Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 34
Það var í galleríi á rue Lafitte í París
á þessum degi árið 1901 sem Pablo
Picasso opnaði fyrstu sýningu sína,
en sú gata er þekkt fyrir sín virðu-
legu gallerí. Hann var einungis 19
ára þegar sýningin var og lítið þekkt-
ur utan Barcelona en hafði þegar
málað hundruð málverka. Á þessari
fyrstu sýningu hans héngu uppi 75
verka hans og sýndu þau að augljós-
lega var á ferðinni ungur en mjög
hæfileikaríkur listamaður.
Picasso fæddist í Malaga á Spáni
árið 1881 og hélt sína fyrstu einka-
sýningu einungis 13 ára. Síðar
hætti hann í listaskóla, áður en til
útskriftar kom, til að geta einbeitt
sér að því að þróa nýjan nútímastíl
í myndlist sinni. Hann hélt í sína
fyrstu för til Parísar árið 1900 og
sneri aftur ári síðar með 100 verka
sinna, ákveðinn í að finna einhvern
sem vildi taka þau til sýningar. Þar
var hann kynntur fyrir Ambroise
Vollard, listaverkasala sem hafði
stutt við bakið á Paul Cézanne og
Vollard, sem samþykkti strax að
sýna verk Picasso í galleríi sínu eft-
ir að hann hafði litið verkin augum.
Fáir gagnrýnendur sáu þessa
fyrstu sýningu hans af fjölbreyttu
myndefni, allt frá götumyndum til
landslaga, gleðikvenna til hátt-
settra kvenna, en allir rómuðu þeir
verk Picassos. Hann afréð að dvel-
ja í París það sem eftir lifði árs og
sneri síðar aftur til borgarinnar
með það í huga að setjast þar að.
Picasso lést árið 1973, þá 91 árs. ■
PABLO PICASSO
Mynd þessi var tekin af listamanninum á
vinnustofu hans í Montparnasse í París
með verkum sínum.
Stórmenni í listasögunni stígur á stokk
„Ég sá auglýsingu um starfið og
fannst hún það áhugaverð að ég
gat ekki sleppt því að sækja um.
Þetta er áhugavert málefni og
skemmtileg vinna,“ segir Hildur
Sverrisdóttir, sem ráðin var sem
starfsmaður V-dags samtakanna,
sem eru samtök gegn ofbeldi gegn
konum. Hún er fyrsti launaði
starfsmaður samtakanna en fé-
lagsmálaráðuneyti og dóms- og
kirkjumálaráðuneyti veittu þeim
styrk til að halda úti starfsmanni í
eitt ár. „Öryggi kvenna er merki-
legur málstaður og það eru for-
réttindi að fá að berjast fyrir því.“
Í mars tilkynntu V-dags sam-
tökin og Félag framhaldsskóla-
nema um samstarf sitt til næstu
fimm ára og í framhaldi af því var
ákveðið að halda V-daginn í fram-
haldsskólum. Samtökin hafa verið
áberandi fyrir verslunarmanna-
helgar, með áróður gegn nauðgun-
um og segir Hildur að undirbún-
ingur fyrir næstu verslunar-
mannahelgi sé hafinn.
„Við ætlum að einblína á ger-
endurna og halda herferðinni frá
því fyrir tveimur árum til streitu
og beina sjónum okkar að ungu
fólki og nauðgunum og þá sérstak-
lega að vina- eða kunningjanauðg-
unum. Við völdum vinanauðganir
því þær eru svo algengar. Það má
nefna að á síðasta ári komu 155
konur til Stígamóta og af þeim
voru 83 sem var nauðgað af vini
eða kunningja. En þetta eru bara
konur sem komu til Stígamóta og
því má gera ráð fyrir að þær séu
fleiri.“
Auglýsing samtakanna, Ertu
vinur í raun, sem beinir sjónum að
þessu vandamáli, hefur vakið
mikla athygli og hlaut hún meðal
annars fyrr á árinu Lúðurinn,
verðlaun auglýsenda, í flokki al-
mannaheilla.
Forréttindi að berjast fyrir öryggi kvenna
HILDUR SVERRISDÓTTIR
Fyrsti starfsmaður V-dags samtakanna, sem
undirbúa árlega herferð gegn nauðgunum
um verslunarmannahelgi.
26 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR
■ AFMÆLI
SHERRY STRINGFIELD
Leikkonan sem betur er þekkt sem dr.
Susan Lewis, læknirinn góðkunni úr
Bráðavaktinni, er 37 ára í dag.
24. JÚNÍ
Pétur H. Blöndal þingmaður er 60 ára í
dag.
Leifur Breiðfjörð myndlistarmaður er
59 ára í dag.
„Undanfarið höfum við verið að
kynna möguleika ungs fólks
hérlendis til að taka þátt í rann-
sókninni og búa um borð í skút-
unni í nokkra daga,“ segir Sig-
ursteinn Másson, talsmaður
IFAW, alþjóða dýraverndunar-
sjóðsins, en samtökin senda
mikinn útbúnað hingað til lands
í sumar. „Dýraverndunarsjóð-
urinn áætlar að stunda neðan-
sjávarrannsóknir við strendur
Íslands og af því tilefni kemur
ný skúta með áhöfn frá Bret-
landi, Bandaríkjunum og Þýska-
landi til Íslands þann 1. júlí.“
Hópur af Íslendingum verð-
ur valinn til að taka þátt í rann-
sóknunum dýraverndunar-
sjóðsins. „IFAW greiðir allt
uppihald en íslenski hópurinn
sem verður fyrir valinu kemur
til með að stýra skútunni ásamt
vísindamönnum frá Bretlandi.“
Í skútuferðinni verður at-
ferli hvala á vestanverðu land-
inu rannsakað. „Þetta er fram-
hald af rannsóknum sem sam-
tökin hafa stundað síðan 1987
og hafa hlotið mikla athygli og
viðurkenningu. Sjóðurinn á öfl-
ugan myndagagnagrunn þar
sem er að finna bæði ljósmynd-
ir og lifandi myndir en nú
verða notaðir nýir sérútbúnir
sendar til að fylgjast með ferð-
um hvalanna og samskiptum
þeirra á milli.“
Í ferðinni verður fólk á ýms-
um aldri en leiðangursstjórinn
er Anna Moscrop. „Margir af
erlendu áhöfninni hafa ára-
langa reynslu af rannsóknum á
sjávarspendýrum en þeir ein-
staklingar sem verða valdir til
fararinnar koma til með að eiga
það sameiginlegt að hafa allir
áhuga á náttúru- og dýra-
vernd.“
Sigursteinn hefur unnið með
IFAW síðan íslensk stjórnvöld
ákváðu fyrir um ári síðan að
hefja hvalveiðar að nýju. „Ég
tel ekki rétt af Íslendingum að
stunda hvalveiðar og styð þau
sjónarmið að hvalirnir séu í öll-
um skilningi meira virði lifandi
en dauðir.“ ■
TÍMAMÓT
HILDUR SVERRISDÓTTIR
■ Starfsmaður V-dags samtakanna.
JÓMFRÚARFERÐ
SIGURSTEINN MÁSSON
■ Skúta á vegum alþjóða dýraverndunar-
sjóðsins kemur til landsins 1. júlí. Nokkrir
ungir Íslendingar fá að sigla með alþjóðlegri
áhöfn til að rannsaka atferli hvala.
24. JÚNÍ 1901
PABLO PICASSO
■ Fyrsta stóra sýningin á verkum
hans í París.
Innilegar þakkir til allra þeirra er auðsýndu okkur
samúð og vinarhug við andlát og útför elskulegs
föður okkar, tengdaföður, afa og bróður
GUNNARS EINARS LÍKAFRÓNSSONAR
Hringbraut 72a, Keflavík
Dóra Fanney Gunnarsdóttir Annel Jón Þorkelsson
Sigurlaug Kr. Gunnarsdóttir Daníel Eyþórsson
Gunnar Þór Gunnarsson
Sævar Jósep Gunnarsson Anna Bragadóttir
Dagfríður G. Arnardóttir Sigurvin Br. Guðfinnsson
barnabörn og systkini
Sérstakar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja.
Guð blessi ykkur öll
Innilegar þakkir fyrir samúð og hlýhug
vegna andláts og útfarar eiginmanns míns, föður
okkar, tengdaföður, afa (opa), bróður
GUÐMUNDAR ÁGÚSTSSONAR
Hagfræðings
Rekagranda 5, Reykjavík
Sérstakar þakkir eru færðar hjúkrunarþjónustu Karitas, starfsfólki göngudeildar
krabbameinssjúkra 11B á Landspítala, séra Sigfinni Þorleifssyni,
Sturlungahópnum svo og vinkonum á endurhæfingardeild Grensás
Moníka María Karlsdóttir
Kristján Guðmundsson Þóra Margrét Pálsdóttir
Stefán Ásgeir Guðmundsson Védís Skarphéðinsdóttir
Katrín Guðmundsdóttir Haukur Valgeirsson
Barnabörnin Lara Valgerður og Þór Valgarð
og systkini hins látna.
■ ANDLÁT
Friðþór Guðlaugsson, Illugagötu 49,
Vestmannaeyjum, lést laugardaginn 19.
júní.
Hulda Guðmundsdóttir, Hraunbæ 103,
Reykjavík, lést sunnudaginn 20. júní.
Rögnvaldur Jón Axelsson, Hraunbæ
52, Reykjavík, lést sunnudaginn 20. júní.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/I
FA
W
Í RANNSÓKNARFERÐ TIL ÍSLANDS
Nokkrir heppnum Íslendingum gefst kostur á að búa frítt í þessari splunkunýju skútu sem kemur hingað til lands í sumar á vegum Al-
þjóða dýraverndunarsjóðsins.
Rannsaka atferli hvala
við Íslandsstrendur
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/G
VA
■ JARÐARFARIR
13.30 Friðrik Lindberg Márusson, Háa-
leitisbraut 40, Reykjavík, verður
jarðsunginn frá Bústaðakirkju.
13.30 Guðrún Vilborg Guðmundsdóttir
verður jarðsett frá kapellunni í
Fossvogi.
13.30 Ingibjörg Árnadóttir, Espigerði 2,
Reykjavík, verður jarðsungin frá
Fríkirkjunni í Reykjavík.
13.30 Kristján Björn Samúelsson, Eyja-
bakka 22, verður jarðsunginn frá
Gufuneskirkju.
14.00 Unnur Jóhannsdóttir, Reykhóli,
Skeiðum, verður jarðsungin frá
Skálholtskirkju.
15.00 Grétar Ólafsson, læknir, Hvassa-
leiti 56, verður jarðsunginn frá
Fossvogskirkju.