Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 1
● allir leikirnir verða sýndir beint
EM í knattspyrnu í Sjónvarpinu:
▲
SÍÐA 29
Þorsteinn J.
með nýjan þátt
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík — sími 550 5000
FÖSTUDAGUR
LEIKIÐ Í BIKARNUM Átta leikir verða
í Visa-bikarkeppni karla í fótbolta klukkan
19.15 og tveir í bikarkeppni kvenna klukk-
an 20. Á meðal leikja í karlaflokki eru: Fylk-
ir - ÍH, Fram - Grótta og Fjölnir - ÍBV. Í
kvennaflokki tekur Þróttur á móti HK/Vík-
ingi og ÍA á móti Stjörnunni.
DAGURINN Í DAG
VEÐRIÐ Í DAG
ÁFRAM BJARTVIÐRI Víðast skýjað
með köflum eða léttskýjað. Þykknar upp á
morgun. Sjá síðu 6.
11. júní 2004 – 157. tölublað – 4. árgangur
KÆRT TIL ESA Eftirlitsstofnun evrópska
efnahagssvæðisins, ESA, hefur borist önnur
kæra á hendur Ríkisútvarpinu. Nú vegna
reksturs Ríkisútvarpsins á ruv.is. Sjá síðu 2
MEIRIHLUTI Á MÓTI FJÖLMIÐLA-
LÖGUNUM Um 71 prósent af þeim sem
tóku afstöðu í skoðanakönnun Fréttablaðs-
ins ætla að greiða atkvæði á móti fjölmiðla-
lögunum. Af þeim sem ekki tóku afstöðu
segjast 23 prósent vera óákveðin. Sjá síðu 4
UNGT FÓLK SKULDUGT Fjölgun hef-
ur orðið á milli ára á fólki innan tvítugs
sem leitað hefur til Ráðgjafarstofunnar
vegna þess að það hefur steypt sér í fjár-
hagsvanda. Sjá síðu 6
ÁKÆRÐUR FYRIR LÍKAMSÁRÁSIR
Maður hefur verið ákærður fyrir þrjár
líkamsárásir á tveimur dögum, þar af
eina sérstaklega hættulega. Maðurinn
var á reynslulausn þegar hann framdi
árásirnar. Sjá síðu 10
1 1 . J Ú N Í T I L 1 7 . J Ú N Í 2 0 0 4birta
vikulegt tímarit um fólkið í landinu
NR. 23 . 2004
Sjónvarpsdagskrá
næstu7daga
Í hárinu
á Jóa og Góa
Keisaraskurðum fjölgar ört
Nýstúdentar spá í spilin
Þorvaldur Þorsteinsson
opnar sýningu
Nú styttist í 17. júní
▲Fylgir Fréttablaðinu dag
birta
● alls konar lykt
● fjölgun keisaraskurða
36%50%
Kvikmyndir 30
Tónlist 24
Leikhús 24
Myndlist 24
Íþróttir 26
Sjónvarp 32
Bryndís Ásmundsdóttir:
▲
Í MIÐJU BLAÐSINS
Tók sófann í
andlitslyftingu
● matur ● tíska ● heimili
Kristinn T. Haraldsson:
▲
SÍÐA 22
Gamli rótarinn
enn táningur
● 50 ára í dag
JERÚSALEM, AP Ísraelsstjórn mun
greiða þeim landtökumönnum sem
flytja sjálfviljugir frá Gaza bætur frá
og með ágústmánuði. Þeir landnemar
sem verða ekki horfnir á braut ári síð-
ar verða reknir burt með valdi sam-
kvæmt tímaáætlun sem hefur verið
lögð fram um brotthvarf Ísraela frá
landnemabyggðum á Gaza.
Birting tímaáætlunarinnar gefur
til kynna að Ariel Sharon, forsætis-
ráðherra Ísraels, ætli ekki að láta
neitt koma í veg fyrir að landtöku-
byggðirnar á Gaza verði lagðar
niður, og það fljótt.
Binyamin Netanyahu fjármála-
ráðherra sagði ekki endanlega
ákveðið hversu háar bætur þeir
landtökumenn fengju sem hverfa á
braut áður en lokafrestur til þess
rennur út 14. ágúst á næsta ári. Ekki
hefur heldur verið ákveðið hvar
þeim verður komið fyrir.
Palestínumenn hafa tekið áætl-
uninni um brotthvarf með miklum
fyrirvara og telja hana aðeins hugs-
aða til þess að tryggja stöðu Ísraela
á Vesturbakkanum.
Forystumenn Trúarlega þjóðar-
flokksins, sem situr í Ísraelsstjórn
og er alfarið á móti því að gefa land-
tökubyggðir eftir, þykja eftir þetta
líklegri en áður til að segja sig úr
stjórninni. „Þetta er mjög alvarlegt
og gengur þvert á það sem var sam-
þykkt,“ sagði Nissan Slomiansky,
þingmaður flokksins, og vísaði til
samþykktar stjórnarinnar frá því
um síðustu helgi. ■
VÍSITALA NEYSLUVERÐS „Þetta er mik-
ið áhyggjuefni, ekki síst vegna
þess að menn voru nýbúnir að
gera hér kjarasamninga þar sem
þeir stilltu kröfum sínum í hóf til
að tryggja svokallaðan stöðug-
leika,“ segir Aðalsteinn Baldurs-
son, formaður Verkalýðsfélags
Húsavíkur.
Vísitala neysluverðs hefur
hækkað um 3,9 prósent síðast-
liðna tólf mánuði, samkvæmt
upplýsingum frá Hagstofu Ís-
lands. Undanfarna þrjá mánuði
hefur vísitala neysluverðs
hækkað um 2,2 prósent, sem
jafngildir níu prósenta verð-
bólgu á ársgrundvelli.
„Ég lít þessa þróun alvarlegum
augum og ef hún heldur svona
áfram erum við í vondum mál-
um,“ segir Aðalsteinn, sem telur
forsendur kjarasamninga í hættu
þar sem verðbólga sé langt um-
fram þau mörk sem sett hafi ver-
ið. Áhrifin verði þó metin yfir
lengra tímabil. „Þetta er stór-
alvarlegt mál og kallar á aðhald í
ríkisfjármálunum,“ segir Aðal-
steinn.
„Við höfum áhyggjur af verð-
lagsþróuninni, ekki síst vegna
kjarasamninga,“ segir Ingunn
Þorsteinsdóttir, hagfræðingur hjá
Alþýðusambandi Íslands. „Grunn-
forsenda kjarasamninga er að
verðlagsþróun verði í takt við
verðbólgumarkmið Seðlabankans,
sem er 2,5 prósent. Við höfum því
áhyggjur af að forsendur kjara-
samninga muni bresta ef verð-
lagsþróun verður áfram með
sama hætti.“
Ingunn segir líklegt að Seðla-
bankinn muni halda áfram að
hækka stýrivexti. „Þá er ekki
síður mikilvægt að ríkisvaldið
grípi til aðhaldssamra aðgerða í
ríkisfjármálunum þannig að
meginþungi aðgerðanna liggi
ekki á Seðlabankanum.“
Að sögn Ingunnar mun ASÍ
fylgjast náið með þróun verð-
lags á næstu mánuðum. „Verð-
lagsþróunin fer eftir því hvern-
ig viðbrögðin verða í hag-
kerfinu og hvort verðlags-
þróunin gengur að einhverju
leyti til baka.“
helgat@frettabladid.is
Tímaáætlun lögð fram um brotthvarf Ísraela frá Gaza:
Allir á brott innan
fimmtán mánaða
Forsendur kjara-
samninga í hættu
Formaður Verkalýðsfélags Húsavíkur telur forsendur kjarasamninga í hættu þar sem verðbólga sé langt
umfram þau mörk sem sett hafi verið. Vísitala neysluverðs hefur hækkað um 3,9 prósent síðastliðna tólf
mánuði og jafngildir hækkunin undanfarna þrjá mánuði níu prósenta verðbólgu á ársgrundvelli.
Féll úr parísarhjóli:
Bjargað af
djöflinum
STOKKHÓLMUR, AP Starfsmaður
sirkuss, í gervi djöfulsins, kom
sænskum dreng til bjargar eftir
að sá síðarnefndi féll út úr einu
leiktækjanna. Drengurinn greip
í leiktækið og hékk í því, tíu
metra uppi í lofti.
Ben-Hur Pereira, sem leikur
djöfulinn í draugahúsi sirkuss-
ins, kom auga á drenginn þar
sem hann hékk ósjálfbjarga í
tækinu. Pereira, sem einnig er
loftfimleikamaður, prílaði því
upp leiktækið og kom piltinum
til hjálpar með því að ýta honum
aftur inn í tækið.
Tækið hefur verið notað í
sirkusnum í 30 ár án þess að slys
hafi orðið fyrr en nú. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/P
JE
TU
R
Í hárinu á Jóa
og Góa
Deilur í sameign:
Múraður úti
DÓMSMÁL Íbúar fjögurra íbúða
fjölbýlishúss við Spítalastíg
hafa fengið dómsúrskurð Hér-
aðsdóms Reykjavíkur vegna
áralangra deilna um eignaraðlid
á forstofu.
Árið 1994 keypti stefnandi
íbúð í húsinu með leyfi til að
færa vegg í forstofunni um hálf-
an metra og stúka svæði íbúðar-
innar af. Það gerði hann og vildu
aðrir íbúar ekki við það una þar
sem ekkert í kaupsamningum
þeirra kvað á um leyfið.
Íbúar sem samnýttu for-
stofuna ákváðu að taka málin í
sínar hendur. Tóku þeir niður
vegginn og reistu nýjan án dyra
og skiptu um læsingar svo stefn-
andi komst ekki inn í íbúðina um
forstofu hússins. Þeim er nú
gert að taka niður vegginn og
stefnandi má reisa gamla vegg-
inn aftur. ■
PALESTÍNSK BÖRN
Fjölmörg börn þrömmuðu til stuðnings
Yassers Arafat, forseta Palestínu.
MINNTUST FALLINNA FÉLAGA Sniglarnir héldu minningarvöku vegna fallinna félaga í Kúagerði á Reykjanesbraut í gærkvöldi. Auk
þess að minnast látinna félaga segir Pétur Ásgeirsson, talsmaður Sniglanna, að minningarvakan eigi að fá fólk til að hugsa um afleiðingar
þess að aka of hratt. Tveir bifhjólamenn hafa látist í slysum það sem af er árinu og 24 slasast.