Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 40

Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 40
32 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR Íslendingar mæta Belgum þrívegis í körfubolta á næstu dögum: Spilað í Borgarnesi í kvöld KÖRFUBOLTI Íslenska karlalands- liðið í körfuknattleik mun mæta því belgíska í þremur vináttu- landsleikjum. Sá fyrsti fer fram í Borgarnesi í kvöld og hefst klukk- an 21, annar verður í Keflavík annað kvöld og hefst á sama tíma. Þriðji leikurinn verður síðan spilaður í Stykkishólmi á laugar- dag og hefst klukkan 14. Þetta eru fyrstu alvöru lands- leikirnir frá því að Sigurður Ingi- mundarson tók við þjálfun liðsins en áður hafði það undir hans stjórn leikið gegn bandaríska háskólaliðinu Catawba College í fyrra. Sigurður var með átján manna æfingahóp fyrir leikina og mun því væntanlega leyfa mörgum leikmönnum að spreyta sig í þessum þrem leikjum. Arnar Freyr Jónsson úr Keflavík spilar sinn fyrsta landsleik í kvöld Belgar ættu að vera með sterkara lið en þeir fóru frekar illa með okkur Íslendinga í undankeppni EM árið 2001, en þeir mæta hingað til lands án nokkurra lykilmanna en gefa þess í stað ungum leikmönnum tæki- færi á að sanna sig fyrir landsliðs- þjálfaranum. Aðalmaður liðsins er þó væntanlega leikstjórnand- inn, Jean-Marc Jaumin, sem lék á sínum tíma með spænska stór- liðinu Real Madrid. Arnar Leikirnir fara fram í helstu stemningsbæjum körfuboltans hér á landi og fólk er eindregið hvatt til að mæta og styðja strák- ana enda ekki oft sem þær fá tækifæri að spila hér heima. ■ David James óttast föstu leikatriðin Spennan magnast fyrir leik Englands og Portúgal í átta liða úrslitum Evrópukeppninnar í knattspyrnu í kvöld. EM Í PORTÚGAL David James, mark- vörður enska landsliðsins, segir að Englendingar verði að herða vörnina ef þeir ætli sér að halda markinu hreinu gegn Portúgölum í fyrsta leik átta liða úrslitanna á EM í kvöld. Mörkin fjögur sem enska liðið skoraði gegn Króötum um helgina skyggðu á þá stað- reynd að enska liðið hefur fengið á sig fjögur mörk á EM og hafa þau öll komið eftir föst leikatriði andstæðinganna. Læra af mistökunum „Við verðum að læra af mis- tökunum sem við gerðum í riðla- keppninni og það strax, því við erum að mæta Portúgölum sem hafa frábæra spyrnumenn,“ segir James. Þessi umdeildi markvörð- ur var nokkuð gagnrýndur fyrir að hafa ekki gert betur í auka- spyrnu Zinedine Zidane í leiknum gegn Frakklandi, og viðurkenndi James að hann hefði ekki verið búinn að kortleggja spyrnur Zidane. „En ég mun breyta því núna. Ég er þegar byrjaður á minni heimavinnu og hef legið yfir myndböndum af aukaspyrn- um frá Luis Figo,“ segir James. „Föst leikatriði ráða mjög oft úr- slitum í leikjum og bæði lið vilja nýta þau til hins ýtrasta.“ Taugaspenna hjá Portúgal Taugaspennan er einnig að gera meira vart við sig í herbúð- um heimamanna í Portúgal, og segir Nuno Gomes, hetja Portú- gala frá því í leiknum gegn Spán- verjum, að enska liðið sé mun betra nú en í EM árið 2000, en þá voru það einmitt Portúgal sem slógu Englendinga út úr keppn- inni en liðin voru þá saman í riðli í lokaúrslitum keppninnar. „Sá leikur var einn sá mikil- vægasti sem ég hef spilað á mín- um ferli,“ segir Gomes, en þá var hann í fyrsta skipti í byrjunarliði Portúgala og þakkaði traustið með því að skora eitt mark af þremur í magnaðri endurmkomu liðsins eftir að hafa lent 2-0 undir. „Þessi leikur kenndi mér mjög margt og ég fékk reynslu af því að spila á móti mönnum á borð við Tony Adams og Alan Shearer. Lið þeirra í dag er yngra og betra og eru leikmenn vanir því að spila undir pressu,“ segir Gomes, en hann verður að öllum líkindum í byrjunarliði Portúgala þar sem sóknarmaður númer eitt, Pauleta, er í leikbanni. Nuno Gomes skoraði fjögur mörk fyrir portúgalska landsliðið í EM árið 2000 en markið gegn Spánverjum var það fyrsta sem gerði í keppninni í ár. ■ ÚTBOÐ Fasteignastofa Reykjavíkurborgar: Knattspyrnufélag Reykjavíkur, gervigrasvöllur, jarð- vinna 1. áfangi. Útboðsgögn verða seld á kr. 2.000,- á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október. Opnun tilboða: 27. október 2003 kl. 10:00, á sama stað. Knattspyrnufélagið Fram, gervigrasvöllur, jarðvinna 1. áfangi. Útboðsgögn verða seld á kr. 2.000,- á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október. Opnun tilboða: 23. október 2003 kl. 10:00, á sama stað. Reglubundið viðhald brunaviðvörunarkerfa í 19 grunnskólum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október, gegn 5000.- kr. skilatrygg- ingu Opnun tilboða: 28. október 2003 kl. 10:30, á sama stað. Gatnamálastofa Reykjavíkurborgar: Götusalti 2004 - 2008, EES-útboð. Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000,- á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október. Opnun tilboða: 4. desember 2003 kl. 11:00, á sama stað. Nánari upplýsingar um verkin hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur sjá, http://www.reykjavik.is/innkaupastofnun INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKUR Fríkirkjuvegi 3 – 101 Reykjavík Sími 570 5800 – Bréfsími 561 1120 Netfang: isr@rhus.rvk.is boð 12/10 10.10.2003 15:03 Page 1 ÚTBOÐ Fasteignastofa Reykjavíkurborgar: Knattspyrnufélag Reykjavíkur, gervigrasvöllur, jarð- vinna 1. áfangi. Útboðsgögn verða seld á kr. 2.000,- á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október. Opnun tilboða: 27. október 2003 kl. 10:00, á sama stað. Knattspyrnufélagið Fram, gervigrasvöllur, jarðvinna 1. áfangi. Útboðsgögn verða seld á kr. 2.000,- á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október. Opnun tilboða: 23. október 2003 kl. 10:00, á sama stað. Reglubundið viðhald brunaviðvörunarkerfa í 19 grunnskólum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október, gegn 5000.- kr. skilatrygg- ingu Opnun tilboða: 28. október 2003 kl. 10:30, á sama stað. Gatnamálastofa Reykjavíkurborgar: Götusalti 2004 - 2008, EES-útboð. Útboðsgögn verða seld á kr. 3.000,- á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október. Opnun tilboða: 4. desember 2003 kl. 11:00, á sama stað. Nánari upplýsingar um verkin hjá Innkaupastofnun Reykjavíkur sjá, http://www.reykjavik.is/innkaupastofnun INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKUR Fríkirkjuvegi 3 – 101 Reykjavík Sími 570 5800 – Bréfsími 561 1120 Netfang: isr@rhus.rvk.is ÚTBOÐ Fasteignastofa Reykjavíkurborgar: Knattspyrnufélag Reykjavíkur, gervigrasvöllur, jarð- vinna 1. áfangi. Útboðsgögn verða seld á kr. 2.000,- á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október. Opnun tilboða: 27. október 2003 kl. 10:00, á sama stað. Knattspyrnufélagið Fram, gervigrasvöllur, jarðvinna 1. áfangi. Útboðsgögn verða seld á kr. 2.000,- á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október. Opnun tilboða: 23. október 2003 kl. 10:00, á sama stað. Reglubundið viðhald brunaviðvörunarkerfa í 19 grunnskólum Reykjavíkurborgar. Útboðsgögn verða afhent á skrifstofu okkar, frá og með þriðjudeginum 14. október, gegn 5000.- kr. skilatrygg- ingu Opnun tilboða: 28. október 2003 kl. 10:30, á sama stað. Gatnamálastofa Reykjavíkurborgar: Götusalti 2004 - 2008, EES-útboð. tboðsgögn verða seld á kr. 3.000,- á skrifstofu okkar, frá og eð þriðjudeginu 14. október. pnun tilboða: 4. desember 2003 kl. 11:00, á sama stað. Nánari upplýsingar um verkin hjá Innkaupastofnun Fríkirkjuvegi 3 101 Reykjavík Sími 570 5800 – Bréfsími 561 1120 Netfang: isr@rhus.rvk.is GÁMALEIGA, FLUTNINGUR OG LOSUN FYRIR ENDURVINNSLUSTÖÐVAR SORPU, VIÐ ÁNA- NAUST, JAFNASEL OG SÆVARHÖFÐA TIL 3 ÁRA. F.h. Sorpeyð ngar höfuðborgarsvæðisins bs. ( SORPU ) er óskað eftir tilboðum í gámleigu, flutninga og losun á sorpgámum á endurvinnslu- stöð SORPU við Ánanaust, Reykjavík Helstu verkþættir eru : a) Gámar/ílát 2 - 30 m3: 45 stk b) Magn til losunar í móttökustöðum eða á jarðvegstippum: 22.950 tonn Samningstími er 3 ár frá 1. janúar 2005 til 31. des. 2007 Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 3, Rey javík frá og með 22. júní 2004. Hvert eintak kostar kr. 5.000.- Opnun tilboða: 19. ágúst kl. 10:30 á skrifstofu Innkaupastofnunar Rey javíkur. 10227 F.h. Sorpeyðingar höfuðbo gars æðisins bs. ( SORPU ) er óskað eftir tilboðum í gámleigu, flutnin a og losun á sorpgámum á endurvinnslu- stöðvum SORPU Jafnasel, Reykjavík Helstu verkþættir eru samtals vegna beggja stöðv- anna en óskað er tilboða í sitt hvora stöðina. a) Gámar/ílát 2 - 30 m3 : 30 stk b) Magn til losunar í móttökustöðum eða á ja ðvegst ppum: 9.8 0 tonn Samningstími er 3 ár frá 1. janúar 2005 til 31. des. 2007 Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík frá og með 22. júní 2004. Hvert eintak kostar kr. 5. 000.- Opnun tilboða: 19. ágúst kl. 10:00 á skrifstofu Innkaupastofnunar eykjavíkur. 10234 F.h. Sorpeyðingar höfuðborgarsvæðisins bs. ( SORPU ) er óskað eftir tilboðum í gámleigu, flutni a og losun á sorpgámum á endurvinnslu- stöðvum SORPU Sævarhöfða, Reykjavík Helstu verkþættir eru samtals veg a beggja stöðv- anna en óskað er tilboða í sitt hvora stöðina. a) Gámar/ílát 2 - 30 m3 : 44 stk b) Magn til losunar í móttökustöðum eða á jarðvegstippum: 26.440 tonn Samningstími er 3 ár frá 1. janúar 2005 til 31.des. 2007 Útboðið er auglýst á Evrópska efnahagssvæðinu. Útboðsgögn fást á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur, Fríkirkjuvegi 3, Reykjavík frá og með 22. júní 2004. Hvert eintak kostar kr. 5. 000.- Opnun tilboða: 19. ágúst kl. 11:00 á skrifstofu Innkaupastofnunar Reykjavíkur. 10228 ÚTBOÐ INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKUR Fríkirkjuvegi 3 – 101 Reykjavík Sími 570 5800 – Fax 561 11 20 – Netfang: isr@rhus.rvk.is ÆTLAR EKKI AÐ GERA MISTÖK Enska landsliðið hefur fengið fjögur mörk á sig á Evrópumótinu í Portúgal og hafa þau öll komið úr föstum leikatriðum. Scolari, þjálfari Portúgala, segir Pele vera sér á báti: Rooney er enginn Pele EM Í FÓTBOLTA Luis Felipe Scolari, þjálfari Portúgala, hlær að öllum samlíkingum á Wayne Rooney og goðsögninni Pele, en Sven- Göran Eriksson, þjálfari Eng- lendinga, hefur sagt að Rooney sé að hafa slík áhrif á Evrópu- keppnina að annað eins hafi ekki gerst síðan á HM í Svíþjóð árið 1958, þegar Pele sló fyrst í gegn 17 ára með Brasilíu. „Annar er hvítur og hinn er svartur,“ sagði Scolari brosandi aðspurður um hvaða stóri munur væri á þeim. Og Scolari hélt áfram. „Mér finnst Rooney vera mjög góður leikmaður, en að líkja honum við Pele? Það mun alltaf aðeins verða einn slíkur í heiminum. Það er ekki einu sinni hægt að búa einn slíkan til í tölvu,“ sagði Scolari, en hann kemur einmitt frá Brasilíu rétt eins og Pele og þekkir því vel til síns manns. „Leikmenn mínir bera mikla virðingu fyrir Rooney og vita að hæfileikar hans einir saman eru nægir til að slá okkur út úr keppninni. En hann er ekki einn, hann er hluti af þeirri sterku liðsheild sem enska landsliðið er. Sjáið þið bara David Beck- ham og Michael Owen. Þeir hafa ekki áhyggjur af eigin frammi- stöðu og að vera aðalmennirnir. Þeir spila fyrir liðið þrátt fyrir að þurfa að þola mótlæti frá fjöl- miðlum og öðrum,“ segir Scol- ari. ■ SJÁIÐ OG ÞIÐ MUNUÐ SKILJA Luis Felipe Scolari , þjálfari Portúgala, segir það deginum ljósara að Wayne Rooney sé ekki arftaki Pele. Enginn mun nokkurn tíma komast með tærnar þar sem Pele hefur hælana, segir Scolari. SIGURÐUR INGIMUNDARSON Landsliðsþjálfari í körfuknattleik. Íslendingar mæta Belgum þrisvar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.