Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 37

Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 37
29FIMMTUDAGUR 24. júní 2004 Sö n g k o n a nB r i t n e y Spears varð móðursjúk og brast í grát eftir að mamma hennar keyrði á l j ó s m y n d a r a sem var að reyna ná mynd af mæðgunum. Þegar atvikið átti sér stað var Britney að koma úr gælu- dýrabúð þar sem hún keypti sér tvo hvolpa. Vitni segja að mamma Britn- eyjar hafi gefið í og keyrt manninn niður. Hann á ekki að hafa verið að troða sér að þeim né sýna þeim stæla. Talsmenn Britneyjar segja að atvikið hafi algjörlega verið ljós- myndaranum að kenna. Það er þefur af málsókn í loftinu. Ben Affleck fagnaði ákaft eftir aðhann vann tæpar 26 milljónir króna í stærðarinnar pókermóti um helgina. Þar keppti hann við 90 aðra spilara, þar á með- an leikarann Toby Maguire. Sigurinn í mótinu tryggir leikaranum sæti í heimsmeistara- móti pókerspilara sem fram fer í apríl á næsta ári. Affleck þykir af- bragðs spilari og fagmenn segja hann á meðal þeirra bestu í heimin- um í dag. Michael Moore viðurkenndi ný-lega að ein ástæða þess að hann hefði gert heimildarmyndina Fahrenheit 9/11 um George W. Bush Bandaríkjaforseta og Íraksstríðið sé til þess að réttlæta ræðu sína á Óskarsverðlaunahá- tíðinni fyrir tveimur árum. Þegar hann tók við Óskarsverðlaununum fyrir heimildarmyndina Bowling for Col- umbine púuðu margir úr áhorfenda- hópnum á hann fyrir að ásaka Bush forseta um að hrinda af stað ólög- mætu stríði. Starfsfólk Jennifer Lopez trúir þvíað hún hafi tekið ákvörðun um að hætta kvikmyndaleik til þess að einbeita sér að tónlistinni. Lopez er þegar byrj- uð að snúa baki við kvikmyndaiðnaðin- um og hefur til dæmis neitað að taka þátt í kynningu næstu myndar sinn- ar, Shall We Dance, sem er endur- gerð japanskrar dansmyndar með sama nafni. Mótleikari hennar Rich- ard Gere er mjög hneykslaður yfir hegðan dívunnar. Vatíkanið í Róm hefur nú djúparáhyggjur af því að fjöldi aðdá- enda Madonnu að- hyllist kabbalah- t rúarbrögðunum. Poppdrottningin er með mikið trúboð í gangi sem hluta af sýningu sinni. Yfir- menn Vatíkansins funda nú um það sem þeir kalla „tískutrúarbrögð“ og hvort þau geti hugsanlega skaðað kirkjuna. Madonna aðhylltist kaþ- ólsku kirkjunni áður en hún skipti um trúarbrögð. FRÉTTIR AF FÓLKI MEÐ PENNANN Á LOFTI Gamanleikarinn Ben Stiller hafði í nógu að snúast á frumsýningu nýjustu myndar sinnar, Dodgeball: A True Underdog Story, í Los Angeles fyrir skömmu. Gaf hann aðdáendum sínum eiginhandaráritanir og veifaði í allar áttir. Höfundur Fahrenheit 451 vill afsökunarbeiðni ■ KVIKMYNDIR Rithöfundurinn Ray Bradbury, höf- undur bókarinnar Fahrenheit 451, hefur farið fram á afsökunarbeiðni frá leikstjóranum Michael Moore fyrir að stela titlinum fyrir heimild- armynd sína Fahrenheit 9/11. Bók Bradbury, sem kom út árið 1953, fjallar um einræðisríki fram- tíðarinnar og vísar titillinn til þess hitastigs sem þarf til að brenna bækur. Moore hefur þegar lýst því yfir að hann hafi notað svipaðan titil fyrir sína mynd vegna þess að hann vísi til þess hitastigs sem verður þegar frelsi brennur upp. Bradbury, sem er 83 ára og býr í Los Angeles, kvartaði við Moore fyrir hálfu ári en fékk ekkert svar fyrr en í síðustu viku. Að sögn Brad- bury var Moore skömmustulegur og gerði sér grein fyrir því að of langur tími hefði liðið síðan hann hefði ákveðið að hafa samband. Bradbury vonast til að þurfa ekki að höfða mál gegn Moore heldur vill hann útkljá málið í mestu vinsemd. Fahrenheit 9/11 verður frumsýnd í Bandaríkjun- um næstkomandi föstudag. ■ MICHAEL MOORE Moore hefur vakið hörð viðbrögð fyrir heimildarmynd sína Fahrenheit 9/11. Hér er hann í góðu stuði á kvikmyndahátíðinni í Cannes.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.