilsugæslustöðvarinnar á
Akranesi sem skráðir eru í verka-
lýðsfélag staðarins samþykktu
kjarasamning Starfsgreinasam-
bands Íslands og fjármálaráðu-
neytis í annarri tilraun á mánudag.
Á kjörskrá voru 80 og greiddu
25 atkvæði eða 31%. Já sögðu 22
félagsmenn eða 88%. Nei sögðu
tveir félagsmenn eða 8%. Einn
seðill var auður eða ógildur.
Aðeins tvö sjúkrahús á landinu
felldu kjarasamninginn í fyrstu til-
raun en það gerðist einnig á Siglu-
firði. Þar stendur kosning enn yfir
vegna sumarleyfa starfsmanna,
segir Signý Jóhannesdóttir, for-
maður Verkalýðsfélagsins Vöku.
Úrslit verða ljós síðar í dag. ■
HAMID KARZAI
Karzai hóf í fyrradag heimsókn sína til Bandaríkjanna og mun hann meðal annars hitta
George Bush Bandaríkjaforseta að máli.
FUGLASKOÐUN
Endurnar á Tjörninni voru pakksaddar
enda lögðu margir leið sína þangað til að
gefa þeim brauð í góða veðrinu. Þessir
menn voru áhugasamir um fuglalífið og
höfðu því sjónaukann með í för.
TOMBÓLA
Þuríður og Sirrý héldu tombólu á Austur-
velli til styrktar krabbameinssjúkum börn-
um. Á boðstólum voru meðal annars veski
og risaeðla.
AUSTURVÖLLUR HEIMSÓTTUR
Katrín Ólafsdóttir sýndi kærasta sínum
Andreas stemninguna á Austurvelli en þau
eru búsett í Svíþjóð. Með í för var vinkon-
an Didda.