Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 42

Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 42
Jackie is just speeding away thought she was James Dean for a day. Then I guess she had to crash valium would have helped that dash She said, hey babe, take a walk on the wild side. - Lou Reed í laginu Walk on the Wild Side. 34 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR Á öllum mínum fimm árum sem blaðamaður hefur mér aldrei liðið jafn illa að tala við nokkurn mann í síma og Lou Reed. Ég held að mér hafi, á þessum fáránlega stutta tíma í starfinu, tekist að taka viðtöl við öll goðin mín þannig að ég var ekkert sérstaklega spenntur né kvíðinn fyrir þessu spjalli. Lou er eini viðmælandi minn sem hefur sent mér punkta fyrir fram um hvað „megi“ tala um. Hann hefur líka sérstakt orð á sér fyrir að vera erfiður í viðtölum. Ég þekki ágætlega til kappans og tók ekki of mikið mark á þessu. Var staðráðinn í því að reyna að eiga eðlilegt spjall við manninn, eins og mér hefur tekist við alla aðra við- mælendur mína. Þá skiptir engu hvort þeir eru heimsfrægir eða ekki, mér er einfaldlega alveg skít- sama. Lou var þó ekki alveg á hött- unum eftir því að þvaðra við óupp- lýstan blaðamann. Tónn hans er svo óþægilega kennaralegur að kaldur sviti rann af enni mínu á meðan á spjallinu stóð. Til hamingju Lou... þér tókst hið ómögulega. Undir yfirheyrslu „Hmm,“ heyrist með afslappaðri og þreytulegri röddu Lou Reed í gegnum símann frá New York eftir að ég kynni mig. „Sæll Biggi.“ Ég tók þá ákvörðun að móðga ekki manninn og byrja á atriði sem var á listanum hans. Segðu mér frá The Raven. „Ertu með tvöfalda diskinn eða smáskífuna?“ Ég hef hvorugan diskinn fengið. „Þannig að þú hefur ekki heyrt þetta?“ Nei, það hef ég ekki gert. „Þannig að þú ætlar að spyrja mig spurninga um eitthvað sem þú hefur ekki heyrt?“ spyr hann og hljómar hneykslaður. Já, það er nú bara út af því að þetta var eitt atriðanna sem þú vild- ir tala um samkvæmt listanum. Tengist The Raven eitthvað sam- nefndu ljóði eftir Edgar Allan Poe? „The Raven er tvöfaldur diskur sem ég gerði. Þar færi ég Edgar Allan Poe yfir í tónlist. Ég vona að ég hafi náð að gera hann aðgengi- legan fyrir samtímamenn. Á plöt- unni koma frábærir leikarar við sögu, eins og Willem Dafoe, Steve Buscemi, Elizabeth Ashley og fleiri.“ Frá þessari erfiðu byrjun barst talið að Chen Tai Chi meistaranum Ren Guangyi sem hefur komið fram með Lou á tónleikum. Lou segist hafa sökkt sér í kínverska menn- ingu og stundað þá sjálfsvarnarlist í 20 ár. Hann segist gera æfingar í minnst 20 mínútur á dag. Eftir að hann lagði eiturlyfin á hilluna sökkti hann sér djúpt í andleg málefni og hefur m.a. unnið að gerð slökunar- tónlistar með kínverska nálastungu- sérfræðingnum Dr. Pung. „Ég gerði tónlist til þess að hug- leiða eða gera Tai Chi æfingar við. Dr. Pung las inn á band fyrir mig leiðbeiningar um hugleiðslu. Mig langar til þess að setja textann hennar ofan á tónlistina. Ég er næstum því búinn með þetta. Mig langar til að selja þetta á netinu fyrir þá sem vantar tónlist til þess að hugleiða við. Þetta er alls ekki meginstraumstónlist, eins og þú getur ímyndað þér. Þetta er eigin- lega andstæða Metal Machine Music sem ég gerði árið 1975,“ seg- ir Lou en sú plata var 64 mínútna verk af hávaðapælingum, mikið um hægt og hraðað gítarfeedback. Plata sem Sonic Youth var undir miklum áhrifum frá. „Eina ástæðan fyrir því að mig langar til þess að gefa þetta út er að slatti af fólki heyrði þetta og bað mig um að fjöl- falda þetta fyrir sig.“ Tilfinningar á filmu Lou Reed gaf nýverið út stærð- arinnar ljósmyndabók, Emotion in Action, í samstarfi við Gerhard Steidl sem er samkvæmt Lou einn af betri prenturum heims í dag. Sýnishorn úr bókinni er að finna á heimasíðu kappans, loureed.com. „Ég fæ tækifæri til þess að ferð- ast mikið, þannig fæ ég að sjá hluti sem annað fólk fær kannski ekki að sjá. Þess vegna tek ég ljósmyndir af þeim.“ En áttu einhverjar góðar myndir frá rokkárum þínum? „Nei, ég tek ekki þess konar myndir. Ég myndi ekki fara út í það að taka myndir til þess að skjalfesta líf mitt.“ Ekki mikið fyrir nostalgíu? „Nei, ég hef engan áhuga á því. Ég er keyrður áfram af löngun í fegurð, glæsileika og þokka. Ég reyni því að fanga tilfinningar á filmu. Ég vil skapa með myndavél- inni.“ En þú ert náttúrlega orðinn stór hluti af rokksögunni, er ekkert und- arlegt að fólk sé að gera kvikmynd- ir um atburði í lífi þínu? Nýjasta dæmið er mynd sem verið er að gera um Nico. „Ég hef engar tilfinningar tengdar þessu. Þetta voru mjög áhugaverðir einstaklingar. Það er svo mikið um fjölmiðla núna að þá sárvantar viðfangsefni.“ Vantar þá þá einhverja helgi- mynd? „Þá vantar eitthvað til þess að fylla upp í tímann í sjónvarpinu. Fljótlega verða þeir byrjaðir að gera heimildarmyndir um mýs.“ Af hverju heldurðu að pressan hafi alltaf svona mikinn áhuga á slæmri hegðun? Eins og eiturlyfja- notkun, kynlífi og öðru slíku? „Örugglega vegna þess að þetta eru hlutir sem venjulegt fólk gerir ekki. Milton skrifaði bók sem heitir Paradísarmissir, og svo Paradís endurheimt. Flestir lesa bara Paradísarmissi. Ég held að flestir hafi áhuga á villtu hliðinni, en þá langar ekkert að búa þar.“ Hvernig hugsar þú um fortíðina? „Ég geri það bara ekki. Af hverju ætti ég að gera það? Ég vil bara fara áfram. Það er til orðatil- tæki sem segir að sá sem þekkir ekki söguna er dæmdur til þess að endurtaka hana. Ég vil heldur ekki endurtaka sjálfan mig.“ Næst berst talið að tónleikunum hér á Íslandi. Lou spyr hvort hann ætti að spila gömul lög eða ný og ég sting upp á að hann taki beggja blands, þar sem Íslendingar séu margir forvitnir á nýja hluti. „Það er gott að heyra. Ef fólk vill heyra gamalt efni, þá hef ég ekkert á móti því að spila það annað slagið. Þegar ég fer á tónleika vil ég yfir- leitt heyra eitthvað af slögurun- um.“ En hvað finnst þér um það þegar fólk er að nota lög á borð við Perfect Day í brúðkaupum, er það ekki ör- ugglega rangtúlkun á textanum? „Ég er hamingjusamur með að hafa samið eitthvað sem gerir það hamingjusamt. Það er hægt að túlka textann á margan hátt. Það fer bara eftir þeirri persónu sem túlkar hann. Það er eina leiðin til þess að horfa á þetta.“ Er einhver séns að þú takir það lag á tónleikunum? „Alveg bókað mál. Hvernig er enskan þarna?“ Góð, hér tala flestir ensku. „Ætti ég að tala hægt?,“ segir hann með sínum afslappaða tón og hlær. Vissi ekki að hann væri fær um annað. biggi@frettabladid.is Í spilaranum hjá ritstjórninni Nick Cave: Best of, Rokkland 2003: Safnplata, N.E.R.D.: Fly or Die, Modest Mouse: Good News for People Who Love Bad News, Franz Ferdinand: Franz Ferdinand, Sonic Youth: Sonic Nurse, Brendan Benson: Lapalco, The Flavors: Go Your Own Way, Nick Drake: Made to Love Magic, Squarepusher: Ultra Visitor, Badly Drawn Boy: One Plus One Is One og Keane: Hopes and Fears. Knúinn áfram af fegurð LOU REED Ætlar að reyna að eyða viku hér á Íslandi. „Vonandi er einhver til í að eyða tíma í það að sýna okkur landið. Mig langar að kynnast menningu ykkar, landslaginu og fólkinu. Ég verð með myndavélina á lofti. Ef ég get ekki tekið mynd þarna, þá get ég alveg eins hætt að taka myndir.“ RUN Snow Patrol WALK IDIOT WALK The Hives EVERYTHING I’VE KNOWN Korn WAKE UP (MAKE A MOVE) Lostprophets DUALITY Slipknot CH-CHECK IT OUT Beastie Boys TALK SHOW HOST ON MUTE Incubus NOSIRRAH EGROEG Lokbrá NICE BOYS Mínus THE OTHERS Hoffmann Listinn er valinn af umsjónarmönnum stöðvarinnar. IPSY J-Kwon EVERYTIME Britney Spears BURN Usher 5 COLORS IN HER HAIR McFly GOT WHAT YOU NEED Eve feat. Biz Markie ROSES Outkast HERE SHE COMES Kurt Nilsen IF I AIN’T GOT U Alicia Keys THE REASON Hoobastank ON MY KNEES 411 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 [ TOPP 10 ] FM957 – VIKA 26 1 2 3 4 5 6 7 8 9 10 X-IÐ 977 – VIKA 26 Snow Patrol
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.