Fréttablaðið - 11.06.2004, Page 53

Fréttablaðið - 11.06.2004, Page 53
FÖSTUDAGUR 11. júní 2004 ■ FRÉTTIR AF FÓLKI ■ SJÓNVARP Gildir til 20. júní eða á meðan birgðir endast. Gúmmískór m/blómum blágrænir, bleikir st. 35-42 Sportskór m/teygjum svartir, st. 28-35 Sportskór m/riflás rauðir, svartir, st. 36-41 3.999kr Gott verð 1.499kr Verð áður 1.699,- TILBOÐ Buxur hvítar, drapp, svartar st. S-XL 3.999kr Ótrúlegt verð 4.899kr Gott verð Netaskór margir litir, st. 28-34/35-41 899kr Gott verð 4.899kr Gott verð 3.999kr Gott verð Ballerínuskór m/teygju grænir, bleikir, st. 36-41 Ballerínuskór m/teygjum grænir, bleikir, st. 36-41 999kr Gott verð Hlýrabolur margir litir st. S-XL Nágranna Joeys skipt út Breytingar hafa verið gerðar á gam- anþáttunum Joey sem frumsýndir verða í Bandaríkjunum í haust. Matt LeBlanc, sem lék Joey í Friends, fer með aðalhlutverkið í þáttunum. Eftir margra vikna vangaveltur hafa framleiðendur þáttanna ákveð- ið að skipta út hinni kynæsandi ná- grannakonu Joeys í Los Angeles, sem var leikin af Ashley Scott. Eftir að prufuþáttur var tekinn upp og sýndur áhorfendum kom í ljós að þeir voru ósáttir við nágrannakon- una og töldu hana eina veika hlekk- inn. Þess vegna hefur verið ákveðið að breyta atriðunum sem hún var í og taka þau aftur upp með nýrri leikkonu. ■ Gefin hefur verið út handtöku-skipun á hendur söngkonunni Courtney Love. Hún fékk á dögun- um á sig kæru fyrir líkamsárás með brotinni flösku og vasaljósi. Ákærand- inn er góður vinur u m b o ð s m a n n s hennar og fyrrum kærasta hennar. Love virðist ætla að sökkva dýpra ofan í pyttinn því hennar bíða einnig ákærur um aðra árás eftir að aðdáandi hennar fékk hljóðnemastand í höf- uðið á tónleikum hennar. Hún missti forræðið yfir dóttur sinni í fyrra eftir að lögreglan handtók hana undir áhrifum ólöglegs vímugjafa. Britney Spears brákaðist illa á hnéá dögunum þegar hún hrasaði og datt við tökur á nýju myndbandi sínu í New York. Hún varð að gangast undir aðgerð og ótt- ast stúlkan að meiðsli sín muni verða til þess að væntanlegri tónleika- för hennar um Bandaríkin verði frestað. Britney hefur verið aum í hnénu og er talið að gömul dansmeiðsli hafi tekið sig upp. Nú velta lagasérfræðingar í Banda-ríkjunum því fyrir sér hvort hjónaband Jennifer Lopez og Marcs Anthony hafi verið löglegt. Marc gekk frá skilnaði sínum við fyrri eiginkonu sína á þremur dög- um í öðru landi og fór svo rakleiðis til Bandaríkjanna til að giftast sinni heitt- elskuðu. Samkvæmt bandarískum lögum þurfa að líða 60 dagar á milli og deila menn því um hvort brúðkaupið sé löggilt þar eður ei. Ben Affleck er aftur kominn á spít-ala vegna baráttu sinnar við flensuna. En honum ætti svo sem ekki að leiðast á spítalanum því hann er kominn með nýja kærustu upp á arminn til þess að stytta sér stundir. Þau ættu að hafa ýmislegt til þess að tala um því hún er útskrifuð úr Harvard og þykir algjör heili. Leikkonan unga Lindsay Lohan erfrekar seinheppin þegar kemur að papparazzi-ljósmyndurum. Frægðar- sól stúlkunnar er að rísa og nú elta l j ó s m y n d a r a r hana við hvert fótmál. Á dög- unum varð hún þreytt á því að hópur þeirra elti hana í Holly- wood og ákvað því að flýja á næstu lögreglu- stöð. Ekki vildi betur til en svo að hún lagði á stað sem er ætlaður fyrir gesti sem eiga grafalvarlegt erindi á löggustöðina. Sírenurnar fóru í gang og löggurnar komu hlaupandi út. Ljósmyndararnir náðu svo myndum af því þegar lögg- an var að útskýra fyrir stúlkunni ungu að hún mætti ekki leggja hvar sem er, þótt hún væri kvikmyndastjarna. FRIENDS Matt LeBlanc, lengst til vinstri, heldur áfram að leika Joey í samnefndum þáttum sem hefjast í Bandaríkjunum í haust.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.