Fréttablaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 18
11. júní 2004 FÖSTUDAGUR18
ÆVINTÝRI GRIMS
KATRÍN JAKOBSDÓTTIR
VARAFORMAÐUR VINSTRI GRÆNNA
FRIÐBJÖRN ORRI KETILSSON
FRAMKVÆMDASTJÓRI FRJÁLSHYGGJUFÉLAGSINS
SKIPTAR SKOÐANIR Á að leyfa vændi?
ÞEGAR ÞVÍ ER HALDIÐ FRAM að vændi sé góð
og gild atvinnugrein og engin ástæða sé til að
banna það, gleymist oft að horfa á heildarmynd-
ina. Í þessu máli þarf að kafa dýpra og ekki næg-
ir að spyrja einfaldlega hvort fólk eigi að hafa
leyfi til að selja líkama sinn eins og aðrar eignir
sínar.
ÞAÐ MÁ TIL DÆMIS EKKI gleyma því að vændi er
sjaldnast val. Fá ungmenni hugsa: „Jæja, hvort á
ég nú að verða pípari, íslenskufræðingur eða
hóra?“ og ákveða svo að það sé víst mesti pen-
ingurinn í vændinu. Þeir sem stunda vændi hafa
yfirleitt leiðst út í það úr sárri neyð og líður
sjaldnast vel í starfi. Það er ekki vel borgað og
flestum þeim sem selja sig, hvort sem það eru
karlmenn eða konur, líður afar illa. Erfitt er því að
tala um að vændi sé réttur einstaklingsins til að
„fá að selja sig“ þar sem þetta er yfirleitt örþrifa-
ráð sem enginn grípur til að gamni sínu.
SEM STENDUR ER ÓLÖGLEGT að selja sig en
kaupin á þjónustunni eru hins vegar ekki ólögleg.
Nú liggur fyrir frumvarp um að kaup á vændi
verði gerð ólögleg sem væri framþróun frá núver-
andi lagaumhverfi þar sem kaupandinn ber enga
ábyrgð.
RANGT ER AÐ ÞVINGA frjálsa einstaklinga til að
gera eitthvað sem þeir ekki samþykkja. Rangt er að
banna öðrum að velja ef val þeirra skaðar ekki aðra.
Frelsið er hornsteinn þess að allir fái notið hæfileika
sinna og geti gert það sem þeir sjálfir kjósa til að
tryggja velferð sína í framtíðinni. Það er ekki hlut-
verk ríkisvaldsins að setja siðferðisreglur og ákveða
fyrir fólk hvað sé gáfulegt og hvað ekki. Hlutverk rík-
isvaldsins er að vernda rétt einstaklinganna til lífs,
frelsis og eigna gegn ágangi annarra.
AUGLJÓSLEGA ER RANGT er að neyða fólk til kyn-
lífs gegn greiðslu á sama hátt og rangt er að neyða
fólk til búðarstarfa gegn greiðslu. Það er ekki
verknaðurinn sjálfur sem er slæmur heldur þving-
unin. Það er hún sem berjast þarf gegn. Kynlíf
gegn greiðslu þar sem allir aðilar máls eru sam-
þykkir skaðar engan og á því ekki að vera bönnuð.
Þar er um frjálst val einstaklinga að ræða, frjálst val
sem okkur ber að virða óháð ríkjandi gildismati
meirihlutans á hverjum tíma eða tísku.
BESTA LEIÐIN til að sporna við nauðung á tilteknu
sviði er að viðurkenna starfsemina og hleypa
henni upp á yfirborðið svo að ofbeldi sé ekki lausn
samningsbrota heldur eðlileg málsmeðferð fyrir
dómsstólum. Ef kynlíf gegn greiðslu væri löglegt
drægi einnig mjög úr svonefndu mannsali þar sem
fyrirtæki í löglegum rekstri gætu ekki beitt starfs-
menn sína ofbeldi og þvingunum þar sem slíkt er
ólöglegt. Samkeppni um vinnuaflið mun svo bæta
hag þeirra sem í greininni starfa rétt eins og á öðr-
um sviðum atvinnulífsins.
Frelsið er lausnin.
Við bjóðum þrjá
frábæra tilboðspakka
16
44
/
TA
K
T
ÍK
2
.6
’0
4
www.bilanaust.is
Borgartún 26 • Sími: 535 9000
ÞVOTTADAGAR
Hann spáir sól
allir út að þvo bílinn
í góða veðrinu
2.4973.885
4.9891
Rétt verð 7.224,-
2 3
Rétt verð 3.479,-Rétt verð 5.406,-
TILBOÐ
TILBO
ÐTILBOÐ
tilboðin gilda á meðan birgðir endast
Þjóðhagsstofnun
Stjórnarandstaðan hefur býsna oft haldið
því fram að Þjóðhagsstofnun hafi verið
lögð niður vegna þess að stofnunin hafi
valið að „standa ekki og sitja eins og vald-
stjórnin vill“ eins og Jóhanna Sigurðardótt-
ir, þingmaður Samfylkingarinnar, kallaði
það í grein í Morgunblaðinu í gær. Þetta
hljómar náttúrlega nógu svakalega, „vald-
stjórnin“ er svo voðaleg að hún tekur sig til
fyrirvaralaust og leggur niður stofnanir sem
henni eru ekki þóknanlegar í einu og öllu.
Þetta Borgarness-sjónarmið á sér þó litla
stoð í raunveruleikanum og ef Jóhanna og
aðrir Samfylkingarmenn mættu vera að því
að kynna sér málið er rétt hugsanlegt að
þeim liði illa að halda fram slíkum stað-
hæfingum.
Vefþjóðviljinn á andriki.is
Tóbaksfasistar
Ég trúi tóbaksfasistunum alveg til að vilja
banna mér að reykja heima við, en ég held
að sem betur fer sé meirihluti íslensku
þjóðarinnar ósammála þeim í því efni. Ís-
lendingar bera ennþá nógu mikla virðingu
fyrir friðhelgi heimilisins til að vilja ekki
sætta sig við að afskiptasöm hönd ríkisins
(hvort sem um er að ræða þá hægri eða
vinstri) seilist mikið inn fyrir aðaldyrnar.
Bjarni Ólafsson á deiglan.com
Einstakur forseti
Það tekur lengri tíma en 15 ár fyrir mann-
kynssöguna að fella dóm yfir verkum
Bandaríkjaforseta. Dómur samtímans er sá
að [Ronald Reagan] hafi verið einstakur fyr-
ir þær sakir hversu vel hann náði til fólksins
og höfðaði ávallt til atorku og dugnaðar í
hverjum og einum. Hann færði alla stjórn-
málaumræðu í Bandaríkjunum til hægri og
fékk jafnvel hörðustu demókrata til að sam-
sama sig markmiðum hans um minnkuð
ríkisumsvif í efnahags- og velferðarmálum.
Markmið sem hafa síðan verið leiðarhnoða
bandarískra stjórnmálamanna í báðum
flokkum.
Hulda Þórisdóttir á tikin.is
Þjóðaratkvæðagreiðslan
Það hlýtur að teljast óskiljanlegt hvernig
núverandi ríkisstjórn lætur sér vaxa í augum
framkvæmd á þjóðaratkvæðagreiðslu. Fram
undir miðbik 20. aldarinnar hafði mönnum
tekist klakklaust að halda fimm þjóðar-
atkvæðagreiðslur. Oft var aðeins lögð til
grundvallar einföld þingsályktunartillaga.
Auk þessa hafa Íslendingar gengið í gegn-
um fjölmargar kosningar til þings, sveitar-
stjórna og forseta.
Huginn Freyr Þorsteinsson á murinn.is
Formaður SUF
Formaður SUF á hins vegar ekki að vera
uppburðarlítill og ganga með veggjum,
gleypa allt hrátt og kinka kolli. Formaður
SUF á að hafa gagnrýna hugsun, benda for-
ystu flokksins á það ef hann sér einhverja
vankanta á málum. Til þess er seturéttur
hans á þingflokksfundum. Til þess er setu-
réttur hans í landstjórn flokksins. Hann á
jafnframt að vera aflvaki skoðanaskipta
meðal félagsmanna, koma með uppá-
stungur og ábendingar á spjallrásum, skipt-
ast á skoðunum við hinn almenn félags-
mann.
Jón Einarsson á blog.central.is/framsokn
AF NETINU