Fréttablaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 31
7FÖSTUDAGUR 11. júní 2004
Trjálfur er skemmtilegur skógarálfur
sem þekkir öll ævintýrin í skóginum.
Hann er mikill fjörkálfur og hefur upp-
lifað mikið af ævintýrum. Hann hefur
gaman af að segja frá þeim og gerir
það dálítið öðruvísi en krakkarnir
þekkja þar sem hann setur sig í öll
hlutverkin og leikur þau af hjartans
list. Trjálfur býr í risastóru tré í Fjöl-
skyldu- og húsdýragarðinum sem er
stærsta tréð í garðinum, en honum er
mjög annt um trén og læknar þau ef
þau eru veik. Þeir sem trúa á álfa geta
séð honum bregða fyrir í trénu og eins
og flestir álfar hefur hann þann eigin-
leika að vera misstór því hann breytir
um stærð eftir því við hvern hann tal-
ar. Trjálfur ætlar að hitta krakkana á
Krakkafjöri um helgina og segja þeim
ævintýri.
[ SKÓGARÁLFURINN ]
Þekkir öll
ævintýrin
Nýir eigendur, þær Margrét Orms-
dóttir og Halldóra G. Víglundsdótt-
ir, tóku nýverið við versluninni
Róbert bangsa í Kópavogi. Við eig-
endaskiptin var verslunin flutt í
stærra og bjartara húsnæði að
Hlíðarsmára 12 í Kópavoginum.
„Það hefur orðið áherslubreyt-
ing hjá okkur eftir eigendaskiptin.
Áður var þetta rekið einungis sem
barnafataverslun en nú bjóðum
við einnig upp á vörur fyrir
unglinga og mömmur,“ segja þær
Margrét og Halldóra.
„Við leggjum mikið upp úr því
að hafa verslunina hlýlega og
glæsilega,“ segja þær og vöruúr-
valið hjá þeim er mikið, frá fram-
leiðendum eins og Diesel, CARS
jeans, Lego og Ticket to Heaven.
„Við ætlum okkur að bæta enn
frekar við í haust og bætum þá við
okkur fatnaði frá hinum frábæra
framleiðanda Ragazzi.“
Á Krakkafjöri ætla þær sér að
vera með mikið af fatnaði og þar
mest af sumarfatnaði. „Við verð-
um með fatnað á tilboðsverði og er
tilvalið fyrir fólk að nota tækifær-
ið og finna föt fyrir 17. júní.“ ■
Fataverslun:
17. júní-dressin á tilboðsverði
Margrét og Halldóra eru nýir eigendur
Róberts bangsa í Kópavoginum.