Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 38

Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 38
FÓTBOLTI Valur bar sigurorð af ný- liðum Fjölnis, 0-3, í Landsbankadeild kvenna í knattspyrnu. Leikurinn, sem fór fram í sól og sumaryl, var ágæt skemmtun og heimastelpur létu bikarmeistarana vinna fyrir sigrinum með mikilli baráttu. Fjöln- ir hefur komið skemmtilega á óvart í sumar og virðist geta strítt hvaða liði sem er. Valsliðið var þó of stór biti til að kyngja enda hér á ferð lík- lega besta lið deildarinnar með valinn mann í hverju rúmi. Dóra María Lárusdóttir, leikmað- ur Vals, var ásamt markmanni Fjöln- is, Önnu Rún Sveinsdóttur, best á vellinum. Þetta hafði Dóra María að segja eftir leik: „Eins og mótið hefur spilast í sumar er ég á því að við séum með besta liðið. Deildin er þó vissulega erfið en við erum með frá- bært lið og höfum sýnt fram á það í undanförnum leikjum. Það eru frá- bærir leikmenn í hverri einustu stöðu og þetta eru allt stelpur sem hafa spilað með öllum yngri lands- liðum og eru vanar sigrum. Okkur þyrstir mikið í Íslandsmeistara- titilinn og erum í góðri stöðu í dag því ÍBV er búið að misstíga sig tvis- var og þetta er því í okkar höndum.“ sagði Dóra María Lárusdóttir og bætti við að henni fyndist Fjölnis- liðið hafa komið skemmtilega á óvart: „Þetta er virkilega gott lið með fullt af ungum og efnilegum stelpum og þær létu okkar hafa verulega fyrir hlutunum.“ Fyrsta stig FH FH náði sínu fyrsta stigi í sumar með því að gera 1-1 jafntefli við Stjörnuna í Garðabænum. Það voru reyndar Stjörnustúlkur sem voru heppnar að ná í stig því Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir jafnaði leikinn fyrir þær á 87. mínútu. Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, markvörður FH, átti stjörnuleik og varði meðal annars víti. FH-liðið hefur vaxið í undanför- num leikjum en þessi leikur markaði þá algjör stakkaskipti hjá hinu unga Hafnarfjarðarliði. Stjarnan var sterkari og fékk góð tækifæri í leiknum en Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir varði frábærlega í marki FH, alls átta skot og þar á meðal vítaspyrnur Lilju Kjalarsdóttur á 5. mínútu. Góður sigur KR KR-konur komust upp fyrir Breiðablik í 3. sæti Landsbankadeild kvenna með 4-1 sigri í innbyrðisleik liðanna í Frostaskjólinu í kvöld. KR er nú með tíu stig, fimm stigum á eftir toppliði Vals en einu stigi á eftir ÍBV sem er í öðru sæti. Fjórir leikmenn Íslandsmeistaranna voru á skotskónum í kvöld. Hólmfríður Magnúsdóttir átti mjög góðan leik fyrir KR ásamt Eddu Garðarsdóttur en Hólmfríður hefur lagt upp sjö mörk KR-liðsins í síðsutu tveimur leikjum þar af tvö gegn Breiðabliki í kvöld. KR var sterkara liðið en nýtti engu að síður færin sín mjög vel. Breiðabliksliðið náði sér ekki á strik en sótti í sig veðrið í lokin. ■ 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR Bixente Lizarazu, bakvörður franska landsliðsins: Ekki endilega til Spurs FÓTBOLTI Franski varnarmaðurinn Bixente Lizarazu segist alls ekki vera búinn að ákveða að fara til Tottenham eins og komið hefur fram í nokkrum fjölmiðlum ytra. Hinn 34 ára vinstri bakvörður, sem verður samningslaus í sumar, segist ætla að halda öllum sínum möguleikum opnum og ekki ætla að taka neina ákvörðun fyrr en eftir EM. „Mér líkar mjög vel við enska knattspyrnu en ég er til í allt. En það eina sem kemst að núna er að standa sig með Frakklandi á EM, og eftir mótið mun ég taka ákvörðun varð- andi framtíð mína,“ sagði Lizarazu í Portúgal í gær, en vitað er af áhuga fjölmargra liða á þessum reynslu- mikla bakverði franska landsliðsins í knattspyrnu. ■ Er Valur að stinga af? Valsstelpur unnu sinn fimmta leik í röð og KR komst upp fyrir Breiðablik í 3. sætið eftir 4–1 sigur á Blikum. FH fékk sitt fyrsta stig í sumar ■ STJARNAN – FH 1–1 0–1 Elín Svavarsdóttir 40. 1–1 Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir 87. BEST Á VELLINUM Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir FH TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–8 (9–6) Horn 5–2 Aukaspyrnur fengnar 25–13 Rangstöður 3–0 Gul spjöld (rauð) 1–1 MJÖG GÓÐAR Sigrún Ólöf Ingólfsdóttir, FH GÓÐAR Auður Skúladóttir Stjörnunni Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir Stjörnunni Harpa Þorsteinsdóttir Stjörnunni Lára Björg Einarsdóttir Stjörnunni Lilja Kjalarsdóttir Stjörnunni Sarah Lentz Stjörnunni Elín Svavarsdóttir FH Elísabet Guðrún Björnsdóttir FH Hrönn Hallgrímsdóttir FH Lind Hrafnsdóttir FH Sigríður Guðmundsdóttir FH Valdís Rögnvaldsdóttir FH ■ FJÖLNIR – VALUR 0–3 0-1 Kristín Ýr Bjarnadóttir 40. 0-2 Dóra María Lárusdóttir 52. 0-3 Kristín Ýr Bjarnadóttir 75. BEST Á VELLINUM Dóra María Lárusdóttir Val TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 6–31 (0–15) Horn 1–4 Aukaspyrnur fengnar 11–13 Rangstöður 3–2 Gul spjöld (rauð) 0–0 MJÖG GÓÐAR Dóra María Lárusdóttir Val Anna Rún Sveinsdóttir Fjölni GÓÐAR Vanja Stefanovic Fjölni Ratka Zivkovic Fjölni Elísa Pálsdóttir Fjölni Íris Andrésdóttir Val Málfríður Sigurðardóttir Val Ásta Árnadóttir Val Kristín Ýr Bjarnadóttir Val Dóra Stefánsdóttir Val Pála Marie Einarsdóttir Val ■ KR – BREIÐABLIK 4–1 1-0 Guðlaug Jónsdóttir 16. 2-0 Sif Atladóttir 41. 3-0 Katrín Ómarsdóttir 63. 4-0 Anna Berglind Jónsdóttir 77. 4-1 Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir 88. BEST Á VELLINUM Hólmfríður Magnúsdóttir KR TÖLFRÆÐIN Skot (á mark) 10–11 (5–3) Horn 4–4 Aukaspyrnur fengnar 6–13 Rangstöður 3–5 Gul spjöld (rauð) 0–0 MJÖG GÓÐAR Hólmfríður Magnúsdóttir KR Edda Garðarsdóttir KR Sandra Sif Magnúsdóttir Breiðabliki GÓÐAR Guðrún Sóley Gunnarsdóttir KR Guðný Guðleif Einarsdóttir KR Katrín Ómarsdóttr KR Sif Atladóttir KR Ólína Guðbjörg Viðarsdóttir Breiðabliki VALSSTÚLKUR KOMNAR Í MJÖG GÓÐA STÖÐU Sif Atladóttir og Málfríður Sigurðardóttir sjást hér kljást í leik Vals og KR í 2. umferð. Þeir áttu báðar ágæta leiki með sínum liðum í fyrradag ATVINNUHÚSNÆÐI Sölumaður: Örn Helgason, GSM: 696 7070 TIL LEIGU HÆÐ VIÐ SMIÐJUVEG Vorum að fá til útleigu 656 m2 efri hæð með góðri aðkomu, fal- legu útsýni, stórum svölum á báðum hliðum og rúmgóðu and- dyri. Verið er að gera upp hæð- ina og verður hún afhent öll ný upp gerð með þeim kröfum sem gerðar eru til skrifstofuhús- næðis í dag og ef um semst er möguleiki fyrir leigjanda að hafa áhrif á innra skipulagi hæðarinnar. Hæðin hentar undir margskonar starfsemi og mögulegt er að skipta henni upp í smærri einingar. VERSLUNARHÆÐ MIÐSVÆÐI Erum með góða 373 m2 verslunarhæð á góðum stað við Skipholtið. Hæðin er með stórum útstillingargluggum, bíla- stæðum og góðri aðkomu. Mögulegt er að selja hæðina í tvennu lagi og með eða án lagerrýmis með innkeyrsluhurð. Verið er að klæða húsið að utan og skipta um glugga í því á kostnað seljanda. EIRHÖFÐI - 110 RVK Erum með til sölu 672,2 m2 atvinnuhúsnæði með mikla möguleika. Húsið er með góðri aðkomu, góðu útisvæði, góðri lofthæði og innkeyrsluhurð sem er ca. 5 metra há og ca. 3,5 metrar á breidd. Möguleg skipti á minni eign. GISTIHEIMILI - 110 RVK Vorum að fá í sölu gott 607,3 m2 gistiheimili í góðu húsi með 29 vel búnum herbergjum. Gistiheimilið er á tveimur hæðum og verið er að innrétta þar 29 herbergi. Á neðri hæð verða 5 herbergi og móttaka. Á efri hæð verða 25 herbergi, matsalur, eldhús, þvottahús og skrifstofa. Í kjallara verður geymsla. Öll herbergin verða með innréttingu, ísskáp og örbylgjuofni. Gistiheimilið verður fullklárað fyrir rekstur og selt þannig. FISKISLÓÐ - 101 RVK Gott 1684,7 m2 atvinnuhúsnæði við miðbæinn með góðum innkeyrsludyrum 5,5m á hæð x 4 m á breidd. Húsið er á tveimur hæðum. Jarðhæðin er 1.250 m2 sem skiptist í 850 m2 sal með allt að 8,6 m lofthæð og 400m2 sal með 3,5 m lofthæð. Efri hæðin er 420 m2 er með allt að 5 m lofthæð. TIL LEIGU Í SÍÐUMÚLA Vorum að fá til leigu 100 til 200 m2 skrifstofuhæð með glæsilegu út- sýni. Hæðin verður afhent fljótlega með nýju gegnheilu mahogny par- keti á gólfum, stúkuð niður eftir óskum kaupanda með öllum þeim kröfum sem gerðar eru til skrif- stofuhúsnæðis í dag. Malbikuð bílastæðum fyrir ofan og neð- an hús. KLETTHÁLS - 110 RVK Vorum að fá í sölu 450 m2 rými í atvinnuhúsnæði á hornlóð, húsið er með 7 til 8,5 metra lofthæð og verður skilað með malbikuðum bílastæðum. Rýmið hentar undir margskonar at- vinnustarfsemi s.s. heildverslun, lager og verslun. Rýmið er með innkeyrsludyr og er 450 m2 að gólffleti og býður upp á möguleika á millilofti. 32261 GRANDATRÖÐ Erum með til sölu 201 m2 og 402,2 m2 ( 538,9 m2 með milli- lofti ) húsnæði með allt að 7 metra lofthæð, tveimur inn- keyrsludyrum, gluggum á fjórum hliðum, og ca 652 m2 lóð. Húsið er rúmlega fokhelt og selst í einum eða í tveimur hlut- um hvor um sig 201,1 m2 með samþykki fyrir 68.8 m2 milli- lofti með góðum gluggum. Húsið er laust til afhendingar. FLUGUMÝRI - 270 MBÆ Erum með í sölu gott 544.6 m2 atvinnuhúsnæði með 2.470 m2 lóð. Húsið er stór salur og viðbygging á tveimur hæðum. Húsið hentar undir margvíslega starfsemi. Það er með 5,2 til 7,5 metra lofthæð í sal, góðum þakgluggum, stórri lóð, stækkunarmöguleikum og með þremur stórum innkeyrslu- hurðum sem eru 4,5 m á hæð og 4 m á breidd. SÚÐARVOGUR - 104 RVK Verslunar og iðnaðarhúsnæði sem er 541,6 fm á jarðhæð auk 81,3 fm. millilofts og með stórri lóð. Skipting er stór salur ný- lega innréttaður með mikilli lofthæð, dúkur á gólfi, vel inn- réttuð skrifstofa, starfsmanna- aðstaða ( snyrtingar), góð kaffistofa o. fl. Lagerrými með inn- keyrslu. Milliloft er með inngang frá götu og frá porti ( bak- hlið) Á milliloftinu eru nokkur herbergi, snyrting, kaffistofa ofl. Í eignarhlutanum er búið að setja upp gott loftræstikerfi. Þetta er áhugaverð eign sem gæti hentað mörgum, sem eru með tví- eða þrískiptan rekstur. Á baklóð sem er malbikuð er mikið pláss td. fyrir gáma, hlutdeild í byggingarétti. HVALEYRARBRAUT - 220 HAFNRARF. Erum með í sölu vel staðsett atvinnuhúsnæði á tveimur hæðum á góðri hornlóð. Húsið selst í heilu lagi eða í smærri einingum frá 270 til 1.080 m2 Húsið er með góðri lofthæð, 4 innkeyrsludyrum og 4 göngu- dyrum, tvær á hvorri hæð. Stór lóð og gott auglýsingargildi. OPIÐ VIRKA DAGA FRÁ KL 09:00 -18:00 Olof Mellberg: Með hreina samvisku EM Í FÓTBOLTA Olof Mellberg, fyrir- liði sænska landsliðsins í knatt- spyrnu, segir að Ítalir geti einung- is sjálfum sér um kennt fyrir að hafa fallið úr leik á EM í fyrradag. 2-2 jafntefli Svía við Danmörku þýddi að Ítalir gátu ekki komist áfram þótt þeir sigruðu Búlgara, sem þeir og gerðu, og hafa verið uppi raddir um að Norðurlanda- þjóðirnar hafi ákveðið úrslitin fyrirfram. „Þessar samsæriskenn- ingar eru bara rugl. Það eru liðin sjálf sem stjórna því hvort þau komast áfram eða ekki. Ítalir gerðu einfaldlega ekki nóg til að fara áfram.“ ■ ÓÁKVEÐINN Bixente Lizarazu gefur hér eiginhandaráritanir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.