Fréttablaðið - 09.07.2004, Blaðsíða 10
10 9. júlí 2004 FÖSTUDAGUR
NOKKUR MEIÐSL Í PAMPLONA
Ofurhugar héldu í gær áfram að freista
gæfunnar við að hlaupa á undan nautun-
um í Pamplona á Spáni. Nokkrir slösuðust
lítillega og tveir fengu höfuðáverka.
Barnaverndarstofa:
Breyttar reglur um
styrkt fóstur
FÉLAGSMÁL „Þarna er ekki um
stórvægilegar breytingar að
ræða heldur meira verið að upp-
færa núgildandi reglur,“ segir
Bragi Guðbrandsson, forstjóri
Barnaverndarstofu, en embættið
hefur sent félagsmálaráðuneyt-
inu drög að nýrri reglugerð um
fóstur.
„Helsta breytingin felst í út-
víkkun á hugtakinu styrkt fóstur
sem var nýmæli í barnaverndar-
lögum frá árinu 2002. Í þeim lög-
um var opnað fyrir möguleikann á
að börn sem glíma við sálræn eða
geðræn vandkvæði verði unnt að
setja í svokölluð styrkt fóstur og
er þá um að ræða talsvert hærri
greiðslur fyrir sem Barnavernd-
arstofa hefur heimild til að
greiða.“
Bragi segir þetta gert til að
fjölga þeim úrræðum sem í boði
eru. „Fram til þessa hefur kostn-
aður fallið að mestu á sveitarfé-
lögin en þar hafa menn kosið að
vista börnin á meðferðarstofnun-
um sem þýðir aftur að ríkinu ber
þá að greiða allan kostnað. Þar
sem slíkt er mögulega ekki alltaf í
bestu þágu barnsins var ákveðið
að opna þennan möguleika.“ ■
DÓMSMÁL Tekið var fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur í gær opinbert
mál á hendur Jóni Árna Rúnars-
syni, fyrrum skólastjóra Rafiðn-
aðarskólans í Reykjavík og
tengdra skóla. Jóni er gefið að sök
að hafa á árunum 1994 til 2001
dregið sér tæpar 29 milljónir
króna af svonefndu eftirmenntun-
argjaldi sem ganga átti til rekst-
urs skólans frá vinnuveitendum í
rafiðnaði. Þá er Jóni Árna einnig
gefið að sök að hafa sem skóla-
stjóri Viðskipta- og tölvuskólans í
Faxafeni, svikið skólann um 450
þúsund krónur með því framvísa
falsaðri kvittun fyrir móttöku á
málverki eftir Kára Eiríksson.
Hann er sagður hafa breytt upp-
hæð hennar úr 150 þúsund krón-
um í 450 þúsund krónur og „látið
færa andvirðið sér til tekna í bók-
haldi skólans, þrátt fyrir að
ákærði hafi tekið við málverkinu
fyrir hönd skólans hjá forsvars-
mönnum Rammamiðstöðvarinnar
sem greiðslu á skólagjöldum eins
nemanda skólans,“ eins og segir í
ákæru. Brotin eru talin varða við
155. og 248. grein almennra hegn-
ingarlaga og er í ákæru krafist
refsingar.
„Ég lýsi mig saklausan af báð-
um ákæruatriðum,“ sagði Jón
Árni fyrir dómi í gær. „Málið
snýst fyrst og fremst um launa-
deilu milli mín og endurmenntun-
ar rafeindavirkja.“ Hann sagði
greiðslurnar til hans sem helst
væri deilt um hafa verið inntar af
hendi með ávísunum stíluðum á
hann sjálfan. „Það er ólíklegt að
nokkrum gæti dottið í hug að
hægt væri að stunda fjárdrátt
með þeim hætti,“ bætti hann við.
Í einkamáli sem eftirmenntun-
arnefnd rafeindavirkja höfðaði á
hendur Jóni Árna í fyrra var hann
dæmdur til að endurgreiða nefnd-
inni um 32 milljónir króna sem
hann hafði tekið út af reikningi
hennar, en í sakamálinu á hendur
honum er einungis ákært fyrir
tæpar 28 milljónir þar sem hann
gat gert grein fyrir ráðstöfun
hluta peninganna í þágu Rafiðnað-
arskólans. Einkamálinu var áfrýj-
að til Hæstaréttar, þar sem það
bíður nú þar til niðurstaða fæst í
sakamálinu á hendur Jóni Árna.
Guðmundur Gunnarsson, for-
maður Rafiðnaðarsambandsins,
segir að til sanns vegar megi færa
að brugðist hafi ákveðið eftirlit
hjá eftirmenntunarnefndinni.
„Þeir treystu honum bara fylli-
lega og sannarlega tókst honum
að spila mjög ísmogið á kerfið
með því að sækja til stelpnanna á
innheimtudeildinni færslulista
fyrir alla reikninga sem greitt var
inn á, en halda svo eftir einum
færslulistanum þegar hann fór
með þá til endurskoðanda skóla-
kerfisins,“ sagði Guðmundur í
viðtali við blaðið, en hann var á
meðal fjölmargra vitna sem leidd
voru fyrir réttinn í gær. Málflutn-
ingur heldur áfram í dag.
olikr@frettabladid.is
– hefur þú séð DV í dag?
ÁTTA ÁRA
DRENGUR
SKILDI
EFTIR SIG
30 MILLJÓNIR
FORELDRARNIR DEILDU
GRIMMT UM PENINGANA
BRAGI GUÐBRANDSSON
Úrræðum gagnvart börnum sem glíma við sálræn eða geðræn vandamál verður fjölgað
með nýrri reglugerð sem liggur hjá félagsmálaráðuneytinu.
HÉRAÐSDÓMUR REYKJAVÍKUR
Fjöldi vitna kom fyrir Héraðsdóm Reykjavíkur í gær þegar málflutningur hófst í sakamáli
sem rekið er á hendur fyrrverandi skólastjóra Rafiðnaðarskólans og tengdra skóla fyrir
stórfelldan fjárdrátt sem sagður er hafa staðið yfir í átta ár.
Tæpar 30 milljónir
á átta árum
Fyrrverandi skólastjóri Rafiðnaðarskólans er ákærður fyrir stórfelldan fjár-
drátt á löngu tímabili. Eftirlit eftirmenntunarnefndar rafeindavirkja með
störfum Jóns Árna og fjárhagsumsýslu hans virðist hafa brugðist með öllu.
JÓN ÁRNI RÚNARSSON
Jón Árni er sagður hafa verið með laun
upp á um milljón krónur á mánuði hjá
skólum Rafiðnaðarsambandsins auk ann-
arra fríðinda, svo sem BMW bifreið sem
hann hafði til afnota.
FJÁRDRÁTTUR JÓNS ÁRNA
SAMKVÆMT ÁKÆRU LÖG-
REGLUNNAR Í REYKJAVÍK:
1994 2.825.959 kr.
1995 2.870.010 kr.
1996 3.013.833 kr.
1997 4.045.216 kr.
1998 4.146.203 kr.
1999 2.613.769 kr.
2000 5.296.783 kr.
2001 3.972.397 kr.
Samtals 28.784.170 kr.
Lögmenn málsaðila tókust á í dómssal í gær um hvort taka ætti inn
í dóminn vinnugögn lögreglu sem verjandi Jóns Árna Rúnarssonar
hafði fengið afhent fyrir mistök nýbyrjaðs ritara hjá lögreglunni í
Reykjavík. Guðjón Magnússon, sem sækir málið, var mjög á móti
því að gögnin yrðu tekin inn, en Reimar Pétursson, verjandi Jóns
Árna, sagðist myndu láta á málið reyna fyrir Hæstarétti. Niður-
staðan varð sú að Guðjón sagðist, til að tefja ekki framgöngu máls-
ins, fallast á að gögnin yrðu tekin inn. ■
Deilt um
vinnugögn lögreglu