Fréttablaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 16
Augu og eyru Davíðs Sagt er að Davíð Oddsson sé staðráðinn í að láta mistökin með fjölmiðlanefndina ekki endurtaka sig. Þó að sú nefnd væri skipuð „málsmetandi mönnum“, sem hlotið höfðu meðmæli úr innsta hringn- um, kláraði hún ekki verk sitt samkvæmt upphaflegri forskrift forsætisráðherra. Er hermt að hann hafi lesið einstökum nefndarmönnum pistilinn í gremju sinni og von- brigðum. Kosninga- nefndin nýja er einnig skipuð „málsmetandi mönnum“, sem valdir hafa verið af innsta hring beggja stjórnar- flokkanna. En til að tryggja að þar byrji ekkert gáleysistal eða undanhald fyrir „óábyrgum kröfum“ hefur forsætisráðherra sett per- sónulegan fulltrúa sinn til að sitja nefndar- fundi, skrifa niður allt sem sagt er og gefa sér reglulega skýrslu; þannig geti hann gripið inn í ef þörf krefur. Augu og eyru forsætisráðherra í kosninga- nefndinni tilheyra hlýðnasta snúninga- manni hans í ráðuneytinu undanfarin ár, Kristjáni Andra Stefánssyni lögfræðingi. Hann er náfrændi Þórarins Eldjárn, einka- vinar frá Matthildarárunum. Samhljómur Björn Bjarnason birti pistil um Ronald Reagan á heimasíðu sinni mánudaginn 7. júní og skrifaði þá m.a. „[Ronald Reagan] sætti gagnrýni ekki síst frá hinum talandi stéttum, fjölmiðlungum, háskólafólki og kaffihúsaspekingum, án þess að láta það hið minnsta á sig fá“. Tveimur dögum seinna birti Jakob F. Ásgeirsson rithöfund- ur pistil í Viðskiptablaðinu og komst þá svo að orði: „Ekkert var til sparað í lýsingum fjöl- miðlafólks, háskólakenn- ara og kaffihúsaspekinga á heimsku Reagans, fljót- færni og leti“. Jakob vitnaði ekki í Björn, enda þykja tilvitnanir fá- fengilegar með- al ákveðinna s j á l f s t æ ð i s - manna, en hinn andlegi sam- hljómur er aug- ljós. Umræðan um þjóðaratkvæða- greiðslu um fjölmiðlafrumvarpið er orðin rimma um málsmeðferð. Þannig raða þekktir menn úr þjóð- lífinu sér á skoðanasíður dagblað- anna og skjóta föstum skotum hver á annan.Virðulegir lögfræðingar sem til þessa hafa talist gamal- grónir sjálfstæðismenn – en þó kannski laustengdir núverandi for- ustu – eru skyndilega dottnir inn í miðja hringiðu umræðunnar, bæði sem gagnrýnendur og þolendur gagnrýni. Eftirtektarverð er t.d. sú hvassa og nánast persónulega gagn- rýni sem bæði Björn Bjarnason og Jón Steinar Gunnlaugsson hafa beint að Jónatan Þórmundssyni pró- fessor, sem sjálfur hafði stigið fram fyrir skjöldu með afgerandi gan- grýni á að setja háa þröskulda um kosningaþátttöku í þjóðaratkvæða- greiðslu. Það virðast ætla að verða örlög þessa fjölmiðlafrumvarps að kalla á meiri umræðu um málsmeðferð en um sjálft frumvarpið. Tilefnið er enda ærið og sú málsmeðferðar- umræða sem nú á sér stað er grund- vallarumræða um lýðræði og flest bendir til að brýn þörf sé á því að þessir hlutir séu ræddir. Efnis- umræða um fjölmiðlafrumvarpið kemur í framhaldinu. Grundvallarspurningarnar um lýðræði snúast um málskotsréttinn, þingræði, og þjóðaratkvæðagreiðsl- ur. Mjög misvísandi sjónarmið hafa heyrst frá stjórnmálamönnum í um- ræðunni í tengslum við þessar þrjár spurningar. Mest hefur verið rætt um málskotsréttinn og þá lagalegu textaæfingu sem ættuð er frá Þór Vilhjálmssyni að framkvæmdavald- ið eða ráðherra, en ekki forseti, fari í raun með löggjafarvaldið ásamt þinginu. Fáir virðast skilja þessa röksemdafærslu almennilega og enn færri telja að hún eigi að ráða ferðinni, samanber þau orð Davíðs Oddssonar að ekki sé annað hægt í stöðunni en að halda sig við við- tekna skoðun um að málskotsréttur forseta sé raunverulegur. Afar sérstæðar yfirlýsingar hafa heyrst frá ráðandi stjórnmála- mönnum varðandi þingræðið og óspart er látið í það skína að aðgerð forsetans sé með einhverjum hætti aðför gegn þingræðinu, rétt eins og þingræði snúist um eitthvað eitt- hvað allt annað en að vilji kjósenda komi fram. Þannig talaði fjármála- ráðhera hneykslaður um að forset- inn hefði í yfirlýsingu sinni nefnt að lýðræði, frelsi og mannréttindi væru grundvöllur íslenskrar stjórn- skipunar, en hann hefði gleymt mik- ilvægu atriði, nefnilega þing- ræðinu! Miðað við svona yfirlýs- ingu mætti ætla að þingræði væri eitthvað allt annað og meira en lýð- ræði og frelsi og mannréttindi, en ekki praktískt útfærslukerfi til að koma lýðræðinu í framkvæmd. Nú síðast eru að koma fram miklar skoðanir og kenningar um nauðsyn þess að setja háa þrösk- ulda um þátttöku í þjóðaratkvæða- greiðslu. Jafnvel hafa verið viðrað- ar skoðanir um að 75% þátttaka væri nauðsynleg og til að rökstyðja það bent á að þátttaka í þingkosn- ingum sé alla jafnan mun hærri. Það er einmitt þröskuldur af þessu tagi sem Jónatan Þórmundsson tal- ar um að kunni að „ræna“ þjóðina málskotsréttinum, enda augljós rangindi í því ef mikill meirihluti, t.d 70%, kosningabærra manna greiddi atkvæði gegn tilteknu frumvarpi, en það dygði ekki til að fella það úr gildi eingögnu vegna þess að það vantaði fimm prósent upp á kosningaþátttökuna. Hugsunin að baki þröskuldi af þessu tagi er væntanlega sú, að það þurfi að koma til verulegur fjöldi einstaklinga til að hnekkja löglegri ákvörðun þings sem hefur verið kosið með 80–90% kosningaþátt- töku. Fleiri hafi þá veitt þinginu umboð til ákvörðunartöku um við- komandi lög í alþingiskosningum, en kusu að taka ákvörðun sjálfir í þjóðaratkvæðagreiðslu. Þessi hugsun er þó að ýmsu leyti vara- söm. Þannig hefur aldrei verið tal- in ástæða til að innleiða slíkan þröskuld í þingkosningum og segja að þingmenn nái ekki kosningu nema með tiltekinni kosningaþátt- töku. Enda væri slíkt frátleitt. Hver er þá eðlismunurinn á því að kjósa til þings og að taka ákvörðun um að kjósa í þjóðaratkvæða- greiðslu? Hví skyldi það skipta meira máli hvort kjósandi sitji heima eða í sumarbústað eða hvar sem er og sjái ekki ástæðu til að fara á kjörstað þegar um þjóðar- atkvæðagreiðslu er að ræða heldur en þegar um þingkosningu (eða forsetakosningu) er að ræða? Langeðlilegast væri að vitaskuld að sama reglan gilti í öllum þessum tilfellum. En þó má, ef menn eru á annað borð á þeim buxunum, finna ákveðinn mun á kosningunum ann- ars vegar og þjóðaratkvæðinu hins vegar. Í öðru tilfellinu er verið að kjósa menn til að taka ákvarðanir í framtíðinni og í hinu tilvikinu er verið að kjósa um ákvörðun sem þegar er búið að taka og afgreiða með löglegum hætti. Það er með öðrum orðum verið að kjósa um hvort synja eigi löglegum gerningi í þjóðaratkvæðagreiðslu og ef menn telja þörskulda nauðsynlega þá er eðlilegast að þeim sé beint að synjuninni sem slíkri, en ekki kosningaþátttökunni almennt. Ætli menn að setja einhverja þröskulda í komandi þjóðaratkvæðagreiðslu – sem í sjálfu sér er engin ástæða til – hlýtur sá þröskuldur að felast í því að ákveðinn lágmarksfjöldi kosningabærra manna greiði at- kvæði gegn frumvarpinu, en bein- ist ekki að kosningaþátttökunni sem slíkri. ■ Á litsgerð umboðsmanns Alþingis um fréttavef Ríkis-útvarpsins er rökrétt þegar tillit er tekið til þess laga-grundvallar sem starfsemi stofnunarinnar er reist á. Löggjafinn ætlar Ríkisútvarpinu eingöngu að annast útvarps- starfsemi, það er að reka hljóðvarp og sjónvarp, en hvorki að halda úti blöðum, tímaritum, netmiðlum eða starfsemi af öðru tagi. Þá gera útvarpslög ekki ráð fyrir að stofnunin afli tekna með sölu auglýsinga á netinu. En um leið og þetta er viðurkennt verður að segjast að með þessu er Ríkisútvarpinu sniðinn þrengri stakkur en eðlilegt er um fjölmiðil. Tækninni fleygir fram og óskir og kröfur neytenda breytast ört. Fjölmiðlar verða að geta lagað sig að nýrri tækni og breyttum tíðaranda ef þeir eiga ekki að daga uppi. Netið er að verða mikilvægasti vettvangur fjölmiðlunar nútímans og miðlar sem ekki taka tillit til þeirrar staðreyndar munu eiga erfitt uppdráttar. Málið er þó ekki svo einfalt að nú þurfi einfaldlega að breyta lítillega orðalagi útvarpslaga og leyfa stofnuninni hömlulausa starfrækslu netmiðils. Ágreiningurinn um netmiðilinn ruv.is er aðeins ein birtingarmynd þess ósættis og skoðanamunar sem ríkir í þjóðfélaginu og á vettvangi fjölmiðlanna sérstaklega um hlutverk og fjármögnun Ríkisútvarpsins. Þau mál hafa verið í brennidepli um nokkurt skeið og mögnuðust í tengslum við hin ólánlegu fjölmiðlalög ríkisstjórnarinnar. Væri Ríkisútvarpið ekki starfandi í dag er óhugsandi að nokkrum dytti í hug að vilja stofna það, a.m.k. ekki í núverandi mynd. En hefðin og sagan, sem um margt er glæsileg, hefur skap- að stofnuninni svo öflugan stuðning meðal þjóðarinnar að ekki er í alvöru rætt um að leggja hana niður, þótt það væri helst í anda nú- tímasjónarmiða um frjálsa fjölmiðlun og mörk ríkisafskipta og einkarekstrar. Þess vegna er umræðan bundin við að finna leiðir til að láta Ríkisútvarpið starfa og njóta sín innan um sjálfstæða fjöl- miðla einkaaðila – án þess að ríkisreksturinn skekki samkeppnina á markaðnum og geri öðrum miðlum lífið erfitt. Niðurstaða umboðsmanns er árétting um nauðsyn þess að taka útvarpslög í heild til endurskoðunar og marka framtíðar- stefnu. Það yrði Þorgerði Katrínu Gunnarsdóttur menntamála- ráðherra til mikils álitsauka ef henni tækist að koma þessu þjóðþrifamáli í þann farveg sem víðtæk sátt gæti skapast um. Það þarf að skapa frið um Ríkisútvarpið en slíkur friður getur ekki orðið meðan samkeppnisaðilar telja að lögbundin for- réttindi stofnunarinnar komi í veg fyrir að þeir vaxi og dafni með eðlilegum hætti. ■ 11. júní 2004 FÖSTUDAGUR SJÓNARMIÐ GUÐMUNDUR MAGNÚSSON Álitsgerð umboðsmanns Aþingis um fréttavef Ríkis- útvarpsins er rökrétt frá lagasjónarmiði en óviðunandi fyrir fjölmiðil sem starfar í samkeppnisumhverfi Hraða þarf endur- skoðun útvarpslaga Þátttökulágmark í þingkosningum? ORÐRÉTT Vanhugsaðar tarkmarkanir? Öll skilyrði sem sett eru á atkvæðagreiðsluna minnka sjálf- krafa líkur á samþykkt laganna. Það skyldi nú ekki vera að ein- hverjir þeirra sem vilja setja slík skilyrði hafi alls ekki hugsað út í þetta? Reynir Axelsson, stærðfræðikennari við Háskóla Íslands. Morgunblaðið 10. júní. Á brosvaktinni Eftirtektarverðari var hins vegar svipurinn á Halldóri [Ásgríms- syni í sjónvarpsviðtali á þriðju- dagskvöld]. Því hann var skæl- brosandi allan tímann, nánast skellihlæjandi reyndar. Og Hall- dór hefur aldrei verið kunnur að því að vera maður brosmildur. Illugi Jökulsson ritstjóri. DV 10. júní Er hann ekki í framboði? Nei, ég fylgist ekkert með forseta- frambjóðendunum, en þeim mun meira með forsetanum sjálfum. Eiríkur Guðmundsson bókmennta- fræðingur. Spurningin er þá hvort val kjósenda standi á milli Ástþórs og Baldurs. DV 10. júní. Meirihluti – og einum betur Það má ekki fara milli mála að það er öruggur meirihluti þjóðar- innar, sem hefur lögmæta sam- þykkt Alþingis að engu. Það verður aðeins gert með þeim hætti að meirihluti atkvæðis- bærra manna ónýti lögin. Að óháð kjörsókn þurfi helmingur manna á kjörskrá og einum betur að ógilda þau. Andrés Magnússon blaðamaður setur frekari skilyrði fyrir því að taka mark á þjóðaratkvæðagreiðslu um fjölmiðlalögin. Morgunblaðið 10. júní FRÁ DEGI TIL DAGS Niðurstaða umboðsmanns er árétting um nauðsyn þess að taka útvarpslög í heild til endurskoðunar og marka framtíðarstefnu. Það yrði Þorgerði Katrínu Gunn- arsdóttur menntamálaráðherra til mikils álitsauka ef henni tækist að koma þessu þjóðþrifamáli í þann farveg sem víðtæk sátt gæti skapast um. ,, ÚTSALA ÚTSALA Síðumúla 13, sími 568 2870, 108 Reykjavík. Opið frá kl.10.00-18.00 Og margt margt fleira Dæmi um verð: Áður: Nú: Peysa m/gatamynstri 5.200 2.900 Dömupeysa 6.400 2.900 Tunika 3.500 2.100 Kreptoppur 2.900 1.800 Skyrta m/bróderíi 5.300 2.200 Hettupeysa 4.900 1.900 Satínkjóll 7.900 3.200 Sítt pils 4.900 1.900 Dömujakki 5.900 2.900 Íþróttagalli 8.900 3.600 Hörbuxur 4.900 2.900 Gallabuxur 4.900 2.900 Dömuskór 5.300 2.500 HEFST Í DAG 40—60% afsláttur ÚTGÁFUFÉLAG: Frétt ehf. RITSTJÓRI: Gunnar Smári Egilsson FRÉTTASTJÓRI: Sigurjón M. Egilsson RITSTJÓRNARFULLTRÚAR: Steinunn Stefánsdóttir og Jón Kaldal AUGLÝSINGASTJÓRI: Þórmundur Bergsson RITSTJÓRN, AUGLÝSINGAR OG DREIFING: Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík AÐALSÍMI: 550 5000 SÍMBRÉF Á FRÉTTADEILD: 515 75 06 NETFÖNG: ritstjorn@frettabladid.is og auglysingar@frettabladid.is SETNING OG UMBROT: Frétt ehf. PRENTVINNSLA: Ísafoldarprentsmiðja ehf. Fréttablaðinu er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fyrirtæki geta fengið blaðið gegn greiðslu sendingarkostnaðar, 1.100 krónur á mánuði. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 degitildags@frettabladid.is Í DAG UMRÆÐAN UM ÞJÓÐARATKVÆÐI BIRGIR GUÐMUNDSSON Hví skyldi það skipta meira máli hvort kjósandi sitji heima eða í sumarbústað eða hvar sem er og sjái ekki ástæðu til að fara á kjörstað þegar um þjóðaratkvæðagreiðslu er að ræða heldur en þegar um þingkosningu (eða for- setakosningu) er að ræða? ,,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.