Fréttablaðið - 24.06.2004, Side 2
2 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR
Steingrímur Hermannsson um forsetakosningarnar:
Ólafur getur vel við unað
FORSETAKJÖR Steingrímur Her-
mannsson, fyrrverandi forsætis-
ráðherra, telur það ekki vera
áhyggjuefni fyrir Ólaf Ragnar
Grímsson þótt hlutfall auðra seðla
verði hátt í forsetakosningunum á
laugardaginn kemur.
Mikið hefur verið rætt undan-
farið um gildi auðra seðla fyrir
sitjandi forseta. Í skoðanakönnun
Fréttablaðsins um kosningar sem
birtist í gær fær Ólafur Ragnar 72
prósent atkvæða, Baldur Ágústs-
son fengi um sex prósent og Ást-
þór rúmt prósent. Tuttugu prósent
ætla að skila auðu samkvæmt
könnuninni.
Steingrímur telur Ólaf geta vel
við unað ef þetta verða úrslitin í
ljósi þeirra deilna sem uppi hafa
verið um ákvörðun forsetans að
nota málskotsrétt sinn. „Þeir sem
skila auðu er sá hópur manna sem
lítur á það sem borgaralega
skyldu sína að mæta á kjörstað og
kjósa, en fallast ekki á þá ákvörð-
un forsetans að beita málskots-
réttinum. Þau koma því fyrst og
fremst frá andstæðingum Ólafs
og gjörða hans. Það ætti ekki að
vera áhyggjuefni fyrir hann ef
þetta verða úrslitin.“ Steingrímur
bætir við að það hafi ekki verið
jafn margir pólar í forsetakosn-
ingum frá því að forseti var fyrst
kjörinn. ■
Samruni Fréttar og
Norðurljósa í lagi
Samkeppnisráð leggur blessun sína yfir samruna Fréttar við Norðurljós
og segir að „ekki sé ástæða til íhlutunar“. Stjórnarformaður Norðurljósa
segir þetta sýna að fjölmiðlalögin séu óþörf, að minnsta kosti að hluta til.
SAMKEPPNISMÁL „Þetta kemur okk-
ur ekki á óvart í sjálfu sér, en við
erum þó mjög ánægðir með þessa
niðurstöðu,“ sagði Skarphéðinn
Berg Steinarsson, stjórnar-
formaður Norðurljósa, um þá nið-
urstöðu samkeppnisráðs, að ekki
sé ástæða til íhlutunar vegna
hugsanlegra samsteypuáhrifa af
samruna Fréttar við Norðurljós.
Í niðurstöðu sinni segir sam-
keppnisráð: „Hvað varðar sam-
runa Fréttar við Norðurljós
bendir samkeppnisráð á að Ís-
lenska útvarpsfélagið og Frétt
starfa á ólíkum samkeppnis-
mörkuðum fjölmiðlunar, það er
annars vegar útvarps- og sjón-
varpsrekstur og hins vegar út-
gáfu dagblaða. Er afleiðing sam-
runans að þessu leyti því hvorki
sú að saman renni raunverulegir
eða hugsanlegir keppinautar (lá-
réttur samruni) né tengsl í þeim
skilningi að annar þessara aðila
framleiði vörur eða þjónustu
sem hinn notar í starfsemi sinni
(lóðréttur samruni).
Þótt slíkur samruni sé alla
jafna ekki talinn hafa skaðleg
áhrif á samkeppni, bendir sam-
keppnisráð þó á að í undantekn-
ingartilvikum hafi verið talið að
um neikvæð samkeppnisáhrif
gæti verið að ræða, svonefnd
samsteypuáhrif, þar sem öflugt
fyrirtæki í markaðsráðandi stöðu
á einhverjum markaði (mörkuð-
um) nýtir sér stöðu sína til þess að
ná sterkri stöðu á öðrum markaði.
Eins og nánar er útskýrt í ákvörð-
uninni telur samkeppnisráð hins
vegar að ekki sé ástæða til
íhlutunar vegna hugsanlegra sam-
steypuáhrifa í þessu máli.“
Skarphéðinn sagði, þetta sýndi,
og raunar benti Samkeppnisstofn-
un á það í ofangreindri tilkynn-
ingu, að samkeppnislög ættu við
um fjölmiðla eins og önnur fyrir-
tæki og ákvæði þeirra laga mætti
nota ef fjölmiðlar með einhverj-
um hætti misnotuðu aðstöðu sína
á markaði.
„Það var það sem þessum
svokölluðu fjölmiðlalögum var
ætlað að gera, að bregðast við því
ef fjölmiðlar væru í þeirri stöðu
að geta misnotað aðstöðu sína,“
sagði hann.
Spurður hvað þetta segði um
nýsett fjölmiðlalög, sagði Skarp-
héðinn að þau væru óþörf, að
minnsta kosti að hluta til.
jss@frettabladid.is
Efni til eigin nota:
Tekinn
með hass
ÍSAFJÖRÐUR Karlmaður á átjánda
ári var handtekinn af lögregl-
unni á Ísafirði með tæplega 60
grömm af kannabisefnum í gær-
morgun. Hann var að koma með
áætlunarvél frá Reykjavík.
Manninum var sleppt eftir yfir-
heyrslu en þar sagði hann efnið til
eigin neyslu. Lögreglan telur að
aðrir tengist ekki málinu. Maður-
inn hefur ekki komið við sögu lög-
reglunnar vegna fíkniefnamála en
hefur þó legið undir grun. Lög-
reglustjóri fær málið fjótlega til
refsimeðferðar. ■
VEL GÆTT
Hótað hefur verið að ráða forsætisráðherra
bráðabirgðastjórnar Íraka af dögum.
Írak:
Forsætisráð-
herra hótað
KAÍRÓ, AP Hótað hefur verið að ráða
forsætisráðherra bráðabirgða-
stjórnar Íraka af dögum. Þetta kom
fram á upptöku sem talin er koma
frá vígamanninum Abu Musab al-
Zarkawi sem hefur tengsl við al-
Kaída hryðjuverkasamtökin.
Enn fremur segir í upptökunni
að baráttunni gegn heiðingjum sé
hvergi nærri lokið og muni halda
áfram þar til íslömsk lög ráði jörð-
inni á ný.
Á upptökunni er Iyad Allawi,
forsætisráðherra bráðabirgða-
stjórnarinnar, ávarpaður. „Þú veist
ekki að þér hefur þegar tekist að
lifa af gildrur sem við höfum lagt
fyrir þig,“ segir á upptökunni. „Við
lofum að við munum halda leiknum
áfram þar til yfir lýkur.“ ■
Aftöku hefnt:
Fjórir háls-
höggnir
KABÚL, AP Fjórir meintir liðsmenn
talibana í Afganistan voru háls-
höggnir í suðausturhluta landsins
á mánudag. Að verknaðinum
stóðu afganskar hersveitir, þjálf-
aðar af Bandaríkjamönnum, sem
vildu hefna svipaðrar aftöku
afgansks hermanns og hertúlks.
Hermaðurinn og túlkurinn
urðu viðskila við félaga sína úr
sameiginlegum her Bandaríkja-
manna og Afgana og voru her-
menn sendir út af örkinni til að
leita þeirra. Lík þeirra fundust
nokkru síðar og höfðu þeir verið
hálshöggnir. Talibanarnir fjórir
fundust í nágrenninu. ■
„Jú, en það er endalaus fórn að
vinna að friði í heiminum.“
Ástþór Magnússon forsetaframbjóðandi er með
kosningafund á netinu í kvöld á sama tíma og
tónleikar Deep Purple í Laugardalshöll fara fram.
SPURNING DAGSINS
Ástþór, ertu ekki svekktur yfir að
missa af Deep Purple?
UNGLINGAVINNAN HEILLAR
En ekki komast allir að sem vilja. Yfir
hundrað unglingar eru enn með umsóknir
hjá Vinnumiðlun ungs fólks.
Unglingavinnan:
Enn margir
á biðlista
ATVINNUMÁL Tæplega 150 ungling-
ar eru enn á skrá eftir atvinnu hjá
Vinnumiðlun ungs fólks í Reykja-
vík þrátt fyrir að langt sé liðið á
sumar en alls sóttu rúmlega 2.700
unglingar um í vor. Þar af hafa
tæplega 1.300 verið ráðnir en þús-
und drógu umsóknir sínar til baka
sem þýðir að líkindum að þeir
hafa fengið starf annars staðar.
Þá hafa 3.500 yngri skólanemar
verið ráðnir í sumar ásamt 230
leiðbeinendum hjá Vinnuskólan-
um og Orkuveita Reykjavíkur
hefur fengið 250 nema til sumar-
starfa þar að auki. ■
Belgískrar konu saknað:
Fannst við
rætur Heklu
LEIT Belgísk kona sem saknað
hafði verið frá því á þriðjudags-
kvöld fannst heil á húfi snemma í
gærmorgun við rætur Heklu.
Konan ætlaði á fjallið ásamt
ferðafélaga sínum, en ákvað að
bíða eftir honum fyrir neðan efsta
hluta fjallsins. Þegar ferðafélag-
inn kom niður fann hann ekki kon-
una og hafði því samband við lög-
gæsluyfirvöld. Klukkan tíu í
fyrrakvöld voru 30 björgunar-
sveitarmenn með leitarhunda
sendir á vettvang, sem og ein
flugvél. Eftir átta klukkustunda
leit fannst konan heil á húfi við
rætur fjallsins. Hún hafði verið á
göngu alla nóttina. ■
TEHERAN, AP Átta breskum sjó-
liðum, sem eru í haldi íranskra
stjórnvalda, verður líklega sleppt
úr haldi í dag.
Sjóliðarnir fóru ólöglega inn á
íranskt vatnasvæði og voru hand-
teknir í Shatt al-Arab skipaskurð-
inum á landamærum Íraks og
Írans. Áttu mennirnir að afhenda
gæslubát til íraskrar fljótagæslu.
Að sögn íranskra yfirvalda höfðu
sjóliðarnir farið um það bil kíló-
metra inn fyrir landamæri Írans.
Að sögn íranskra yfirvalda
verður sjóliðunum líkega sleppt
þar sem sýnt þykir að innrás þeir-
ra í íranskt vatnasvæði hafi verið
mistök. Tveir sjóliðanna báðust
afsökunar og játuðu að þeim
hefðu orðið á mistök í írönsku
sjónvarpi. Áður hafði því verið
lýst yfir að sjóliðarnir gætu átt
von á að verða sóttir til saka. ■
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
STEINGRÍMUR HERMANSSON
Líta þarf á kosnigarnar í ljósi deilna
undanfarið.
M
YN
D
/A
P
Átta breskir sjóliðar fóru fyrir mistök inn í Íran:
Líklega sleppt í dag
SKIPASKURÐURINN VARINN
Átta breskir sjóliðar voru handteknir eftir
að þeir fóru fyrir mistök inn á íranskt
vatnasvæði í Shaat al-Arab skipaskurðin-
um á landamærum Íraks og Íran. Skipa-
skurðurinn er aðaltengiæð Írans við
Persaflóa og hefur lengi valdið spennu í
samskiptum landanna tveggja.
M
YN
D
/A
P
SAMEININGIN KYNNT
Í lok janúar var sameining Fréttar ehf. og Norðurljósa kynnt. Frá vinstri: Sigurður G. Guðjóns-
son útvarpsstjóri, Gunnar Smári Egilsson, útgáfustjóri Fréttar ehf., Skarphéðinn Berg Steinars-
son, stjórnarformaður Norðurljósa, og Ragnar Birgisson, framkvæmdastjóri Skífunnar.
Flugvél Íslandsflugs:
Magalenti
á Siglufirði
SIGLUFJÖRÐUR Dornier-flugvél Ís-
landsflugs magalenti á flugvellin-
um á Siglufirði skömmu fyrir
klukkan átta í gærkvöld. Tveir flug-
menn voru í vélinni og sakaði þá
ekki. Flugvélin er mikið skemmd.
Vélin fór frá Reykjavík klukk-
an 18.30 í áætlunarflugi til Sauð-
árkróks. Flugmennirnir ákváðu
síðan að fara í æfingaflug til
Siglufjarðar og varð þá einhver
bilun í vélinni. Hún varð að lenda
á flugvellinum með lendingar-
hjólin uppi. Í gærkvöldi var ekki
vitað hvað fór úrskeiðis. Fulltrúar
frá Rannsóknarnefnd flugslysa
fóru strax norður. ■