Fréttablaðið - 24.06.2004, Qupperneq 54
Eigum vonandi eftir að
„feimast“ í allt sumar
„Ég vann að samevrópsku verk-
efni í vetur sem tekur á ofbeldi og
lýðræði í skólum. Þetta var unnið
fyrir Evrópuráðið í ótal löndum
um alla Evrópu,“ segir Eyrún
Björg Magnúsdóttir, sem stundar
nám við Fjölbrautaskóla Suður-
lands.
Eyrún var valin til að fara til
Strassborgar í sumar en höfundar
bestu verkefnanna munu sækja
ráðstefnu þar sem unnið verður
skipulag fyrir framhaldsskólanna
sem taka þátt. „Verkefnið snerist
um það að meta hversu virkt lýð-
ræðið er í skólanum og hversu
meðvitaðir kennarar og nemend-
ur eru um réttindi sín og skyldur.
Í tengslum við það er síðan skoðuð
tíðni ofbeldis.“ Eyrún er ein af
eldri nemendunum, eins og hún
orðar það, en hún sneri aftur í
framhaldsskólann eftir nokkurra
ára hlé. „Ég hætti í skóla þegar ég
átti börnin mín og er nú orðin 25
ára.“ Eyrún á tvíburana Tristan
Magna og Isabellu Mist og segir
hún ganga ágætlega að sameina
uppeldið og námið. „Ég hef mikið
meiri metnað nú en áður en tím-
inn til heimavinnunnar er bara
takmarkaður og ég verð því að
skipuleggja mig betur. Það má
segja að skólinn hafi þá aðeins
verið grín en nú er ég í honum til
að læra.“
Eyrún á eitt ár eftir í FSu og
stefnir þá í frekara nám. „Verk-
efnið tengist áhugasviði mínu en
mig langar að leggja stjórnmála-
fræði fyrir mig þegar ég útskrif-
ast. Það er auðvitað ánægjulegt að
verkefninu hafi verið tekið svona
vel og það er mikill bónus að fá að
fara út og fylgja því eftir.“ ■
EYRÚN BJÖRG
Hún vann verkefni um virkni lýðræðis
í framhaldsskólum í vetur. Hún er nú
á leið til Strassborgar til að fylgja
verkefninu eftir á evrópskri ráðstefnu.
46 24. júní 2004 FIMMTUDAGUR
... fá Eiríkur Guðmundsson og
Þröstur Helgason fyrir að gefa út
minningarbók um Matthías Viðar
Sæmundsson, sem hefði orðið 50
ára í gær.
HRÓSIÐ
„Við byrjuðum snemma á
dansæfingum og erum komin í
mjög gott form,“ segir leikkonan
Álfrún Helga Örnólfsdóttir.
Söngleikurinn Fame verður
frumsýndur í Smáralind í kvöld
og þar ætlar hún að gera garðinn
frægan ásamt öðru hæfileika-
fólki.
Fame segir frá sorgum og
sigrum í skólagöngu ungra lista-
nema. „Þetta byrjar á fyrsta
skóladegi og endar á útskriftar-
daginn þremur árum seinna. Ég
leik Sigríði leiklistarnema sem
tekur námið ekkert sérstaklega
alvarlega til að byrja með,“ seg-
ir Álfrún. „Hún verður skotin í
bekkjarfélaga sínum Hilmari
Snæ, sem er leikin af Jónsa, en
hann er svo djúpt sokkin í leik-
listarpælingarnar að hann hefur
engan áhuga á stelpum og fer
bara í vörn þegar Sigríður sýnir
honum einhverjar tilfinningar.
Það er stiklað á stóru á þessum
þremur árum en Sigríður breyt-
ist mjög mikið á þessu tímabili
og finnur sig bæði sem mann-
eskju og leikkonu.“
Álfrún útskrifaðist sjálf úr
listaskóla fyrir ári síðan og segir
sumt í leikritinu svipa til eigin
skólagöngu. „Því miður var ekki
mikið um að fólk brysti óvænt út
í söng og ballettdans á göngum
skólans sem ég var í úti í London
en vissulega minnir margt í leik-
ritinu á skólagönguna. Þarna er
til dæmis að finna einstaklinga
sem hafa mjög mikla athyglis-
þörf og svo heyrir maður frasa
frá kennurunum sem maður
kannast við eins og til dæmis
það að maður eigi aldrei að biðj-
ast afsökunar á sér í leikhúsinu
jafnvel þó maður geri mistök.“
Sex þúsund miðar hafa nú
þegar verið seldir á söngleikinn
Fame og greinilegt að mikil eftir-
vænting ríkir. „Það er mjög góð
stemning fyrir þessu og í leik-
hópnum er mikil spenna, gleði og
kraftur. Fame er blanda af
skemmtilegum lögum, kraft-
miklum dansi og mátulega mikilli
skírskotun í íslenskan raunveru-
leika. Það voru áhorfendur á
rennslum bæði í gær og fyrradag
og það gefur manni aukakraft
hvað allir virðast hrifnir,“ segir
Álfrún og bætir við. „Við erum til
í slaginn og eigum vonandi eftir
að „feimast“ í allt sumar.“ ■
FRUMSÝNING
ÁLFRÚN HELGA ÖRNÓLFSDÓTTIR
■ segir listaskólann í Fame minna á
eigin skólagöngu þó ekki hefði verið
algengt að samnemendur hennar brystu
óvænt út í söng og ballettdans.
EVRÓPUVERKEFNI
EYRÚN BJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
■ er á leið til Strassborgar í sumar á
vegum Evrópuráðsins. Verkefni sem
hún vann í vetur var valið eitt af bestu
verkefnunum sem unnin voru af fram-
haldsskólanemendum í Evrópu.
FAME
Sumarsöngleikurinn verður frumsýndur í kvöld í Vetrargarðinum í Smáralind en nú þegar hafa sex þúsund manns pantað miða á söngleikinn.
Meira en fjórðungur allra
Íslendinga er með
háþrýsting og um 40%
Íslendinga um sextugt,
en tíðni hans eykst með
hækkandi aldri.
Hvernig er
blóð-
þrýstingurinn?
LH-mjólkurdrykkurinn
er fersk, sýrð
mjólkurvara.
Lífvirku
peptíðin
í honum geta
hjálpað til við
stjórn á blóðþrýstingi.
Sjá nánar á www.ms.is
Náttúruleg hjálp við
stjórn á blóðþrýsting
i
H
V
ÍT
A
H
Ú
S
IÐ
/
S
ÍA
Laugavegi 32 sími 561 0075
Aðstandendur Metallica-
tónleikanna hafa fengið leyfi til
þess að hleypa fleiri inn á tón-
leika stórsveitarinnar Metall-
ica þarnæstu helgi. Þrjú þús-
und aukamiðar verða settir í
sölu, bæði í svæði A og B, sem
þýðir að ef þeir seljast upp
verða 18 þúsund manns á staðn-
um.
Tónleikarnir hafa vakið sér-
staka athygli innan herbúða
Metallica og hingað ætlar nán-
ast allt starfslið þeirra að
mæta, en það gerist nánast
aldrei. Þetta ætti að koma sér
vel fyrir þær íslensku sveitir
sem hita upp fyrir rokkrisana
en nýlega var staðfest að auk
Mínus mun rokksveitin Brain
Police stíga á stokk.
Þetta verður síðasta stopp
Metallica í Evrópu og því endir
á löngu og ströngu tónleika-
ferðalagi fyrir sveitina.
Aukamiðarnir verða settir í
sölu á laugardag. Þeir fást í
verslunum OgVodafone í Síðu-
múla og á Akureyri. Auk þess
verður hægt að kaupa miða á
farfuglinn.is. ■
Bónus að fara til Strassborgar
METALLICA
Íslensku þungarokksveitirnar Mínus og
Brain Police fá að hita upp fyrir goðin sín.
TÓNLIST
METALLICA
■ 15.000 miðar á tónleika Metallicu
seldust upp á augabragði. Tónleika-
haldarar hafa nú fengið leyfi til að selja
3000 miða til viðbótar þannig að allt útlit
er fyrir að um 18.000 Íslendingar
komi saman í Egilshöll 4. júlí.
3000 aukamiðar á Metallica
FR
ÉT
TA
B
LA
Ð
IÐ
/B
JÖ
RG
V
IG
FÚ
SD
Ó
TT
IR