Fréttablaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 33
17MIÐVIKUDAGUR 28. apríl 2004
HELLUR STEYPA RÖR MÚRVÖRUR EININGAR
Hellur
steinar
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
I Y
D
D
A
•
N
M
1
1
9
3
7
/
si
a.
is
Reykjavík: Malarhöf›a 10 • Hafnarfir›i: Hringhellu 2 • Selfossi: Hrísm‡ri 8
www.steypustodin.is
Hellur og steinar fást einnig í verslunum BYKO
Fáðu sendan nýjan bækling
okkar um hellur og steina
þér að kostnaðarlausu eða
kynntu þér úrvalið á
steypustodin.is
Söludeildin er opin alla virka
daga frá kl. 8-18 og 10-14
laugardaga.
Hjá Steypustöðinni færðu faglega ráðgjöf hjá landslagsarkitektunum
Birni Jóhannssyni, Einari Birgissyni eða Stanislas Bohic um allt sem lýtur
að því að skipuleggja nýjan garð eða betrumbæta þann gamla.
Pantaðu tíma í síma
og fáðu faglega ráðgjöf
um skipulag garðsins og
heimkeyrslunnar þér að
kostnaðarlausu.
Ráðgjöf landslagsarkitekta
540 6800
Ítalski gólflampinn Arco sem var
hannaður árið 1962 er orðinn
klassík í hönnunarsögunni.
Hönnunin og útfærslan hefur
staðist tímans tönn og í dag þykir
lampinn hið mesta stofustáss.
Það var ítalski arkitektinn
Achille Castiglioni sem hannaði
lampann ásamt bróður sínum Pier
Giacomo Castiglioni, undir væng
fyrirtækisins Flos sem framleiðir
lampann enn í dag.
Hugmyndina að lampanum
sóttu þeir bræður til götuljósa og
við gerð hans aðhyllast þeir Rea-
dy made listastefnuna sem snýst
um að gefa tilbúnum hlutum nýtt
hlutverk. Ljósið er samsett úr
löngu stálröri, stálkúpli og
massívum marmarasteini.
Flos framleiðslufyrirtækið
sérhæfir sig í að framleiða vel
hönnuð og oft tæknileg ljós eftir
þekkta hönnuði eins og Philippe
Starck, Jasper Morrison, Ezio
Didone og fleiri.
Hér í Reykjavík má fá lam-
pana frá Flos í Epal, Skeifunni. ■
Gólflampinn Arco:
Hugmyndin sótt
til götuljósa
Kísilhreinsiefni:
Undraefni
sem svínvirkar
Kísilhreinsiefni er súrt undra-
hreinsiefni sem fjarlægir kísil-
skán af flísum, postulíni og króm-
uðu stáli. Ekki má nota efnið á
plast og varast skal að nota það á
viðkvæma staði.
Efnið er borið á rakan flöt með
klút eða bursta og það síðan nudd-
að eða burstað vel. Síðan er efnið
fjarlægt af fletinum og skolað
vandlega. Efnið má ekki liggja
lengur en fimm til tíu mínútur.
Gæta þarf varúðar við notkun
efnisins þar sem það getur ert
húð og augu. Ef það kemst í snert-
ingu við augu er best að skola
vandlega með vatni og leita síðan
til læknis.
Kísilhreinsiefni hreinsar burt
ótrúlegustu bletti og er þarfaþing
á hvert heimili. ■
FB
M
YN
D
IR
G
VA
Margir hafa hug á að nota góða veðrið í
sumar til að mála húsin sín að utan.
Steinvari 2000 er vönduð lausn þótt
hún kosti örlítið meira en aðrar tegund-
ir því til lengri tíma litið skilar hún sér
vel til notenda. Málningin er einstak-
lega vatnsþétt, hefur frábært rakagegn-
umstreymi og hefur afburðagóða við-
loðun við steinsteypu. Steinvara má
nota við slæm veðurskilyrði og einnig
við lágt hitastig. Hann myndar einstaka
veðrunarkápu gegn vályndri íslenskri
veðráttu. Fyrir þá sem vilja vanda vel til
yfirborðsmeðhöndlunar á húsinu er
best að velja sama efnið aftur því
þannig nýtast eiginleikarnir að fullu.
[ MÁLNING ]
Málning
sem virkar
Oft getur góð vinátta eyðilagst ef
vinir eiga sama heimili.
Heimilisfélagar:
Hafðu allt á
hreinu til að
forðast rifrildi
Sumir vinir eru það nánir og óað-
skiljanlegir að þeir vilja endilega
hefja búskap saman. Algengt er
að tveir eða fleiri vinir taki sig
saman og byrji að leigja. Þá er
mikilvægt að gera gott skipulag
fyrir matarinnkaup og þrif svo
ekki sé rifist um neitt. Sumir
setja peninga í púkk og fara viku-
lega í verslun og kaupa inn fyrir
heimilið. Sumir aftur á móti hafa
matarinnkaup sér og merkir þá
hver sér hillu í ísskápnum. Til að
halda heimilinu hreinu verður að
gera skipulag um hvað hver á að
gera í einingunum sem heimilis-
félagarnir deila, eins og klósetti,
eldhúsi og stofu. Gakktu inn í
leigu með vinum þínum varlega
og fullvissaðu þig um að þú lifir
þetta af – annars gætir þú eyði-
lagt frábæran vinskap. ■