Fréttablaðið - 24.06.2004, Síða 43
Róbert Aron Magnússon,
doktor í rappfræðum
„Platan heitir Murs 3:16 9th
Edition, rapparinn er Murs.
Þetta er gefið út Death Jux
útgáfunni og er samvinnuverk-
efni Murs og próduzersins 9th
Edition. Þetta er bara algjör
snilld.“
Ólafur Páll Gunnarsson,
Rás 2
„Það sem ég hef verið að
hlusta á er óútgefin plata frá
Skagamanninum Geir Harðar-
syni. Þetta er hans fyrsta plata
og mjög vel heppnuð. Hann
tók þátt í Roadworkstónleikunum um daginn. Orri
Harðarson, stjórnaði upptökum, þeir eru þó ekki
bræður. Ég veit ekki alveg hvenær hún kemur út. Svo
hefur Wilco-platan verið mikið fóninum, þar er mikið
af Neil Young.“
Benedikt Reynisson,
konungur undirdjúpanna
og umsjónarmaður
Karate, X-ið 977
„Ég hef verið að hlusta á tvær
síðustu breiðskífur hljómsveit-
arinnar Xiu Xiu. Þetta er
hljómsveit frá San Francisco
og er leidd af söngvaranum
og lagahöfundinum Jamie
Stewart. Nýjasta breiðskífan heitir Fabulous Muscles
og er jafnframt þeirra aðgengilegasta. Xiu Xiu spilar
kalt og melankólískt tilraunapopp. Rödd Jamie hljóm-
ar ekki ólíkt því ef röddum Morrisey, Robert Smith og
Ian Curtis yrði pakkað saman í
eina. Þetta er án efa fram-
sæknasta poppplata ársins.“
Sigvaldi Kaldalóns,
FM957
„Ég var að hlusta á plötuna
með J-Kwon. Hann er með vin-
sælt lag í dag sem heitir Tipsy.
Þetta er mjög töff plata, ekkert
voðalega mikið upp á yfir-
borðinu. Mér fannst hún mjög góð. Svo var ég að
hlusta á demó með Eamon, það var ágætt.“
Á HVAÐ ERU GRÚSKARARNIR AÐ HLUSTA?
Beastie Boys: To the 5
Boroughs
„Þetta er því blygðunarlaust afturhvarf í gamla
starfshætti. Þessi gamli hljómur er yfir allri plöt-
unni, þannig að fyrir vikið virkar hún góð sem
heild. Þetta er þó frekar erfið plata þegar allt
kemur til alls, og krefjandi.“
BÖS
Shai Hulud: That Within
Blood Ill-Tempered
„Oft hafa aðrar hljómsveitir þreytt sams konar stíl
og útkoman oftar en ekki orðið frekar grautkennd.
Shai Hulud nær hins vegar að bjóða upp á breiða
flóru í lagasmíðum sínum án þess að þreyta
hlustandann, eitthvað sem er greinilega ekki á
allra færi. Tónlist Shai Hulud er ævintýri líkast.“
SJ
Graham Coxon: Happiness in
Magazines
„Ég held barasta að við þurfum ekki að hafa
neinar áhyggjur af gleraugnagláminum honum
Graham. Að minnsta kosti gefa lokaorð plötunnar
það í skyn að hann hafi það bara fínt. Þar syngur
hann af einlægni við fallegt og einfalt píanóstef og
gítarspil; „Life, I Love You“. Fallegur endir á góðri
plötu.“
BÖS
Slipknot: Vol. 3 (The Sublim-
inal Verses)
„Það sem stendur upp úr er tilraunamennska Slip-
knot á Vol. 3, eitthvað sem sveitin hefur ekki leyft
sér áður. Slipknot nær ekki að fullkomna stíl sinn
á þessari plötu en Vol. 3 lofar þó góðu fyrir það
sem koma skal.“
SJ
Mike Pollock: World Citizen
„Pollock hittir mun betur í mark með kassagítarinn
í hendi. Þar eru bestu lög Great Spirit, Lost &
Found og Dreaming. Ekki má heldur gleyma enskri
útgáfu hans á gamla Megasarlaginu Lóa Lóa þar
sem saxófónninn fær að njóta sín á skemmtilegan
hátt. Rolling Stones-lagið No Expectations kemur
einnig vel út í flutningi Pollocks. Plötunni lýkur
síðan með kórsöng á trúarlegu nótunum, sem er
fínn endahnykkur á ágætis plötu.“
FB
Sufjan Stevens: Seven Swans
„Ef það er heitt úti, logn, fuglarnir að syngja og
ekkert annað hægt að gera en að liggja í sólinni
og vera latur... þá er þetta hárrétt plata til þess að
henda í gin geislaspilarans. Svo sá ég tvo svani
elskast á tjörninni um daginn... þó að það hafi
bara tekið þá um 20 sekúndur að njóta hvers
annars, þá var það falleg sjón. Við hæfi hefði verið
að hafa þessa tónlist í eyrunum þá.“
BÖS
Morrissey: You Are the Qu-
arry
„Það er ótrúlega ljúft að heyra rödd Morrissey
aftur og yndislegt að hann skuli skila af sér góðri
plötu. Jú, jú, hún hljómar á köflum svolítið útrunn-
in tónlistarlega en fínar lagasmíðar, einlæg tjáning
og fyrsta flokks textasmíðar bæta upp fyrir það.“
BÖS
Earth Affair: Chapter One
„Chapter One er fyrst og fremst þægileg plata sem
líður ljúft í gegn. Mismunandi áhrifum er blandað
vel saman þannig að úr verður fín heild. Þeim sem
vilja mikið stuð og jafnvel frumleika gæti fundist
hún átakalítil og óspennandi en fyrir þá sem vilja
vandaða og margslungna plötu sem gælir við eyr-
un er hún fyrirtaks gripur.“
FB
Gomez: Split the Difference
„Ég þori að fullyrða að þeir sem hafa heillast af
fyrri plötum Gomez, sérstaklega þeirri fyrstu, eiga
eftir að falla kylliflatir fyrir þessari, enda hljómar
hún eiginlega nákvæmlega eins. Ég hins vegar
fékk þessa sömu tilfinningu og þegar maður sér
sæmilegt upphitunarband fyrir stórsveit sem mað-
ur er búinn að bíða spenntur eftir að sjá í áraraðir.
Kannski er það bara málið, þetta er „bara
sæmileg“ tónlist og ekkert meira en það?“
BÖS
Snow Patrol: Final Straw
„Þetta er plata sem heillar við fyrstu hlustun, en
svo rennur ljóminn örlítið af henni við ítrekaða
hlustun, því miður, og vil ég kenna einsleitum
lagasmíðum um. Snow Patrol sýnir alla burði í það
að vera hið athyglisverðasta band.“
BÖS
Faultline: Your Love Means
Everything
„Önnur plata Faultline er ekki bara fín, heldur
mjög fín. Kjörin plata til þess að setja á fóninn rétt
áður en maður leggst upp í rúm svo tónlistin geti
leitt mann í draumaheiminn með bros á vör.“
BÖS
Avril Lavigne: Under My Skin
„Á annarri plötu sinni tekur Avril enga sénsa. Lög á
borð við My Happy Ending, Nobody’s Home og
Forgotten eru nægilega góð til þess að tryggja
áframhaldandi vinsældir hennar. Að mínu mati
gefur platan þó of svipaða mynd af hæfileikum
stúlkunnar til þess að vera áhugaverð. Henni liggur
nú svo sem ekkert á, er bara 19 ára og á eflaust
eftir að svamla um á meginstraumnum um
ókomin ár.“
BÖS
Daysleeper: Daysleeper
„Það sem vantar hjá Daysleeper er að hljómsveitin
finni sinn eigin hljóm og hætti að flakka á milli
ólíkra stíla. Það fer samt ekki á milli mála að sveit-
in getur samið góð lög og Sverrir á fína spretti
sem söngvari þó að stundum virki hann dálítið
vælugjarn. Vonandi er Daysleeper á réttri leið en
næsta plata mun skera úr um hvort eitthvað meira
verði úr. Hún hefur alla burði til þess að eflast enn
frekar en þarf fyrst að finna fjölina sína betur.“
FB
Killswitch Engage: The End of
Heartache
„Mér nánast sveið undan gæsahúðinni sem ég
fékk af lögum eins og titillaginu þar sem samein-
ing melódíu og eiturþétts spileríis er svo vel
útfærð að maður stendur orðlaus yfir herleg-
heitunum. Ég fullyrði að Killswitch Engage er eitt
skæðasta rokkband heims í dag og ef þessi plata
verður toppuð í ár, þá verða rokkarar ekki á
flæðiskeri staddir. Þessi plata er fullkomin.“
SJ
Rúnar Júlíusson: Trúbrotin 13
„Trúbrotin 13 er lagasarpur héðan og þaðan ásamt
nokkrum frumsömdum lögum Rúnars. Eins og
titillinn bendir til finnur Rúnar trú sinni farveg á
plötunni og rifjar upp nokkra sálma sem eru í
uppáhaldi. Ó þá náð að eiga Jesúm og Ástarfaðir
himinhæða eru sérstaklega minnisstæð, virkilega
falleg lög bæði tvö sem njóta sín vel í flutningi
Rúnars. Rúnar Júlíusson á hrós skilið á mörgum
vígstöðvum og er þessi plata engin undantekning.
Einlægnin skín í gegn.“
SJ
Birgir Örn Steinarsson
Freyr Bjarnason
Smári Jósepsson
ÞAR SEM ÍSLENDINGUM
FINNST SKEMMTILEGAST AÐ DJAMMA
K
Ö
-H
Ö
N
N
U
N
/
P
M
C
LAUGARDAG 26. 06.’04
PAPAR
HINIR EINU SÖNNU
FYRSTU 200 FÁ FRÍTT INN
HÚSIÐ OPNAR KL. 11
HÚSIÐ OPNAR KL. 11
20% afsláttur fyrir korthafa VISA
FÖSTUDAG 25. 06.’04
OG FRÍTT G&T Á BARNUM
WWW.JAGUAR.IS
FYRSTU 200 FÁ FRÍTT INN
FIMMTUDAGUR 24. júní 2004 35
MORRISSEY
Stórsöngvarinn Morrissey var einn þeirra
sem var heiðraður af Mojo-tónlistar-
tímaritinu í London á fimmtudag. Hér sést
hann mæta til veislunnar, virðist ekkert
vera alltof kátur kallinn.
[ SMS ]
UM NÝJUSTU PLÖTURNAR
SHAI HULUD
Harðkjarnasveitin Shai Hulud hélt tónleika
hér á landi í gamla sjónvarpshúsinu á
þjóðhátíðardaginn. Síðasta plata þeirra,
That Within Blood Ill-Tempered,
er plata vikunnar.
PLATA VIKUNNAR