Fréttablaðið - 24.06.2004, Page 50
42 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR
PÉTUR PAN kl. 3.40 M/ÍSL. TALIETERNAL SUNRISE kl. 5.40 og 10.30
DAYAFTER TOMORROW kl. 5.20, 8 og 10.40
VAN HELSING kl. 5.40, 8 og 10.20 TROY kl. 6 og 9
MORS ELLING kl. 6 og 8
SÝND kl. 6 og 9
DREKAFJÖLL kl. 3.45 M/ÍSL. TALI
TROY kl. 8 B.I. 14
EUROTRIP kl. 4, 6, 8 og 10.10
VAN HELSING kl. 5.30 B.I. 12
SÝND kl. 5.45, 8 og 10.15
SÝND kl. 4, 5, 7, 8 og 10 M/ENSKU TALI
SÝND kl. 3.40, 5.50, 8 og 10.15 SÝND kl. 5.20, 8 og 10.40 B.I. 16
SÝND Í LÚXUS kl. 5.20, 8, og 10.40
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
H.L. Mbl.
HHH
Kvikmyndir.com
HHH
Kvikmyndir.is
HHH1/2
kvikmyndir.is
Þær eru illgjarnar.
Hún er ný.
Og fljótlega
fær hún alveg
nóg af þeim.
SÝND kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 B.I. 12
SÝND Í LÚXUS VIP kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10
HHH1/2
kvikmyndir.is
Tom Hanks er einhver útsmognasti,
klárasti, færasti og mest heillandi
afbrotasnillingur sem nokkru sinni
hefur REYNT glæp aldarinnar.
HHH1/2
kvikmyndir.is
HHH
S.V.Mbl.
Tom Hanks er einhver útsmognasti,
klárasti, færasti og mest heillandi
afbrotasnillingur sem nokkru sinni
hefur REYNT glæp aldarinnar.
HHH
Ó.H.T. Rás 2
HHH
H.L. Mbl.
HHH
Kvikmyndir.com
HHH
Kvikmyndir.is Frá framleiðanda Spiderman
FRÉTTIR AF FÓLKI
SKIPULAGS- OG BYGGINGARSVIÐ
Hlemmur og næsta umhverfi,
deiliskipulagsvinna
Skipulags- og byggingarnefnd Reykjavíkur
hefur samþykkt að unnin verði tillaga að
deiliskipulagi Hlemms og næsta umhverfis.
Tilefni þessarar vinnu eru m.a. áform Strætó
bs. um breytingar á leiðarkerfi almennings-
vagna sem krefst breytinga á skipulagi
umferðar um svæðið auk þess sem gert er ráð
fyrir að Hlemmur verði endastöð sex stofn-
leiða. Samkvæmt hugmyndum sem leiða-
kerfisbreytingarnar hafa í för með sér er m.a.
gert ráð fyrir að loka Hverfisgötu milli Snorra-
brautar og Rauðarárstígs fyrir almennri umferð
til að almenningsvagnar komist fyrir í götu-
stæðinu. Þá er gert ráð fyrir að lega Lauga-
vegar á svæðinu austan Rauðarárstígs
breytist. Auk breytinga á umferðarkerfi
svæðisins tekur deilskipulagið til húsanna
innan reits sem afmarkast af Laugavegi til
suðurs, Snorrabraut til vesturs, Hverfisgötu til
norðurs og Rauðarárstíg til austurs. Gert er
ráð fyrir að heimilað verði að hækka og
stækka húsin að Hverfisgötu 112, 112A og
114 til samræmis við önnur hús á reitnum.
Hægt er að nálgast nánari upplýsingar og
drög að deiliskipulagi svæðisins í upplýsinga-
skála skipulags- og byggingarsviðs að
Borgartúni 3 eða á vefsíðu stofnunarinnar
http://skipbygg.is. Er þeim sem hafa ábend-
ingar eða athugasemdir varðandi skipulag
svæðisins bent á að koma þeim skriflega á
framfæri til skipulagsfulltrúa, skipulags- og
byggingarsviði Borgartúni 3, 105 Reykjavík,
eða á tölvupósti á tölvupóstfangið jsk@rvk.is
fyrir 3. júlí nk. Að þeim tíma liðnum verður
unnin tillaga að deiliskipulagi svæðisins sem
auglýst verður til kynningar í samræmi við
ákvæði skipulags- og byggingarlaga.
Reykjavík, 22. júní 2004,
skipulagsfulltrúi Reykjavíkur.
Lagið Over the Rainbow úr mynd-
inni The Wizard of Oz frá árinu 1939
hefur verið valið besta kvikmynda-
lag sögunnar af Bandarísku kvik-
myndastofnuninni. Samanstendur
hún af 1.500 leikurum, kvikmynda-
gerðarmönnum, gagnrýnendum og
fleiri áhrifamönnum í Hollywood.
Það var Judy Garland í hlutverki
sveitastúlkunnar frá Kansas,
Dorothy Gale, sem söng lagið svona
eftirminnilega. Lagið As Time Goes
By úr Casablanca lenti í öðru sæti og
Singin’ in the Rain úr samnefndri
mynd í því þriðja. Listinn nær yfir
100 lög en alls voru 400 tilnefnd.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Over
the Rainbow hlýtur titil sem þennan
því árið 2001 var lagið valið það
besta á síðustu öld ásamt White
Christmas í flutningi Bing Crosby.
Listasamtök Bandaríkjanna og Sam-
tök upptökustjóra stóðu að því vali.
„Lagið á skilið að vinna. Það er
eitt af þessum stórkostlegu lögum,“
sagði tónlistarmaðurinn Burt
Bacharach. „Tilfinninganæmur
flutningur Judy Garland er ótrúleg-
ur. Ég fæ gæsahúð í hvert sinn sem
ég hlusta á það.“ Bacharach á sjálf-
ur tvö lög á listanum. Annars vegar
Raindrops Keep Falling on My Head
(23. sæti) úr Butch Cassidy and the
Sundance Kid og Arthur’s Theme
(Best That You Can Do) (79. sæti) úr
gamanmyndinni Arthur.
„Kvikmyndir og tónlist eru svo
innilega tengd saman. Jafnvel áður
en hljóð kom í kvikmyndir voru lög
látin hljóma undir þöglu myndun-
um,“ sagði Bob Gazzale hjá Banda-
rísku kvikmyndastofnuninni. Elsta
lagið sem komst á listann er Isn’t It
Romantic (73. sæti) úr myndinni
Love Me Tonight frá árinu 1932, í
flutningi Maurice Chevalier og
Jeanette MacDonald. Nýjustu lögin
eru aftur á móti All That Jazz (98.
sæti) úr myndinni Chicago í flutn-
ingi Catherine Zeta-Jones og Renee
Zellweger og Lose Yourself (93.
sæti) úr 8 Mile með rapparanum
Eminem. ■
Over the Rainbow besta lagið
BESTU KVIKMYNDALÖGIN:
1. Over the Rainbow — The Wizard of Oz
2. As Time Goes By — Casablanca
3. Singin’ in the Rain — Singin’ in the Rain
4. Moon River — Breakfast at Tiffany’s
5. White Christmas — Holiday Inn
6. Mrs. Robinson — The Graduade
7. When You Wish Upon a Star — Pinocchio
8. The Way We Were — The Way We Were
9. Staying Alive — Saturday Night Fever
10. The Sound of Music — The Sound of Music
M
YN
D
A
P
■ KVIKMYNDIR
JUDY GARLAND
Söng- og leikkonan Judy Garland í hlutverki Dorothy Gale syngur Over the Rainbow í
myndinni The Wizard of Oz. Lagið hefur verið valið besta kvikmyndalag allra tíma.
Liv Tyler á von ásínu fyrsta barni
í vetur. Barnsfaðir
hennar er eigin-
maður hennar Roy-
ston Langdon úr
bresku hljómsveit-
inni SpaceHog.
Parið gifti sig í mars
og hefur víst verið í
barneignarhugleið-
ingum síðan þá.
Val Kilmer gerði gysað kollega sínum
Brad Pitt fyrir að sam-
þykkja að leyfa tölvusér-
fræðingum að ýkja
vöðva sína fyrir myndina
Troy. Hann gerir lítið úr
því að Pitt hafi pumpað lóðin fyrir
tökur myndarinnar og fullyrðir að
vöðvarnir hafi verið tölvuteiknaðir að
mestu. Kilmer segir að Pitt sé við-
kunnanlegur gæi þrátt fyrir að hann
sé algjör aumingi.
AÐ MÍNU SKAPI
BARÐI JÓHANNSSON tónlistarséní
Frábær satanísk tónlist
TÓNLISTIN ÞAR SEM ÉG ER AÐ
GERA TÓNLIST VIÐ GAMLA HRYLL-
INGSMYND ÞESSA DAGANA HLUSTA
ÉG MEST Á ÁHRIFSTÓNLIST ÚR GÖML-
UM BÍÓMYNDUM. HELST ER ÞAÐ TÓN-
LISTIN ÚR MYNDINNI SUSPIRIA Í
FLUTNINGI HLJÓMSVEITARINNAR
GOBLIN. ÞETTA ER FRÁBÆR SATANÍSK
TÓNLIST FRÁ 1977. EINNIG HEF ÉG
VERIÐ AÐ HLUSTA Á SCORIÐ ÚR
MYNDINNI PROFONDO ROSSO EFTIR
SAMA BAND. ERU ÞETTA HVORT
TVEGGJA MYNDIR EFTIR ÍTALSKA
SNILLINGINN DARIO ARGENTO.
BÓKIN ÉG HEF EKKI LESIÐ BÓK Í
MÖRG ÁR. ÉG HELD AÐ SÍÐASTA BÓK-
IN SEM ÉG KLÁRAÐI HAFI VERIÐ ÞEG-
AR ÉG VAR Í ÍSLENSKU Í HÁSKÓLAN-
UM. ANNARS ER ÉG MEÐ TVÖ KVIK-
MYNDAHANDRIT SEM ÉG ÆTLA AÐ
LESA UM LEIÐ OG TÍMI GEFST.
BÍÓMYNDIN EFTIR AÐ HAFA KEYPT
GRÍÐARLEGT MAGN DVD-MYNDA ÞEG-
AR ÉG FÓR TIL L.A. FYRIR TVEIMUR
VIKUM HEF ÉG EKKI HAFT TÍMA TIL AÐ
HORFA Á NEMA TVÆR ÞEIRRA. ÞAÐ
ERU ÞÆR VAMPYRES SEM ER VAMP-
ÍRUMYND FRÁ 1974 OG ER FREKAR LÉ-
LEG EN ALLT UMHVERFI, LITIR OG
BÚNINGAR ERU SNILLD. HIN ER GIRL
ON A MOTORCYCLE SEM ER SÝRU-
MYND FRÁ 1968 MEÐ MARIANNE
FAITHFULL OG ALAIN DELON. ÞESSI
MYND ER ALGJÖR SNILLD. ANNARS SÁ
ÉG ÞAR Á UNDAN „HEAVY METAL
PARKING LOT“ SEM ER HEIMILDAR-
MYND UM GLYSROKKTÍMABILIÐ. ER
ÞAR MIKIL PERLA Á FERÐ.
BORGIN ÞESSA DAGANA ERU ÞAÐ
L.A. OG REYKJAVÍK SEM HEILLA MEST.
BÚÐIN APPLE IMC OG ÁTVR.
VERKEFNIÐ ÉG MUN SPILA SATAN-
ÍSKA SCORIÐ SEM ÉG ER AÐ GERA Í
BÍÓI Í PARÍS Á LAUGARDAGINN. MÉR
TIL AÐSTOÐAR VERÐUR HRESSANDI
FÓLK, JÓHANN HJÖLL, ROLAND OG
OLGA. ERU ÞAU HVERT ÖÐRU MEIRA
HRESSANDI. SVO MUN ÉG DJ-A Í EFT-
IRPARTÍI FRAM UNDIR MORGUN. EFT-
IR ÞAÐ ER ÞAÐ FESTIVALATÚR MEÐ
BANG GANG... OG SVO.....OG SVO...
FRÉTTIR AF FÓLKI
Yfirmenn United Airlines vonast nútil að nýjasta kvikmynd Tom
Hanks og Catherine Zetu-Jones slái
í gegn. Flugfélagið
hefur átt undir
högg að sækja í
nokkurn tíma og
þar sem það kem-
ur ríkulega við
sögu í myndinni
vonast þeir til að
vinsældir myndar-
innar verði til þess
að viðskiptavina-
fjöldi þeirra stæk-
ki. Myndin fjallar
um rússneskan ferðamann sem
neyðist til þess að búa á John F.
Kennedy-flugvelli í New York eftir að
borgarastyrjöld brýst út í heimaland-
inu. Myndin náði ekki toppsætinu á
frumsýningarviku sinni, sem voru
vonbrigði fyrir leikstjórann Steven
Spielberg.
Kynlífsmyndband sem talið er aðsé með Jennu Lewis, sem tók
þátt í Survivor: All-Stars-þáttunum
ekki alls fyrir löngu, er komið í dreif-
ingu á netinu. Í
myndbandinu
er hin 26 ára
Lewis sögð
sjást í ýmsum
v a f a s ö m u m
s t e l l i n g u m
ásamt módel-
inu Travis
Wolfe. Ekki er
vitað hvernig
m y n d b a n d i ð
komst á netið
en þau hafa
bæði neitað að
hafa tekið þátt í dreifingu þess. Þess
má geta að Lewis og Wolfe, sem er
21 árs, giftu sig á dögunum eftir að
hafa verið saman í sex vikur.
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/R
Ó
B
ER
T