Fréttablaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 42
„Ég er búinn að bjóða á þriðja
þúsund manns. Það er annaðhvort
að bjóða engum eða öllum,“ segir
Kristinn T. Haraldsson, betur
þekktur sem Kiddi rót, en hann er
fimmtugur í dag. Kiddi segist
aldrei hafa lagt í að halda upp á
afmælið áður en heldur það nú
með stæl á nýja veitingastaðnum
Cafe Kidda rót í Hveragerði.
„Þar sem það var enginn
staður til að halda upp á afmælið
ákvað ég að byggja veitingastað.
Það má eiginlega segja að öll
verslunarmiðstöðin verði lögð
undir afmælið.“
Kiddi segir ekki marga hafa
haft trú á byggingu verslunarmið-
stöðvar í Hveragerði í upphafi.
„Ég gekk á milli manna og það
þorði enginn að opna kaffihús í
miðstöðinni. Það fauk í mig og ég
ákvað því að gera þetta sjálfur. Ég
hafði reyndar búist við því að ein-
hver tæki við þegar skipulagning-
in væri farin af stað en enginn kom
og ég er því núna í vetingahús-
rekstri með konu minni,“ segir
Kiddi og bætir því við að líklegast
sé hann ofvirkur. „Ég er formaður
Samfylkingarinnar í Hveragerði
og umhverfisnefndar bæjarins,
gef út bæjarblaðið, vinn á Land-
spítalanum og rek kaffihúsið með
konu minni.“
Aðspurður hvernig tilfinning
sé að vera orðinn hálfrar aldar
gamall segir Kiddi að tindinum sé
nú náð. „Ég er kominn á toppinn á
fjallinu og nú fer maður að labba
niður með verkjum og gigt,“ segir
Kiddi en bætir því þó við að útlitið
sé þó ekki alveg svona svart og
líkingin sé meira í gríni en alvöru.
„Mér finnst ég alltaf vera táning-
ur og alltaf sami rótarinn.“
Í kvöld mun hljómsveitin Tass
frá Hveragerði leika en Kiddi
segir gamla fyrirkomulagið verða
ríkjandi. „Það verða hljóðfæri á
staðnum, poppararnir mæta og
síðan spila menn einfaldlega.
Ræður verða hins vegar ekki
leyfðar nema að menn ætli að
segja misheppnaðar hrakfallasög-
ur af mér en þær eru svo fáar að
ræðurnar verða mjög stuttar.“ ■
Eftir baráttu við krabbamein í
meira en áratug dó leikarinn John
Wayne á þessum degi árið 1979.
Hann er þekktastur fyrir mýmörg
hlutverk sín sem kúreki og
margir sem varla geta hugsað sér
vestrana án hans.
Wayne, sem var skírður
Marion Michael Morrison, fædd-
ist árið 1908 í Iowa. Snemma flutt-
ist hann til Glendale í Kaliforníu
og í grunnskóla þar varð hann
mikil hetja í amerískum fótbolta.
Því fékk hann skólastyrk til að
nema við Háskólann í Suður-
Kaliforníu, en hætti eftir tvö ár.
1930 fékk vinur hans úr há-
skóla, Raoul Walsh, Wayne til að
leika aðalhlutverkið í mynd sinni
The Big Trail. Sú mynd fékk af-
leitar viðtökur. Ári síðar fór
Wayne að starfa fyrir kvikmynda-
verið LoneStar/Monogram, þar
sem hann lék í 16 miðlungsvestr-
um á árunum 1933–1935. Á tíma-
bili komu út tveir vestrar á viku
með Wayne í aðalhlutverki.
Fyrsta stóra hlutverkið fékk
Wayne árið 1939, þegar gamall
vinur hans, John Ford, fékk hann
til að leika í mynd sinni
Stagecoach. Eftir það hélt hann
áfram að leika miklar hetjur í
vestrum í tugum kvikmynda. Árið
1969 fékk hann Óskarsverðlaun
fyrir hlutverk sitt í True Grit. Allt
í allt birtist hann í rúmlega 250
kvikmyndum.
John Wayne giftist þrisvar og
eignaðist sjö börn. ■
JOHN WAYNE
Í lok kvikmyndaferils síns hafði hann birst í
rúmlega 250 kvikmyndum. Flestar þeirra
voru vestrar.
„Það eru átján hópar að vinna hjá
okkur í sumar. Þeir eru að vinna við
margvíslega hluti um alla borg og
auðga mannlífið með myndlist, tón-
list, leiklist, ritlist, dansi og hönnun
svo fátt eitt sé nefnt,“ segir Jón
Gunnar Ólafsson, kynningarstjóri
sumarstarfs Hins hússins.
Í dag verður fyrsta Föstudags-
Flippið en þá sameinast þessir hóp-
ar í miðborg Reykjavíkur. „Uppá-
koman verður á afmörkuðu svæði
og fólki gefst því kostur á að rölta á
milli. Við auglýsum ekki skipulagða
dagskrá frá A til Ö heldur viljum
við frekar að fólk mæti bara í bæinn
og láti koma sér á óvart.“
Hóparnir 18 starfa við list-
sköpun alla virka daga víðs vegar
um Reykjavík og segir Jón Gunnar
starfið mikilvægt. „Flest hafa þau
listsköpun að atvinnu í fyrsta skipti
en mörg þeirra eru einmitt að men-
nta sig á þessu sviði og því er
reynslan ómetanleg. Eins er þetta
mikilvægt fyrir Reykjavíkurborg
því það er frábært að geta skreytt
borgina með fleiru en blómum á
góðviðrisdögum.“
Reykjavíkurborg og Hitt húsið
eru launagreiðendur en hóparnir út-
vega sér sjálfir vinnuaðstöðu. Jón
Gunnar tekur sem dæmi „Sam-
ferða“ sem vinnur að mjög sér-
stakri teiknimynd og hefur aðstöðu
í risinu fyrir ofan Ömmu kaffi í
Austurstræti og tónlistarhópana
„Vinir Kela“ og „Glymskrattarnir“
sem hafa aðstöðu í Hljómskálanum.
„Þau koma síðan mörg hver í
hádegismat niður í Hitt hús og taka
auðvitað öll þátt í FöstudagsFlipp-
inu sem verður næstu þrjá föstu-
daga, lokahátíð sumarstarfsins og á
Menningarnótt.“
Meðal þess sem borgarbúar geta
vænst í miðbænum í dag er maga-
dans, tískusýningar, ljóðalestur,
leiksýningar og tónlist. Herlegheit-
in hefjast klukkan 13 á Austurvelli,
Lækjartorgi, Ingólfstorgi og Aust-
urstræti og lýkur klukkan 15. ■
Skreyta miðbæinn með menningu
22 11. júní 2004 FÖSTUDAGUR
■ AFMÆLI
■ ANDLÁT
JOHN LAWTON
Söngvari Uriah Heep er 58 ára í dag.
Gömlu Heepararnir eru enn að, hófu
nýlega Evróputúr sinn og munu á morgun
spila á Evrópuhátíð mótorhjólamanna í
Ungverjalandi.
11. JÚNÍ
AFMÆLI
KIDDI RÓT ER 50 ÁRA Í DAG.
■ Hann hefur boðið fjölda manns í
veislu í Hveragerði í kvöld.
FÖSTUDAGSFLIPP
■ Skapandi sumarstarfshópar Hins
hússins verða með uppákomur
í miðbæ Reykjavíkur í dag.
11. JÚNÍ 1979
JOHN WAYNE
■ Hetja óteljandi vestra deyr.
Guðmundur Karl Gíslason lést mánudag-
inn 7. júní.
Vilberg Skarphéðinsson, Jötunsölum 2,
Kópavogi, lést þriðjudaginn 8. júní.
Snæfríður Ingólfsdóttir, Ránargötu 18, Ak-
ureyri, lést miðvikudaginn 2. júní.
Halldór Kristjánsson frá Skerðingsstöðum,
Reykhólasveit, lést þriðjudaginn 8.
júní.
Gunnlaugur Viðar Guðmundsson, Þórunn-
arstræti 134, Akureyri, lést þriðju-
daginn 8. júní.
■ JARÐARFARIR
13.30 Ásgeir Jónsson, Efstasundi 92, Reykja-
vík, verður jarðsunginn frá Áskirkju.
13.30 Guðjón M. Jónsson bifvélavirki, Barða-
strönd 8, Seltjarnarnesi, verður jarð-
sunginn frá Seltjarnarneskirkju.
13.30 Guðbjörg Karlsdóttir, Búðardal,
Skarðsströnd, verður jarðsungin frá
Hallgrímskirkju.
13.30 Ingibjörg Ósk Bjarnadóttir, Gónhóli
34, Ytri-Njarðvík, verður jarðsungin frá
Hafnarfjarðarkirkju.
13.30 Emilía Sigursteinsdóttir (Milla), Blika-
nesi 29, Garðabæ, verður jarðsungin
frá Bústaðakirkju.
14.00 Einar Árnason frá Sóleyjartungu, síðast
til heimilis á Höfðagrund 19, Akranesi,
verður jarðsunginn frá
Akraneskirkju.
14.00 Gunnar Einar Líkafrónsson, Hring-
braut 72a, Keflavík, verður jarðsunginn
frá Keflavíkurkirkju.
Alltaf sami
táningurinn og rótarinn
Eiginmaður minn, faðir, fóstri, tengdafaðir og afi,
HALLDÓR GUÐMUNDSSON,
fyrrv. framkvæmdastjóri,
Njarðvík,
Steinunn Gunnarsdóttir
Oddný Halldórsdóttir Valdimar Birgisson,
Dórothea Herdís Jóhannsdóttir Snæbjörn Reynisson,
barnabörn og aðrir vandamenn.
verður jarðsunginn frá Ytri-Njarðvíkurkirkju, föstudaginn 11. júní, kl. 14.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og bróðir
GUNNAR EINAR LÍKAFRÓNSSON
Hringbraut 72 A Keflavík
verður jarðsunginn frá Keflavíkurkirkju
föstudaginn 11. júní kl. 14.00
Dóra Fanney Gunnarsdóttir Annel Jón Þorkelsson
Sigurlaug Kr. Gunnarsdóttir Daníel Eyþórsson
Gunnar Þór Gunnarsson
Sævar Jósep Gunnarsson Anna Bragadóttir
Dagfríður G. Arnardóttir Sigurvin Br. Guðfinnsson
Barnabörn og systkini
MAGADANSDÍSIRNAR
Tróðu upp í Vesturbæjarlaug í góðviðrinu.
Þær verða ásamt fjölda annarra hópa
í miðbæ Reykjavíkur í dag
í FöstudagsFlippi Hins hússins
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/S
TE
FÁ
N
KRISTINN T. HARALDSSON
Hefur komið víða við á fimmtíu ára
ferli og er meðal annars þekktur
fyrir að hafa verið bílstjóri Jóns
Baldvins Hannibalssonar í utanríkis-
ráðherratíð hans.
Tryggvi Gíslason skólameistari er 66 ára.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráðherra er 62 ára.
Kúrekinn fellur frá