Fréttablaðið - 11.06.2004, Síða 6
6 11. júní 2004 FÖSTUDAGUR
Ráðgjafarstofa um fjármál heimilanna aðstoðar:
Skuldum vafin
ungmenni
FJÁRMÁL Þess eru dæmi að ung-
menni undir tvítugu skuldi vel á
þriðju milljón króna og að sama
upphæð sé í vanskilum, sam-
kvæmt upplýsingum frá Ráðgjaf-
arstofu um fjármál heimilanna.
Fólki í þessum aldurshópi sem
þarf að leita aðstoðar hjá ráðgjaf-
arstofunni hefur farið fjölgandi á
milli áranna 2002 og 2003, sam-
kvæmt ársskýrslu stofunnar. Árið
2002 ar það 0,89% af heildarfjölda
umsækjenda, en 1,12% árið 2003.
Meðaltalsskuldir þessa aldurs-
hóps voru ríflega 1 milljón króna
og meðaltalsvanskil 498 þúsund
krónur. Mestu skuldir einstak-
lings voru 2,5 milljónir og mestu
vanskil einstaklings voru 2.4
milljónir.
Algengustu skuldirnar voru
bankalán, en meðaltal þeirra er
985.978 kr. Greiðslukortaskuldir
námu að meðaltali rúmlega 72.000
kr. Þá voru 30% af þessum hópi
með bílalán og hjá þeim var
meðaltalið 740.268 kr. Bílaláns-
fólkið var einnig með bankalán til
viðbótar.
Um 60% voru í leiguhúsnæði,
en um 40% í foreldrahúsum.
Atvinnulaus voru 60%.
Hópurinn skiptist þannig að
75% voru konur og 25% karlar.
23% af konunum voru einstæðar
mæður. ■
Fjármálavandræði
ungs fólks aukast
Starfsfólk Ráðgjafarstofu um fjármál heimilanna sér oft mikla fjölskylduharm-
leiki þar sem foreldrar eða aðrir ættingjar hafa gengið í fjárhagslegar ábyrgðir
fyrir ungt fólk. Þessum einstaklingum hefur farið fjölgandi á milli ára.
FJÁRMÁL „Því miður sjáum við oft
mikla fjölskylduharmleiki vegna
ábyrgðarmennsku,“ sagði Ásta S.
Helgadóttir, forstöðumaður Ráð-
gjafarstofu um fjármál heimil-
anna, um ábyrgðir foreldra eða
annarra ættingja á lántökum ungs
fólks.
Fjölgun hefur orðið á milli ára
á fólki innan tvítugs sem leitað
hefur til ráðgjafarstofunnar
vegna þess að það hefur steypt
sér í fjárhagsvanda, sem það ræð-
ur ekki við án aðstoðar.
„Oftar en ekki er ungt fólk með
ábyrgðarmenn, foreldra, ættingja
eða aðra,“ sagði Ásta. Hún sagði
það þó lofsvert að
þróunin hefði
verið sú, bæði hjá
bönkum og spari-
sjóðum, að nú
væri meira farið
að athuga við-
skiptasögu við-
komandi. Þá
hefðu bankar, við-
skiptaráðuneytið
og Neytendasamtökin skrifað
undir samkomulag varðandi
ábyrgðarmennsku árið 2001, þar
sem bönkunum væri gert skylt að
upplýsa ábyrgðarmenn um það
sem þeir væru að gangast undir.
Ef skuldin væri yfir milljón væri
það skylda að aðalskuldari færi í
greiðslumat.
„Aðalmálið er það, að aðgang-
urinn að fjármagni er auðveld-
ari,“ sagði Ásta. „Eftir því sem
frelsið eykst krefst það meiri var-
kárni af einstaklingunum. Auglýs-
ingamennskan af öllu tagi er orð-
in mjög mikil meðal ungs fólks, en
mér finnst jafnframt þurfa að
horfa til ábyrgðar foreldranna.
Þeir þurfa líka að uppfræða börn-
in um þessi mál, því þarna spila
svo margir þættir inn í.
Við lifum í miklu neyslusam-
félagi,“ bætti Ásta við. „Að sjálf-
sögðu erum við fyrirmyndir barn-
anna okkar og þurfum að haga
okkur samkvæmt því.“
Grunnskólarnir hafa nú tekið
fjármálafræðslu inn í lífsleikni og
sagði Ásta það af mjög af hinu
góða. Hún kvaðst sjálf vera með
fræðslu í Foreldrahúsi fyrir 15–18
ára unglinga. Þar fyndi hún best
hversu brýn þörf væri fyrir slíkt
efni.
Þess skal getið vegna missagnar
í Fréttablaðinu í gær, að símatímar
ráðgjafarstofunnar eru alla daga
kl. 9–12. jss@frettabladid.is
Tillögur Hafró:
Meiri áhrif á
næsta ári
SJÁVARÚTVEGUR Tillögur Hafró hafa
lítil áhrif á útflutningsframleiðslu
sjávarafurða í ár, en þó má búast
við að hún dragist saman um 0,25
prósent, samkvæmt því sem kem-
ur fram á vefriti fjármálaráðu-
neytisins. Hins vegar er gert ráð
fyrir að áhrifin verði meiri á
næsta ári miðað við áætlanir. Gert
var ráðið fyrir að útflutnings-
framleiðsla myndi aukast um þrjú
prósent milli ára en ef tillögur
Hafró ganga eftir er aukningin
ekki nema tvö prósent. Í tillögu
Hafró kemur fram að hlýsjávar-
skeið sé farið að hafa merkjanleg
áhrif á fiskistofna við Ísland. ■
Héraðsdómur Reykjavíkur:
Frétt ehf. gert
að greiða
launakröfu
DÓMSMÁL Frétt ehf. sem er núver-
andi eigandi Fréttablaðsins var
dæmt, í Héraðsdómi Reykjavíkur, til
að greiða hluta af launakröfu blaða-
manns sem starfaði hjá fyrrverandi
eiganda blaðsins, Fréttablaðið ehf.
Blaðamannafélag Íslands höfðaði
mál á hendur Frétt ehf. vegna þrett-
án blaðamanna sem störfuðu áfram á
blaðinu eftir að eigendaskipti urðu
árið 2002. Ábyrgðasjóður launa
hafnaði að greiða launakröfurnar.
Blaðamannafélagið taldi að Frétt
ehf. ætti að greiða launakröfurnar
þar sem aðilaskipti hefðu orðið á
blaðinu og Frétt ehf. bæri því ábyrgð
á að þeir blaðamenn sem héldu
áfram störfum hjá blaðinu fengju
greiddar launakröfur. Frétt ehf.
krafðist hins vegar sýknu þar sem
ekki hefðu orðið aðilaskipti í laga-
legum skilningi heldur hefðu aðeins
tiltekin verðmæti verið keypt. Fyrir-
tækin væru ólík þrátt fyrir að grunn-
einingar væru svipaðar og áður.
Krafan hljóðaði upp á rúma millj-
ón króna en dómurinn féllst aðeins á
hluta kröfunnar eða rúmlega 400
þúsund krónur. ■
,,Eftir því
sem frelsið
eykst krefst
það meiri
varkárni af
einstakling-
unum.
GENGI GJALDMIÐLA
Bandaríkjadalur 72,20 0,89%
Sterlingspund 132,05 0,55%
Dönsk króna 11,71 -0,07%
Evra 87,11 -0,06%
Gengisvísitala krónu 122,38 +0,17%
KAUPHÖLL ÍSLANDS
Fjöldi viðskipta 195
Velta 834,7 milljónir
ICEX-15 2.711,20 0,72%
Mestu viðskiptin
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 245.625
Actavis Group hf. 195.781
Bakkavör Group hf. 124.322
Mesta hækkun
Marel hf. 2,33%
Kaupþing Búnaðarbanki hf. 2,18%
Össur hf. 1,72%
Mesta lækkun
Flugleiðir hf. -1,88%
Kaldbakur fjárfestingafélag hf. -1,52%
Íslandsbanki hf. -0,60%
Erlendar vísitölur
DJ * 10.389,74 0,2%
Nasdaq * 1.978,62 0,9%
FTSE 4.454,4 0,4%
DAX 3.961,93 1,1%
NK50 1.420,0 0,3%
S&P * 1.131,3 -0,8%
* Bandarískar vísitölur kl. 17.
VEISTU SVARIÐ?
1Íslenskur togari hefur legið á hafsbotniundan Noregsströndum í tvö ár. Hvað
heitir togarinn?
2Umboðsmaður Alþingis telur RÚVskorta lagaheimildir til að birta aug-
lýsingar á vefsíðu sinni. Hver er umboðs-
maður Alþingis?
3Hver afhenti útvarpsstjóra tómatsósu-flösku til að lýsa óánægju sinni með
litla umfjöllun í fjölmiðlum?
Svörin eru á bls. 34
Þú færð aðgang að
þjóðskrá
á
www.lt.is
öruggar upplýsingar fyrir viðskiptalífið
Norræna ráðherranefndin:
Samnorræn
kvikmynda-
verðlaun veitt
MENNING Menntamálaráðherrar
allra Norðurlandanna hafa ákveðið
að stofna til norrænna kvikmynda-
verðlauna sem afhendast á í fyrsta
sinn á næsta ári. Verðlaunin munu
nefnast kvikmyndaverðlaun Norð-
urlandaráðs og er vinningsupphæð-
in rúmlega fjórar milljónir króna.
Kvikmyndirnar skulu vera á nor-
rænu máli og verður Álandseyjum,
Grænlandi og Færeyjum einnig
heimilt að taka þátt í keppninni. ■
KB banki:
Hækkar vexti
EFNAHAGSMÁL KB banki hefur
ákveðið að hækka vexti óverð-
tryggðra lána frá og með degin-
um í dag. Hækkunin kemur í
kjölfar tilkynninga Seðlabank-
ans um hækkun stýrivaxta.
Vextir óverðtryggðra útlána
hækka almennt um 0,45 pró-
sent; þannig hækka kjörvextir
óverðtryggðra skuldabréfa úr
7,95 prósentum í 8,40 prósent.
Vextir óverðtryggðra innlána
hækka um allt að 0,30 prósent
eftir innlánsformum. Bankinn
breytir ekki að sinni vöxtum
verðtryggðra inn- og útlána,
þrátt fyrir að ávöxtunarkrafa
húsbréfa hafi hækkað mikið ný-
lega. ■
MILLJÓNIR
Þess eru dæmi að ungt fólk undir tvítugu
sé með vel á þriðju milljón króna
í vanskilum.
SKULDIR
Greiðslukortin vega þungt þegar ungt fólk steypir sér í skuldir.