Fréttablaðið - 24.06.2004, Síða 47
■ TÓNLIST
SKRAUTLEG CHER
Söngkonan Cher er á tónleikaferð um þessar mundir sem verður hennar síðasta. Hér sést
hún skrautlega klædd á tónleikum sínum í Moskvu á dögunum.
39FIMMTUDAGUR 24. júní 2004
FRÉTTIR AF FÓLKI
■ SÖNGLEIKUR
www.ils.is
Peningar í
stað húsbréfa
Frá og með 1. júlí 2004 gefst
viðskiptavinum Íbúðalánasjóðs kostur á
að taka peningalán, gegn ÍLS-veðbréfum.
Hægt verður að taka ÍLS-lán til 20, 30
eða 40 ára og heimilt verður að stytta
eða lengja lánstímann samkvæmt reglum
sem Íbúðalánasjóður mun setja þar að
lútandi.
Vextir hinna nýju ÍLS-lána munu verða
ákveðnir mánaðarlega og verða fyrst
kynntir 1. júlí næstkomandi.
Íbúðalánasjóður býðst til að skipta samtals (eins og fram kemur hér fyrir neðan í hverjum
flokki fyrir sig) allt að hámarksmagni útistandandi skuldabréfa í 1., 2., 3. og 4. flokki hús-
og húsnæðisbréfa fyrir ný íbúðabréf á gjalddaga í febrúar 2024, í 5. og 6. flokki fyrir ný
íbúðabréf á gjalddaga í apríl 2034 og í 7. flokki fyrir ný íbúðabréf á gjalddaga í júní 2044.
Flokkur Skiptanleg skuldabréf ISIN-númer Hámarksmagn
sem tekið verður við
1 IBN 20 á gjalddaga 01/01/2020 IS0000001154 100%
2 IBH 21 á gjalddaga 15/01/2021 IS0000001063 85%
3 IBH 22 á gjalddaga 15/12/2022 IS0000001071 85%
4 IBH 26 á gjalddaga 15/03/2026 IS0000004927 85%
5 IBH 37 á gjalddaga 15/12/2037 IS0000001097 85%
6 IBN 38 á gjalddaga 01/01/2038 IS0000001162 100%
7 IBH 41 á gjalddaga 15/03/2041 IS0000004935 85%
Frá 28.-30. júní býðst eigendum húsbréfa að skipta á þeim fyrir hin nýju,
markaðsvænu ÍLS-veðbréf. Hafðu samband við banka þinn, sparisjóð eða verðbréfa-
fyrirtæki og fáðu ráðgjöf vegna þessa.
Ef magnið sem boðið verður í einhverjum flokki fer fram úr því hámarksmagni sem tekið verður við verða
beiðnir vegna þess flokks lækkaðar hlutfallslega, eins og lýst er í minnisblaði um skuldabréfaskiptin.
Endanlegt skiptaverð verður tilkynnt þann 28. júní. Stefnt er að uppgjöri þann 7. júlí 2004.
Bankar, sparisjóðir og verðbréfafyrirtæki sjá um milligöngu skiptanna.
Borgartún 21, 105 Reykjavík,
sími: 569 6900, fax 569 6800, www.ils.is
Áttu húsbréf?
Breytt Íbúðalánasjóðslán
N
O
N
N
I O
G
M
A
N
N
I I Y
D
D
A
•
1
2
5
9
9
/sia
.is
Britney Spears hefur trúlofastkærasta sín-
um, dansaran-
um Kevin
Federline, þrátt
fyrir hörð mót-
mæli ófrískrar
fyrrum kærustu
hans. Þetta yrði
annað brúð-
kaup Spears, en
hjónaband
hennar og vinar
hennar Jason Alexander entist í 72
klukkustundir. Parið undirbýr nú
heljarinnar veislu sem á að fara
fram einhvern tímann á næstu
mánuðum.
Leikkonan Winona Ryder mætti ísíðasta skiptið fyrir dómara á
föstudag. Stúlk-
an hefur skilað
af sér 480
klukkustundum
í vinnu fyrir
samfélagið og
lækkaði dómarinn brot hennar í
smáglæpi á sakaskrá hennar vegna
þessa. Hún var handtekin fyrir búð-
arhnupl í desember 2001 og dæmd
í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi
í desember 2002. Winona var kurt-
eis og þakkaði dómaranum fyrir
tíma sinn.
Madonna, já... eða Esther einsog hún vill láta kalla sig núna,
hvatti aðdáendur sína til þess að
fara að sjá nýjustu heimildarmynd
Michael Moore, Fahrenheit 9/11.
Söngkonan hefur nýtt
sér sviðstíma sinn á
núverandi tónleika-
ferð til þess að hvetja
fólk til þess að
fara í bíó á mynd
Moore. Leikstjór-
inn mætti svo
baksviðs á eina
tónleika hennar á
dögunum til þess
að þakka fyrir
stuðninginn.
Og meira um Michael Moore.Leikstjórinn segist hafa fengið í
hendurnar myndefni af bandarísk-
um hermönnum að níðast á írösk-
um föngum, mánuðum áður en
efnið komst í hendurnar á blaða-
fólki. Hann íhugaði það lengi að
setja það í heimildarmynd sína
Fahrenheit 9/11 en hætti við. Hann
segist hafa óttast það að fjölmiðlar
myndu ráðast á sig með þeim ásök-
unum að hann væri að ráðast gegn
bandarískum hermönnum.
Bókagagnrýn-andi hjá New
York Times segir
ævisögu Bills
Clinton merkilega
leiðinlega. Hann
segir söguna sjálf-
umglaða og það
sé greinilegt að
Clinton sé ekki að
tala til lesandans, heldur til sjálfs
sín. Í bókinni fjallar Clinton um leið
sína í forsetastólinn, Monicu
Lewinski málið og hjónaband sitt.
Breski leikarinn Orlando Bloomvar valinn kynþokkafyllsti leikari
þjóðarinnar í nýlegri skoðanakönn-
um sem Sky
Movies lét gera á
dögunum. Þá þótti
hann eftirsóknar-
verðari en Ewan
McGregor, Jude
Law og Hugh
Grant svo fáeinir
séu nefndir.
Tónlistarmaðurinn Sir Elton John
segir að söngleikur sinn, Billy
Elliot, endurspegli líf sitt að miklu
leyti. Söngleikurinn er byggður á
samnefndri kvikmynd sem naut
mikilla vinsælda. Kvikmyndin,
sem Stephen Daldry leikstýrði,
fjallar um ungan dreng sem vill
verða ballettdansari en mætir
mikilli andstöðu frá föður sínum.
„Þegar ég sá myndina fannst
mér sagan svo hrífandi vegna
þess að ég gat tengt sjálfan mig
við hana. Samband mitt við föður
minn var svipað og hjá Billy og
föður hans,“ sagði John. „Ég var
alltaf að reyna að sanna eitthvað
fyrir honum. Samband mitt við
föður minn var líka stirt þegar ég
var að vaxa úr grasi, en það lag-
aðist á endanum. Saga Billy
minnir á mitt eigið líf.“
Söngleikurinn hefur göngu sína
í Bretlandi í nóvember. Enn hefur
ekki verið ákveðið hver komi til
með að leika Billy Elliot. ■
AP
/M
YN
D
Elton líkir
sér við Elliot
ELTON JOHN
Samband Eltons við föður sinn var stirt þegar hann var að vaxa úr grasi.