Fréttablaðið - 10.06.2004, Side 22
Kolbrún á villigötum
Haukur Snær Hauksson skrifar:
Kolbrún Bergþórsdóttir fer ekki fögrum
orðum um Jack Bauer í Fréttablaðinu
þann 8. júní síðastliðinn. Vill hún meina
að Jack hafi gert mistök með því að taka
„af lífi saklausan man“. Þvílíkt bull. Jack
Bauer hefur ekki tekið ranga ákvörðun
frá því að hann skaut George Mason í
fótinn í fyrstu seríunni þar til hann skaut
Chappelle í höfuðið í þeirri nýjustu.
Í fyrsta lagi var það ákvörðun forsetans
að drepa Chappelle og þrátt fyrir að sú
ákvörðun hafi verið umdeilanleg, þá var
hún engu að síður rétt. Þetta var bara
spurning um að drepa einn saklausan
mann eða milljónir saklausra. Ekki flókin
ákvörðun. Þetta eiga kommúnistar að
vita.
Auk þess segir Kolbrún í Fréttablaðinu
þann 5. maí síðastliðinn að Jack hafi
„gengið full harkalega fram“ þegar hann
drap Ninu Mayers. Ekki er ég sammála
því. Vissulega var Nina skemmtilegur
karakter, en það var kominn tími á hana.
Hún var búin að leiða Jack og alla hjá
CTU í of margar gildrur, auk þess sem
hún drap Teri Bauer, eiginkonu Jacks
(sem þó var gott fyrir þættina því Jack er
orðinn svo brjálæðislega einbeittur).
24 eru bestu sjónvarpsþættir sem
nokkru sinni hafa verið framleiddir. Ég
fagna því að Kolbrún hafi jafnmikinn
áhuga á þáttunum og ég og skora á alla
sem ekki hafa fylgst með að drífa sig á
næstu myndbandaleigu.
„If you don’t watch 24, you don’t know
Jack.“
Baldur Þórhallsson, kennari ístjórnmálafræði við Háskóla
Íslands, kom fram í Kastljósi
Sjónvarpsins 25. maí sl. Orðræðan
snerist að verulegu leyti um af-
stöðu Íslendinga til Evrópubanda-
lagsins og ástæður þess að ekki
hefur enn komið til þess að Ísland
sækti þar um fulla aðild.
Málflutningur Baldurs var
slíkur að orða- og hugtakanotkun
sýndi býsna vel persónulega skoð-
un hans á Evrópumálum. Hann er
augljóslega sambandsríkjasinni,
evrópskur federalisti. Honum er
það að sjálfsögðu frjálst. Hins
vegar tekst honum ekki vel upp
þegar hann tekur sér fyrir hendur
að skýra afstöðu andstæðinga
sinna í Evrópumálum, þess fólks
sem kalla mætti fullveldissinna.
Málflutningur hans er vísbending
þess, sem við blasir, að rekinn er
leynt og ljóst „kerfisáróður“ fyrir
þeirri skoðun að Íslendingum sé
til hagsbóta að afsala sér (enn
frekar en orðið er) fullveldi þjóð-
ríkis síns.
Baldur benti einkum á tvennt,
sem veldur tregðu Íslendinga að
ganga í Evrópubandalagið. Fyrri
ástæðan á að vera sú að ýmsir
„tengjast“ sjávarútvegi (helst)
eða landbúnaði og óttast um hag
þessara atvinnugreina í mið-
stýrðu stjórnskipulagi fjölþjóða-
ríkis. M.ö.o. slíkir andstæðingar
aðildar móta þá afstöðu sína af
hagsmunaástæðum tiltekinna at-
vinnugreina. Þessi afstaða er þó
hvorki óeðlileg né óskiljanleg.
Pólitísk afstaða er iðulega hags-
munatengd með einum eða öðrum
hætti. Því verður ekki breytt fyrr
en með guðsríki á jörð.
Hin ástæðan á að vera sú, að
andstæðingar aðildar séu „þjóð-
ernissinnar“, en það er stjórn-
málahugtak, sem í íslensku hefur
fyrst og fremst verið haft um þá
sem aðhylltust öfgafullar og ólýð-
ræðislegar yfirgangsstefnur á 20.
öld, nasisma og fasisma, og fela í
sér trú á ágæti einstakra kyn-
stofna umfram aðra og sagðir
gæddir ofurmannlegum eigind-
um. Íslenskir stjórnmálaflokkar
hafa varast að nota orð eins og
„þjóðernissinni“ og „þjóðernis-
hyggja“ sér til einkennis, þó að
því undanskildu að stuttan tíma á
4. áratug nýliðinnar aldar var til
„Þjóðernishreyfing Íslendinga“,
fámennur og áhrifalítill flokkur,
sem sótti fyrirmyndir til þýskra
nasista. Þessi orð eru neikvæð og
útdauð í íslenskri stjórnmálaum-
ræðu, en haldið lifandi í máli
fræðimanna, einkum sagnfræð-
inga og stjórnmálafræðinga.
Sagnfræðingar ofnota mjög þessi
orð, þótt önnur ættu betur við.
Nú vill svo til að ég er í hópi
þeirra Íslendinga, sem eru and-
vígir aðild Íslands að Evrópu-
bandalaginu. Ég er fullveldissinni
en ekki federalisti. Mér þætti ansi
hart ef mér væri núið því um nas-
ir að vera þjóðernissinni eða þjóð-
ernissinnaður. Þeir fullveldissinn-
ar, sem ég þekki, frábiðja sér að
láta bendla sig við þjóðernis-
hyggju. Íslenskt þjóðerni er hvor-
ki betra né verra en þjóðerni ann-
arra manna. Íslendingar eru ekki
ofurmenni og heimsfrægð þeirra
mjög ofmetin. Íslendingar eru
þjóðarkríli og eiga að passa sitt
dont af gætni. Þess vegna eru full-
veldissinnar á borð við mig og
mína líka andvígir því að semja
sig undir yfirþjóðlegt stjórnskipu-
lag sambandsríkis. Stefna okkar
er varfærnisstefna. Við erum full-
veldissinnar af því að við teljum
hag Íslendinga betur borgið með
því að halda í þjóðríkið, viðhalda
stjórnarfarslegu fullveldi, málið
er nú ekki flóknara en það. Við-
horf okkar eru „þjóðleg“. Þannig
tryggjum við best að íslenskt
þjóðfélag sé „samfélag um ís-
lenska menningu, gamlan arf og
nýja sköpun, ætlunarverk ís-
lensku þjóðarinnar“ eins og for-
seti Íslands, Kristján Eldjárn, orð-
aði það í nýjársávarpi 1980.
Ég notaði í upphafi þessa
greinarkorns orðið „kerfisáróð-
ur“. Allt eins mætti nefna fyrir-
bærið stofnanaáróður. „Kerfið“ er
auknefni valda- og áhrifastofnana
þjóðfélagsins. Flestir hafa tilfinn-
ingu fyrir því hvað við er átt.
„Kerfið“ er, eins og nafnið bendir
til, allflókinn vefur en ekki samof-
inn að öllu leyti. Þrátt fyrir það
reynist „Kerfið“ í mörgum tilfell-
um svo gagnheilt að það verkar
allt í sömu áttina, stundum til
góðs, stundum til hins verra.
Samverkun „Kerfisins“ er
áberandi í Evrópumálum. Hags-
munasamtök ýmiss konar líta
vonaraugum til Evrópusambands-
ins. Heilu ráðuneytin ganga svo
langt í aðildaráróðri sem kjarkur-
inn leyfir. Háskólasamfélagið er
öflugasti drifkraftur í aðildará-
róðri, svo að stappar nærri
óskammfeilni. Fjölmiðlar eru
undirlagðir af þessu leynt og ljóst,
að ekki sé minnst á ýmsa kunna
stjórnmálaforingja og foringja-
holla flokksgæðinga sem lúm-
skast með. Það allra nýjasta er að
svokölluð Fastanefnd fram-
kvæmdastjórnar Evrópusam-
bandsins gagnvart Íslandi og Nor-
egi hefur gefið út sérstakt
kennsluefni um ESB handa ís-
lenskum ungmennum. Ritið nefn-
ist Upplifðu Evrópu@. Mun unnið
að því að fá kennslu í þessum
fræðum tekna upp í skólakerfinu.
Ósvífni kerfisáróðursins á sér
engin takmörk.
En hvað er þá að segja um
áhrif þessa mikla áróðurs? Jú, þau
hljóta að vera töluverð, en þó ekki
meiri en við er að búast af slíkri
áróðursbreiðsíðu. Því má segja
það mörgum landanum til hróss,
að hann lætur ekki kerfisáróð-
urinn snúa sér. Í því felst vonin
um að fullveldi Íslands verði ekki
fórnað meira en orðið er. Nóg er
nú samt. Svo mikið er a.m.k. víst
að ríkisstjórnin hefur enn ekki
vogað að sækja um fulla aðild að
ESB. En kerfisáróðurinn heldur
sínu striki. ■
10. júní 2004 FIMMTUDAGUR22
Kerfisáróður í Evrópumálum
INGVAR GÍSLASON
FYRRVERANDI MENNTAMÁLARÁÐHERRA
UMRÆÐAN
ÍSLAND OG EVR-
ÓPUSAMBANDIÐ
Samverkun „Kerfis-
ins“ er áberandi í Evrópu-
málum. Hagsmunasamtök
ýmis konar líta vonaraugum
til Evrópusambandsins.
Heilu ráðuneytin ganga svo
langt í aðildaráróðri sem
kjarkurinn leyfir. Háskóla-
samfélagið er öflugasti drif-
kraftur í aðildaráróðri,
svo að stappar nærri
óskammfeilni.
,,
ENDALOK FORSETAEMBÆTTISINS VAXANDI SKULDASÖFNUN UNGMENNA BARÁTTAN VIÐ FÍKNIEFNIN UMÖNNUN ALDRAÐRA OG SJÚKRA
Ég óttast að við Íslendingar séum að
horfa á endalok forsetaembættisins
eins og við höfum þekkt það í áratugi.
Að þeir sem við höfum kosið og treyst
til að stjórna landinu fyrir okkur öll,
séu vegna valdagræðgi og persónu-
legrar óvináttu að eyðileggja forseta-
embættið - sem þjóðin á og hefur litið
upp til. Að þeir séu að svipta okkur
hinum hlutlausa landsföður sem um
leið hefur verið gæslumaður lýðræðis-
ins. Þannig mun fara ef við höfnum
ekki sundrunginni og sameinumst um
að segja: Hingað og ekki lengra. Við
verðum öll að veita þessum „trúnað-
armönnum“ okkar áminningu og
kjósa okkur ópólitískan forseta.
Vaxandi skuldasöfnun ungmenna er
áhyggjuefni. Þau koma úr skólum með
plastkort í vasanum og lánamöguleika
hjá bönkum. Þau hafa enga fræðslu
fengið í leikreglum lífsins. Þau vita allt
um tölvur – en ekkert um hvað tölvu-
lánið mun kosta þau þegar upp er stað-
ið. Þau hafa bílpróf og taka lán fyrir bíl
án þess að hafa hugmynd um þá snöru
sem lán geta verið. Ég segi þetta ekki
þeim til hnjóðs - það erum við hin eldri
sem berum ábyrgð á að mennta þau í
leikreglum lífsins. Við skuldum þeim
kennslu í að fóta sig á svelli fjármál-
anna.
Baráttan við fíkniefnin verður að fá for-
gang áður en hún tapast endanlega,
eins og þegar hefur gerst hjá sumum
þjóðum. Þetta böl, sem þrífst í þögn-
inni, veldur dauða tuga fólks á hverju
ári og hefur skilið við þúsundir vina og
ættingja þeirra og annarra neytenda í
örvæntingu og vonleysi. Ef nokkur þjóð
hefur aðstæður, þekkingu og getu til að
ráða niðurlögum fíkniefnapúkans þá
erum það við Íslendingar. Það er fátt
sem stoppar okkur þegar við tökum
höndum saman, það höfum við marg-
sýnt. Vilji er allt sem þarf – vilji til að
setja unga fólkið í forgang.
Umönnun aldraðra og sjúkra er mér of-
arlega í huga. Það er okkur til skammar,
að sjúkir þurfi að bíða mánuði eða ár
eftir aðgerð, að lyfjaverð sé svo hátt að
sumir sjúklingar hafi ekki efni á þeim
og deildum sjúkrahúsa sé lokað svo
biðlistarnir lengjast enn. Ég hef búið í
Bretlandi hluta úr ári í mörg ár. Þar hef
ég fylgst með þróun þessara mála og
séð hvert sú leið liggur sem við erum
að byrja að feta hér á landi. Það er
ófögur sjón – og er þá vægt til orða tek-
ið.Við erum ein ríkasta þjóð á vestur-
löndum – við getum gert betur.
EFST Í HUGA
BALDURS ÁGÚSTSSONAR
FORSETAFRAMBJÓÐANDA
Barmmerki við öll tækifæri
Fyrir fundi, ráðstefnur og ættarmót
Vinnustofa SÍBS • Hátúni 10c • Sími: 562 8500 • Fax: 552 8819 • Heimasíða www.mulalundur.is
Barmmerkin fást í mörgum litum sem bjóða upp á
flokkun ættartengsla þegar ættarmót er haldið.
Snúrur í
hangandi merki
Vörunr. 1033
Vörunr. 1020 K
Vörunr. 1025 K
Vörunr. 1018 K
Hægt er að velja á milli
þess að hafa snúru,
hangandi klemmu eða
klemmu og nælu
á baki bammerkis.
Prentum á barmmerkin ef okkur eru send nöfnin í Excel skjali.
Pappírinn kemur rifgataður í A4 örkum, fyrir þá sem vilja prenta sjálfir.
Stærðir á barmmerkjum.
Vörunúmer hæð* breydd
1018 K 3,5 7,5 cm
1020 K 4,5 7,5 cm
1025 K 6 9,5 cm
1033 6,5 9,5 cm
Öllum íslenskum konum er nú
misboðið enn og aftur vegna skip-
unar þeirrar nefndar sem ráða
skal hvernig komandi þjóðarat-
kvæðagreiðsu skal háttað. Í
nefndinni sitja fjórir karlmenn og
til aðstoðar sá fimmti, aðstoðar-
maður forsætisráðherra. Hvenær
ætla ráðamenn okkar í stjórnmál-
um að viðurkenna konur, helming
þjóðarinnar sem kjósendur með
rétt og menntun til að taka þátt í
mikilvægum ákvarðanatökum
sem þessari og öðrum? Margar
konur eru vel lærðar í lögum,
stjórnmálum, mannréttindamál-
um ofl., sumar jafnvel betur að
sér í ýmsum málaflokkum en
karlar, sjá t.d. dr. Herdísi Þor-
geirsdóttur og margar aðrar. Þær
eru fyllilega jafnokar karla þegar
kemur að því að leysa úr þeirri
flækju sem hæstvirtir forsætis-
ráðherra og utanríkisráðherra
vorir hafa komið sér í með því að
hafa engin samráð við einn eða
neinn þegar þeir taka afdrifaríkar
ákvarðanir fyrir þjóðina alla eins
og stuðningur þeirra tveggja við
innrásina í Írak ber vott um. Við
erum stolt af því að vera herlaus
þjóð og friðsöm og teljum mörg að
sumar þjóðir öfundi okkur af því
og því lýðræði sem við búum þó
við. Þrátt fyrir þá misbresti sem á
því verður þegar ráðherrar horfa
framhjá niðurstöðum opinberra
stofnana sem gegna því hlutverki
að gæta réttlætis eins og Siv Frið-
leifsdóttir gerði þegar hún undir-
ritaði samninginn um Kára-
hnjúkavirkjun á sínum tíma. Nú
er komið nóg. Við verðum allar að
sameinast í þessari baráttu fyrir
viðurkenningu á rétti okkar sem í
raun er kominn í orði en alls ekki
á borði eins og dæmin sanna. Ég
skora á allar íslenskar konur að
láta til sín heyra svo rödd mín
verði ekki hrópandans í eyði-
mörkinni. ■
KOSNINGANEFNDIN
Aðeins karlmenn eru í lögfræðinganefndinni um þjóðaratkvæðagreiðsluna.
BRÉF TIL BLAÐSINS
Vér mótmælum allar
HERDÍS HELGADÓTTIR
SKRIFAR UM LÖGFRÆÐINGANEFND
VEGNA ÞJÓÐARATKVÆÐAGREIÐSLU