Fréttablaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 30

Fréttablaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 30
„Við verðum með um 200 barna- bókatitla, flesta á verðbilinu 390- 990 krónur sem að jafnaði er 50- 75% afsláttur frá upprunalegu verði. Það verður því hægt að gera mjög hagstæð barnabóka- kaup og fá mikið fyrir peninginn hér um helgina,“ segir Gunnar Jónsson hjá Bókafólkinu sem verður með sérstakan barnabóka- markað í tilefni Krakkafjörs í Perlunni um helgina. „Við kappkostum að bjóða gott úr- val af vönduðum bókum fyrir alla aldurshópa, allt frá harðspjalda- bókum fyrir þau allra yngstu og upp í unglingabækur. Margir for- eldrar hafa notað tækifærið á barnabókamörkuðum okkar til að tryggja sér lesefni fyrir allt árið eða eiga á lager hentugar bækur til að lauma í afmælispakkana. Hjá okkur er ekki óalgengt að fólk fari út með 8-10 vandaðar barna- bækur á innan við 5.000 krónur.“ Aðspurður um það hvort lestur barna sé á undanhaldi segir Gunn- ar að það sé ekki hægt að segja að svo sé þar sem bóksala barnabóka hefur vaxið jafnt og þétt frá ári til árs. „Því er hins vegar ekki að neita að samkeppnin um frítíma barnanna er orðinn mun meiri en hún var og því aukin hætta á því að þau fari á mis við þann mikla þroska og ánægju sem hlýst af lestri góðra bóka. Ég vona að sem flestir foreldrar átti sig á mikil- vægi þess fyrir börnin að þau séu hvött til að lesa sér til skemmtun- ar og ánægju. Þó svo að sjón- varpsþættir, tölvuleikir og mynd- bandsspólur séu ágætis afþrey- ing, þá er í raun ekkert sem kem- ur í staðinn fyrir bóklestur. Rann- sóknir hafa ítrekað sýnt fram á að lestur og gott aðgengi að bókum á fyrstu árum ævinnar hefur mjög jákvæð áhrif á málþroska, sköp- unargáfu og ímyndunarafl barn- anna sem er ómetanlegt veganesti þegar skólagangan hefst.“ Að sögn Gunnars er mikilvægt fyrir foreldra að hjálpa börnunum að koma lestri upp í daglega venju og gefa þeim þannig reglulega tækifæri til að kynnast ímyndun- arheim bókarinnar. „Góð regla sem margir foreldrar hafa tileink- að sér er að lesa með börnunum á hverju kvöldi fyrir svefninn. Þó að um stuttan tíma sé að ræða á hverjum degi þá gagnast þeim fátt betur en að lesa eða heyra góða sögu áður en haldið er inn í draumalandið.“ ■ 11. júní 2004 FÖSTUDAGUR 20% afsláttur af sumar- fötum til 17. júní! Barnabókamarkaður: Tækifæri til að kynnast heimi bókarinnar Bókafólkið verður með barnabókamarkað í tilefni Krakkafjörs í Perlunni um helgina. Enor ehf. hefur nýlega hafið inn- flutning og dreifingu á Maxamec- byggingarsettum fyrir börn. Sett- in eru úr krossviði og þeim fylgja sérstök tengistykki til að setja þau saman. Leikfangið er upp- runnið í Svíþjóð og hefur verið þróað mikið í samstarfi við leik- skóla. „Leiðbeinendur á leikskólum eru mjög hrifnir af þessu og sjá mikla möguleika,“ segir Eirný Ás- geirsdóttir hjá Enor, en hún hefur farið inn á leikskóla hérlendis til að kynna Maxamec. „Maðurinn sem bjó þetta til var leikfangahönnuður og kom alltaf heim með nýjustu leikföngin fyrir strákinn sinn. Sonur hans hins vegar sinnti hverju leikfangi í skamman tíma en hætti svo að sýna því áhuga. Hann vildi þá búa til leikfang sem myndi endast lengi og vera uppspretta sköpun- ar og leikja,“ segir Eirný og að ein ástæða þess að hún valdi þetta leikfang til innflutnings hafi verið hugsunin á bak við það. „Svo mikið af leikjum og leik- föngum í dag snúast um ofbeldi en Maxamec snýst um að fá börnin til að skapa og búa til. Tilgangur- inn með leikfanginu er að fá börn frá ofbeldi yfir í sköpun,“ segir Eirný. Fyrirtækið sem framleiðir Maxamec er að mestu í eigu styrktarsjóðs sem hefur það að markmiði að styrkja þurfandi börn, menntun barna og ung- menna og starfsemi gegn spill- ingu. Leikfangið hefur því marg- þættan tilgang sem gengur út á velferð barna. Á sýningunni Krakkafjör ætlar Eirný að bjóða börnum og full- orðnum að leika sér með Maxa- mec-byggingarsettin. ■ Skapandi leikfang: Frá ofbeldi yfir í sköpun Þórdís Eirný og Guðrún Lovísa byggja með Maxamec.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.