Fréttablaðið - 11.06.2004, Page 8

Fréttablaðið - 11.06.2004, Page 8
8 11. júní 2004 FÖSTUDAGUR Yfir 10% hækkun á tveim árum Um mánaðamótin hækkar gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur um 2,6 prósent. Guðlaugur Þór Þórðarson, stjórnarmaður í Orkuveitunni, gagnrýnir hækkunina og tengir hana fjárfestingum á fjarskiptasviði. NEYTENDUR Eftir fyrirhugaða 2,6 prósenta hækkun á orkuverði næstu mánaðamót hefur Orku- veita Reykjavíkur á tveimur árum hækkað raforkuverð um sem nemur 10 prósentum og verð á heitu vatni sem nemur rúmum 13 prósentum, samkvæmt upplýs- ingum Hagstofu Íslands. Á 10 mánuðum, eða frá því að veður- blíðuhækkun varð í september sl., hefur verð á heitu vatni hækkað um tæp 8,6 prósent og rafmagni um 3,8 prósent. Guðmundur Þór- oddsson, forstjóri Orkuveitunnar, bendir á að hækkanir á rafmagni séu langt undir verðbólguþróun. „Um heita vatnið gilda svo sér- stakar aðstæður. Ef bara er horft til rúmmetraverðs er 8 prósenta hækkun, en sé hins vegar horft til húshitunarkostnaðar er 8 pró- senta lækkun,“ segir hann og bendir á að á föstu verðlagi sé verð á heitu vatni lægra núna heldur en var árið 1994. Guðlaugur Þór Þórðarson, full- trúi Sjálfstæðisflokksins í stjórn Orkuveitunnar, segir hækkanir fyrirtækisins nánast orðnar að föstum lið og bendir á að fyrir- tækið hafi eitt orkufyrirtækja hækkað verð vegna veðurblíðu. „Núna er vísað í hækkun á bygg- ingarvísitölu en það hefur ekki verið gert til þessa. Það sem er auðvitað að gerast er að glanna- legar fjárfestingar á fjarskipta- sviði eru farnar að koma niður á fyrirtækinu með beinum hætti þannig að viðskiptavinirnir finna fyrir,“ segir Guðlaugur Þór. Alfreð Þorsteinsson, stjórnar- formaður Orkuveitunnar, telur fráleitt að tengja hækkunina nú fjárfestingum fyrirtækisins, hvort heldur sem er á fjarskipta- sviði eða í virkjunum. „Þessi þvæla í Guðlaugi Þór er engu lík og ótrúlegt hvað hægt er að eltast við þetta. Honum hefur enda ekki tekist að koma hér neinu höggi á starfsemi fyrirtækisins, þrátt fyrir að hafa reynt að leika þennan leik í um fjögur ár og það í gegnum kosningar.“ Alfreð segir að í gegnum tíðina hafi verið miðað við ýmsar vísitölur við reglubundnar hækkanir Orkuveit- unnar. „Nú er bundið í lög að mið- að sé við byggingarvísitölu, a.m.k. varðandi raforkuna,“ segir hann, og telur orkugjöld hér almennt svo lág að fyrirtæki hafi ekki efni á að gefa eftir vísitölutengdar hækkanir. Alfreð segist búast við að önnur orkufyrirtæki, s.s. Landsvirkjun, RARIK og Hita- veita Suðurnesja eigi eftir að til- kynna um sambærilegar gjalds- skrárhækkanir í takt við vísitölu. olikr@frettabladid.is ■ LÖGREGLUFRÉTTIR – hefur þú séð DV í dag? Morfísþjófurinn skilur við félagið í milljónaskuld Kópavogur: Fuglar á ferð LÖGREGLA Fuglar eins og endur og gæsir eru núna og næstu vikur á vappi yfir Hafnarfjarðarveg og vill lögregla í Kópavogi minna fólk á að hafa varann á. Nokkur dæmi eru um að árekstrar hafi orðið vegna þessa en fuglarnir eru ýmist að koma sér í Kópavoginn eða Fossvoginn frá varpstöðum sínum. ■ SEXTÁN EKKI MEÐ BÍLBELTI Lög- reglan á Akureyri hefur verið með átak í umferðareftirliti í og við bæinn síðustu daga. Fimmtán ökumenn og einn farþegi voru teknir fyrir að vera ekki með bíl- belti á miðvikudag. Sex voru teknir fyrir hraðakstur norðan við Akureyri á milli klukkan sex og níu í fyrrakvöld. Þá eru enn einhverjir sem ekki hafa tekið nagladekkin undan bílum sínum. Heilbrigðisstofnun Siglufjarðar: Vaka semur KJARAMÁL Starfsmenn Heilbrigð- isstofnunarinnar á Siglufirði sem eru félagsmenn verkalýðsfélags- ins Vöku samþykktu stofnana- samning sjúkrahússins í gær í annarri tilraun, síðast sjúkra- húsa. Signý Jóhannesdóttir, for- maður Vöku, segir óvenjulega leið hafa verið farna við samn- ingsgerðina. „Við vildum ekki greiða atkvæði um aðalkjara- samninginn nema vera viss um að stofnanasamningurinn hefði verið samþykktur.“ Signý gerir ekki ráð fyrir öðru en hann verði samþykktur og það við fyrsta tækifæri. Alls voru 44 á kjörskrá og greiddu 38 atkvæði, eða 86,4%. Já, sögðu 89,5%, nei 7,9% og einn seðill var auður. ■ SVONA ERUM VIÐ HVAR SKAPAST MESTU GJALDEYRISTEKJURNAR? 2002 2003 Sjávarútvegur 41,6% 40% Stóriðja 14,1% 14,2% Ferðaþjónusta 13,1% 12% HÖFUÐSTÖÐVAR OR Með fyrirhugaðri hækkun á gjaldskrá Orkuveitu Reykjavíkur hefur rafmagnsverð hækkað um sem nemur 10 prósentum sl. tvö ár og verð á heitu vatni um 13 prósent. Forstjóri Orkuveitunnar segir raforkuverð vera langt undir verðbólguþróun og bendir á að á föstu verðlagi sé verð Orkuveitunnar á heitu vatni lægra nú en fyrir 10 árum síðan. ALFREÐ ÞORSTEINSSON Stjórnarformaður Orkuveitu Reykjavíkur segir fráleitt að tengja fyrirhugaða gjald- skrárhækkun fyrirtækisins fjárfestingum, hvort heldur sem er í virkjunum eða fjarskiptarekstri. GUÐLAUGUR ÞÓR ÞÓRÐARSON Guðlaugur Þór segir hækkanir Orkuveit- unnar nánast orðnar að föstum lið og telur glannalegar fjárfestingar í óskyldum rekstri koma niður á Orkuveitunni þannig að viðskiptavinirnir finni fyrir. LÖGREGLUMÁL Rannsókn lögreglunn- ar á sænskum ferðalangi, sem tek- inn var með tvær milljónir króna í reiðufé 21. maí síðastliðinn í Leifs- stöð var á lokastigi í gær. Einn maður var yfirheyrður hjá lögregl- unni í gærdag, sem vitni, en hann var ekki talinn hafa stöðu grunaðs manns. Samkvæmt upplýsingum Fréttablaðsins var fyrirhugað að leggja fram í héraðsdómi ákæru á Svíann í dag. Það var fyrir árvekni starfs- manna sýslumannsembættisins á Keflavíkurflugvelli sem maðurinn var handtekinn. Hann hafði sýnt mikil merki taugaveiklunar við innritun, samkvæmt upplýsingum blaðsins, og var svo orðinn all- ölvaður þegar hann hugðist ganga um borð í flugvélina sem var á leið til Bretlands. Starfsmenn öryggis- deildar sýslumannsembættisins stöðvuðu hann þá og við rannsókn fundust tvær milljónir króna í jakka- og buxnavösum hans, bæði í notuðum og nýjum þúsundkróna- seðlum. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 26. maí, en það var síðan framlengt til 11. júní. Maðurinn hafði dvalið hér á landi síðan 6. apríl. Hann hafði gist á ýmsum gistiheimilum, bæði í Reykjavík og Kópavogi. Þegar á dvölina leið leigði hann sér her- bergi, sem hann bjó í þar til hann hugðist yfirgefa landið. Hann er fæddur í Tyrklandi en er með sænskan ríkisborgararétt. ■ Lögreglurannsókn á lokastigi: Milljóna-Svíinn ákærður FRÁ LEIFSSTÖÐ Sænski ferðalangurinn var tekinn með tvær milljónir króna í reiðufé í Leifstöð í mánuði sem leið. Mývatnssveit: Fór ofan í hver LÖGREGLA Erlendur ferðamaður var fluttur á Fjórðungssjúkra- húsið á Akureyri eftir að hann hafði farið ofan í hver í Mývatns- sveit í fyrrakvöld. Lögreglunni á Húsavík barst til- kynning um að maðurinn hefði misst bíllykil ofan í hverinn. Þegar lögreglan koma á staðinn kom í ljós að maðurinn hafði farið ofan í hver- inn en ekki er ljóst hvernig það bar að. Hlúð var að manninum á Akur- eyri og búið um sár en hann reynd- ist ekki vera alvarlega slasaður. Hann var keyrður aftur í Mývatns- sveit síðar um nóttina og fékk í gær- morgun nýjan lykil að bílnum. ■

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.