Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 24.06.2004, Blaðsíða 4
4 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR Fékk fullan stuðning fjölskyldunnar: Ótrúlegur léttir að heyra dómsorðið DÓMSMÁL „Það var ótrúlegur léttir að heyra dómsorðið. Ég vissi að ég hafði ekki gert neitt rangt og það var léttir að dómurinn hafi séð það líka,“ segir Auður Harpa Andrés- dóttir, sem var sýknuð af ákæru á hendur henni í Landssímamálinu, í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær, og verða málsvarnarlaun verjanda hennar greidd úr ríkissjóði. Auður er mjög þakklát Brynjari Níelssyni lögmanni sínum og allri fjölskyldu sinni sem hefur staðið eins og klettur við bakið á henni á meðan þessar hörmungar dundu yfir. „Fyrst þegar ég lenti í þessu máli fannst mér eins og það væri ekki að gerast og beið eftir að þetta yrði leiðrétt. En þegar ákæran var þingfest fattaði ég að þetta væri ekki bíómynd heldur líf mitt,“ segir Auður og bætir við að lenda í svona sé ansi þungbært fyrir manneskju með hreina sakaskrá. Þá vill hún þakka sjónvarpsstöðvunum, Frétta- blaðinu og Morgunblaðinu fyrir að dæma hana ekki fyrirfram og halda nafnleynd. „Ég er ótrúlega hamingjusöm því núna get ég haldið áfram með líf mitt sem hef- ur verið í biðstöðu í gegnum þetta allt saman.“ Verjandi Auðar segir að hann hafi aldrei átt von á öðru en sýknu, annað hafi hreinlega ekki komið til greina. ■ Hlaut fjögurra og hálfs árs fangelsi Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, var dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir fjárdrátt í Héraðsdómi Reykjavíkur. Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson voru dæmdir í tveggja ára fangelsi og Ragnar Orri Benediktsson í átta mánaða fangelsi. DÓMSMÁL Sveinbjörn Kristjánsson, fyrrum aðalféhirðir Landssímans, var í Héraðsdómi Reykjavíkur í gær dæmdur í fjögurra og hálfs árs fangelsi fyrir um 261 milljónar króna frádrátt í starfi. Árni Þór Vigfússon og Kristján Ragnar Kristjánsson voru dæmdir í tveggja ára fangelsi fyrir hylmingu með því að veita um 138 milljónum króna viðtöku og halda fénu ólöglega fyrir Sveinbjörn. Ragnar Orri Benedikts- son var dæmdur í átta mánaða fang- elsi fyrir hylmingu. Auður Harpa Andrésdóttir, fimmti sakborningur- inn í málinu, var sýknuð. Þeir Sveinbjörn, Árni Þór og Kristján Ragnar mættu ekki í rétt- arsal til að hlýða á dómsuppkvaðn- ingu. Rúmlega 246 milljón króna bótakröfu Landssímans var vísað frá dómi. Kristján Ragnar og Árni Þór ætla að áfrýja dómnum. Sig- mundur Hannesson, verjandi Ragn- ars Orra, segir dóminn vera strang- an og hann hafi komið sér í opna skjöldu. Hann sagði Ragnar ekki hafa tekið ákvörðun um hvort dómnum yrði áfrýjað. Óvíst er hvort Sveinbjörn muni áfrýja en bæði hann og verjandi hans eru staddir í útlöndum. Sveinbjörn var fundinn sekur um fjárdrátt sem hann játaði ský- laust fyrir dómi. Hann dró sér og öðrum fjármuni sem hann hafði í sinni vörslu sem aðalféhirðir Lands- símans. Sveinbjörn neitaði sök í ein- um ákærulið sem lýtur að þátttöku- gjöldum í Skjálftamótum Landssím- ans. Hann játaði fjárdráttinn en taldi um tíu milljón króna upphæð sem tiltekin var ekki vera rétta. Dómnum þótti hins vegar ekki ástæða til að ætla að fjárhæðin sem tilgreind var í ákæru væri röng. Árni Þór og Kristján Ragnar sögðu báðir fyrir dómi að þeir hefðu haft þá trú að Sveinbjörn hefði haft heimildir til að ráðstafa fé Lands- símans til þeirra og félaga í þeirra eigu. Dómurinn leit hins vegar til þess að upphæðirnar, sem runnu til Árna Þórs og Kristjáns og félaga tengdum þeim frá Landssímanum, voru stórfelldar. Yfirfærsla fjárins frá Landssímanum hafi staðið í um þrjú ár og að í engu tilvika hafi ver- ið gengið frá undirritun lánsskjala eða rætt um ábyrgðir eða trygging- ar. Þá bárust þeim aldrei skrifleg gögn um skuldastöðu og þeir gerðu enga tilraun til að halda utan þær fjárhæðir sem þeir fengu frá Landssímanum. Einnig segir að ekki hafi verið skilað skattskýrslu fyrir félag þeirra, Alvöru lífsins, síðan árið 1998 og hafi það verið til þess fallið að leyna viðtöku fjárins. Þótti dóminum framburður þeirra Árna og Kristjáns engan veginn fá staðist. Þó að í upphafi hafi þeir kunnað að líta á greiðsl- urnar sem lán gat þeim ekki dulist að Sveinbirni var óheimilt að ráð- stafa fé Landssímans með fyrr- greindum hætti. Ragnar Orri var sakfelldur fyrir hylmingu og peningaþvætti á um 32 milljónum króna. Dómurinn segir að honum hafi átt að vera heimild- arleysi Sveinbjörns ljóst. Auður Harpa Andrésdóttir var sýknuð í málinu en hún var ákærð fyrir peningaþvætti á þremur millj- ónum króna og verða 330 þúsund króna málsvarnarlaun hennar greidd úr ríkissjóði. Sveinbirni var gert að greiða verjanda sínum 450 þúsund króna málsvarnarlaun. Árni Þór þarf að greiða sínum verjanda 700 þúsund krónur auk annarra 700 þúsunda vegna réttargæsluþóknunar. Kristján Ragnar þarf að greiða sín- um verjanda eina og hálfa milljón og Ragnar Orri verjanda sínum 400 þúsund krónur. Annan sakarkostnað eiga fjórmenningarnir að greiða sameiginlega. hrs@frettabladid.is Eiga Íslendingar erindi í öryggis- ráð Sameinuðu þjóðanna? Spurning dagsins í dag: Á að taka upp skólagjöld í framhalds- skólum? Niðurstöður gærdagsins á visir.is 53% 47% Nei Já KJÖRKASSINN Farðu inn á visir.is og segðu þína skoðun visir.is Viðbrögð við morði á gísl: Aftaka fordæmd SEÚL, AP Þjóðarleiðtogar víðs vegar um heiminn fordæmdu í gær morðið á suðurkóreska gíslinum Kim Sun-il í Írak. Stjórnvöld í Japan og Ástralíu, sem staðið hafa við bak Bandaríkja- manna síðan ráðist var inn í Írak, hró- suðu suðurkóreskum stjórn- völdum fyrir að neita að mæta kröfum mannræningjanna um að hætta yrði við fyrirhugaðan flutning hersveita til Íraks. Hópur íslamskra hryðju- verkamanna hefur lýst yfir ábyrgð á aftökunni. Sami hópur tók Bandaríkjamann af lífi í síðasta mánuði og hótar nú að ráða forsætisráðherra írösku bráðabirgðastjórnarinnar af dögum. ■ Samkeppnisráð: Skaðlegum áhrifum eytt VIÐSKIPTI Samkeppnisráð telur, að með sölu Skífunnar til ótengds aðila, það er Tæknivals, verði skaðlegum áhrifum sam- runa verslunarsviðs hins síðar- nefnda og Norðurljósa á sam- keppni eytt, að því er segir í fréttatilkynningu frá Sam- keppnisstofnun. „Með sölunni er verulega dregið úr markaðshlutdeild samrunaaðila og það forskot sem Skífan óhjákvæmilega naut vegna tengsla við hljóðvarps- og sjónvarpsrekstur Norðurljósa er ekki lengur fyrir hendi,“ segir samkeppnisráð. ■ Dómur eins og búast mátti við: Dómurinn er einsdæmi DÓMSMÁL „Þetta er þungur dómur og sá þyngsti sem kveð- inn hefur verið upp í auðgun- arbrotamáli fram að þessu. Fjögurra og hálfs árs fangelsi er einsdæmi,“ segir Jón H. Snorrason, yfirmaður efna- hagsbrotadeildar ríkislög- reglustjóra og saksóknari í Landssímamálinu. Jón sagði fyrstu viðbrögð við dómnum vera í sjálfu sér engin. Málið hafi verið lagt fyrir dómstóla til umfjöllunar og þetta hafi verið niðurstaða dómsins og hún verði skoðuð. „Dómurinn er í samræmi við það sem við töldum og máttum telja að gæti orðið niðurstaða dómstóla,“ segir Jón. „Maður er aldrei ánægður þegar fólk er dæmt í fangelsi,“ segir Jón aðspurður um hvort hann hafi verið ánægður þegar hann heyrði dómsorðið kveðið upp. Hann sagðist ekki hafa haft tíma né aðstöðu til að átta sig á ástæðum þess að bóta- kröfu Landssímans hafi verið vísað frá. Bótakrafan hafi verið skýrð af hálfu lögmanns Landssímans. Jón segir það ríkissak- sóknara að ákveða hvort ákæruvaldið muni áfrýja dómnum og svo geti hinir dæmdu einnig áfrýjað. ■ JÓN H. SNORRASON Jón segir það í höndum ríkis- saksóknara að ákveða hvort ákæruvaldið áfrýjar. RAGNAR ORRI BENEDIKTSSON AÐ LOKINNI DÓMSUPPKVAÐNINGU Sigmundur Hannesson, verjandi Ragnars Orra, segir dóminn vera strangan og hann hafi komið sér í opna skjöldu. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA AUÐI HÖRPU VAR MIKIÐ LÉTT ÞEGAR DÓMURINN VAR KVEÐINN UPP Auður segir að það hafi verið þungbært fyrir hana að dragast inn í þetta mál. Við þingfestingu áttaði hún sig á að þetta væri ekki bíómynd heldur líf hennar. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.