Fréttablaðið - 24.06.2004, Page 6

Fréttablaðið - 24.06.2004, Page 6
6 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR IÐNAÐUR Bandaríski stálpípufram- leiðandinn IPT hefur tilkynnt bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ að fyrirtækið sé á lokastigum í samningum við stóran evrópskan banka um að leiða lánsfjármögn- un stálpípuverksmiðju í Helgu- vík. Um verður að ræða atvinnu fyrir nær 200 manns. Gert er ráð fyrir að fjármögn- unarferlið taki nú 4-5 mánuði og í framhaldi af því verði hafist handa við byggingu verksmiðj- unnar. Suðurkóreska fyrirtækið Daewoo er yfirverktaki verk- smiðjunnar og samhliða samning- um við bankann segjast forsvars- menn IPT vera að ganga frá samningum við Daewoo. Þetta kemur fram í frétt frá bæjaryfirvöldum í Reykjanesbæ. IPT hafi nýverið rætt við ís- lenska banka um lánsfjármögnun og fengið jákvæð svör um hluta fjármögnunar. Í framhaldi af því var rætt við erlenda banka og nið- urstaða þeirra viðræðna hefur skilað sér í samkomulagi við virtan evrópskan banka um að leiða lánsfjármögnun. Í framhaldi af viljayfirlýsingu hins erlenda banka, sem nú liggur fyrir, verður gengið frá fjármögn- unarsamningi. Gert er ráð fyrir að unnið verði að þeim verkefnum næstu 4-5 mánuði en í framhaldi af því verði hægt að hefjast handa við byggingu verksmiðjunnar á nýju ári. Bygging IPT-stálpípuverk- smiðjunnar í Helguvík kostar um fimm milljarða króna. ■ Öllum nýnemum tryggð skólavist Málefni framhaldsskólanna skýrast endanlega í ágúst. Nemendur sem hafa fengið neikvætt svar frá skóla geta vænst því að það breytist. Fáir eldri nemendur fá neitun ef nokkur. Ráða þarf fleiri kennara. Aukafjárveiting hefur verið tryggð. FRAMHALDSNÁM Fjöldi grunnskóla- nemenda sem sótti um framhalds- skólavist næsta vetur kom menntamálaráðuneytinu í opna skjöldu. Allt að 98% árgangs- ins sótti um sem er meiri ásókn en búist var við. Sam- kvæmt tölum hagstofunnar er það um 5–7% aukning frá árinu 2002, auk þess sem tæplega 500 fleiri skipa þennan árgang en þann síð- asta. Fjölgunin er ánægjuleg, segir menntamála- ráðherra. Stjórnendum fram- haldsskólanna var tilkynnt um aukna fjárveitingu að upphæð 250 milljónir króna í gær. „Núna er meginmál okkar að koma öllum inn í skólana og þess vegna að fara út í það að setja upp lausar kennslustofur ef svo ber við,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamálaráð- herra. „Í morgun hefur mennta- málaráðuneytið verið í sambandi við skólameistara og tilkynnt þeim það að það eigi að vera opið fyrir alla nýnema grunnskólanna og við séum búin að tryggja fjár- magn fyrir þetta ár í fjárauka- lögum.“ Þorgerður segir að reynt verði að tryggja öllum eldri nem- endum skólavist. „Ég sé fram á það að það verði fáir sem koma til með að standa fram af borðinu. Við komum að öllum líkindum til með að leysa það mál líka.“ Nemendur sem hafa fengið neikvætt svar frá skólum sem þeir völdu sem fyrsta kost geta átt von á að því verði breytt. Þeir hafa þá hugsanlega fengið inni í öðrum skóla. Það verður til þess að hringamyndun fer af stað þeg- ar nemendurnir skipti. „Í ágúst verður þetta endanlega komið á hreint,“ segir Þorgerður. Ingibjörg Guðmundsdóttir, formaður félags framhaldsskóla og skólameistari Kvennaskólans, segir ráðningu kennara fyrir næsta vetur vera næsta verkefni framhaldsskólanna í ljósi fjölda nemendanna: „Þetta gerist ekki á einum degi að koma þessu heim og saman.“ Ingibjörg segir að einum bekk hafi verið bætt við hjá Kvennaskólanum sem leysi vanda 30 nýnema til viðbótar. Um 105–110 nýnemar sem sótt hafi um hjá Kvennaskólanum auk 20 lengra komna komist ekki að í haust. gag@frettabladid.is ,,Núna er meginmál okkar að koma öllum inn í skólana og þess vegna að fara út í það að setja upp lausar kennslustofur ef svo ber við. GENGI GJALDMIÐLA Bandaríkjadalur 72.55 Sterlingspund 132.0 Dönsk króna 11.8 Evra 87.70 Gengisvísitala krónu 123,33 0,00% KAUPHÖLL ÍSLANDS Fjöldi viðskipta 216 Velta 385.45 milljónir ICEX-15 2.946 -0.34% Mestu viðskiptin Össur hf. 111.868 Íslandsbanki hf. 42.055 Kaupþing Búnaðarbanki hf. 41.714 Mesta hækkun Kaldbakur hf. 2.22% Hlutabréfasj.r Búnaðarb. 0.95% Fjárfestingafélagið Atorka 0.88% Mesta lækkun Jarðboranir hf. -4.44% Marel hf. -4.36% Flugleiðir hf. -1.89% ERLENDAR VÍSITÖLUR DJ * 10.395,07 0,20% Nasdaq * 1.994,15 0,37% FTSE 4.486.70 0,4% DAX 3.945,10 0,4% S&P * 1.134,41 0,05% * Bandarískar vísitölur kl. 17. VEISTU SVARIÐ? 1Hvað heitir nýútkomin ævisaga BillsClinton? 2Hversu margir hafa sótt um að fá aðhefja nám í framhaldsskólunum í haust? 3Hversu mikið hefur úrvalsvísitalaKauphallar Íslands hækkað síðan um áramót? Svörin eru á bls. 47 FR ÉT TA B LA Ð IÐ /G VA VERKSMIÐJA RÍS Á myndinni má sjá undirbúning á svæðinu þar sem stálpípuverksmiðjan á að rísa. BELTISLAUSIR STÖÐVAÐIR Fjórir ökumenn voru teknir fyrir að keyra án öryggisbelta og tveir fyrir að tala í gsm-síma undir stýri af lögreglunni í Keflavík í gær. Þá var ökumaður kærður fyrir of hraðan akstur á Reykja- nesbrautinni fyrir ofan Njarðvík- urafleggjara. Hann var á 96 kíló- metra hraða. Lögreglan segir öku- menn ekki átta sig á að þar sé leyfilegur hraði aðeins 70 kíló- metrar á klukkustund. Ökumaður- inn á von á 20 þúsund króna sekt. ■ LÖGREGLUFRÉTTIR Fjármögnun stálpípufyrirtækis í Helguvík á fulla ferð: Veitir um 200 manns atvinnu ÞORGERÐUR KATRÍN GUNNARSDÓTTIR „Mér finnst það mjög jákvætt viðsfangsefni fyrir mig sem menntamálaráðherra að sjá þessa miklu ásókn í menntun, bæði í framhaldsskólum og háskólum. Sú stefna sem við höfum verið að setja fram, að hvetja fólk til þess að læra, er greinilega að bera árangur.“ FÆRRI TAKA FRÍ FRÁ NÁMI Samkvæmt vef Hagstofunnar fór skóla- sókn 16 ára nemenda í fyrsta sinn yfir 90% árið 2002. Þá stunda fleiri eldri nemendur nám í framhaldskólum nú en áður og hefur 19 ára nemendum fjölgað um 6% á þriggja ára tímabili, 1999–2002, og 17 ára nemendum um 5% á sama tíma.

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.