Fréttablaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 23
03FÖSTUDAGUR 14. maí 2004
Ný sjálfbrúnkandi vara:
Rakakrem sem nota má daglega
Hydra Flash Bronzer er ný sjálfbrúnkandi vara frá Lancóme. Hydra
Flash Bronzer er rakakrem með léttum sjálfbrúnkandi eiginleikum.
Kremið er mjög létt og fyllir húðina raka,
gerir hana þétta og mjúka og áferð
hennar slétta. Kremið má nota daglega í
stað hefðbundinna rakakrema. Kremið
hentar ljósri húð einnig vel vegna mildra
sjálfbrúnandi eiginleika.
Dior Addict
4.580 kr.
YSL, Paris
4.050 kr.
Ilmvötn:
Góður ilmur
veit á góðan
dag
Á hverju vori koma nýir ferskir ilm-
ir á markaðinn og áherslan er yfir-
leitt á svipuðum nótum; ferskleik-
inn í fyrirrúmi, léttur ilmur með
ávaxta- eða blómakeim. Þetta á
einnig við sumarilmina í ár. Ekki
skemmir fyrir að umbúðirnar eru
mikið fyrir augað og höfða til feg-
urðarskyns hverrar konu. Stóru
snyrtivörumerkin bjóða flest upp á
splunkunýjan ilm fyrir sumarið svo
nú er mál að setja sig í stellingar,
þramma í snyrtivöruverslanirnar og
finna sér angandi gerberu eða
sítrónu fyrir sumartíðina sem
framundan er.
Issey Miyake,
Líeau díIssey
4.400 kr.
Cucci II
6.100 kr.
Lancóme,
Calypso
3.800 kr.
Guerlain,
Shalimar
5.350 kr.
Öll ilmvötnin fást í Hygeu í Kringlunni.
Oscar de la
Renta,
Intrusion
4.260 kr.
JAKKAR STUTTIR
áður 6990
NÚ AÐEINS 3990
síðir áður 8990
NÚ AÐEINS 5990
INDVERSK PILS
síð áður 4990
NÚ AÐEINS 2490
INDVERSKAR MUSSUR
áður 4990
NÚ AÐEINS 2990
BOLIR
áður 2990
NÚ AÐEINS 1690
LEGGINGS
áður 2990
NÚ AÐEINS 1990
OFL. OFL. FRÁBÆR TILBOÐ
Sumarhiti
í Cosmo
Uppáhaldsskórnir hafa enst vel:
Skór sem vekja athygli
„Uppáhaldsskórnir mínir þessa
dagana eru eldrauðir og kafloðnir
skór frá X18,“ segir Guðný María
Jónsdóttir leikstjóri um uppá-
haldsskóna sína.
„Ég hef átt þessa skó í tvö ár og
þeir eru alveg æðislegir og rosa-
lega flottir. Þeir hafa líka enst
mér mjög vel því ég er oft í þeim,
bæði hversdagslega og þegar ég
fer eitthvað aðeins fínna,“ segir
Guðný og bætir við að hún hafi
fallið fyrir þessum skóm um leið
og hún leit þá augum.
Loðnir skór er nú ekki eitthvað
sem maður sér á hverju strái og
segir Guðný að þeir veki mikla at-
hygli. „Ég fór til dæmis til Kaup-
mannahafnar um daginn og þar
fengu ég og skórnir mínir mikla
athygli því þeir eru jú aðeins
öðruvísi en venjulegir skór.“
Spurð um skótískuna í dag seg-
ir Guðný hana vera að sínu skapi.
„Skótískan í dag er alveg brillíant.
Mér finnst frábærir alls konar lit-
ir og munstur og nota einmitt skó
til að lífga aðeins upp á dressin
mín,“ segir Guðný og bætir við að
hún sé sérstaklega hrifin af skóm
og að sá áhugi hafi aukist mjög
mikið að undanförnu. „Ég vel mér
samt alltaf þægilega skó, ég vil
alls ekki háhælaða skó – þeir eru
ömurleg uppfinning.“
lilja@frettabladid.is
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is
Smáauglýsingasíminn er 550 5000
auglysingar@frettabladid.is